Fréttablaðið - 03.04.2002, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
3. apríl 2002 MIOVIKUPAGUR
t|
HÁSKÓLABÍÓ
• lÍHi 315 ti? • STÆSrlTA í fn!«5A f 7‘AIÐ IANOSIS3
SíTlfíRfí V BIO
CC'Dolby /DD/ wwfí Ihx SÍMl 564 0000 - www.smarabio.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýríd kl. 5, 8 og 10
Sýnd kl. 4, 7 og 10
jíSÖLD m/ens. tal
kl. 4, 6, 8 og 101
Sýnd kl. 8 og 10
REYKJAVÍK GUESTHOUSE
ISOLD m/lsl tal
kl. 4 0G6 |LORD OF THE RINGS
kl. 4.45
Sýnd kl. 5, 7 og 9 Sýndkl.4,7ogl0
[BEflUTIFUL MIND jd. 7 og 930 j |AL1
AMELIE kl. 5.45[ |PETERPAN
ISIDEWALKS OF NY kl.8oglQ.5o[ |ARNE AARHÚT
Bcin markaðssókn
óskar eftir að ráða hörkuduglegt
starfsfólk I sölu og úthringiverk-
efni á daginn. Góð verkefni og
góðir tekjumöguleikar.
Hringið í síma 5908000 eða send-
ið tölvupóst á fritz@bm.is til að fá
viðtal. www.bm.is
Bein markaðssókn er leiðandi
upplýsingafyrirtæki sem veitir
sérhæfða þjónustu í markaðs-,
sölu og upplýsingamálum.
Markmið fyrirtækisins er að aðs-
toða viðskiptavini sína við að ná
settu marki í upplýsinga- og
markaðsstarfi.
afsláttur
METRO
Skeifan 7 • Slmi 525 0800
Opið alta daga tii kt. 19:00
Fyrstu afgönsku kvikmynd-
irnar sem gerðar voru eftir
að talibanastjórninni var steypt
af stóli voru
frumsýndar í
bænum Mazar-e-
Sharif, norður
hluta Afganist-
ans á dögunum.
Leikstjóri mynd-
anna tveggja
Siddiq Obadi,
flúði landið árið
‘98, þegar talibanarnir steyptu
stjórninni, en kom aftur þegar
þeir misstu völdin. í myndunum
er lögð mikil áhersla á afganska
menningu og reyndi leikstjórinn
að sýna að það væri meira í
boði í landinu en stríð. Myndin
þótti mikill viðburður og klöpp-
uðu áhorfendur með tónlistinni
og hrópuðu húrra hér og þar
yfir myndinni.
Franski djasspíanóleikarinn
Jacques Loussier hefur höfð-
að mál gegn rapparanum
Eminem. Hann
segir að rappar-
inn noti lag sitt
„Pulsion“ sem
undirspil lagsins
„Kill You“.
Loussier vill fá
10 milljónir doll-
ara (1000,4 millj-
ónir kr.) í skaða-
bætur. Hann krefst þess einnig
að platan verði tekin úr sölu og
að öll óseld eintök sem er búið
að framleiða verði eyðilögð.
Loussier er vel þekktur djassari
í Frakklandi og hefur selt yfir 6
milljónir platna á áralöngum
ferli sínum.
Prestur í Bradford Englandi
sendi Beckham-hjónunum
bréf þar sem hann bað þau um
að bíða með að
láta skíra Brook-
lyn son þeirra.
Þetta gerði hann
eftir að David
Beckham greindi
frá því að hann
vildi láta skíra
son sinn, en hann
hefði ekki enn
ákveðið til hvaða trúar. Prestur-
inn hvatti fótboltastjörnuna því
til að finna fyrst Jesú Krist í
hjarta sínu áður en hann myndi
láta skíra soninn til kristni.
Þess má geta að presturinn er
aðdáandi Manchester United.
Onnur safnplata írsku sveit-
arinnar U2 er væntanleg í
búðir í október. Fyrri platan tók
saman „það
besta“ frá árun-
um 1980 - 1990,
og því mun nýja
platan innihalda
vinsælustu lögin
frá nýliðnum
áratug. Ný smá-
skífa frá sveit-
inni verður gefin
út skömmu áður en platan kem-
ur í búðir. Eins og síðast verður
fyrst gefin út tvöföld plata þar
sem aukaplatan inniheldur
sjaldgæft efni.
Enga tilfmninga-
vellu, takk!
Sigurvegarar Músíktilrauna í ár kalla sig Búdrýgindi. Meðaldur liðs-
manna er rúmlega 14 ár og hafa sigurvegararnir aldrei verið yngri.
Þó Qalla textar þeirra um hin ýmsu vandamál þjóðfélagsins.
tónlist Þrátt fyrir ungan aldur
kunna þeir félagar í Búdrýgindum
svo sannarlega að fagna. Þeir
gerðu það reyndar ekki sama kvöld
og þeir unnu Músíktilraunir, enda
klukkan orðin margt og tími til að
fara í háttinn. Daginn eftir var því
haldin veisla, á American Style,
eftir það var farið í körfubolta.
Liðsmenn Búdrýginda eru allir
fæddir árið ‘87, þrír búa í Kópavogi
og ganga í 9. bekk Kópavogsskóla
en sá fjórði er nýfluttur í Grafar-
voginn og fer því í Engjaskóla.
Hljómsveitin var stofnuð árið ‘98,
upphaflega sem hiphop-sveit.
Tveimur árum síðar tóku þeir fyrst
þátt í Músíktilraunum og voru
valdir athyglisverðasta hljómsveit-
in. Frá þeim tilraunum urðu tals-
verðar mannabreytingar í sveitinni
og tóku þeir því tvö ár í að æfa upp
nýja liðsmenn. Edda bauð strákun-
um plötusamning örfáum sekúnd-
um eftir að þeim var tilkynnt um
sigurinn. Þeir hafa ákveðið að taka
boðinu, en eiga eftir að skrifa und-
ir.
„Við eigum fullt af lögum, en
þar eru átta sem okkur finnst vera
orðin góð,“ segja þeir félagar
Magnús Ágústsson söngvari og
Axel Haraldsson trommari. „Við
ætlum að semja fleiri. Platan kem-
ur vonandi fyrir jól, vinnuheiti
hennar er „Grengirhrin". Sem er
kópavogsíska, orð yfir körfubolta-
leik.“
Netverjar geta nálgast tvö lög
sveitarinnar á vefsvæðinu rokk.is.
Það eru lögin „Spilafíkill" og
„Sigga-la-fo“ en þau voru bæði á
tónleikadagskránni á Músíktil-
raunum.
Textar Búdrýginda hafa vakið
athygli. Texti lagsins „Sigga-la-fo“
byrjar t.d. á þann veg; „Ettu skít
með hníf og gaffli, búðu svo til gott
kaffi. Hafðu það í stórum bolla,
farðu svo heim heimska rolla.“
„Textinn fjallar um mann sem
er í „dead-end“ skrifstofuvinnu,"
útskýra strákarnir en það er Axel
sem sér um textasmíðar. „Þetta er
djúpur skilningur á lífinu.“ En um
hvern er texti lagsins „Spilafíkill"?
„Textinn fjallar um vandamál þjóð-
| BÍÓ
r
Oskarstaktar Halle
að er Halle Berry, aðalleik-
kona kvikmyndarinnar Mons-
ter’s Ball, sem lokkar fólk í bíó.
Ekki bara er fólk forvitið að sjá
hvort stúlkan hafi átt það skilið
að fá að vola fyrir framan heim-
inn á Óskarnum heldur vita
flestir að í myndinni eru eldheit
ástaratriði þar sem hin föngu-
lega leikkona sýnir á sér „nýjar
hliðar". Flestir sem fara á mynd-
ina fá því flest það sem þeir von-
ast til að sjá, og afar óvænt,
miklu meira en það.
Myndin er hádramatísk ástar-
saga og fjallar um þær raunir
sem leiða fangavörðinn Hank
Grotowski (Billy Bob Thornton
leikur snilldarlega), sem vinnur
á dauðadeild, og hina einstæðu
móður Leticiu Musgrove, í arma
hvors annars. Svo vill til að Hank
er einn þeirra fangavarða sem
leiðir dauðadæmdan eiginmann
Leticiu (leikinn af Puff Daddy,
sem kemur bara nokkuð á óvqrt)
í rafmagnsstólinn. Óhamingjan
umlykur þau bæði, munurinn er
hins vegar sá að ólukka Hanks er
að miklu leyti honum sjálfum að
kenna. Hann verður því að kveða
niður rótgróna djöfla innra með
sér ef hann á nokkurn tímann að
eiga von á hamingjusömu lífi.
Söguframvinda myndarinnar
er hæg, en það á afar vel við.
Upp í skarðið fyllir samspil
góðrar kvikmyndatöku, afburða-
leiks og vel heppnaðrar kvik-
myndatónlistar.
Síðustu daga hef ég heyrt
ótrúlegasta fólk (sem ekki hefur
vegna þess að hún er svört“. Satt
er það að hún hefur verið hræði-
leg í öðrum myndum, nú síðast í
hinni ömurlegu „Swordfish".
Staðreyndin er þó sú að Halle
fékk ekki Óskarinn fyrir hör-
undslit sinn né glæsilegan lík-
ama, heldur afburðaleik í þess-
ari frábæru mynd, punktur.
Birgir örn Steinarsson
il