Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 1

Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 1
PANS Frumkraftur einkennir sköpun bls. 16 STIÓRNIVIÁL Ossur vill í ESB KÖNNUN Velfull- nœgður skóli bls. 14 FRETTABLAÐIÐ 59. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500 Mánudagurinn 25. mars 2002 MANUDAGUR Breiðholt til umræðu funpir Borgarstjóri Reykjavíkur fund- ar í kvöld með Breiðhyltingum í Gerðubergi. Fund- urinn er liður í hverfafundum borgarstjóra þar sem rædd eru málefni hverfis og borgar. Fundur- inn hefst klukkan átta. Hvað kosta lyfin? könnun ASÍ birtir í dag niðurstöður nýrrar könnunar um lyf javerð. Iveðrið i' dag REYKJAVÍK Suðvestan 10 til 15 m/sek. Skúrir og sludduél. Hiti 1 til 4 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI ísafjörður 8-13 Éljagangur Oo Akureyri © 8-13 Skýjað Qo Egilsstaðir © 8-13 Léttskýjað Q 0 Vestmannaeyjar o 5-10 Slydda Q3 Ráðherrar sitja fyrir svörum ALÞINCI Allir ráð- herrar nema Geir Haarde, f jármála- ráðherra, verða viðstaddir óundir- búnar fyrirspurnir á Alþingi í dag. Þingfundur hefst kl. 15 og eru 20 frumvörp lögð fram af ráðherrum ríkisstjórnar á dagsskrá. Vellíðan á efri árum fyririestur Rann- sóknarmálstofa í félagsráðgjöf verð- ur haldin í dag í fundarherbergi fé- lagsvísindadeildar í Odda. Sigurveig H. Sigurðardóttir, fé- lagsráðgjafi og framkvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands, ræðir vellíðan á efri árum, áhrifaþætti og stefnumótun. Mál- stofan verður haldi í fundarher- bergi félagsvísindadeildar í Odda og hefst kl. 12.05. j KVÖLPID í KVÖLP j íþróttir 12 Skemmtanir 16 Bíó 14 Keypt & selt 18 Leikhús 16 Sjónvarp 20 Myndlist 16 Útvarp 21 NOKKRAR STADREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvaða blöð lesa 30 til 80 ára íbúar höfuðborgar-60 90/o svæðinu í dag? 'O 38 •5 Meðallestur 30 til 80 ára á mánudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2001 •£ > £ Q 70.000 eintök 65% fólks les biaðið MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001. Björgólfur íhugar að kaupa í Eddu Erfið Qárhagsstaða hjá Eddu-miðlun. Samningaviðræður í gangi um kaup Björgólfs Guðmundssonar á ráðandi hlut. viðskipti Unnið er að því að fá nýja eigendur að hluta Eddu-miðlunar. Staða fyrirtækisins er ekki góð. ís- landsbanki, sem á tæplega fjórð- ungshlut í fyrirtækinu, er tregur til frekari fyrirgreiðslu. Björgólf- ur Guðmundsson og aðilar tengdir honum vinna nú að því að kaupa ráðandi hlut. Hvort að af kaupun- um verður skýrist á allra næstu dögum. Fyrirtækið varð til við samein- ^ ingu Máls og menningar og Vöku-Helgafells. I upphafi skiptust eignarhlutarnir jafnt. í nóvember eignaðist Mál og menning meiri- Edda skuldar meðal annars öðrum bókaút- gefendum tals- verðar fjárhæðir. —♦— hluta í Eddu og á nú 56 prósent. Þá vantaði peninga vegna komandi jólavertíðar og erfitt reyndist að fá fyrirgreiðslu. Mál og menning jók eignarhlut sinn. Miklar væntingar voru vegna sameiningarinnar. Þær vonir hafa ekki gengið eftir. Meðal þess sem hefur reynst dýrarara og óhagkvæmara en ætlað var eru flutningar fyrirtækisins og rekst- ur Dreifingarmiðstöðvarinnar sem hefur gengið illa. Að óbreyttu stefnir í verulegan vanda hjá Eddu. Halldór Guð- mundsson forstjóri vildi ekkert segja þegar leitað var til hans. Ver- ið er að vinna að ársreikningi fé- lagsins. Forstjórinn vildi heldur ekkert segja um niðurstöður úr rekstrinum. Þegar fyrirtækin voru samein- uð var Vaka-Helgafell í vanda en staða Máls og mennningar var við- unandi. Flest hefur farið til verri vegar eftir sameininguna og skuld- ir hlaðast upp. Edda skuldar meðal annars öðrum bókaútgefendum talsverðar fjárhæðir. Innan þeirra raða gætir mikillar óánægju. Ekki síst þar sem bókaútgáfa og versl- anir Eddu eru reknar sem heild og því má færa rök fyrir því að pen- ingarnir sem aðrir útgefendur eiga í raun séu að hluta notaðir til að standa undir útgáfu Eddu. Þar með í samkeppni við aðra útgefendur. Sem fyrr segir voru forsvars- menn Eddu tregir til að tjá sig um þetta mál. Sama gildir um Björgólf Guðmundsson. Þó fékkst staðfest að niðurstaðna, um hugsanleg kaup Björgólfs, sé að að vænta á næstu dögum. Allir viðmælendur blaðs- ins tala um þetta mál sem við- kvæmt. Heimildir blaðsins herma að Edda hafi einnig leitað til ann- arra fjárfesta um að koma að fé- laginu. Mestar vonir eru bundnar við Björgólf. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fékkst ekki uppgefið hversu brýnn vandi Eddu er. sme@frettabladid.is FJÖLSKYLDAN í FJÖRUNNI Það er vinsælt að bregða sér í göngutúr úti í Gróttu á Seltjarnarnesi. Gærdagurinn var engin undantekning á því. Fjölmargir voru á ferð þar í gær á fyrsta degi dymbilviku, pálmasunnudegi. Stunginn með hnífi á Grettisgötu: AÐEINS Á MEÐAN ÉG BEIÐ Sveinn Valgeirsson var ekki stressaður þegar í stólinn var komið. Viltu vinna milljón: Blankur og fékk pottinn sigur „Ég var einfaldlega blankur eins og svo margir aðrir. Þess vegna ákvað ég að taka þátt í þessu,“ segir Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur á Tálknafirði, sem í gærkvöldi vann fimm milljónir í „Viltu vinna milljón." Sveinn er fyrstur til að vinna allan pottinn í þættinum en þrisvar hafa þátttak- endur farið heim með milljón. Sveinn segist ekki hafa þurft að taka mikið á og líklegast verið heppinn með spurningar. „Mér leið bærilega og var ekki mikið að stressa mig. Þátturinn rann áfram og áður en ég vissi af var hann bú- inn. Ég notaði alla möguleikana og hefði líklegast getað sleppt að hringja í lokin en vildi notfæra mér það fyrst ég átti þess kost.“ Sveinn hefur þjónað sem sókn- arprestur á Tálknafirði frá því hann var vígður fyrir sex árum og kann mjög vel við sig vestra. Bygging nýrrar kirkju stendur yfir og er ætlunin að vígja hana í maí í vor. „Ég er ákveðinn í að láta kirkj- una njóta peninganna með mér. Nýtt ljós á bílinn þarf ég líka að fá og vafalaust geri ég eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni. Ég ætla mér þó að fara hægt í sak- irnar og ekki að ana að neinu." ■ Látinn af völd- um stungusára lögreglumál Karlmaður um fimmtugt, sem hlaut alvarlega áverka eftir hnífsstungu á Grett- isgötu 6. mars síðastliðinn, lést í gærmorgun á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hafði maðurinn hlotið allmörg stungu- sár bæði á bol og höfði. Tæplega fertug kona situr í gæsluvarðhaldi grunuð um verknaðinn. Að sögn Harðar Jóhannessonar, yfirlög- regluþjóns, er of snemmt að segja hvaða stefnu málið taki, fyrst þurfi að skera úr um hvert bana- meinið hafi verið. Það var um hálftíuleytið mið- vikudagskvöldið 6. mars að til- kynning barst til lögreglunnar í Reykjavík að maður hefði verið stungin með hnífi á Grettisgöt- unni. Þegar lögreglan kom á stað- inn kom fljótlega í ljós að tæplega fertug kona, sem skráð var á sama heimilisfang og maðurinn, hafði átt hlut að máli. Vitni höfðu verið að atburðinum. Lögreglan hand- tók konuna og færði til yfir- heyrslu. Að því loknu var leitað til Héraðsdóms Reykjavíkur og beð- ið um gæsluvarðhald yfir kon- unni. Situr hún, eins og fyrr segir, enn í haldi. ■ | ÞETTA HELST | Bandaríkjamenn reyna til þrautar að stilla til friðar í Mið-Austurlöndum. bls. 2 Illa hefur verið staðið að út- flutningi lambakjöts til Evrópusambandsins. Fyrirtæki missa útflutningsleyfi við næsta brot. bls. 4 Gera þarf nýtt umhverfismat fyrir álver í Reyðarfirði breytist forsendur verulega. Nú- verandi mat kostaði 100 milljónir. bls. 4 Sjávarútvegsráðherra varar við því að menn geri sér vonir um að Island fái undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusam- bandsins við inngöngu í ÉSB. bls. 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.