Fréttablaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 14
14
FRETTABLAÐIÐ
7. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HASKOLABIO
tw-i • :ÍM! 10 I •> I v • %H minoaktiai íj iamdíims
SmHRH\l BÍÚ
Sýnd kl. 4.30, 5.30, 7, 8, 9.30 og 10.30
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10
Ifrailty kl. 8 og 10.101 |ÍSÖLD m/ens. tal kl. 4 og 61
ÍKATE & LEOPOLD kL 8 og 10.301 ÍSÖLD m/isL tal kl. 4 og 61
DEJ Ooiby /DQJ . • Thx slMi 564 0000 - www.smarabio.ls
ROYAL TENEBAUMS kL8
kL4.' 6. 8 og 101ESI [PETUR PAN m/isl. tali
|SHOWniVIE
|jÍMIVIY NEUTRON m/isl tali 4 og 61 gjll jBEAUTIFUL MIND
r rltubes a
Pressfittings
Ryðfrí stálrör
og press-
fittings
Stærðir: 12,18,22,28 og 35mm
Hagstætt verð!
\____
VA TNSVIRKINN ehf.
Ármúla 21, Sími: 533-2020
___________________y
s búnaÖMr
RENNISLETT
• Flotílögn í nýbyggingar
• Afrétting gólfa undir gólfefni
• Lökkuð flotgólf
• Tilboðsgerð og ráðgjöf
Flotefni ehf
Verktakar í fiatííögnum
JC
897 1060
flotefni@mmedia.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kvikmyndin um Kóngulóar-
manninn sló met Harry Pott-
ers, og á þar með bestu opnunar-
helgi kvikmyndar
frá upphafi. Sam-
kvæmt framleið-
anda myndarinn-
ar fékk myndin
114 milljónir doll-
ara (10.541 millj-
ónir króna) í kass-
ann um síðustu
helgi í Bandaríkj-
unum einum. Hún sló fyrra met
Potters um 24 milljónir dollara
og er því nú þegar á góðri leið
með að verða tekjuhæsta mynd
allra tíma. Hér á íslandi mættu
um 15 þúsund manns í bíó og er
það næst stærsta opnun hér frá
upphafi.
Þungarokkarinn Ozzy Osbourne
var öllum að óvörum einn af
heiðursgestum Bush Bandaríkja-
forseta er hann
flutti gamanræðu
í Hvíta Húsinu
um helgina. Bush
gerði gaman að
hinu og þessu,
sérstaklega nán-
ustu samstarfs-
mönnum sínum
og öðrum þing-
mönnum. Ozzy var hylltur sem
hetja af starfsfólki Hvíta Húss-
ins.
Popparinn Enrique Iglesias seg-
ir að allt slúður um meint ást-
arsamband sitt við tennisstjörn-
una Önnu
Kournikovu eigi
I við rök að styðj-
ast. Hann viður-
kennir að honum
þyki það miður.
Hann segist eiga
erfitt með að
venjast því að
vera kyntákn. Á
skólaárum sínum
hafi hann aðeins
verið með einni
stúlku og alla tíð
átt í erfiðleikum með heilla aðrar.
Hann segir að í dag sé þetta
breytt og nú feli stúlkurnar sig
jafnvel inn á hótelherbergjum
hans, og bíði þar í margar klukku-
stundir eftir að hann láti sjá sig.
RYrVll
li.i vinstri; Oddur Ingi Þórs-
son, Tfimfis Young, Svuinn
Mf?lgí Malldórsson og Ævar
Pótiirsson. Nánari upplýsíng
»ii um sveitína er hægt a<1
linnn n www.rymi.net.
Tími fyrir Rými
Hljómsveitin Rými gæti vel hugsanlega verið eina rokkhljómsveitin
sem er starfandi af alvöru í Bítlabænum Keflavík. Á föstudag kom út
fyrsta breiðskífa þeirra, „Unity for the first time“.
tónlist Þótt bærinn Keflavík
finnist hvergi á landakorti í dag
og heiti Reykjanesbær lifir goð-
sögnin um „Bítlabæinn Kefla-
vík“ enn. En svo virðist þó því
miður vera að „bítlið" þar sé
hægt og rólega að verða að minn-
ingunni einni, eins og nafn bæj-
arins og jú... Bítlarnir sjálfir. Enn
er þó von á meðan hjarta bæjar-
ins, rokkarinn Rúnar Júlíusson,
slær taktinn. Hann hefur um ára-
bil rekið þar, ásamt syni sínum,
hljóðverið og útgáfufyrirtækið
Geimstein. Nýjasta afurð þeirra
feðga er geislaplata rokksveitar-
innar Rými, „Unity, for the first
time“, sem kom út í síðustu viku.
„Við erum eiginlega eina
hljómsveitin hér sem er starf-
andi af alvöru,“ staðhæfir
Tómas Viktor Young, trommu-
leikari Rýmis. „Við höfum litla
sem enga samkeppni hér. Okkur
finnst þetta mjög miður. Það var
svo svakalega menning hérna
fyrir nokkrum árum.“ Hér telur
Viktor upp nokkrar sveitir,
þ.á.m. Hljóma, Þusl, Texas Jesú
og Kolrössurnar.
Rými var stofnuð árið 1999
og hét þá hina undarlega nafni
Jódís. Eftir mannabreytingar
breyttist hljómsveitanafnið í
Melatón. Það nafn reyndist ut-
anaðkomandi einstaklingum of
erfitt í framburði þannig að tími
var kominn fyrir Rými.
Frumraun sína unnu liðsmenn-
irnir fjórir á sjö mánuðum frá
ágúst í fyrra til mars í ár.
„Við vildum ekki fara í hljóð-
verið að taka upp óklárað efni á
tveimur vikum. Við vildum þróa
þetta miklu meira og gera þetta
almennilega. Við tókum þetta
upp í skorpum, eitt lag í einu.
Það bitnar kannski svolítið á
hljómnum, þó að hann myndi al-
veg heild.“
Innan sveitarinnar er greini-
lega rými fyrir skoðanaskipti og
menn tala þar og syngja á fleiri
en einni tungu. „Ég er hrifnari
af því að sveitir syngi á ís-
lensku. Textarnir eru bara
samdir í þeim fíling sem fólk
var í. íslensku lögin myndu
kannski ekkert hljóma vel á
ensku. En þetta er deilumál inn-
an sveitarinnar, það er ekkert
leyndarmál." Skyldu þetta vera
áhrif herstöðvarinnar?
Utgáfutónleikar sveitarinnar
verða haldnir í Frumleikhúsinu í
Keflavík 19. maí. Lag sveitar-
innar „Einn á ferð“ er byrjað að
hljóma á Rás 2.
biggi@frettabladid.is
Alltaf útsala á eldrí vörum
Sumarfatnaður, skartgripir, snyrtivörur o.fl.
ARGOS-LISTINN FRÍR
Verslun /CAITS
Austurhraun 3. Gbæ/Hfj (við Kaplakrika). Sími 555 2866.
Kays-, Argos-, Panduro-pöntunarlistar - meira úrval - lækkað verð.