Fréttablaðið - 03.04.2002, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 03.04.2002, Blaðsíða 13
MIDVIKUDAGUR 5. apríl 2002 FRÉTTABLAÐIÐ u Icelandair Gup: Tvisvar frestað vegna veðurs skíði í gær þurfti að aflýsa mótun- um sem áttu að fara fram í Icelandair Cup-mótaröðinni í Blá- fjöllum vegna veðurs, annan dag- inn í röð. Þetta kemur sér illa þar sem fjöldi erlendra keppenda er kominn til landsins til að taka þátt á mótunum. Þeirra á meðal eru Norðmennirnir Lasse Paulsen og Kai Are Fossland, sem eru báðir ofarlega á heimslistum. Skíðasamband íslands brá á það ráð að biðja Akureyringa að taka við mótunum. Því verður HÁTT STÖKK Stangarstökk getur verið hættuleg íþrótt. Frj álsíþróttamót í Bandaríkjunum: Lét lífið í stangarstökki frjalsar 17 ára gamall, bandarísk- ur stangarstökkvari lét lífið á mánudag, tveimur dögum eftir að hann fékk höfuðhögg í stangar- stökki. Samoa Fili var í Wichita Southeast skólanum. Hann féll tæpa fjóra metra ofan á öryggis- dýnu, skoppaði upp og lenti með hnakkann í jörðinni á frjálsí- þróttamóti á laugardaginn. „Hann hitti ekki í litla kassann þar sem stöngin á að fara,“ sagði Scott Hadley sjúkraliði. „Samt flaug hann upp í loft áður en stöngin gaf sig undan honum.“ Þegar sjúkraliðar komu á vett- vang var Fili með meðvitund. Heilsan fór hrakandi í sjúkrabíln- um á leiðinni á sjúkrahúsið. Þetta atvik líkist því þegar annar ungur stangarstökkvari, Kevin Dare, lést í febrúar í Minneapolis. Það varð til þess að frumvarp var lagt fram í New York þar sem ungir stangarstökkvarar eru skyldaðir til að vera með hjálma. Málið er í biðstöðu. ■ [ÍÞRÓTTIR í DAG 15.55 RÚV HM i sundi 18.50 Sýn Bein útsending frá leik Liverpool og Bayer Leverkusen i Meistaradeild Evrópu. 20.00 Hestar Keppt í hraðafimi og hraðaskeiði í Meistaradeild i hestaíþróttum í Ölfushöll. 20.00 Handbolti Tveir leikir í ESSO-deild karla. Fram tekur á móti KA í Framhúsi. Valur fær ÍBV í heimsókn i Valsheimilið. 20.40 Sýn Leikur Panathinaikos og Barcelona i Meistaradeild Evrópu. 22.15 RÚV Handboltakvöld 22.50 Sýn Heklusport Þjálfari mánaðarins: Megson vill ekki verðlaunin KRISTINN BJÖRNSSON Meðal keppenda á lcelandair Cup-mótaröðinni. svigmótið í dag haldið í Hlíðar- fjalli kl. 15. Vonast er til þess að hægt verði að halda öll sex mót- anna í mótaröðinni. Um helgina verður Skíðamót íslands síðan haldið á Dalvík og Ólafsfirði. ■ fótbolti Knattspyrnustjóri West Bromwich Albion, Gary Megson, var kosinn þjálfari mán- aðarins í ensku fyrstu deildinni. Hann er búinn að koma liðinu upp í þriðja sæti deildarinnar. í marsmánuði vann West Brom fimm leiki og gerði eitt jafntefli. Megson neitar hinsvegar að taka við verðlaununum. Hann segir álög fylgja þeim. Margir tapa leikjum eftir að fá þau. Álögin gætu sett strik í reikninginn þeg- ar kemur að því að komast upp í úrvalsdeild. „Þetta er ánægju- legur árangur en ég vil ekki snerta þessi verðlaun," segir Megson. Þrír leikir eru eftir af GARY MEGSON Segir álög fylgja verðlaununum. deildinni. West Brom er nú jafnt að stigum með Wolverhampton Wanderers, sem er í öðru sæti. Gott gengi Megson kemur ef- laust flatt upp á marga áhang- endur Stoke City. Megson var áður þjálfari félagsins. Þegar Guðjón Þórðarson var ráðinn var hann rekinn. í annarri deild var Billy Dear- den hjá Nottinham County heiðr- aður. Liðið vann fimm leiki og gerði eitt jafntefli í mars og náði þannig góðri stöðu til að bjarga sér frá falli. í þriðju deild var Joe Kinnear hjá Luton heiðraður. Lið- ið vann alla sjö leiki í mánuðinum og komst upp í aðra deild. ■ Svíinn Annika Sorenstam: Tiger Woods kvennagolfsins golf Annika Sorenstam er 31 árs gamall sænskur golfari. Undan- farið ár hefur hún haft svo mikla yfirburði í golfi kvenna að byrjað er að tala um hana sem næsta Ti- ger Woods. Nú á sunnudaginn varð hún fyrsti golfarinn til að vinna Kraft Nabisco mótið í Kali- forníu tvö ár í röð. Þetta var hennar 33. sigur á ferlinum, sá tí- undi af síðustu 26 keppnum, og sagt er að hún sé aðeins að hita upp., „Eg vil sjá hversu góð ég get verið, hversu vel ég get spilað. Það er það sem drífur mig áfram alla daga. Mér gekk vel í fyrra en það er ekki nóg. Sigrar hvetja mig áfram. Mig langar að sjá hvað annað ég get unnið,“ segir Sorenstam. Hún hefur ekki enn sett nein met en þykir vera að slíta sig frá keppinautum sínum líkt og Tiger Woods gerði fyrir tveimur árum. Þegar hann vann bandaríska Masters-mótið í fyrra hélt hann öllum fjórum meist- aratitlunum á sama tíma. Síðan hefur honum gengið hörmulega. Margir héldu að eftir yfirburði síðasta árs fylgdi svipuð lægð hjá Sorenstam. Ilún var fyrsta konan til að fara á 59 höggum. Hún vann fjög- ur mót í röð, sem er lengsta sig- urganga í LPGA í 24 ár. Hún sló stigamet og var fyrsta konan til að fá meira en tvær milljónir dollara í verðlaunafé á einu ári. „Ég hætti ekki hér. Þeir segja: „Þú getur ekki staðið þig betur en í fyrra.“ Ég er ekki sammála því,“ segir Sorenstam. ■ ÖRUGGUR SIGURVEGARI Sorenstam var svo örugg um sigur á mót- inu um helgina að hún spilaði í rauðum skóm sigurvegarans á lokadaginn. De Boer íhugar flutning fótbolti Hollenski landsliðsmað- urinn Frank De Boer segist íhuga flutning frá FC Barcelona þegar samningur hans rennur út í júní. Þetta sagði hann í kjölfar frétta um að katalónska félagið myndi aðeins bjóða honum samning til eins árs til viðbótar. Á sunnudag- inn sagði forseti Barcelona, Joan Gaspart, að endurnýjun samnings De Boer væri háð peningatak- mörkum. De Boer sagði lokaákvörðunina velta á því hvort honum yrði boð- inn samningur til lengri tíma hjá öðru liði. „Ef félag sem mér líkar býður mér samning til þriggja eða fjögurra ára gæti ég vel hugsað mér að fara,“ sagði hann í út- varpsviðtali á mánudaginn. „Ég er ánægður sama hvernig þetta fer. Það væri frábært að vera áfram hér þó það væri gaman að fá tæki- færi til að spila með öðru félagi." De Boer, sem er 31árs, gekk til liðs við Barcelona ásamt tvíbura- bróður sínum Ronald frá Ajax árið 1998. Ronald var keyptur til Glasgow Rangers árið 2000. í fyrra var Frank settur í ellefu vikna leikbann þegar leifar af Nandrolone-sterum fundust í blóði hans. Það var í lyfjaprófi eft- ir fjórðungsúrslitaleik Barcelona við Celta de Vigo í Evrópukeppni félagsliða. ■ VOGAR VATNSLEYSA HAFNARGATA - EINBÝLI Nýkomið í einkas. Glæsilegt 124,7 fm einbýlis- hús á einni hæð ásamt 3lfm innb. jeppatækum bílskúr samt 155,7 fm Húsið er í byggingu og afh. Fullbúið að utan sem innan en án gólfefna. Húsið stendur á frábærum útsýnisstað á móti suðri. verð kr 16,4 milljónir. Bo rgarfaste i gn i r Vitastíg 12, 101 Reykjavík sími 561- 4270

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.