Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 16

Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 16
Á HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. mars 2002 MÁNUDACUR Sýning á líkamshlutum: Ekki tókst að stöðva sýninguna Meíri tækifæri en nokkru sinni Við lifum á tfmum breytinga og framþróun- ar. Þar sem tækifæri einstaklingana eru að öllum likindum meiri, en þau hafa nokkurn tímann verið áður. Valgeir Sigurðsson, sjukraþjálfari london í Fréttablaðinu í síðustu viku var sagt frá fyrirhugaðri sýn- ingu á 175 líkamshlutum og 25 lík- um, sem opna á í listagalleríi í London. Sýning þessi hefur mætt mikilli andstöðu og margir tjáð sig um hana opinberlega. Þeirra á með- al voru breskir þingmenn sem sögðu sýninguna viðbjóðslega og með öllu ósiðlega. Sagt var frá því að bresk yfirvöld ætluðu að reyna að stöðva sýninguna og leita álits heilbrigðisyfirvalda hvort hún væri lögleg. Niðurstaða hefur fengist t SÝNINGARGESTUR Hinn tlu ára gamli Louis Haeri horfir dol- fallinn á eitt líkanna. málinu og er hún á þá leið að á eng- an hátt sé hún ólögleg og því ekki hægt að banna hana. Sýningin var því opnuð á laugardaginn var. Einn sýningargestanna sýndi vanþóknun sína á opnunardaginn með því að fleygja teppi yfir eitt lík- anna sem sýndi vanfæra konu sem gengin var með sjö mánaða fóstur. Búið var að rista upp kviðinn á kon- unni til að sýna fóstrið. Lét hann hafa eftir sér að sýningin væri hryllingur og niðurlægði jarðnesk- ar leifar.Meðal annars sem hægt er að virða fyrir sér á sýningunni er húðlaus maður með heilann sýnileg- an og helmingaðir líkamar. Dæmi nú hver fyrir sig. ■ UNDARLEG ENDALOK Unnið var með líkin á þann hátt að allur líkamsvessi var þurrkaður upp. ( staðinn var komið fyrir plastefni sem harðnaði svo unnt væri að stilla líkunum upp svo lifandi væru. MIÐVIKUPACURINN 25. MARS FYRIWLESTUR_________________________ 12.05 Rannsóknarmálstofa í félags- ráðgjöf verður haldin i dag í fundarherbergi félagsvísindadeild- .... ar í Odda. Sigurveig H. Sigurðar- dóttir, félagsráðgjafi og fram- kvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða kross (slands, kynnir méist- araprófsverkefni sitt sem ber heit- ið Vellíðan á efri árum: Áhrifa- þættir og stefnúmótun. 20.30 Þriðja fræðsluerindi Hins fslenska náttúrufræðrfélags (H(N) í ár verður haídið í kvöld í stofu 101, Lögbergi, húsi Háskóla (slands. Þá mun Helgi Bjömsson jöklafræð- ingur, vísindamaður á Raunvís- indastofnun Háskólans og pró- fessor við háskólann í Osló, flytja erindi sem hann nefnir „Vatnajök- ull: Núverandi staða og framtíð.” Aðgangur er ókeypis og öllum heimill KVIKMYNPIR_______________________ 22.20 Filmundur sýnir í Háskólabíói i kvöld myndina Wild at Heart frá 1990 eftir kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Nicolas Cage fer með aðálhlutverkið og er hann óneitanlegá flottur þegar hann tekur Presley-lögin. SÝNINGAR ________________________ Ljósmyndarafélag fslands og Blaðaljós- myndarafélags fslands halda sýningu í Gerðarsafni Listasafni Kópavogs. Einnig er á sýningunni gestasýning Sig- urðar Jökuls „Leitin að Enska sjentil- manninum." Sýningin stendur til og með 30. mars nk. Gerðarsafn er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 11.00 til 17.00 . MYNPLIST__________________________ Myndlistarneminn Kolbrá Braga hefur opnað sýningu sina „Á yfirborðinu" ( Gallerí Nema hvað. Sýningin sam- anstendur af fjórum stórum málverkum sem standa sem sjálfstæð verk. Sýning- unni lýkur miðvikudaginn 27. mars og er hún opin alla daga frá 15-18. Myndlistarmaðurinn Hjörtur Hjartarson sýnir nýjar myndir ( Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Á sýningunni'vérða baeði teikningar og málverk sem unnin eru'á siðustu tveim-. ur árum. Sýningin er opin alla daga ~ nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17. Hörður Ágústsson hefur opnað sýningu á verkum sínum I i8 gallerí. Verkin sem verða til sýnis voru öll unnin á árunum 1955 til 1975. Gallerí i8 er opið þriðju- daga til laugardaga frá klukkan 13-17. HVERFISGATA BANKASTRÆTI I LAUGAVEGUR Tradarkot er góður kostur Framkvæmdir við endurnýjun neðri hluta Skólavörðustígs og hluta Bankastrætis standa yfir. Verslanir og þjónustu- stofnanir eru öllum opnar og er vinnusvæðið greiðfært gangandi vegfarendum en lokað fyrir bílaumferð. Bílahús og miðastæði eru í næsta nágrenni og mælum við með Traðarkoti við Hverfisgötu sem góðum kosti. "1 Bflastæðasjóður f ...svo í borg sé leggjandi LÁRA STEFÁNSDÓTTIR OG JÓHANN FREYR BJÖRGVINSSON Þeir sem komu að dansverkinu Jóa fyrir utan Láru og Jóhann voru: Guðni Franzson, tónlist, Kári Gíslason, iýsing, Ragnhiídur Stefánsdóttir og Friðrik Örn Weisshappel, sviðsmynd, og Elín Edda Árnadóttir, búningar. Frumkraftur einkennir íslenska sköpun Lára Stefánsdóttir og Jóhann Freyr Björgvins- son sigruðu í danskeppni sem haldin var í Stutt- gart um síðustu helgi með dansverkinu Jóa. pans Dansverkið Jói, eftir Láru Stefánsdóttur, dansað af Jóhanni Frey Björgvinssyni og framleitt af Pars Pro Toto, hlaut fyrstu verðlaun danshöfunda og önnur verðlaun dansara, í alþjóðlegri keppni danshöfunda og dansara „6. Internationales Solo-Tanz- Theater Festival“ sem haldin var 17. mars í Stuttgart, Þýskalandi. Jói var fyrst valið eitt af 18 verk- um, úr yfir 120 umsóknum hvaðanæva úr heiminum, til op- inberra sýninga í Stuttgart, síðan eitt af sjö verkum sem kepptu til úrslita um verðlaun. „Þetta var mjög hörð keppni og mikið af góðum dönsurum,“ segir Lára í samtali við Fréttablaðið. Hún segir að dómnefndin hafi verið skipuð nokkrum af virtustu dans- höfundum í Evrópu. „Ég heyrði eftir keppnina að þeim hafi fund- ist Jói koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. Kannski af því að í Evrópu er ákveðinn stíll í gangi sem ég hef ekki fylgt eftir. Það einkennir íslenska sköpun þessi frumkraftur. Það hefur greini- lega haft sitt að segja. Það er ákveðin vernd að búa á íslandi, frumleikinn helst og fólk vill alltaf sjá eitthvað nýtt.“ í kjölfar keppninnar fékk Jó- hann Freyr tvenn atvinnutilboð, m.a. frá dansflokki í Linz í Aust- urríki sem hann tók. „Það merki- lega er að Jóhann var í þann mund að leggja dansskóna á hill- una þegar ég fékk hann í þetta verkefni. Hann hafði starfað sjálfstætt undanfarið eftir að hafa sagt sig úr íslenska dans- flokknum og hafði í hyggju að setjast á skólabekk. Þá tóku ör- lagadísirnar heldur betur í taumana. í dag er hann í sjöunda himni og dansar örugglega næstu 15 árin.“ Keppnin í Stuttgart er sú þriðja sem Lára tekur þátt í og hefur hún sigrað í þeim öllum. Áður tók hún þátt í keppni sem haldin var á íslandi og í júní fór hún með dansverkið Elsu til Helsinki. Lára er í dag 39 ára gömul og hefur dansað frá 9 ára aldri. Hún segir mikla vinnu að baki þessum sigrum og þakkar helst reynslunni sem sé oftar en ekki vanmetin. „Ég hef aldrei sest á skólabekk og lært að semja dansa. Heldur hef ég leitað í eig- in í’eynsluheim og nýtt mér mína upplifun með öllu því hæfileika- ríka fólki sem ég hef starfað með auk virtra danshöfunda. Það hef- ur verið minn skóli og hann er ekki svo lítill. í dag finnst mér ég vera að uppskera það sem ég hef sáð og lít björtum augum fram á við,“ segir þessi nýbakaði sigur- vegari að lokum. kolbrun@frettabladid.is Hulda Ágústsdóttir sýnir um þessar mundir verk í klefanum í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39. Sýningin stendur til 31. mars. Gallerí Skuggi er opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 13-17, lokað mánudaga. Eygló Harðardóttir og Margrét H. Blöndal sýna í Nýlistasafninu og nefn- ist hún Skynjanir sem sýnasL Verkin eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Sýningarnar eru aðskildar en hafa þó hafa áhrif hvor á aðra. Safnið er opið miðvikudaga til sunnudaga kl. 13-17. Magnús V. Guðlaugsson sýnir í Galleríi Sævars Karls. Sýningin ber heitið Fugl- ar og fólk en þar klæðir Magnús gínur í fatnað úr verslun Sævars Karls og hefur að fyrirmyndum íslenska fugla. Tilkynningar sendist á netfangið ritstjorn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.