Fréttablaðið - 22.04.2002, Side 1

Fréttablaðið - 22.04.2002, Side 1
22. til 28. apríl 2002 FRETTABLAÐIÐ Vikulegt sérblað um heimili, hús og fasteignamarkaðinn nr. FASTEIGNIR á WÍSÍr-ÍS FERMETRAVERÐ ÍBÚÐA I REYKJAVÍK* MÍBk FASTEiGNALEIT Á. NETINU HERBERG! FJÖLDI FLATAR- SAMNINGA r^ísi f 63 1 80> 1 | 86 1 601 j | 105 1 292 j Æ v'- % HEILDA- FERMETRA- Að meðaltali tlmabilið apríl 200l-mars 2002. Heimild, verðsjá Fasteignamats rlkisins, www.fmr.is Fermetraverð: Langhæst á litlum íbúðum Fermetraverð er lang- hæst á litlum íbúð- um. Þegar Verðsjá Fast- eignamats ríkisins er skoðuð kemur í ljós að fermetraverð á tveggja herbergja íbúð í Reykjavík er á bilinu 111 þúsund til 151 þús- und, þegar skoðað er ár aftur í tímann. Fer- metraverð á fimm her- bergja íbúðum er lægst, eða á bilinu 95 þúsund til 121 þúsund. Þarna munar á bilinu 16-30 þúsund krónum á fer- metra. Sama er upp á ten- ingnum annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Fermetraverð er langhæst á litlum íbúð- um. í Hafnarfirðinum er það á bilinu 109-141.000 fyrir tveggja herbergja íbúð á sama tímabili. Fyrir fimm herbergja íbúðir er veröið á bilinu 88.-118.000 á fermetra. Þarna munar 11.000 til 23.000 á hvern fermetra. Guðjón Guðmundsson, fasteignasali á fasteignasölunni Höfða í Hafnarfirði, segir byggingarverktaka til skamms tíma ekki hafa byggt nógu mikið af litlum íbúðum. Því hafi þær ver- ið svo dýrar sem raun ber vitni. Næg eftirspurn hafi nefnilega alltaf verið eftir þessum íbúðum, og eigi það í raun við öll hver- fi á höfuðborgarsvæðinu. Guðjón segir einnig að þeir sem hafi fjárfest í litlum íbúðum hafi ávaxtað sitt pund vel, þær hafi hækkað hlutfallslega meira en aðrar íbúðir. ■ LÍTIÐ BYGCT AF LITLUM ÍBÚÐUM Verð lítilla íbúða hefur hækkað hlutfallslega meira en verð stærri eigna. BIRTAN ÚR MÖRGUM ÁTTUM Vilborg Dagbjartsdóttir situr hér fyrir framan bókahilluna sína. Útsýni niður á Lækjargötuna Við búum í gömlu húsi við Bók- hlöðustíginn sem heitir Stöðla- kot og mitt vinnuherbergi snýr nið- ur að Lækjargötunni,“ segir Vilborg Dagbjartsdóttir ijóðskáld sem vinn- ur alla jafna heima við. „Ég kann því ósköp vel að hafa bjart í kringum mig og vil vera þar sem ég sé vítt yfir. Mér líður svo vel og birtan hef- ur svo mikil áhrif á mig því hún er svo margvísleg. Birtan kemur úr mörgum áttum þegar margir eru gluggarnir. „Vilborg segist vera með gamalt skrifborð í funkisstíl Vilborg Dagbjartsdóttir skáld á bjart og nota- legt vinnuhorn á heimili sínu. sem hún gerði sjálf upp. „Gamla stóra eikarbókahillu er ég með sem mér var gefin. í henni eru eingöngu ljóðabækur sem ég gríp í annað slagið. Á hjólaborði hef ég orðabæk- ur og vitaskuld sit ég í góðum stól.“ Vilborg kveðst vera ánægð með sína vinnuaðstöðu og líður henni þar giska vel. Þegar hún er að fást við þýðingar vinnur hún skipulega og lengi í nokkurn tíma en því er á ann- an veg farið þegar hún semur. „Ljóð eru unnin á allt annan hátt. Þau sem ég hvar sem er og ég velti þeim stundum lengi fyrir mér í kollinum áður en ég sest niður til að skrifa þau. Stundum eru þau fullsköpuð áður en að ég hef fest þau á blað. Oft vantar mig orð og þá get ég verið lengi að finna rétta orðið. Þannig var það með ljóðið sem ég var að semja núna. Mig vantaði orð yfir þoku sem lýsti henni eins og ég sá hana fyrir mér fyrir austan. Mig langaði að það bæri inn í sér hvern- ig þokan er eins og ull. Líkinguna fann ég þegar mér datt í hug orðið „sauðgrá. Eg fór því í búð í götunni fyrir ofan mig og skoðaði gráar gærur og sá að ég hafði haft rétt fyr- ir mér. Upphafið hljóðar svona: Vör Hún reitti skorðurnar tókfram hlunnana raðaði þeim kyrfilega alveg niður íflæðarmál settist á stein og beið sauðgrá, fínkembd lagðist þokan yfir svo varla sá handaskil. Sú besta samkvfmi sbtnilu kifópiaki«)in-*iamtt)kiim i hclmi ^ElLSUNNAR LÍstftHslnu Laugardai, slmi 581 2233 * Dalsbraut 1, Akurayri, sírní 461 1150 * www.svnfiiogliitils.-t.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.