Fréttablaðið - 02.04.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTARLAÐIÐ
2. apríl 2002 ÞBIÐIUDACUR
-SACAPAGSINS
2TAPRÍL
Eldgos hófst í nágrenni Heklu
árið 1725 og fylgdu því
„skelfilegir jarðskjálftar", eins
og segir í Hítardalsannál.
Jóhanna Magnúsdóttir fékk lyf-
söluleyfi, fyrst íslenskra kven-
na árið 1928. Hún starfrækti
Lyfjabúðina Iðunni í Reykjavík í
tæp 33 ár.
ýski kafbáturinn U48 sökkti
breska flutningaskipinu Beav-
erdale árið 1941 300 sjómílur
suðvestur af íslandi. Fimm sólar-
hringum síðar bjargaði togarinn
Gulltoppur 33 mönnum úr einum
af björgunarbátum skipsins, ann-
ar bátur náði landi við Snæfells-
nes en sá þriðji fannst aldrei.
Einn skipbrotsmannanna þakkaði
skipstjóra Gullltopps björgunina
58 árum síðar.
Mikil og
*
Isíðustu viku tók Gunnar Páll
Pálsson við störfum formanns
af Magnúsi L. Sveinssyni. „Þetta
leggst vel í mig og ég á ekki von á
öðru en ég klári mig í þessu. Ég
veit að þetta er stór og mikil
ábyrgð en jafnframt er það heiður
að vera treyst fyrir formennsku í
svo stóru félagi," segir Gunnar
Páll. Hann er alinn upp í Mosfells-
bæ, sonur kennarahjónanna Páls
Aðalsteinssonar og Guðrúnar
Hafsteinsóttur. „Ég gekk þar í
skóla en tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
og er viðskiptafræðingur frá Há-
skóla íslands.“
Gunnar Páll er kvæntur Ástu
Pálsdóttur sem starfar í Hagdeild
"'TTól.KinÍFRÍTTUM f
Orvæntingar er farið að gæta í
herbúðum sjálfstæðismanna.
Þegar tæplega tveir mánuðir eru
til borgarstjórn-
arkosninga benda
kannanir til þess
að það sé ekki
Inga Jóna Þórðar-
dóttir í áttunda
sætinu sem er í
baráttusæti
flokksins heldur
Kjartan Magnús-
son í því sjötta. Ekkert minna en
kraftaverk þarf
til þess að Birni
Bjarnasyni og fé-
lögum takist að
koma R-listanum
frá völdum. Ingi-
björg Sólrún er
traustari í sessi
en nokkru sinni
fyrr við lok ann-
ars kjörtímabils síns sem borgar-
stjóri. Að því leyti er hún í sömu
sporum og Davíð
Oddsson. Staða
hans sem borgar-
stjóra var aldrei
sterkari en eftir
annað kjörtíma-
bilið. Við kosning-
arnar 1990 rúllaði
hann andstæðing-
um sínum upp
sem aldrei fyrr
og var næstum
kominn með 10
borgarfulitrúa.
Ári síðar var
hann búinn að
steypa Þorsteini
Pálssyni af for-
mannsstóli í Sjálf-
stæðisflokknum
og orðinn forsætisráðherra.
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR_______________________
10:30 Ingigerður Salóme Guðbrands-
dóttir verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
13.30 Porgeir K. Þorgeirsson, fyrrv.
framkvæmdastjóri hjá Pósti og
síma, Melabraut 4, Reykjavík,
verður jarðsunginn í dag frá
Hallgrimskirkju.
13:30 Minningarathöfn um Maríu
Helgadóttur frá Isafirði 1 Foss-
vogskirkju. Hún verður jarðsung-
in á föstudaginn frá fsafjarðar-
kirkju kl. 14.00.
13:30 Þorbjörg Jónsdóttir, Grandavegi
47, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni.
14:00 Jósef Ingvarsson, Efstasundi 13,
verður jarðsunginn frá Glerár-
kirkju á Akureyri.
15.00 Guðrún Pálsdóttir frá Höfða,
Blómvallagötu 13, Reykjavik,
verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni.
AFMÆLI____________________________
Sigurður H. Richter, dýrafræðingur, er
59 ára í dag.
ANDLÁT
Erna Rós Hafsteinsdóttir, Ásgarði eystri
Skagafirði, lést 24. mars.
Alexander Ingimarsson lést á Heil-
brigðisstofnun Siglufjarðar 24.mars.
Már Ingólfur Ingólfsson, Skólavöllum
11, Selfossi, lést 24. mars.
Björn Rosenkrantz de Neergaard lækn-
ir lést í Danmörku 20. mars.
Gyða Guðmundsdóttir, frá Patreksfirði,
lést í Tromsö, Noregi, 23.mars.
GUNNAR PÁLL PÁLSSON
Hann á ekki von á að í byrjun verði miklar
breytingar við formannsskipti hjá VR. Hins
vegar er ekki hægt að vænta annars en með
nýjum mönnum komi breyttar áherslur.
stór ábyrgö
Kaupþings en er nú í fæðingaror-
lofi heima. Þau eiga auk yngsta
sonarins tvo drengi sem eru níu
og tíu ára. „Ég er rólyndismaður
og finnst ánægjulegt að eiga
stundir með fjölskyldunni. Við
eignuðumst þann yngsta í janúar
og síðan hef ég verið að reyna að
komast í fæðingarorlof en ekki
gengið sem skyldi. Ég vona að ég
geti tekið hluta þess bráðlega og
lokið því síðan í haust.“
Gunnar Páll kveðst nota frí-
stundir sínar með eldri drengjun-
um sem spila fótbolta með Fjölni í
Grafarvogi. „Það er stundum nóg
að gera við að fylgja þeim eftir á
æfingar og í keppni. Eg hef enda
mjög gaman af því og tel það gott
Persónan
Gunnar Páll Pálsson er tekinn við
formennsku í Verslunarmannafé-
lagi Reykjavíkur.
fyrir okkur alla. Ég hef einnig
verið að spila dálítið golf og hef
ánægju af því.“
Gunnar Páll segist ekki vænta
mikilla breytinga við formanns-
skiptin að öðru leyti en því að með
nýjum mönnum koma breyttar
áherslur; allt eigi þetta eftir að
mótast. „Ég ætla mér að vinna í
samstarfi við stjórnina og í ljósi
þessara tímamóta hyggst ég óska
eftir að sest verði niður og unnið
að stefnumótun til framtíðar." ■
| AFMÆLI [
Fékk barnabarn í afmælisgjöf
Sigurður Ricther á afmæli í dag. Barnabarnið stakk sér hins vegar í
heiminn viku fyrr.
i
MEÐ FJÖLSKYLDUNA i AFMÆLISMAT
Sigurður Ricther bauð í mat á páskadag og hélt þannig upp á afmælið sitt.
Apáskadag fékk ég börnin,
tengdabörnin og barnabörnin
í mat og notaði þá tækifærið og
hélt uppá afmælisdaginn minn,“
segir Sigurður H. Richter sem
verður 59 ára, þriðjudaginn 2.
apríl. Síðasta vika var Sigurði
gjöful því fyrir réttri viku eignað-
ist hann sitt fimmta barnabarn.
„Það var stúlka sem fæddist um
fjögurleytið þann dag og er þriðja
barn Margrétar dóttur minnar.“
Sigurður segir að á afmælis-
daginn sjálfan hittist þannig á að
þau hjónin hitti gamla vini frá
námsárunum í Kaupmannahöfn í
kaffi á
Hótel Radisson. „Við eru
sautján saman í hópi og höfum
hist reglulega síðustu 25 árin,
haldið árlega þorrablót og ferðast
stundum saman. Um kvöldið ætl-
ar konan mín að bjóða mér út að
borða.“
Sigurður er fæddur í Reykja-
vík, sonur hjónanna Margrétar
Hjaltested og Ulrichs Ricther.
Skömmu eftir stúdentspróf,
kvæntist hann Margréti Bjarna-
dóttur læknaritara og eiga þau
einn son og tvær dætur. Sigurður
nam dýrafræði í Kaupmannahöfn
og hefur starfað sem sérfræðing-
ur við Tilraunastöð Háskóla ís-
lands að Keldum og kennt auk
þess dýrafræði, sníkjudýrafræði
og skyldar greinar við Háskólann.
Einnig hefur hann um árabil haft
umsjón með sjónvarpsþættinum
Nýjasta tækni og vísindi.
Sigurður viðurkennir að, líkt
og hjá mörgum öðrum, hafi fjöl-
skyldan og störfin jafnframt ver-
ið helstu áhugamál hans. „Við
hjónin tökum okkur þó yfirleitt
gott sumarfrí. Við ferðumst þá
talsvert innanlands, leigjum okk-
ur gjarnan sumarbústað í viku og
ökum í rólegheitum hringinn. Oft-
ast förum við ýmsar krókaleiðir á
leið okkar og síðast þegar við fór-
um þá höfðum við ekið gott lengra
þegar í bæinn kom.“
Hreyfing er Sigurði mikilvæg
og hátt í þrjátíu ár hefur hann
stundað leikfimi hjá Valdimar
Örnólfssyni í Háskólanum. „Ég
hef reyndar verið misjafnlega
duglegur að mæta ár frá ári en
mér finnst mjög hressandi og gott
fyrir andann að sprikla dálítið. Ég
bregð mér einnig stundum á
gönguskíði ef færi er til staðar en
undanfarin ár hefur verið helst til
of snjólítið hér sunnanlands."
bergljot@frettabladid.is
Vatnaskógur
Skráning í sumarbúðirnar
í Vatnaskógi
hefst miðvikudaginn
3. apríl kl. 8:00
Skráð er í húsi KFUM og KFUK
við Holtaveg. Einnig er tekið við
skráningum í síma 588-8899.
Flokkaskrá sumarsins er að finna
á heimasíðu KFUM og KFUK
www.kfum.is.
Skráning í sumarbúðirnar Hólavatni,
Kaldárseli, Ölveri og Vindáshlíð
hefst föstudaginn 5. apríl kl. 8:00.
KFUM
Minnum á feðginahelgina 26.-28. apríl.
Holtavegi 28 Sími 588 8899
Ingibergur Friðrik Kristinsson, Háaleitis-
braut 47, lést 24. mars.
Hafdís Kristinsdóttir, Melási 5, lést 24.
mars.
Hildur Einarsndóttir, Digranesvegi 56,
lést 25.mars.
Torfi Óldal Sigurjónsson, fyrrverandi
bóndi, Stórhóli í Húnaþingi vestra, lést
25. mars.
Guðrún Árnadóttir, Efri Ey, lést 25.
mars.
Sveinn Þormóðsson, blaðaljósmyndari,
lést 26.mars.
Árni Árnason, fyrrv. framkvæmdastjóri,
lést 26.mars.
Sigríður Halldórsdóttir, Fögrubrekku í
Hrútafirði, lést 27. mars.
FÓLK í FRÉTTUM
Borgarráð Reykjavíkur hefur
endurkjörið fulltrúa sína
íLandsvirkjun til eins árs. Engar
breytingar urðu í
kjörinu. Aðal-
menn eru sem
fyrr Helgi Hjörv-
ar og Pétur Jóns-
son frá R-lista en
Vilhjáimur Þ.
Viihjálmsson frá
D-lista. Vara-
menn verða
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borg-
arstjóri, Sigríður
Hjartar og Júlíus
Vífill Ingvarsson.
Samfylkingarfélögin í Reykja-
vík nálgast nú niðurstöðu í
deilum sínum um stofnun kjör-
dæmisráðs. Unnið hefur verið
að stofnun kjördæmisráðsins í á
annað ár en deilur komið í veg
fyrir að af stofnuninni yrði.
Helst hefur verið deilt um
hvernig kjördæmisráðið skuli
byggt upp og með hvaða hætti
skuli kveðið á um aðkomu al-
mennra flokksmanna að upp-
stillingu á framboðslistum. Nú
hefur hins vegar náðst niður-
staða eftir langt þref sem flestir
geta sætt sig við að mestu. Hafa
menn því hafist handa við að
stilla upp fyrstu stjórn kjör-
dæmisráðsins sem verður kosin
á stofnfundinum. Helst hefur
verið rætt um að Páll Halldórs-
son, fyrrum formaður BHM,
verði formaður.