Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 13

Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 13
MÁNUDAGUR 25. mars 2002 FRÉTTABLAÐIÐ Meistaradeild Evrópu: Þýskur eða spænskur úrslitaleikur? fótbolti Á föstudaginn var dregið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Sterkasti leikurinn er án efa milli Real Madrid, sem hefur unnið keppnina átta sinnum, og Bayern Múnchen, sem er núver- andi meistari. Madrid er núver- andi meistari á Spáni. Liðið vann Meistaradeildina fyrstu fimm tímabilin, 1956-60, og árin 1966, 1998 og 2000. Bayern vann þrisvar í röð árin 1974-76 og í fyrra. Hinir leikirnir eru milli gríska liðsins Panathinaikos og Barcelona, Deportivo de La Coruna og Manchester United og Liverpool og Bayer Leverkusen. Liverpool hefur unnið titilinn fjór- um sinnum. STÓR- LEIKUR Jean Foru- net-Fayard, yfirmaður hjá UEFA, dregur Bayern Miinchen upp úr pottinum á föstudag- inn. Liðið mætir Real Madrid í átta liða úr- slitum meistara- deildar. Knattspyrnusamband Evrópu dró einnig í undanúrslit keppninn- ar. Niðurstaðan úr drættinum er sú að möguleiki er á annaðhvort spænskum eða þýskum úrslitaleik. Manchester og Liverpool geta að- eins mæst í undanúrslitunum. Real Madrid eða Bayern Múnchen mæta Panathinaikos eða Barcelona, Deportivo eða Manchester mæta Liverpool eða Leverkusen. Fyrri leikir átta liða úrslita fara fram 2. eða 3. apríl. Seinni leikirnir 9. eða 10. apríl. Fyrri leikir undanúrslitanna fara fram 23. eða 24 apríl, seinni 30. apríl eða 1. maí. Úrslitaleikurinn fer síðan fram 15. maí á Hampden- leikvanginum í Glasgow í Skotlandi. ■ Evrópubikarinn: Tvöfalt frá Mílanó fótbolti Nágrannaliðin Inter- nazionale og AC Milan gætu mæst í úrslitaleik Evrópubikars- ins. Þau voru ekki dregin hvort á móti öðru í undanúrslitum keppn- innar. Inter mætir hollenska lið- inu Feyenoord. í hinum leiknum spila AC Milan og Borussia Dort- mund hvort á móti öðru. AC Mil- an og Inter deila saman San Siro leikvanginum í Mílanó. Undanúr- slitin eru sett á 4. og 11. apríl. Úr- slitaleikurinn fer fram á heima- velli Feyenoord í Rotterdam. ítölsk lið hafa unnið Evrópu- bikarinn átta af síðustu þrettán árum. Þau komust 10 sinnum af 11 skiptum í úrslitaleikinn á ár- unum 1989-99. Síðustu tvö ár hafa þau áður dottið úr keppni. Inter sló Valencia út á miðviku- daginn. Liðið hefur þrisvar sinn- um unnið keppnina, 1991, 1994 og 1998. Milan vann Hapoel Tel Aviv. Það hefur aldrei unnið þennan titil en borið fimm sinn- um sigur úr býtum í Meistara- bikarnum. Feyenoord vann PSV Eindhoven í vítaspyrnukeppni í átta liða úrslitunum. Það hefur einu sinni unnið Evrópubikarinn, árið 1974. Dortmund hefur aldrei hrósað sigri í keppninni. Liðið vann Meistarabikarinn árið 1997. ■ Mikið úrval af svefnsófum Ebac, franskir svefnsófar í hæsta gæða- flokki. Þeir einu sinnar tegundar með 18 fjölum og vandaðri dýnu. Verð tilboð kr. 54.000 Þessi kommóða B85 x D45 x H80 hentar vel með amerískum rúmum L50 x D29 x H78 Verð 9.600 Verð 32.000 Húsgögnin fást einnig í Húsgagnavali, Hornafirði, sími 478-2535, og Augsýn, Sunnuhlið 12, Akureyri, sími 462-1690. JSG Húsgögn • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 587 6090 • www.jsg.is IEI HEKLÁ® - í forystu dnýrri öld! HEKLA er skrásett vörumerki. Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Fleimasfða www.hekla.is • Netfang hekla@hekla.is ... að njóta bíls sem býr yfir einstökum aksturseiginleikum með aflstýri, frábærum vélarútfærslum, ABS hemlalæsivörn, ASR spólvörn, stafrænni aksturstölvu og góðu rými. Þín er ánægjan að eiga bíl með langtímaolíubúnaði, er upphækkaður frá verksmiðju með stálhlífðarpönnu undir vél fyrir íslenskar aðstæður, sinkhúðaðri yfirbyggingu með 10 ára ábyrgð gagnvart gegnumtæringu og tveggja ára ábyrgð frá framleiðanda. Komdu og reynsluaktu Skoda Octavia Ambiente sem er fáanlegur á aðeins kr. 1.630.000,- og þín er ánægjan! Þín er ánægjan að eignast fullkominn bíl sem færir þér allt þetta og svo miklu meira til á hreint ótrúlega góðu verði.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.