Fréttablaðið - 02.05.2002, Side 11

Fréttablaðið - 02.05.2002, Side 11
FIMMTUDAGUR 2. maí 2002 SEPP BLATTER Forseti Fifa. Fór á þriðjudaginn til Bahrain í boði krónprinsins Sjeik Salman bin Hamad al Khalifa. Þeir fögnuðu nýrri fótboltamiðstöð landsins. Allt niður um Robbie: Kærður fyrir klósettferð fótbolti Robbie Savage hjá Leicester hefði betur setið á sér. Fyrir tveimur vikum spilaði Leicester við Aston Villa. Rétt fyrir leikinn þurfti Robbie að létta á sér og brá hann á það ráð að lauma sér inn á einkaklósett dóm- arans, Graham Poll. Þetta er stranglega bannað reglum enska knattspyrnusam bandsins. Poll dómari kvartaði undan þessu í leikskýrslu sinni. Leicest- er brást skjótt við og sektaði Robbie um tveggja vikna laun. Nú hefur hann einnig verið kærður fyrir ósæmilega hegðun hjá aga- nefnd sambandsins. Hún getur sett hann í bann, sektað eða skammað. Robbie er miður sín vegna málsins. Hann áfrýjaði sektinni og bað um hjálp hjá stétt- arfélagi leikmanna. ■ ROBBIE Fór á einkaklósett dómarans. FIFA ólgar og kosningar nálgast: Blatter hand- viss um sigur fótbolti Sepp Blatter, forseti FIFA, segist handviss um að hann nái endurkjöri. Brátt fara fram forsetakosningar milli hans og Issa Hayatou, formanns knatt- spyrnusambands Afríku. „Það styðja mig margir og ég er ör- uggur um endurkjör,“ sagði Blatter á mánudag. „Þetta er eins og fótboltaleikur. Það er sigur- stranglegi aðilinn og sá sem er næstlíklegastur. Stundum koma aðrir líka til greina." Hann talaði við fréttamenn eftir að fá sett lögbann á ásakan- ir Farah Addo, forseta knatt- spyrnusambands Sómalíu. Addo má ekki endurtaka ásakanir sín- ar. Hann sakar Blatter um að múta fulltrúum aðildarríkja FIFA þegar hann var kosinn for- seti í stað Lennart Johansson, forseta UEFA, fyrir fjórum árum. Grunsamlegt þótti að Addo skyldi bíða með ásakanir þar til rétt fyrir kosningar. Forsetakosningar FIFA fara fram 29. maí í Seoul í Kóreu. Tveimur dögum síðar hefst heimsmeistaramótið. ■ Bikarúrslitaleikurinn í Cardiff: Chelsea umlukið óheppni fótbolti Hjátrúa- fullir segja Chel- sea jafnvel geta sleppt því að mæta í bikarúr- slitaleikinn á móti Arsenal á laugardaginn. Ástæðan er að Arsenal fær að nota „gæfubún- ingsklefann" í norðurhluta Þús- aldarleikvangs- ins í Cardiff. Frá því enskir úr- slitaleikir voru fluttir til höfuð- borgar Wales hefur sigurliðið alltaf verið úr norð- urklefanum. Arsenal var úthlut- aður klefinn þegar það vann undanúr- slitaleikinn við Middlesbrough. Chelsea mótmælti harðlega og heimtaði hlutkesti. Enska knatt- spyrnusambandið féllst á það og kastaði mynt upp á klefa í síðustu viku. Arsenal vann. Chelsea fær sárabót. Liðið FENC SHUI FRÆÐINCURINN Virkaði ekki neitt. klæðist sínum venjulegu hvítu sokkum en Arsenal þarf að skipta yfir í rauða. Til að bæta sigurlíkur lið- anna í suðurklefanum var nýlega fenginn Feng Shui fræðingur til að reka burt óláns- andann. Það virðist ekki hafa virkað. Cambridge United var í klefanum þegar það tapaði 4-1 fyrir Blackpool í LDV Vans-bikar- úrslitaleik fyrir skömmu. ■ EIÐUR SMÁRI Ógæfulegur búningsklefi en i hvítum sokkum. L í f s g æ ð i Vesturbæ Hverfaþing í Hagaskóla í kvöld 2. maí kl. 19:30 Á þinginu verða notaóar skemmtilegar og árangursríkar vinnuaðferðir sem tryggja að allir komi sínum sjónarmiðum á framfæri. Kl. 19:30 Setning þingsins Kynning á vinnu leikskólabarna i Hagaborg og grunnskólanemenda í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla um lifsgæði i Vesturbæ Ávarp: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Vinnuhópar: Mannlifið Samskipti og félagslíf Hverfavitund og samkennd Hverfi fyrir alla aldurshópa Þjónusta og hlutverk Vesturgarðs Hjarta hverfisins og þjónusta Öryggi Umhverfis- og skipulagsmál Umhirða og umgengni Mengun og sorp Skipulags- og umferðarmál Lífríkið Menningar- og fræðslumál Menntun frá vöggu til grafar; LeikskóLar, grunnskólar, háskóli og aðrir skólar Menningarlíf og uppákomur Útivist og tómstundir íþróttir Göngu- og hjólastígar Sparkvellir Leiksvæði Tómstundastarf Kaffihlé Hóparnir kynna niðurstöður Næstu skref - allir taka þátt Kl. 10:30 Þingslit Niðurstöður þátttakenda verða kynntar á fundi í hverfinu, í Vesturbæjarblaðinu og á reykjavik.is Fundarstaður og tími auglýstur síðar. ALLir Vesturbæingar og hagsmunaaðilar i Vesturbæ eru velkomnir. Aðgangur er ókeypis. Þetta er þitt tækifæri til að hafa áhrif á framtíð Vesturbæjarins - ekki láta það fram hjá þér fara

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.