Fréttablaðið - 02.05.2002, Side 6
6
FRETTABLAÐIÐ
2. maí 2002 FIMMTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Nýtt flugfélag í smíðum:
Samkeppni í lág-
um flugfargjöld
Hverjir eru þínir helstu kostir?
„Ég veit það nú ekki. Ætli ég láti ekki aðra
um að dæma það."
Jónína Þorsteinsdóttir
starfar hjá heimaþjónustu aldraðra
ferðamál Stefnt er að því að nýtt
flugfélag taki til starfa hér á
landi í júní. Það mun fljúga einu
sinni á dag, alla daga vikunnar, til
London og Kaupmannahafnar og
er stefnan að fargjöld verði í
ódýrari kantinum. Aðstandendur
fyrirtækisins eru nú staddir í
London til að ganga frá loka-
samningum. Jóhannes Georgs-
son, sem áður var framkvæmda-
stjóri SAS hér á landi, er í for-
svari fyrir flugfélagið, sem enn
hefur ekki hlotið nafn. Hann
sagði í samtali við Fréttablaðið
að ekki væri unnt að gefa upp
nein verð á fargjöldum fyrr en
samningar væru frágengnir. En
flugfélagið myndi leggja áherslu
á lág flugfargjöld og ætlaði sér
að fylla það gat sem myndaðist
þegar Go hætti að fljúga hingað.
Jóhannes sagði að nýja flugfélag-
ið muni starfa allan ársins hring.
Ekki fékkst uppgefið hverjir eru
eigendur nýja flugfélagsins. ■
AUKIN SAMKEPPNI
Lægstu fargjöld Go hingað síðasta sumar
voru 16.000 krónur. Flugleiðir bjóða í ár
upp á sumarfargjöld til Kaupmannahafnar
og London frá tæplega 29.000 krónum.
Ekki er Ijóst hvaða verð nýja fyrirtækið
mun bjóða upp á en gera má ráð fyrir að
það verði lægra.
Aðbúnaður við aðgerðir:
Svæfingarnar
mikilvægastar
heilbrigðismál Helgi H. Sigurðs-
son, formaður Skurðlæknafélags
íslands, segir reglur sem um að-
búnað i kringum svæfingar ekki til
komnar af brýnni þörf. Hann segir
að þurft hafi að fastsetja vinnuregl-
ur sem þegar hafi verið í gildi. „Það
sem skipti, að við teljum, mestu
máli er aðbúnaðurinn í kringuni
svæfingarnar. Sú vinna er búin og
klárir staðlar varðandi öryggi í
kringum þær,“ sagði hann.
Helgi segir stefnu félagsins að
bakflæðisaðgerðir séu ekki fram-
kvæmdar utan sjúkrahúsanna.
„Þær eru gerðar á Landspítala í
Fossvogi og á Hringbraut, og eitt-
hvað af þeim er gert á Akranesi." ■
LAGASETNING
Frumvarp sjávarútvegsráð-
herra um að Fiskistofa út-
hluti einstökum skipum aflahlut-
deild í norsk-íslenska síldar-
stofninum á grundvelli afla-
reynslu skipa á árunum 1994 -
2001 hefur verið samþykkt sem
lög frá Alþingi. Frumvarpið var
samþykkt með 32 atkvæða
stjórnarliða gegn 16 atkvæðum
Samfylkingar og Frjálslyndra.
Fimm erlendum ríkisborgur-
um hefur verið veittur ís-
lenskur ríkisborgararéttur. Alls
bárust 19 umsóknir til allsherj-
arnefndar um ríkisborgararétt.
Alþingi hefur samþykkt lög
um réttarstöðu starfsmanna
við eigendaskipti að fyrirtækj-
um sem banna eigendum að
segja starfsfólki upp störfum
vegna eigendaskipta nema efna-
hagslegar, tæknilegar eða skipu-
lagslegar ástæður séu fyrir
hendi sem hafa í för með sér
breytingar á starfsmannahaldi
fyrirtækis.
Bandarískir sálfræðingar:
Ungbörn
telja
vísinpi Tveir sálfræðingar við há-
skólann Yale í Bandaríkjunum,
Karen Wynn og Paul Bloom, segj-
ast hafa fengið staðfestingu á því
að ungbörn telji hluti. Þegar þau
horfi lengi á hluti séu þau ekki
bara að virða fyrir sér lit, stærð
og áferð hlutanna, heldur séu þau
að telja.
Þau gerðu rannsókn á 24 börn-
um á aldrinum fjögra til fimm
mánaða. Þau sýndu börnunum
spjöld með mismunandi mörgum
myndum og fylgdust með við-
brögðum þeirra. Greinilegt virtist
að fimm mánaða börnin geta
greint á milli fjölda þeirra hluta,
sem þau sjá. ■
Aukaverkcinir vegna
bakflæðisaðgerða
Alvarlegar aukaverkanir aðgerða vegna bakílæðis eru tíðar í Danmörku. Hér á landi er unnið að
reglum um hvaða lágmarkskröfur sjúkrahús þurfa að uppfylla til að mega framkvæma tilteknar
skurðaðgerðir og læknisverk.
heilbrigðismál Alvarleg vandamál
koma upp í kjölfar „bakflæðisað-
gerða“ í tæplega 10 prósentum til-
fella á sjúkrahúsum í Danmörku,
að því er kom fram í Berlingske
Tidende. 9,6 prósent af 788 Dön-
um sem undirgengust slíkar að-
gerðir, sem koma eiga í veg fyrir
flæði magasýra upp í vélinda,
lentu í alvarlegum eftirköstum.
______4___ Þrjú dauðsföll
Sigurður Guð- v°ru ?kráð ve8na,
mundsson, aðgerdanna en i
landlæknir °llum . '!lvlkum
segir unnið að hofðu sjuklmgarn-
,6. „. ír latist vegna
þv, að koma blóðeitrunar { k“öl_
upp miðlægri far iffhimnubóigu.
skraningu Sigurður Guð-
lækmsaðgerða mundsson, land-
°8faðlaðra læknir, sagði upp-
fylgikvilla lýsingar um auka-
þeirra. verkanir af völd-
—♦— um bakflæðisað-
gerða hér á landi
ekki liggja á lausu hjá embættinu.
„En við erum að vinna að mið-
lægri skráningu, ekki bara að-
gerða, heldur einnig á stöðluðum
fylgikvillum," sagði hann. Sigurð-
ur taldi hlutfall aukaverkana í
Danmörku engu að síður óeðlilega
hátt. Hann áréttaði að ekki borist
vísbendingar um að óeðlilega
mikla fylgikvilla af þeirra völdum
hér á landi.
f Berlingske er ástæða fylgi-
kvillanna rakin til að verið sé að
gera aðgerðir of víða og lækna
kunni því að skorta reynslu.
„Reyndar gildir það um allar
LANDSPlTALI-HÁSKÓLASJÚKRAHÚS við hringbraut
Allur þorri bakflæðisaðgerða hér á landi er framkvæmdur á Landspítalanum við Hringbraut. Langur biðlisti er eftir að komast í aðgerð, en
bakflæði er algengur kvilli hér á landi.
skurðaðgerðir að magnið skapar
máttinn," sagði Sigurður og vísaði
til niðurstaðna nýrra rannsókna
sem birtar voru í læknaritinu
virta New England Journal of
Medicine. Þar kemur fram að
tíðni aukaverkana sé langminnst
þar sem mestur fjöldi aðgerða er
framkvæmdur. „Hér eru bakflæð-
isaðgerðirnar gerðar eiginlega
eingöngu á einum stað, þ.e. á
Landspítalanum og ekki fram-
kvæmdar á smærri sjúkrahús-
um,“ sagði hann.
Að sögn Sigurðar vinnur Land-
læknisembættið, í samvinnu við
stjórn Skurðlæknafélags íslands,
að reglum um lágmarkskröfur um
aðbúnað á sjúkrahúsum varðandi
tiltekin læknisverk. „Þetta eru
grundvallarleiðbeiningar og staðl-
ar um hvað á að gera hvar,“ sagði
Sigurður og áréttaði að reglurnar
ættu fyrst og fremst við tiltölu-
lega sjaldgæf verk. „Þannig að þó
slíkar kröfur yrðu gerðar breytti
það engu um þjónustustigið sem
sjúkrahúsin á landinu veita al-
mennt,“ sagði hann.
oli@frettabladid.is
Hágæða jeþpadekk
■ janaapvi «.
www.fjallasport.is
MalfiihOfOð Vá * 110 Oeykjavík * íjlinl; 577 4444 - 1n*.i 50/ 7445 «■ fjalla<TÍtoil#fjHllas|H>r!.Ís
Ahnf veðurfars síðustu daga á gróður:
Blómstrandi laukar
geta skemmst
cróður „Veðurfarið undanfarna
daga hefur ekki haft áhrif á trjá-
gróóur því hann var ekki kominn
mjög langt af stað,“ segir Þórólfur
Jónsson, deildarstjóri garðyrkju-
deildar hjá Reykjavíkurborg, þeg-
ar hann var spurður út í áhrif veð-
urfars síðustu daga á gróður.
„Þetta getur hins vegar haft áhrif
á þessa vorblómstrandi lauka,
eins og krókusa, og þá aðallega þá
sem eru búnir að opna sig. Blómin
skemmast. Þeir laukar sem ekki
eru búnir að opna sig þola þetta
veður.“
Þórólfur segir kuldaköst líkt og
um síðustu helgi ekki vera ný-
mæli fyrir starfsmenn garðyrkju-
deildarinnar. Hann segir að gróð-
urinn sem deildin notast við verði
að þola svona veðurfar. En hvað
TRJÁGRÓÐUR
Veðrið síðustu daga hefur ekki haft áhrif á
trjágróður en getur haft áhrif á
vorblómstrandi lauka.
með viðkvæm blóm?
„Ef sérstökt blóm eru í garðin-
um er hægt að breiða yfir þau, s.s.
fötu. En það er ekki gert nema
fyrir sérstaka græðlinga." ■
Breytt löggjöf um
OKusKirreim:
Fullnaðar-
skírteini
eftir eitt ár
alpingi Nýir ökumenn fengið fulln-
aðarskírteini eftir eitt ár í stað
tveggja ára áður í kjölfar þess að
Alþingi breytti lögum um útgáfu
ökuskírteina.
Ári eftir að ökumenn fá bráða-
birgðaskírteini gangast þeir undir
ökumat fá umsögn ökukennara um
hvort árangur þeirra réttlæti út-
gáfu fullnaðarskírteinis.
Standist þeir ekki ökumatið eða
hafi fengið punkta vegna umferð-
arlagabrota þann tíma sem þeir
hafa haft bráðabirgðaskírteini fá
þeir útgefið nýtt bráðabirgðaskír-
teini. ■