Fréttablaðið - 22.04.2002, Side 12

Fréttablaðið - 22.04.2002, Side 12
12 Brautarholti 10 - Sími 533 1300 - Fax 533 1305 www.fasteianasalan.is - Netfana: arund@fasteianasalan.is Oddný I. Björgvinsdóttir framkvæmdastjóri Páll Höskuldsson sölustjóri GNIPUHEIÐI - BÍLSKÚR Einstaklega falleg 124 fm neöri sérhæð í skemmtilegu fjórbýlishúsi ásamt 28 fm bil- skúr, sér inngangur, glæsilegt útsýni. ibúðin er sérlega smekkleg. Húsið i góðu standi og rólegt umhverfi. BERJARIMi Mjög björt og smekkleg 86 fm íbúð á 3ju hæð í fjölbýlishúsi. Þvottahús innan íbúðar. Suðaustursvalir. Bílastæði í bilageymslu. V. 12 millj. FRAMNESVEGUR Falleg 67 fm íbúð á jarðhæð, mjög snyrti- legur garður. íbúðin er mikið endurnýjuð. V. 10.6 millj. GRENIMELUR Mjög góð 83 fm íbúð i kjallara á rólegum stað í Vesturbænum, gróinn garður. Nýlegt rafmagn, húsið í góðu standi og parket á gólfi. V. 9.4 millj. KARLAGATA Snyrtileg 2-3ja herbergja íbúð í tvíbýlishúsi með aukaherbergi í kjallara. ibúðin er mikið endurnýjuð. V. 8.9 millj. RAUÐARÁRSTÍGUR Vorum að fá í einkasölu mjög góða 60 fm íbúð á 2. hæð miðsvæðis í borginni. Snyrtileg sameign, vestursvalir. V. 8 millj. Sigurbjörn Skarphéðinsson lögg. fasteignasali Leifur Aðalsteinsson sölumaður ÆGISlÐA Mikið endurnýjuð 79 fm íbúð i virðulegu steinhúsi, gróinn garður með leiktækjum, stutt í leikskóla og skóla. Góð staðsetning, mjög falleg útivera. V. 10.6 millj. REKAGRANDI Sérlega glæsileg 87 fm ibúð á tveimur hæðum, hæð og ris, á 3ju hæð í góðu fjöl- býlishúsi með útsýni yfir sjó og Esjuna. Gólfflötur ibúðar er meiri en uppgefnir fm. Sólríkar suðaustursvalir útfrá stofu, glæsi- legt útsýni. ibúðin er björt og skemmtileg, Ijóst eikarparket er á allri hæðinni. Léttur hringlaga stigi upp i ris. Vandaðar innrétt- ingar. Lokað bílskýli. V. 12.5 millj. 4-7 herbergja FELLSMÚLI Sérlega góð og björt 144 fm ibúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Ein íbúð er á stigapaili, sér forstofuherbergi. Fallegar flísar á gólfi. Stórar og sólrikar suðursvalir út frá stofu. Rúmgott þvottahús með hillum innan íbúðar. V. 14.9 millj. (mynd nr. 2035) HÁALEITISBRAUT Mjög góð 117 fm 5 herb. ibúð í fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í borginni. Þvottahús innan íbúðar. Hús i góðu standi. Bilskúr með hita, vatni og rafm. V. 13.2 millj. RJÚPUFELL Glæsileg 109 fm 4ra herb. íbúð á þriðju hæð, mikið endurnýjuð. Yfirbyggðar svalir. Nýtt parket er á gólfum og innihurðir allar nýjar. Húsið var klætt að utan í sumar. V. 11.9 millj. I fln Sí ii ■ anHf sr * mmg ’ EINBÝLI - RAÐHÚS, sem tvær íbúðir, verð allt að 25 millj. kr. VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR ALLAR STÆRÐIR AF EIGNUM Nú ER LAG! 2ja vikna tilbob 35% afsláttur af öllum Nettoline innréttingum í 2 vikur Eldhús Baö Fataskapar Þvottahus Netto C / œ s i I e g a r d a n s k a r innréttingar - AM.||k. - «|Bal mánudaga-föstudaga kl. 9-18 OPNUNARTIMI: Friform ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - S(MI: 562 1500 TILBOÐIÐ STENDUR 18. apríl - 6. maí Heimilisblaðið 22. til 28. apríl 2002 Stílhreint og failegt hús Ragnhildur Sif Reynisdóttir er ákveðin í að eignast einn góðan veðurdag draumahúsið. Ragnhildur Sif Reynisdóttir gullsmiður á sér draum um hæfilega stórt einbýlishús. „Það á að vera í spænskum eða ítölskum stíl og því á að fylgja bílskúr. Gluggana vil ég hafa fallega þann- ig að þeir njóti sín. Húsið á að vera stílhreint og innstokksmuni vildi ég hafa fallega fremur en marga. í kringum húsið langar mig að hafa garð þar sem ég get ræktað grænmeti." Ragnhildur Sif býr í Vesturbænum en býst ekki við að hún geti fundið svona hús þar. „Svona hús er ég ákveðin í að eignast einhvern tíma. Stað- inn á ég á eftir að finna en um- hverfið verður að vera fallegt.“ ■ GRÆNMETISGARÐUR I KRING Ragnhildur vill geta ræktað græn- meti í garðinum við draumahúsið. Kalltu: rúmið skemmtiferðaskipið G UM BORÐ f SKIPINU Brynhildur Guðjónsdóttir fær sér stutta siglingu fyrir Ijósmyndarann. V, að eru tveir ákveðnir hlutir sem ég nota mest og gæti ekki verið án, rúmið mitt og þvottavél- in,“ segir leikkonan Brynhildur Guðjónsdóttir. „Ég get átt langt samtal við þvottavélina og dvel langdvölum með henni. Eg og þvottavélin skiljum orðið hvor aðra afskaplega vel,“ segir hún og hlær. Brynhildur, sambýlismaður hennar leikarinn Atli Rafn Sigurð- arson og ársgömul dóttir þeirra eru nýflutt á Bjargarstíginn. „Einn af kostunum við nýja hús- næðið er þvottahúsið sem ég þarf ekki lengur að deila með öðrum. Ef sá gállinn er á mér get ég hengt þvottinn upp skakkt og þvegið eft- ir klukkan tíu á kvöldin." § Rúmið góða segir Brynhildur 2 að sé íslensk framleiðsla. Það sé | bæði hátt og þægilegt. „Rúmið | minnir okkur hjónin alltaf á þægi- § legt skemmtiferðaskip og er | aldrei kallað annað. Það passar g vel í nýja svefnherbergið en á E gamla staðnum fyllti það nánast “ út í alla enda. Það komst enginn lönd né strönd og þurfti nánast að taka tilhlaup og skutla sér upp í.“ Það er í nógu að snúast hjá þessari hæfileikaríku leikkonu. Hún er um þessar mundir að leika í Önnu Kareninu og var í hlut- verki Baktusar í leikritinu um Karíus og Baktus. „Þeir félagar eru núna í smá pásu þar sem leik- rými þeirra í Smíðaverkstæðinu var breytt til að halda utan um leikritið Veisluna." Brynhildur sem einnig tekur þátt í þeirri upp- færslu segir hana æði sérstaka. „Áhorfendum er boðið í sextugs- afmæli Helga og fá þrjátíu þeirra að sitja til borðs með öðrum veislugestum. Þar snæða þeir, standa upp og skála og taka þátt í öðrum veisluhöldum. Ég tek það fram svo að fólk verði ekki feimið að ekkert leikhúsáreiti á sér stað. Það þarf enginn að tala og engu ljósi verður beint á áhorfendur. Salurinn verður eins og einn stór veislusalur með borðið í öndvegi Brynhildur Guðjóns- dóttir, leikkona, setur rúmið og þvotta- vélina í öndvegi. og áhorfendasæti með hliðunum. Það ættu allir að hafa gaman að þessari óvenjulegu sýningu," seg- ir Brynhildur að lokum. ■ Nóg að sauma vélin sé falleg Þegar Guðlaug Eiðsdóttir skrif- stofustjóri kom sér fyrir í nýju íbúðinni sinni á Sléttahrauni í Hafnarfirði var sjálfgefið að 100 ára gömul saumavél skipaði heið- urssess á heimilinu. „Ég held að amma mín, Guðlaug Veróníka Franz, hafi nú bara keypt sér saumavélina þegar hún byrjaði búskap,“ segir Guðlaug, „en svo þótti sjálfsagt að ég fengi hana þegar amma dó, þar sem ég er Guðlaug Verónika Eiðsdóttir saumar aldrei, en heldur samt upp á 100 ára gamla saumavél. ilil'—itti!! i ÍWPTb hl eina nafna hennar." Amman var mikil saumakona en Guðlaug þvertekur fyrir að saumavélin mali enn. „Ég sauma ekki sjálf, enda þarf svona flottur gripur ekki að þjóna öðrum tilgangi en að vera fallegur. Nú, svo er lykillinn að henni líka týndur," segir Guð- laug. Gulla festi kaup á íbúðinni á Sléttahrauninu í febrúar og býr þar með sambýlismanni sínum, Jóni Hafþóri Marteinssyni. Þegar þau fóru af stað í húsnæðiskaupin var skilyrði að íbúðin væri stað- sett í Hafnarfirði og væri þægileg og rúmgóð með aukaherbergi fyr- ir börn Jóns Hafþórs. „Ég er alsæl með íbúðina og líður ofboðslega vel heima hjá mér,“ segir Gulla. ■ ÞJÓNAR NÚ SEM BORÐ Saumavélin frá ömmu hennar Guðlaugar Eiðsdóttur malar ekki lengur. Hins vegar nýtist borðið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.