Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
25. mars 2002 MÁNUDACUR
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
■Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Simbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf:
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsráeðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu ser\f|ingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
I BRÉF TIL BLAÐSINS I
Ósætti Davíðs Oddssonar við dóma Hæstaréttar
1998
Hæstiréttur kveður upp dóm í
máli Valdimars Jóhannessortar
gegn íslenska ríkinu. í niðurstöðu
dómsins er komist að þeirri niður-
stöðu að 5. grein laga um stjórn
fiskveiða stangist á við jafnræðis-
reglu stjórnarskrárinnar. Valdi-
mar hafði verið synjað um veiði-
leyfi í atvinnuskyni og aflaheim-
ildir. Dómurinn hafnaði synjun-
inni, en tók ekki afstöðu til viður-
kenningar á réttinum til að fá slík-
ar heimildir. Um dóminn sagði
Davíð Oddsson: „Það liggur fyrir
að hugtakanotkun í dómnum er
mjög á reiki sem flækir málið,“
Hann sagði dóminn skapa mikía
óvissu'í landinu. „Dómurinn setur
hér allt á annan endann ef hann er
skilinn eins og sumir skilja hann.“
2000
Brún Davíðs léttist heldur þegar
Hæstiréttur kvað á vordögum upp
dóm í Vatnseyrarmálinu svokall-
aða. Davíð sagði dóminn taka af öll
tvímæli um að það væri í valdi Al-
þingis að marka stefnuna við
stjórn fiskveiða. Sagði hann dóm-
inn styðja túlkun stjórnvalda á
Valdimarsdómnum. I desember
féll dómur í máli Öryrkjabanda-
lagsins gegn íslenska ríkinu. Þar
var skerðingarákvæði tekjuteng-
ingar vegna maka vegna örorku-
bóta dæmt ólögmætt. Davíð var
ósáttur við dóminn. Hann sagði að
í dómnum fælust grundvallar-
breytingar á valdahlutföllum milli
Alþingis og dómstóla. Dómstólar
væru komnir með ígildi lagasetn-
ingar- og fjárstjórnarvalds. Dóm-
-Eorsaga.
I Hæstarétti hafa fallið nokkrir
dómar þar sem íslenska ríkið
hefur tapað málum.
Davíð Oddssyni, forsætisráð-
herra, hefur mislikað niður-
stöður Hæstaréttar. Hann hefur
gagnrýnt réttinn fyrir að taka
sér pólitiskt vald. Þar fyrir utan
hefur hann talið forsendur
hæpnar og dóma óskýra.
stólar væru sokknir á
bólakaf í hinar hefð-
bundnu skylmingar
stjórnmálanna.
2002
í kjölfar öryrkjadómsins var skip-
aður starfshópur sem hafði það
verksvið að gera tillögur um við-
brögð við dómnum.
Skipunarbréfi hópsins
fylgdi minnisblað ríkis-
stjórnarfundar. Ör-
yrkjabandalagið vildi
fá blaðið og höfðaði mál
er það fékk synjun á
því. Hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu að
afhenda bæri minnis-
blaðið. Davíð Oddsson
var afar ósáttur við
dóminn og sagði, í um-
ræðum á Alþingi rétt-
inn hafa búið til reglur í
málinu eftir miklum
krókaleiðum. Hann
sagði forsendur dóms-
ins óljósar, mótsagnakenndar og
stundum ekki rétt farið með stað-
reyndir. ■
ORÐRÉTT
ÁLVER VIÐ REYÐARFJÖRÐ
Halldór segir reynsluna sýna að
Norðmenn séu okkur erfiðir.
Snúum á
Norðmenn
Halldór skrifar:
Nú eru Norðmenn á góðri leið
með að blása af álver í Reyðar-
firði. Þetta kemur engum á óvart
sem átt hefur samskipti við þá.
Við höfum átt í samskiptum við
þá á ýmsum sviðum. Reynslan
ætti að kenna okkur að Norð-
menn eru afar erfiðir í allri sam-
vinnu. í samningum um sameig-
inlega fiskistofna hafa þeir sýnt
af sér mikla óbilgirni.
Við ættum að nýta tækifærið
núna og ná okkur niðri á Norð-
mönnum. Hagsmunum okkar
verður vel borgið í Evrópusam-
bandinu og þjóðin er komin á þá
skoðun. Þetta veitir okkur tæki-
færi til að sækja um aðild á und-
an Norðmönnum og ná forskoti á
þá á okkar mikilvægustu mörk-
uðum. Þannig gætum við bætt
okkur þann skaða sem Norðmenn
hafa valdið okkur með frestun ál-
versins og gott betur. Það væri
mátulegt á þá að við snerum einu
sinni á þá, en þeir ekki alltaf á
okkur. ■
Frestun martraðar
Þegar fjölskyldufólk greiðir 60.000-100.000 krónur
árlega fyrir rafmagn til ljósa og heimilistækja í
landi ótæmandi vatnsorku og afskrifaðra orku-
vera, er greinilega vitlaust gefið í spilunum. Hin
margrómaða auðlind er ekki að skila árangri í sam-
ræmi við væntingar þjóðarinnar.
Sumpart er fólk að niðurgreiða rafmagn til stór-
iðju, einkum til Grundartanga. Sumpart er fólk að
borga herkostnaðinn af orkuverinu við Blöndu,
sem reist var, þótt þáverandi stóriðjukaupandi
hlypi úr skaftinu. Sumpart er fólk bara að borga
fyrir vöndan rekstur Landsvirkjunar.
Um nokkurt skeið hefur svo litið út, sem her-
kostnaður fólks af vatnsorku mundi aukast veru-
lega vegna glannalegra ráðagerða stjórnvalda um
orku- og álver á Austurlandi. Fólk getur þó andað
léttara í bili, því að Norsk Hydro hefur slegið mál-
inu á frest um óákveðinn tíma.
Ferill Reyðaráls er farinn að minna óþægilega á
feril álversins á Keilisnesi, sem mánuðum og árum
saman var sagt vera í burðarliðnum. I báðum til-
vikum voru ráðherrar með stóriðju á heilanum,
reyndu í lengstu lög að halda í drauminn og enduðu
með því að festast í eigin blekkingavef.
Draumurinn um Reyðarál og Kárahnjúka-
virkjun var í rauninni martröð, sem hefði skaðað
þjóðfélagið, ef orðið hefði að veruleika. Skipu-
lagsstofnun var í haust búin að hafna orkuverinu
vegna slæmra umhverfisáhrifa og ýmis peninga-
leg reikningsdæmi voru óhagstæð.
Seðlabankinn hefur nýlega upplýst, að vextir í
þjóðfélaginu hefðu almennt orðið 2-2,5% hærri á
framkvæmdatímanum, en þeir hefðu ella orðið. Ut-
reikningar sýna, að þetta felur í sér fjölskyldu-
skatt, sem nemur 120 þúsund krónum á ári hjá
þeim, sem skulda fimm milljónir króna.
Sami vaxtaskattur hefði lagst á alla þá, sem
hefðu viljað afla sér lánsfjár til eflingar atvinnulífs
á öðrum sviðum. Reyðarál hefði raunar þurrkað
mikið af tiltæku lánsfé, einkum hjá lífeyrissjóðun-
„Ferill Reyðaráls erfarinn að minna
óþœgilega áferil
álversins á Keilisnesi,
sem mánuðum og árum saman
var sagt vera í burðarliðnum. “
um, sem átti að ginna til samstarfs. Það fé hefði
ekki verið til ráðstöfunar í atvinnulífinu.
Ráðagerðir stjórnvalda fólu þar á ofan ekki í sér,
að orkuver og stóriðja greiddu markaðsverð fyrir
ríkisábyrgð, né heldur að þau greiddu mengunar-
og umhverfisskatt í samræmi við reglur, sem
Alþjóðabankinn er farinn að beita. Síðasta upphæð-
in gæti numið milljarði króna á hverju ári.
Fyrir utan óbætanlegt tjón á stærsta ósnortna
víðerni Evrópu hefði þjóðin beðið mikið fjárhags-
legt tjón af Reyðaráli og Kárahnjúkavirkjun, ef
martröðin hefði orðið að veruleika. Tjónið hefði
falizt í háum vöxtum, fjármagnsskorti og háu verði
á rafmagni til ljósa og heimilistækja.
En veruleikafirring stjórnvalda var orðin svo
mikil, að í nokkrar vikur leyndi orkuráðherra þjóð-
ina nýjustu upplýsingum um tregðu Norsk Hydro.
Hún var að reyna að knýja virkjanaleyfi í gegn á
Alþingi áður en tregðan kæmist upp, sem hlaut
samt að gerast vikunni fyrr eða síðar.
Miðað við fjölbreyttar upplýsingar, sem Skipu-
lagsstofnun ríkisins, Seðlabankinn, Alþjóðabank-
inn og ýmsir hagfræðingar hafa lagt í púkkið, er
ástæða til að hafa áhyggjur af, að rúmlega helm-
ingur þjóðarinnar var til skamms tíma reiðubúinn
að fallast á framkvæmdirnar eystra.
Nú er tækifæri fyrir fólk að láta af stuðningi við
martröðina og fara að hlusta á tölur, sem sýna, að
ráðagerðirnar austur á landi eru mun óhagstæðari
en stjórnvöld hafa hingað til viljað vera láta.
Jónas Krístjánsson
HEFUR
STJÓRNAR-
FORMAÐUR
SÍMANS TALAÐ
í SÍMA?
En ég starfaði
sem strætis-
vagnabílstjóri á
skólaárunum
Skúli Bjarnason, stjórnarformaður
Strætó bs. DV, 23.mars.
GAMAN
AÐ TALA
Aðalatriðið er að
nú er opnað á
möguleikann til
viðræðna við
fleiri aðila
Valgerður Sverrisdóttir.
DV, 23. mars.
FÍNT AD VERA BETLARI
í STURLULANDI
Maður réttir bara fram lófann og
biður um meira fjármagn.
Jón Árelíus Ingólfsson, formaður sjóslysa-
nefndar. DV, 22. mars.
ÞANGAÐ TIL
ÆTLA ÉC AÐ
REYNA AÐ
CRÆDA SMÁ
PENING
í hinum full-
komna heimi þar
sem maður þar
ekki að vinna til
að eiga ofan í sig og á! Þá færi ég
á þær slóðir heims þar sem menn
þurfa aðstoð og reyndi að láta gott
af mér leiða.
Einar Bárðarson, athafnaskáld.
Morgunblaðið, 23. mars.
<D
C
o
V)
3
>
£
£
£
Tölvuskólinn Sóltúni
/•
Sóltúni 3 , 105 Reykjavík - netfang: skoli@tolvuskoli.net -www.tolvuskoli.net
£
Tölvugrunnur 60 stundir.
Hæg yfirferð
Frábært námskeið fyrir algjöra
byrjendur.
*Tölvugrunnur
*Windows 2000
*Word 2000
*Excel 2000
*lnternet
*Tölvupóstur
Næstu námskeið:
18. apríl - 30. maí.
Kennt: þriðjud. og fimmtud.
kl. 13:00 - 16:30 og
kl. 17:30 - 21:00
Verð kr. 45.000.- stgr
2)
Hagnýtt tölvunám 60 stundir.
Hnitmiðað námskeið
fyrir þá sem vilja ná góðum tökum
á algengri tölvuvinnslu.
*Windows 2000 og 2002
*Word 2000
*Excel 2000
*lnternet
*Tölvupóstur
*Outlook
Næstu námskeið:
Kennt: Mán., mið. og fös.
3. - 29. apríl
kl. 13:00 -16:30
19.apríl - 17.maí
kl. 17:30-21:00
Verð kr. 46.000.- stgr.
(H) Eldri borgarar -
grunnnámskeið
15 stundir
4.-11. apríl kf. 8:30-12:00
Kennt: Fim., þri. og fim.
Verð kr. 9.500.-stgr.
Photoshop
20 stunda grunnnámskeið
Kennt: Mánud. - fimmtud.
8. - 11. apríl
Kl. 13:00 - 16:30
Verð kr 26.000.-stgr.
ATH.
Einkakennsla og upprifjun
fyrir þá sem þess óska.
W-- -.... JJ
Upplýsingar og skráning í síma 562-6212 alla virka daga kl. 10 - 22
$
$
<
c
V)
yr
O
3
<D