Fréttablaðið - 03.04.2002, Side 4

Fréttablaðið - 03.04.2002, Side 4
r SVONA ERUM VIÐ NemendaQöldi einkaskóla í borginni Alls voru 593 nemendur f einkaskólum I Reykjavíkurborg haustið 2001. Nemendum skólanna hefur fækkað samtals um 30 frá árinu 1999. Mest hefur fækkað I (saks- skóla, eða úr 289 í 240 nemendur. Af þeim 593 sem stunda nám á yfirstandandi skólaári eru 102 nemendur með lögheim- ili utan borgarinnar. Landakotssk. 207 ísaksskóli 240 Suðurhlíðarsk. 60 Tjarnarskóli 54 Waldorfskóli 32 VELTUMESTU FYRIRTÆKIN Á 1 VÞÍ FRÁ ÁRAMÓTUM 1 Fyrirtæki Velta/milljarðar króna 1 1. (slandsbanki 11,0 2. Delta 9,4 3. Pharmaco 8,0 4. Baugur 5,5 5. Búnaðarbankinn 5,0 6. Kaupþing 5,0 7. Tryggingamiðstöðin 4,8 8. Össur 4,0 9. Landsbankinn 3,7 10. Samherji 2,4 Mars 2002: Veltumesti mánuðurinn hlutabréf Marsmánuður var veltumesti mánuður með hluta- bréf á Verðbréfaþingi íslands frá upphafi. Verslað var með hluta- bréf fyrir tæpa 32 milljarða króna sem er met. I desember árið 2000 nam veltan 31,5 milljörðum króna sem var fyrra met. Heildarvelta með hlutabréf á fyrsta ársfjórð- ungi ársins nam 81 milljarði króna til samanburðar við 137 milljarða allt árið í fyrra. í frétt- um Kaupþings segir að tíu veltu- mestu félögin á árinu voru með 73 prósent af heildarveltu hlutabréfa frá áramótum. ■ Mislæg gatnamót við Víkurveg á áætlun: Opnuð í sumar vegagerð Mislæg gatnamót við Víkurveg og Vesturlandsveg verða að öllum líkindum tekin í notkun í sumar. „Framkvæmdir hafa gengið eftir áætlun og er ætlunin að opna 1. júlí,“ segir Jóhann Bergmann hjá Vegagerðinni. „Gatnamótin breyta miklu með tengingar upp í nýja hverfið í Grafarholtinu og framtíðarbyggð þar. Þau eru líka tenging upp í Grafarvogshverf- ið.“ Framkvæmdir við tvöföldun Vesturlandsvegar fram í Mos- fellsbæ halda áfram á næstu árum. Mislægu gatnamótin við Víkurveg eru fyrsti hluts fram- kvæmdarinnar en þar verður síð- ar byggð önnur brú. Kostnaður er um 400 milljón- ir. Þar af er hlutur Vegagerðar- innar um 240 milljónir en af- gangurinn kemur í hlut Reykja- víkurborgar. ■ I ERLENT Stjórnvöld í Pakistan hafa framselt til Bandaríkjanna mann, sem talinn er vera hátt- settur yfirmaður í al Kaída. Mað- urinn hefur viðurkennt að vera Abu Zubadayah. Hann er talinn einn tveggja eða þriggja manna hugsanlegra arftaka bin Ladens. Bandarísk stjórnvöld vonast til þess að Zabudayah veiti þeim upplýsingar um starfsemi al Kaída víða um heim. Hugsanlega veit hann einnig hvar Osama bin Laden er niðurkominn, sé hann enn á lífi. FRETTABLAÐIÐ 3. apríl 2002 MIÐVIKUPAGUR Fötluð'börn á biðlista hjá Greiningarstöðinni: „Sjálfsmyndin skerð- ist dag frá degi“ greiningarstöð Endurskoðun rekstraráætlunar Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins mun færa mannahald til þess horfs sem það var í við ársbyrjun 2001. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stöðinni en allt að 100 börn eru á biðlista eftir greiningu. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, móðir fatlaðs barns og stjórnarmaður í Einstökum börnum, telur að þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda séu litl- ar líkur á stökkbreytingu á ástandinu. Hún segir að leiðin hafi legið stöðugt niður á við síðustu fimm ár, enda hafi skjólstæðing- um stöðvarinnar fjölgað verulega samhliða þrengri fjárhag. Kristín Steinarsdóttir, kennari og stjórnarmaður í Einstökum börnum, segir að margvísleg vandamál vegna þessa vindi stöðugt upp á sig og ástandið í flestum skólum hafi hríðversnað að undanförnu. „Við horfum upp á fötluð börn sem þurfa sérstaka þjónustu en hafa verið á biðlista í jafnvel fleiri ár. Á meðan eru þau í skólunum eða annars staðar þar sem sjálfsmynd þeirra skerðist GREININGARSTÖÐIN Skiptar skoðanir eru um hvort viðbótarfjármagn sem heilbrigðisráðuneytið ætlar að veita til stöðvarinnar gangi nógu langt til að leysa vandann. dag frá degi.“ Kristín segir að erf- iðleikar barnanna vindi upp á sig og kennarar standi víða ráðþrota. Þá hafi Greiningarstöðin litla sem enga burði til að sinna því mikil- væga hlutverki sínu að fylgja eft- ir börnum sem hafa fengið grein- ingu. ■ Sharon vill senda Arafat í útlegð Umsátur ísraela um Arafat hefur staðið í fimm daga. Tugir manna eru með honum í herkvínni. Vinsældir hans aukast jafnt og þétt eftir því sem umsátrið varir lengur. ramallah. ap Aríel Sharon, forsæt- isráðherra ísraels, bauðst í gær til þess að leyfa Jasser Arafat að fara í útlegð. Hann sagði við Miguel Moratinos, fulltrúa Evr- ópusambandsins, að þeir mættu ná í Arafat með þyrlu og fara með hann burt. „En það verður að vera flug aðra leiðina," sagði Sharon. Arafat hefur sagst staðráðinn í að fara hvergi. Hann veit sem er að vinsældir hans meðal Palest- ínumanna aukast með hverjum deginum í herkví ísraelsmanna. Og hann er ekki einn síns liðs. Með honum eru sjö aðstoðarmenn hans auk lífvarða, sem ekki er ljóst hve margir eru. Auk þess er fjölmennur hópur erlendra stuðn- ingsmanna Palestínumanna með honum á skrifstofunum í Ram- allah. Þeim tókst að komast inn á skrifstofurnar á sunnudaginn og hafa verið þar síðan. Einn þessara stuðningsmanna er Sophia Deeg, kennari frá Þýskalandi. Hún segir Arafat núna vera „veiklulegan og bjarg- arlausan" að sjá. „Hann sat við borðið eins og gamall, bjargarlaus maður og sagði sögur um fyrri tíma, eins og þegar hann barðist með egypska hernum," sagði Deeg í farsíma. „Hann sagði líka að ísrael ætti það sér að þakka að sum arabaríki hefðu viðurkennt tilvist þess.“ Stærsta vandamálið er vatns- skortur og matvæli eru einnig af skornum skammti. Rafmagn kem- ur af og til, að því er Deeg segir. ísraelsher segist þó ætla að sjá Arafat og öðrum í húsinu fyrir nauðþurftum. „Hermennirnir hafa fengið strangar skipanir um að fara ekki inn í íbúð Arafats," segir Giora Ei- land, hershöfðingi í ísraelsher, sem stjórnar aðgerðum hersins í ARAFAT f EINANGRUNINNI Arafat hefur byssu jafnan við höndina. Hann situr þarna ásamt aðstoðarmönnum sínum og lífvörðum á skrifstofu sinni í Ramallah. Ramallah. „Og það sem meira er, þeir verða að forðast að skjóta á bygginguna sjálfa og sjá til þess að Arafat verði ekki fyrir meini.“ „Um leið sjáum við til þess að matvæli, vatn og rafmagn berist til hússins með eðlilegum hætti,“ sagði Eiland ennfremur. ísraelsk stjórnvöld segjast hvorki ætla að vinna Arafat mein né handtaka hann. Markmiðið sé einungis að „einangra hann“ meðan hryðjuverkastarfsemi Palestínumanna sé brotin á bak aftur. Algerlega óljóst er hins vegar hvað Sharon ætlar að gera eftir að þessum aðgerðum hers- ins linnir. ■ FRANCOIS SCHEEFER, FAÐIR LAURU SÓLVEIGAR Ef hann kemur til landsins verður hann yf- irheyrður vegna kæru Caroline Lefort, fyrr- um sambýliskonu. Franski faðirinn: Er frjálst að koma til landsins forsjárdeila Francois Scheefer, sem fór með dóttur sína úr landi þrátt fyrir að hafa ekki forsjá yfir stúlkunni og farbanns, verður ekki handtekinn á Keflavíkurflug- velli ef hann kemur til landsins samkvæmt upplýsingum frá lög- regluembættinu í Reykjavík. Caroline Lefort, sem kom til landsins í fyrradag eftir að hafa tekið dóttur sína úr umsjá barns- föðurins, Francois, sagði í samtali við Fréttablaðið að hún óttaðist að sagan endurtæki sig frá því í byrj- un september á síðasta ári. Þá flúði Francois land með dóttur þeirra án hennar vitneskju. Hún hafði treyst því að það væri ekki hægt vegna farbannsins. Caroline hefur kært Francois fyrir að fara með dóttur þeirra úr landi. Það leiðir samt ekki til þess að hann verði handtekinn ef hann kemur til landsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögregluembætt- inu í Reykjavík yrði hann yfir- heyrður ef lögreglunni væri kunnugt um veru hans hér. Ekki er fylgst kerfisbundið með þeim sem fara um Keflavík- urflugvöll og eru í farbanni, sam- kvæmt upplýsingum frá embætti sýslumannsins á Keflavíkurflug- velli. Því er ekki öruggt að stúlk- an, sem dæmd var í farbann að kröfu föður síns, verði stöðvuð á Keflavíkurflugvelli ef reynt verð- ur að fara með hana úr landi. ■ Næstu úrskurðir óbyggðanefndar: Tímasetning skýrist í næstu viku stjórnsýsla Fyrirtökur vegna næstu úrskurða óbyggðanefndar hefjast næstkomandi föstudag, að sögn Sifjar Guðjónsdóttur, skrif- stofustjóra nefndarinnar. Sveitar- félagið Hornafjörður í Austur- Skaftafellssýslu er næst á dag- skrá nefndarinnar. „í þessum fyr- irtökum reikna ég með að lög- menn landeigenda leggi fram sín- ar greinargerðir," sagði hún og bætti við að jafnframt væri unnið að því að koma af stað kynningu á öllum lýstum kröfum í Rangár- vallasýslu og Vestur-Skaftafells- sýslu. Kynna þyrfti jafnt kröfur ríkisins sem gagnkröfur landeig- enda og annarra hlutaðeigandi. Sif sagði ekki liggja fyrir hvenær næstu úrskurða væri ná- kvæmlega að vænta. „Það þarf að ákveða hvenær málflutningur um svæði 2 fer fram. Það verður hald- inn fundur í nefndinni í næstu viku og ég geri ráð fyrir að þetta verði ákyeðið þá.“ Sif segir að fyrst og fremst ráðist af tímasetn- ingu málflutnings vegna svæðis- ins hvenær næstu úrskurða gæti verið að vænta. ■ óbyggðanefnd Heildarblaðsíðufjöldi í fyrstu úrskurðum óbyggðanefndar á dögunum sem sneru að þjóð- lendum í Árnessýslu nam rúmum 16 hundruð síðum. Sagnfræðingur nefndarinnar og sér- fræðingar Þjóðskjalasafns sáu um gagnaöflun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.