Fréttablaðið - 02.05.2002, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 02.05.2002, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 2. maí 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 9 Hátækni: Talenta tapar uppcjör Tap Talentu-Hátækni á fyrsta ársfjórðungi var 54 mill- jónir króna. Tapið má rekja til lækkana á gengi skráðra fyrir- tækja sjóðsins, Columbus IT Partner og Aco-Tæknivals. Það sem af er árinu hefur Talenta-Hátækni fjárfest í einu fyrirtæki, Halló-Frjálsum fjar- skiptum. Sjóðurinn átti fyrir hlut í Halló og fjárfesti nú fyrir 95 m.kr. í hlutafjáraukningu félagsins. Sjóðurinn á hlut í 21 fyrirtæki Heildareignir félagsins námu 751 milljónum króna. Eigið fé nam 522 milljónum króna sam- kvæmt efnahagsreikningi.H Hraðfrystihús Eskifjarðar: Betri afkoma uppcjör Hagnaður Hraðfrystihúss Eskifjarðar fyrsta ársfjórðung 2002 var 568 milljónir miðað við 100 milljón króna hagnað fyrir sama tímabil árið áður. Afskriftir námu rúmum 107 milljónum og fjármunatekjur voru jákvæðar um rúmar 189 milljónir. Reiknaður tekjuskattur nam 138 milljónum. Niðurstaða tímabilsins er í takt við áætlanir félagsins, að undan- skildum jákvæðum fjármagns- gjöldum er námu 189 milljónum króna. ■ —*— Námsefni í stærðfræði: I endur- skoðun námsefni Unnið er að endurskoðun námsefnis í stærðfræði fyrir grunnskóla. Þegar hefur verið lokið við fyrstu 4 árin og er vinna við endurskoðun námsefnis fyrir mið- stig þegar hafin. Hafist verður handa við unglingastig eins fljótt og auðið er. Að sögn Hafdísar Finn- bogadóttur hjá Námsgagnastofnun er verið að semja nýtt efni alveg frá grunni. Námsskráin í stærð- fræði var endurskoðuð árið 1999. Að sögn Hafdísar er erfitt að finnna námsefni sem passar henni alveg, hún krefjist nýrra aðferða. „En þetta hefur algeran forgang hjá okkur,“ segir Hafdís.> —♦— Forsætisráðherra gagnrýndur: Vildu ræða fátækt alþinci Stjórnarandstæðingar deildu hart á Davíð Oddsson, for- sætisráðherra, við upphaf þing- fundar á þriðjudag fyrir að neita Jóhönnu Sigurðardóttur, þing- manni Samfylkingar, um utandag- skrárumræðu um fátækt á íslandi. Forsætisráðherra sagði engar nýj- ar upplýsingar liggja frammi til að réttlæta slíka umræðu auk þess sem málið heyrði ekki endilega undir sig. Jóhanna sagði að það væri oddvita ríkisstjórnar að svara. ■ Arshátíða- og hópferðir aman saman Verðdæmi gilda í helgarferðir I. október-15. desember. Leitið tilboða fyrir önnur tímabil. Verðdæmin miðast við að flugsæti og hótelgisting fáist staðfest. Verðdæmin gilda ekki þegar sýningar eru í borgunum. Lágmark 10 í ferð. Tilvalið fyrir klúbba og félagasamtök. Hafið samband við hópsöludeild lcelandair í síma 50 50 406. groups@icelandair.is Glasgow Fra 36.720 kr á mann I tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Premier Lodge, morgun- verður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. London Fra 47.730 kr. á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Forte Posthouse Kensington, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Kaupmannahöfh Frá 4 5 .110 kr. á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Palace Hotel, niorgun- verður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. París Frá 49.965 kr á mann í tvíbýli í 3 nætur. Innifalið: flug, gisting á Home Plazza St. Antoine, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Minneapolis Frá 5 I .660 kr. á mann í tvíbýli í 3 nætur. Innifalið: flug, gisting á Holiday Inn nr 2 eða Clarion Hotel, flugvallarskattar og þjónustugjöld. TaJlimi Fra 5 9.950 kr. á rnann i tvíbýli í 4 nætur. Innifalið: flug, feija, gisting í 2 nætur á feijunni, gisting í 2 nætur á Scandic Hotel Palace, morgun- verður, einn kvöldverður á feijunni, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Flogið til Stokkhólms, feija yfir til Tallinn og sömu leið til baka. Verð miðast við 20 manns í hópi. Wiesbaden Fra 5 2.3 3 0 kr. á mann í tvíbýli í 3 nætur. Innifalið: flug, gisting á Crown Plaza, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Luxemborg Frá 54.640 kr. á mann í tvíbýli í 3 nætur. Innifalið: flug, rúta til Lux, gisting á Alvis Park, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. (flogið til Frankfurt og rúta þaðan til Luxemborgar, u.þ.b. 3 klst. akstur). Þú selurnýja bílinn um leið og þú kaupir hann! www.lysing.is 'AUGtÝSIKCASTOFANTSiA.IS ICf 17SJI .14/2112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.