Fréttablaðið - 02.05.2002, Page 10

Fréttablaðið - 02.05.2002, Page 10
FRÉTTABLAÐIÐ 2. maí 2002 FIMMTUC<ACUR Fyrirtæki til sölu, t.d.: • Sérhæft fyrirtæki sem setur lakkvörn á bíla. Gott einkaumboð, tæki og lager. Hentugt fyrir tvo menn. • Höfum til sölu nokkrar stórar sér- verslanir, heildverslanir og iðnfyrir- tæki í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 MKR • Saumagallerí í Mosfellsbæ. Vefn- aðarvöru- og gjafavöruverslun í góðu húsnæði. Hentugt fyrir lag- hentar konur. Lágt verð. • Heildverslun með þekkt fæðu- bótaefni sem aðallega eru seld í apótek. Ársvelta 20 MKR. • Snyrtivörudeild úr heildverslun. Litalína sem er í nokkrum góðum verslunum og hægt er að efla. Hentugt fyrir konu sem hefur vit á snyrtivörum og langar í eigin rekstur. Lágt verð. • Hliðakjör. Söluturn í góðu hús- næði í Eskihlíð. Hentugt fyrir hjón. Auðveld kaup. • Lítill sport pub í Árbæjarhverfi. Besti tíminn framundan. Auðveld kaup. • óskast að matvælafyrirtæki með mikla sérstöðu. Selur bæði í mat- vöruverslanir og á stofnanamark- aði. Ársvelta nú um 35 MKR en getur vaxið hratt. • Húsgagnaverslunin Krea, Flata- hrauni. Hágæða hollensk hús- gögn. Lágt verð. •Rótgróin deild úr fyrirtæki, sala mælibúnaðar fyrir framleiðslu- og matvælafyrirtæki. Framlegð 5 MKR á ári. • Veitingahúsið Tex-Mex á Lang- holtsvegi. Góður staður með mikla möguleika. Auðveld kaup. • Rótgróin efnalaug í Hafnarfirði. Mjög vel tækjum búinn. Traust fyrirtæki i föstum viðskiptum. Velta um 2 MKR á mánuði. • Lítil kvenfataverslun við Lauga- veg. Góð afkoma fyrir 1-2 konur. Auðveld kaup. • Glæsileg sólbaðsstofa í Breiðholti. 9 bekkir. Meðalvelta 1.100 þús á mánuði. • Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1-2 starfsmenn, sérstaklega smiði. • Heilsustúdíó í Garðabæ. Vel tækj- um búið. Meðalvelta um 600.000 kr. á mánuði. • Lítil tískuverslun í Kinglunni. Mán- aðarvelta 2-3 MKR. Auðveld kaup. • Góð sérverslun með íþróttavörur í austurbænum. Ársvelta 24 MKR. Miklir möguleikar. Hentugt fyrir hjón. • Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Arsvelta 100 MKR. Góður hagnaður um margra ára skeið. • Videósjoppa í Breiðholti með 4 MKR veltu á mánuði. Auðveld kaup. • Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 15 her- bergi, ársvelta 20 MKR. Möguleiki á 15 herbergjum til viðbótar og lít- illi íbúð fyrir eiganda. • Sólbaðsstofa í miðbænum. 6 bekkir + gufubað og önnur að- staða. Velta 500-600 þús. á mán- uði og vaxandi. Auðveld kaup. • Trésmiðja sem framleiðir aðallega innréttingar. Góð tæki og hús- næði. 4-6 starfsmenn. Auðveld kaup. • Verslun, bensínssala og veitinga- rekstur i Búðardal. Eigið húsnæði. Mjög góður rekstur. Ársvelta 180 MKR og vaxandi með hverju ári. Besti árstíminn framundan. • Lítill söluturn - videóleiga í Háa- leitishverfi. Auðveld kaup. •Ein vinsælasta sportvöruverslun landsins. Góður rekstur n miklir framtíðarmöguleikar. • Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin) • Sími 533 4300 • Gsm 820 8658 10 RAUL Spánverjinn fagnaði sínu 33 marki í Meistaradeild Evrópu þegar hann skoraði gegn Barcelona i gær. Meistaradeild Evrópu: Real Madrid komst áfram fótbolti Real Madrid mætir Bayern Leverkusen í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Barcelona á heimavelli gær. Ma- drid sigraði fyrri leikinn 2-0 og því samanlagt 3-1. Raul kom Madrid yfir rétt fyrir hálfleik með fallegu skoti af 20 metra færi, en skömmu áður hafi Barcelona átt skot í stöng. Þetta var fyrsta mark Raul í síðustu 13 leikjum og hef- ur hann nú skorað 33 mörk í Meistaradeildinni eða meira en nokkur annar. í byrjun síðari hálfleiks jafnaði Barcelona met- in þegar Ivan Helguera skoraði sjálfsmark. Leikurinn var nokkuð jafn en leikmenn Barcelona voru þó óheppnir að bæta ekki við marki á síðustu 10 mínútum leiksins. Þá fengu bæði Kluivert og Geovanni góð færi. ■ Úrslitakeppni 2. deildar: Islendinga- slagur fótbolti Stoke og Brentford mæt- ast í úrslitaleik um eitt laust sæti í 1. deild laugardaginn 11. maí. Stoke sigraði Cardiff 2-0 á útivelli í framlengdum leik. Cardiff sigr- aði fyrri leikinn 2-1 og komst Stoke því áfram samanlagt 3-2. James O’Connor kom Stoke í 1- 0 á 90. mínútu og Souleyman Oulare tryggði liðinu sæti í úr- slitaleiknum með marki á 115. mínútu. Brentford sigraði Huddersfi- eld 2-1 á heimavelli. Fyrri leikn- um lauk með markalausu jafn- tefli. ■ Gengið vel í vetur Helgi Daníelsson knattspyrnumaður hefur nú verið tæp fjögur ár í Bretlandi. Hann segir það hafa verið erfitt í byrjun að kveðja vini og íjölskyldu og festa rætur í Bretlandi. knattspvrna „Keppnistímabilinu var að ljúka. Það fer að styttast í að ég komi heim,“ segir Helgi Daníelsson knattspyrnumaður með Peterborough. Helgi var að- eins sautján ára gamall þegar hann fyrst hélt út til Bretlands en hefur nú verið þar í tæp fjögur ár. „í byrjun lék ég með unglingalið- inu sem þá var með þeim bestu í Bretlandi. Við vorum þá í úrvals- deild unglingaliða og vorum að spila við þá bestu en það heillaði mig mest.“ Helgi segir að þrátt fyrir það hafi hann átt erfitt með að samlagast og eignast vini í upp- hafi. „Ég var mjög ungur og kom beint úr foreldrahúsum frá vinum og skólafélögum. Ég þurfti að taka á öllu mínu og leiddist oft mjög mikið. Strákarnir í liðinu höfðu ekki sömu áhugamál og ég þannig að mér gekk ekki vel að eignast vini. Þeir voru meira fyrir að fara á pöbb og drekka en ég hafði ekki sömu löngun til þess. Eftir að ég eignaðist hér kærustu fyrir rúmu ári hefur mér gengið betur að festa mig.“ Helgi segir ennfremur að í byrjun hafi hann búið inn á fólki og ekki haft sína eigin íbúð. „Nú bý ég í litlu rað- húsi í þorpi fyrir utan borgina og líður mun betur." Helgi segist ekki eiga von á öðru en hann verið áfram hjá fé- laginu enda samningsbundin í tvö ár í viðbót. „Það leggst ekki illa í mig því ég hef spilað mun betur síðari hluta vetrar. Allt stendur þetta og fellur með því að eiga góða leiki því samkeppnin er mjög hörð. í byrjun kom það mjög illa við mig þegar ég stóð mig ekki nægilega vel. Þá komu þær hugs- anir að best væri bara að koma sér heim. Með tímanum hefur mér lærst að láta það ekki hafa eins mikil áhrif á mig.“ Helgi var HELGI DANÍELSSON Samningsbundinn hjá Petersbrough til tveggja ára í viðbót. í MH þegar hann fór út og fyrstu tvö árin var hann í skóla í Englandi. Nú er hann hins vegar í fjarnámi og hyggst ljúka stúd- entsprófi á þann hátt. „Það gengur vel því ég hef ágætan tíma til að læra.“ Hans helsta áhugamál er STUNDUM KOMU UPP EFASEMDIR UM AÐ ÉG VÆRI Á RÉTTUM STAÐ Nú hefur Helgi eignast kærustu og heimili og því er mun auðveldara að búa úti. tónlist og spilar Helgi á gítar í frí- tímanum. Hann á líka góða mögu- leika á sækja tónleika og segist ekki láta neina merkisviðburði fram hjá sér fara. „Stutt er í að ég komi heim í frí og hlakka ég til að eyða sumrinu heima. Ég er í góðu formi og það er ekki ástæða til að ætla annað en ég verði áfram úti og vel gangi." bergljot@frettabladid.is Þjálfari Brighton: Hætti og kýldi ljósmyndara fótbolti Peter Taylor tilkynnti á að hann ætlar að hætta sem knatt- spyrnustjóri Brighton. Liðið vann aðra deildina á dög- unum og spilar næst í fyrstu deild. Stuttu eftir að Taylor greindi frá ákvörð- un sinni réðst hann að ljósmyndara. Sá kærði verknaðinn og er málið í höndum lögreglu. Taylor sagðist hætta vegna fjölda svikna loforða frá stjórn fé- lagsins. Ekki sé búið að byggja nýja aðstöðu fyrir liðið og fjár- mögnun fyrir næsta tímabil sé í molum. Umboðsmaður Taylor tók skýrt fram að hann væri ekki að hætta til að þjálfa annað lið. ■ ÍPRÓTTIR í dac 16.45 RÚV Handboltakvöld. 18.00 Sýn Leiðin á HM (Kórea og Pólland) 18.30 Fótbolti ÍA og Fylkir mætast í undanúrslitum Deildarbikars karla í Egilshöll. 18.30 Sýn NBA-tilþrif. 19.00 Sýn Heimsfótbolti með West Union. 19.30 Svn Worlcom Classic-golfmótið í Banda- ríkjunum. 20.15 Handbolti Fyrsti leikur úrslitaviðureignar Vals og KA um Islandsmeistaratitil í Vals- heimili. 20.30 Fótbolti FH og Breiðablik mætast í undanúr- slitum Deildarbikars karla í Egilshöll. 20.30 Sýn Leiðina á HM (Þýskaland og Saudi Arabía) 21.00 Sýn Saga HM (1978 Argentina) 21.05 RÚV Islandsmótið í handbolta. 22.30 Svn Heklusport. 23.30 Sýn Gillette-sportpakkinn (HM 2002) manudaginn PETER TAYLOR Segir stjórn Brighton hafa svikið sig. Styttist í Islandsmeistara: Urslitin hefjast í kvöld HANDBOLTi Á HLÍÐARENDA Fyrsti leikur Vals og Aftureldingar fer fram á Hlíðarenda I kvöld. handbolti Valur og KA mætast í kvöld í fyrsta leik úrslitaviður- eignarinnar um íslandsmeistara- titilinn í handbolta. Leikurinn fer fram að Hlíðarenda. í undanúrslit- um vann Valur Aftureldingu og KA íslandsmeistara Hauka. Það kom flestum að óvörum. I-Iaukar var talið sigurstranglegt en KA vann tvo leiki í röð. „Ég átti von á því að KA myndi vinna einn leik,“ segir Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar. „Aldrei hefði ég trúað því áður en úrslitakeppnin hófst að þessi lið spila um titilinn," segir Bjarki. Hann spáir því að KA endi sem ís- landsmeistari. „KA afsannaði það á móti Haukum að heimaleikja- rétturinn sé þýðingarmeiri en bar- átta og hungur í sigur. Liðið er vel mannað. Valur líka en ég held að KA vinni." Úrslitakeppni íslandsmeistara- mótsins var snyrtileg. í átta liða og undanúrslitum þurfti aðeins tvær viðureignir milli liða til að skera úr um sigurvegara. Þetta hefur aldrei gerst áður. Bjarki heldur að það taki fimm leiki til að skera úr um íslandsmeistarann. „Þetta eru jöfn lið. Leikir þeirra í vetur einkennd- ust af baráttu. Valur er skemmti- legt lið, spilar hraðan bolta. Aftur- elding háði hörkurimmu við það. KA er líka skemmtilegt lið, með marga unga menn.“ Bjarki er sáttur við frammi- stöðu Aftureldingar í vetur. „Ég get ekki verið annað en ánægður. Okkur var spáð fjórða sæti en við náðum þriðja. Reyndar er ég óá- nægður með bikarinn. Þar brugð- umst við sjálfum okkur.“ Eitt ár er eftir af samningi Bjarka við Aftureldingu. Ilann heldur áfram að þjálfa í haust. Hvort hann spilar meira með lið- inu er annað mál. „Það var vissu- lega gaman að spila og taka þátt í úrslitakeppninni. Kannski er samt kominn tími á hvíld.“ ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.