Fréttablaðið - 02.04.2002, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
2. apríl 2002 ÞRIÐIUDACUR
HASKOLABIO
HÁÚATOMGI * »iMI ’.IO I V I V • U/IMMA JÝNItK.ARTIAI D 1ANOMIIS
hilmir snær guðnason I
ÍB- I
I M E I G J b s ON
auitrt* '
H^
^i^HUfí
SfHHRH V BIO
r
rcykjavík
guesthouse
ront ;i blko /
Sýnd kl. 5, 7 og 9
WE WERE SÖLDIERS
BEAUTIFUL MIND
[regína
- 7 08 9^° í Sýnd kl. 4, 7 og 10
kl. 4i
ÍPETER PAN
kl. 3 og 5
rÁLI kl. 101 iARNE AARHUS kl. 8og 10
[ÁMELIE kl. 5.45 i iMONSTER m/ísL tal kL 3 j
[SIDEWALKS OF NY kl. 8 og 10.301 ELDBORG kl. 4 og 61
M E I 0 1 II S O N
Wl; WERE SOLDIERS
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11
Sýnd kl. 4, 7 og 10
ÍÍSÖLD m/ens.tal
Sýnd kl. 8 og 10
kl. 2.4,6,8 oglö) [REYKJAVlK GUESTHOUSE kl7¥og lol
liSÖLD m/tsl tal
kl. 2,3,4,6 j iLORD OFTHE RINGS
kl. 4.45
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10 vit 357 1 ,
—:---------------------------fvTFi Synd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10 vrr 356
kl. 3, 5.30, 8, Og 10.30 | g,,T‘ 6
jPÉTUR PAN m/ísl. tali kl. 2, 4og 6 pBKÚTÍFUL MÍND 2.5J0,8 og 1040 j
[SNOW DOGS
kl. 4og 6 gj| MONSTERS m/lsl. tali
OvJDolhy SDDJ . ' Th><L SÍMIS64 0000 www.smarabio.is
ALI
kl. 8 og lQ.lo] ÍCOLLATERAL DAMAGE kl8
DUDLEY MOORE
Oftast með bros á vör
Gamanleikari kveður:
Dudley
Moore látinn
SVIÐSLJÓ5 Breski gamanleikarinn
Dudley Moore er látinn. Hann dó
á heimili sínu í New Jersey í
faðmi fjölskyldunnar á miðviku-
daginn. Hann var 66 ára að aldri
og hafði verið að glíma við afar
sjaldgæfan heilahrörnunarsjúk-
dóm í nokkur ár. Hann þótti einnig
afbragðs tónlistarmaður og vakti
fyrst á sér athygli sem slíkur.
Hann vakti fyrst á sér athygli í
gamanþáttunum um Dud og Pete,
en þeir urðu vinsælir beggja meg-
in Atlantshafsins. Eftir það flutt-
ist Moore til Hollywood þar sem
hann náði að tryggja sér hlutverk
í gamanmyndum á borð við „10“,
„Arthur" og „Santa Claus“. Moore
vann einmitt Óskarsverðlaunin
fyrir túlkun sína á hinum sífulla
milljarðamæringi Arthur árið
1981.
Moore sagði opinberlega frá
veikindum sínum í hjartnæmu
viðtali við BBC árið ‘99. Þá vissi
hann vel að hann ætti stutt eftir
ólifað.
Moore eignaðist tvo syni, þann
fyrri í fyrsta hjónabandi sínu en
þann seinni í því fjórða. ■
ANT \K
kurIosa
Antik húsgögn og listmunir
ANTIK Kl/RIOJA
Grensásvegi 14.
S: 588 9595 og 660 3509
Opið
mán-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl 12-17.
Farveland Farveland
| **a t —
rm
LOFTER
V*OOE
MALARINNim
Bæjarlind 2 • Kópavogi ♦ Slmi: 581 3500
FRÉTTIR AF FÓLKI
XKítstssiíaisaiiswiíxíiUsiiexmMasœx&ccx
Poppdúkkan Britney Spears
olli breskum aðdáendum sín-
um vonbrigðum er hún mætti til
frumsýningar myndar sinnar
„Crossroads" í
London. Hún
þrammaði fram
hjá æstum aðdá-
endum sínum
sem höfðu beðið,-
fyrir utan bíó-
húsið í margar
klukkustundir í
þeirri von að fá
eiginhandaáritun
stúlkunnar. Sumir þeirra höfðu
víst komið alla leið frá Suður-
Afríku til þess að berja stjörn-
una augum. Þegar Tom Cruise
mætti til frumsýningar myndar
sinnar „Vanilla Sky“ á dögunum
eyddi hann klukkutíma fyrir
utan að spjalla og skrifa nafn
sitt fyrir aðdáendur sína. Aðdá-
endurnir púuðu því á goð sitt í
stað þess að hylla það. Á blaða-
mannafundni eftir myndina
neitaði Britney að tala um
einkalíf sitt, en staðfesti að hún
væri ekki í „alvarlegu sam-
bandi“. Talsmenn Britney sögðu
að aðdáendui'nir hefðu verið
ógn fyrir öryggi stjörnunnar.
Samfélag Hare Krishna á Ind-
landi ætla að láta gera garð í
minningu Bítilsins George
Harrison. Garðurinn verður
,i gerður í bænum
<! MayaPur) sem er
um 100 km norð-
an við Calcutta.
Talsmenn
safnaðarins segja
Harrison hafa
verið einn mesta
trúboða sem þeir
hafi haft, því
hann hafi stöðugt minnt á trúar-
brögðin, bæði í gegnum tónlist-
arsköpun sína og í viðtölum.
Fyrrum söngvari Soundgar-
den, Chris Cornell, sem svo
tók við hlutverki Zacks De La
Rocha í Rage Against the
Machine er hættur samstarfi
við sveitina. Hann lauk þó að
vinna breiðskífu með sveitinni
sem verður gefin út. Sveitin
hafði áætlað tónleikaferðalag
með söngvaranum í fararbroddi
í sumar, en öllum áætlunum um
slíkt hefur verið frestað.
Læknir sem tók blóðprufu
Peter Bucks, gítarleikara
R.E.M., sem ákærður er fyrir að
hafa verið ofurölvi um borð í
flugvél og að
ráðast að starfs-
fólki, segir að
niðurstöðurnar
hafi sýnt að hann
hafi verið ofur
drukkinn. Sjálfur
hafði Buck hald-
ið því fram að
hann hefði verið
undir áhrifum
svefnpillu sem segist hafa tek-
ið. Hann ber fyrir sig minnis-
leysi. Nú hefur komið í ljós að
Buck ætlaði sér að yfirgefa vél-
ina, mörg þúsund fetum yfir
Atlantshafinu.
Holdgervingur
syndarinnar
Elísabet Olafsdóttir, eða Beta Rokk eins og hún er kölluð, hefur stað-
ið í hári Sigurjóns Kjartanssonar í morgunþætti hans „Sigurjón &
Co“ á Radíó X núna í rúmar þrjár vikur.
útvarp „Ég var skíthrædd
við að taka þetta að mér,“
viðurkennir Elísabet Ólafs-
dóttir, eða Beta Rokk eins
og við þekkjum hana. Hún
hefur nú verið hægri hönd
Sigurjóns í rúmar þrjár
vikur í nýjum þætti hans og
hefur sú stefnubreyting
sem hann tók frá Tvíhöfða
komið mörgum þægilega á
óvart. „Sigurjón hringdi í
mig og ég sagði honum að
ég myndi hugsa málið. Ég
var náttúrulega að setjast í
stól Jóns og var hrædd um
að fólk myndi halda að ég
væri fyndin. í dag er þetta
bara umræðuþáttur á léttu
nótunum.“
Enginn veit sína ævi
fyrr en öll er, og líklegast
ekki einu sinni þá. Einn
daginn er maður að læra að
skúra, þann næsta er mað-
ur að rökræða við neikvæð-
ari helming Tvíhöfða í
beinni. „Ég var nýbúin að
fara á námskeið í ræsting-
um og var nýbúin að fá
vinnu við það. Síðasta setn-
ingin á námskeiðinu var
„við tölum ekki um fólk, við
tölum við fólk“. Þar var verið að
tala um að við ræddum ekki
leyndarmálin sem við kæmumst
að í starfi. Þar gerði ég mér
grein fyrir því að ég vil ekki tala
við fólk, heldur vil ég tala um
fólk. Síðan fékk ég fyrsta launa-
seðilinn minn, gerði svo ein-
hverja „rassíu" og missti vinn-
una sama dag og Sigurjón hring-
di í mig.“
BETA ROKK
Skjótari en skugginn að skjóta, til baka.
Beta segist vera afar sátt við
hlutskipti sitt en viðurkennir að
stundum geti verið erfitt að vera
fréttakona hjá Sigurjóni & Co.
„Ég er ráðin til þess að segja:
„Já“, „ahaa?“ og „ha ha ha ha“. Eg
á helst ekki að láta ljós mitt skína,
ég er bara aðstoðarmanneskja.
Hann er aðal og það vita það allir.
Það er bara lækkað niður í mér ef
ég er með stæla. Þráinn er samt
svo seinn til að hann nær
stundum ekki að lækka
niður í mér þegar Sigur-
jón biður um það.
Þannig að ég er mjög
heppin með hljóðmann,"
segir Beta og hlær,
sigrinum fagnandi.
Þeir sem heyrðu
þáttinn þegar Gunnar í
Krossinum kom í heim-
sókn urðu líklegast var-
ir við að Beta verður
líklegast seint meðlim-
ur í söfnuði hans. „Ég
var skömmuð mikið fyr-
ir þetta viðtal. Ég má
ekki láta andúð mína á
viðmælendum mínum
koma svona í ljós. Ég
hafði aldrei hitt mann-
inn, bara einu sinni séð
hann á Kentucky, þegar
ég var að koma af
djamminu. Honum var
ekki skemmt, hann leit
á mig eins og ég væri
„holdgervingur syndar-
innar“. Síðan þá hefur
hann farið í taugarnar á
mér. Ég átti náttúrulega
að fatta það að skoðanir
hans einar og sér eru
nægilegt bull til þess að fólk fatti
það hvernig maður hann er. Ég
átti að hemja mig, en hann byrj-
aði á því að segja að ég gæti ekki
skilið sig af því að ég væri „ljós-
ka“. Hvað á maður að gera við
svoleiðis menn? Ég bara varð
pirruð," segir Beta að lokum og
hlær hlátri sem gæti hæglega
opnað hlið helvítis upp á gátt.
biggi@frettabladid.is
TÓNLIST
...Ogþú muntþekkja
þá á snilldinni
Þegar hljómsveitin ...And you
will know us by the Trail of Dead
kom hingað til lands í apríl árið
2000 var ég veikur heima. Ég
hefði betur átt að henda í mig
boxi af panódíl, byrgja mig upp
með horpappír, klæða mig í ull-
arpeysu og sitja sveittur með
trefilinn í reykfylltum tónleika-
salnum. Slík eru gæði þessarar
sveitar.
Nýverið kom út þriðja plata
sveitarinnar, „Source tags &
Codes“, og hún er himnesk send-
ing í gaddavírsumbúðum. Platan
er kannski ekki jafn beitt og
platan „Madonna" sem þeir gáfu
út árið 1999. Lagasmíðarnar og
hljómur sVeitarinnar er orðinn
fágaðri og er það breyting til
hins betra. Fyrir vikið munu lög-
in lifa lengur í minnum rokká-
hugamanna. Það ber þó ekki að
skilja það þannig að sveitin sé að
taka einhverjum vettlingatökum
á rokkinu, því fer fjarri. Keyrsl-
an minnir enn á félaga þeirra úr
At the drive-in en You will know
us hafa hér náð að skapa sinn
eigin sérstæða hljóðheim. Þetta
eru listamenn fram í fingurgóma
og það skín í gegn frá fyrstu til
síðustu mínútu þessarar plötu.
Lög á borð við „Ánother
Morning Stoner“ og „How near,
how far“ ættu að vera næg til
...And you will know us by the trail of dead
SOURCETAGS& CODES
þess að tryggja sveitinni stað á
flestum listum tónlistarblaðanna
yfir bestu plötur ársins 2002. Ég
skal éta bæklinginn á þessum
disk (8 síður af þykkum tímarita-
pappír), með heftinu ef ég hef
rangt fyrir mér með það!
Svona, út í búð með ykkur!
Birgir örn Steinarsson