Fréttablaðið - 03.04.2002, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ
SlMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
HUSogheimili
w w w .husogheimili.is
Bjálkahús ehf sími 511-1818 fax 511-1822
I Þráins Bertelssonar
Verði ljós?
Opnunartími þjónustuvers...
f Internets um páskana verður
sem hér segir: Skírdagur - Lokað.
Föstudagurinn langi - Lokað. Laug-
ardagur - Opið frá 12-19. Páskadagur
- Lokað. Annar í páskum - Lokað.“
Þessar gagnlegu upplýsingar birtust
á tölvuskjánum þegar ég varð fyrir
vélarbilun úti á ómælishafi Inter-
netsins um páskana. Þetta rifjar upp
þá ströngu tíð þegar það þótti vera
guðlast að hafa matsöluhús opin um
hátíðar og einhleypingar urðu að lifa
á munnvatni sínu ellegar múmíu-
samlokum sem hægt var að fá
keyptar út um ókristilega lúgu á
Umferðarmiðstöðinni.
—«—
í GUÐRÆKNISKYNIfórégí
kirkju á páskadagsmorgun og hlust-
aði á fallega prédikun hjá biskupn-
um okkar sem útskýrði Guðdóminn
á skiljanlegu máli. Hins vegar
fannst mér Guð verða dáldið fjar-
lægur þegar drunurnar byrjuðu í
pípuorgelinu og fluttir voru sálm-
arnir Sigurhátíð sæl og blíð (við lag
eftir Lully frá 1661), í dauðans bönd-
um (við lag frá Wittenberg um
1524), Nú hljómar lofsöngs lag (frá
1574), Sjá ljós er þar yfir sem lagður
var nár (danskt lag frá 1528) og loks
Drottinn dó en lífið lifir (tiltölulega
nýr smellur frá 1680 eftir Jóakim
Neander).
—♦— ■
EKKI svo að skilja að ég geri miklar
kröfur til afþreyingar á stórhátíðum.
Ég hafði gott af kirkjuferðinni og
Sjónvarpinu tókst að koma mér
skemmtilega á óvart með því að
sýna myndir sem ég held að hljóti að
hafa verið skrifaðar og framleiddar
í tómstundum af fólki sem hefur
orðið fyrir lágmarksáreiti af hálfu
kvikmyndagerðarmanna.
SEM ATVINNULAUSUM kvik-
myndagerðarmanni i nær áratug
hefur mér stundum fundist það vera
soldil sóun að vera kastað á ösku-
haugana á besta aldri; en núna sé ég
nýja atvinnumöguleika opnast ef
prestar eða sýslumenn eru farnir að
sjá um kvikmyndagerðina. Ef til vill
var það bara barnaskapur að láta sig
dreyma um eyða allri ævinni í þá
iðju að breyta peningum í ljós. Úr
þvi að hver sem er getur gert kvik-
myndir sem eru boðlegar þjóðinni á
stórhátíðum þá hlýt ég að geta gift
og grafið í afleysingum - með sann-
gjörnum afslætti. ■
OPEL*©-
Zafira bestur
...í sínum flokki
skv. Auto Motor und Sport Maga7.ine
Hið virta þýska bílatímarit, Auto Motor und Sport, hefur valið Opel Zafira
sigurvegara í sínum stærðarflokki í langtímaprófun þar sem reynir á
endingu og gæði. Er þetta gríðarleg viðurkenning fyrir það gæðastarf
sem Opel leggur höfuðáherslu á við smíði á bílum sínum.
í prófun Auto Motor und Sport þar sem eknir voru yfir 100.000 km,
skaraði Zafira fram úr Volkswagen, Mercedes-Benz, og Renault,
og var settur í efsta sæti yfir sjö sæta bíla fyrir gæði.
Að prófuninni lokinni lagði Auto Motor und Sport sérstaka áherslu á aksturs-
eiginleika Zafira; hið snjalla, en einfalda FIex7 sætakerfí; nákvæmt stýri og
fjöðrunarkerfi, en öll þessi atriði áttu sinn þátt í því að Zafira lauk prófinu
með miklum yfirburðum.
eílUst af því besta - Opd Zafíra
rtö
V*
Sævarhöfða 2a
Sími 525 9000
www.bilheimar.is
Bílheimar
>,'
.
Viö bjóðum
eidhús
í ölium stærðum
og gerðum...
Jt