Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 12
12
FRETTABLAÐIÐ
25. mars 2002 MÁNUDAGUR
Esso-deildin:
Stórsigur
Framara
handbolti í gærkvöldi voru þrír
leikir í Esso-deildinni í handknatt-
leik karla. I Framhúsinu lagði
Fram, Víking, með stórsigri 34
mörk gegn 18 mörkum Víkings. Á
Selfossi tókust á lið Selfoss og ÍR.
Selfoss vann með 5 marka mun
27-22 og styrkir það heldur stöðu
liðsins sem á í harðri baráttu um
að komast í átta liða úrslit. Á
Varmá öttu kappi UMFA og
Stjarnan, og er skemmst frá því
að segja að afturelding lagði
Stjörnuna með 29 mörkum gegn
25. Með sigrinum skaust Aftureld-
ing upp fyrir FH og KA. ■
íbróttir
áSýn
25. mars -1. apríl
mán- Heklusport
fim kl. 22.30
þri KR - Njarðvik
Epson-deildin kl. 19.40
mið England - Ítalía
Landsleikur í knattspyrnu kl. 19.50
tös Newcastle - Everton
Enski boltinn kl. 13.45
lau Leeds - Man. Utd.
Enski boltinn kl. 11.30
Keflavík - Grindavik
Epson-deildin kl. 15.40
sun Washington •
(I. 20.00
Dallas
mán Tottenham - Leeds
Enski boltinn kl. 13.45
Blackburn - Southampton
Enski boltinn kl. 18.50
Æ}
*Jr
Meistaradeildin!
8 liða úrslit 2. og 3. april
Tryggðu þér áskrift!
www.syn.is / 515 6100 / Verslunum Skífunnar
Jókertölur
mlðvtkudags
5 7 8 1 2
Enska úrvalsdeildin:
Liverpool hefur
tekið forystuna
fótbolti Liverpool trónir á toppi
Níu leikir fóru fram í ensku úr-
valsdeildinni um helgina, en leik
Arsenal og West Ham United sem
fara átti fram á laugardag var
frestað. Arsenal bankar því nokk-
uð rækilega upp á þar sem liðið á
tvo leiki til góða.
í gær áttust við Liverpool og
Chelsea og Fulham og Tottenham
Hotspur. Segja má að fallbaráttu-
bragur hafi verið á leik Fulham og
Tottenham, en fyrir leikinn hafði
Fulham tapað fimm leikjum í röð,
meðan Tottenham hafði tapað fjór-
um í röð. Tottenham hafði betur og
vann leikin 2-0. Þá hafði Liverpool
betur í leiknum við Chelsea og
vann 1-0.
í öðrum leikjum helgarinnar
unnu Bolton Wanderers, Charlton
Athletic 2-1; Everton vann Derby
County 4-3 í fjörugum leik; jafn-
tefli varð í leik Ipswich Town og
Aston Villa; Leeds United unnu
Leicester City 2-0; Manchester
United laut í lægra haldi fyrir
Middlesbrough 1-0; og 1-1 jafntefli
varð í leik Sunderland og Sout-
hampton. ■
jÍÞRÓTTIR í PAGl
18.00 Sýn
Ensku mörkin.
19.00 Svn
ítölsku mörkin.
19.30 Skiár 1
Mótor
20.00 Sýn
Toppleikir
(Manchester Utd. - Liverpooi).
20.00 Körfubolti
Úrslitaleikur fyrstu deiidar karla.
Snæfell og Valur spila um öruggt
sæti i Úrvalsdeiid.
20.15 Körfubolti
ÍS og Grindavík mætast í úrslita-
keppni fyrstu deildar kvenna.
Leikurinn fer fram i Kennara-
háskólanum.
22.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn HM 2002.
22.30 Sýn
Heklusport
23.00 Sýn
Ensku mörkin.
Katalóníurallið:
Pannazi
sigursæll
kappakstur Gilles Panizzi fagnaði
nokkuð öruggum sigri fyrir Peu-
geot liðið franska í Katalóníurall-
inu á norðaustur Spáni sem lauk í
gær. Katalóníurallið er fjórða
keppnin í heimsmeistaramótinu.
Heildartími hans í rallinu var 3
tímar, 34 mínútur og 0.9 sekúndur.
Sigurinn í gær er annar sigur
Panizzis í heimsmeistaramótinu,
sem og hans annar sigur í röð, því
hann stóð uppi sigurvegari eftir
Korsíkurallið sem lauk fyrir 10
dögum síðan.
í öðru sæti, einnig fyrir Peu-
geot, var Richard Burns, 37.3 sek-
úndum á eftir Panizzi.
Finninn Marcus Gronholm,
sem einnig ekur fyrir Peugeot, er
enn stigahæstur í heimsmeistara-
keppninni eftir Katalóníurallið,
með 21 stig. Á hæla honum kemur
Panizzi með 20 stig og í þriðja
sæti kemur svo Richard Burns
með 13 stig. ■
Arnar fellur vel
inn í Stoke
Arnar hefur skorað fyrir Stoke í tveimur síðustu leikjum en liðið bland-
ar sér í toppbaráttuna í deildinni. Hann kveðst vera ánægður með að
vera kominn að nýju til Stoke og áhorfendur hafa tekið honum vel.
fótbolti „Ég get ekki annað en ver-
ið ánægður með minn hlut í leikn-
um í gær,“ segir Arnar Gunnlaugs-
son sem skoraði sigurmark Stoke á
móti Chesterfield á laugardag.
Leiknum lyktaði með sigri Stoke
1-0 og skoraði Arnar á 22.mín. „Ég
er nýlega komin til félagsins sem
er í toppbaráttunni í annari deild-
inni og á góða möguleika á að ná
sæti í fyrstu deildinni. Við erum að
vonast til að komast beint upp og
erum nú í fjórða sæti. Til þess
þurfum við að vera í tveimur efstu
sætunum. Það verður mun erfið-
ara að þurfa að leika við fjögur lið
um sæti í fyrstu deildinni. Stefnan
er sett á að þurfa þess ekki.“
Arnar segir vel hafa gengið hjá
sér í tveimur síðustu leikjum en
hann skoraði einnig um síðustu
helgi. „Veturinn hefur verið erfið-
ur hjá mér og mínu gamla liði Leic-
ster. Ekki er annað að vinna en ég
falli vel inn í liðið og áhorfendur
hafa tekið mér vel.“ Hann segist
vera mjög ánægður með að spila
að nýju með íslendingunum í lið-
inu sem hann þekkir vel og ekki
spilli fyrir að með liðinu er vel fyl-
gst að heiman. „Það þekkja allir
heima Stoke City og mjög margir
halda með liðinu. Það er notaleg til-
finning að vita að fylgst er með
manni að heiman“ Arnar segir
leikinn á laugardag hafa verið
mjög erfiðan og að liðið hafi leikið
undir getu. „Við gerum betur næst
en þá eigium við að leika við Bret-
ford en þar eru tveir íslendingar,
þeir Ólafur Gottskálksson og Ivar
Ingimarsspn. Það stefnir því að
það verði íslendingaslagur á laug-
ardaginn kernur." ■
STEFNIR ( ÍSLENDINGASLAG
Um næstu helgi spilar Stoke
á móti Brentford en þar eru
tveir l'slendingar innanborðs.
Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði!!!
Lagersala á Fiskislóð 73
(úti á Granda), 101 Reykjavík.
Breytur opnunartími um páska.
Mánudag kl. 14:00 til 18:00
Þriðjudag kl. 14:00 til 18:00
Miðvikudag kl. 14:00 til 18:00
Brúðkaupsmyndatökur
Lj ósmyndastofan
Mynd
Sími 565 4207
Bæjarhrauni 26,
Hafnarfirði.