Fréttablaðið - 23.05.2002, Qupperneq 1
ERLENT
Spenna vex
x Kasmír
bls 4
KOSNINGAR
Tvíburar
íframboði
bls 22
Alltaf
heima á
stórafmœlum
FRETTAB
.. ......... ...
95. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500 Fimmtudagurinn 23. maí 2002
FIMIVITUDACUR
Kosningasigri
fagnað
hátIð Stjórnmála-
flokkurinn Vinstri
Hægri Snú stendur
fyrir sigurhátíð á
Húsi málarans í
kvöld kl. 20.00. Til-
efnið er væntanleg-
ur stórsigur flokks-
ins í komandi borgarstjórnarkosn-
ingum.
Maddama, kerling
fröken, frú....
opnun Sýningin Konan - Maddama,
kerling, fröken, frú ... opnuð klukk-
an 20 í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar. Við opnunina á þessari ljóða-
og höggmyndasýningu flytja skáld-
konur ljóð, sem þær hafa samið við
verk Sigurjóns.
VEÐRIÐ í DAGl
REYKJAVÍK Hæg austiæg eða
breytileg átt Þurrt að mestu.
Hiti 7 til 12 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður Q 5-10 Úrkomulítið Qé
Akureyri © 5-8 Skýjað Q14
Egilsstaðir © 8-13 Þokusúld Q9
Vestmannaeyjar (5 8-15 Skúrir Q7
Myndir af
byltingunni
fyrirlestur Jón Ólafsson, heimspek-
ingur, flytur erindið Myndir af
byltingunni, í kaffistofu Listasafns
íslands. í dag kl. 12.30. Fyrirlestur-
inn er fluttur í tilefni sýningar
Listasafnsins á rússneskri list.
Hádegistónleikar
tónleikar Eydís Franzdóttir óbó-
leikari frumflytur íslensk einleiks-
verk fyrir óbo eftir Ríkharð H.
Friðriksson, Atla Heimi Sveinsson
og Elínu Gunnlaugsdóttur í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í
dag kl. 12.30.
Bikarkeppnin
fótbolti Níu leikir eru í Coka-Cola
bikarkeppninni í kvöld. Þeir hef jast
allir kl. 20.00.
ÍKVÖLDIÐ í KVÖLD|
Tónlíst 16 Bíó 14
Leikhús 16 (þróttir 10
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Útvarp 21
INOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuðborgarsvæðinu
á fimmtu- 55,7%
dögum?
8,0%
Meðallestur 25 til 39
ára á fimmtudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Callup frá
mars 2002
70.000 s;r
70% fóiks les
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002.
Kannanir segja
R-listann fá níu menn
Skoðanakannanir segja að Sjálfstæðisflokkur nái inn sex borgarfulltrúum. F-listinn nær ekki inn
manni. Stefnir í öruggan sigur Ingibjargar Sólrúnar og hennar félaga. Stjórnmálafræðingar segja
auglýsingar að skila sér og R-listann þurfa að halda illa á sínum málum til að tapa forskotinu.
borcarmálin Sjálfstæðisflokkur
fengi ekki nema sex menn í borg-
arstjórn samkvæmt nýjustu
skoðanakönnun Gallup. Fyrir
^ fáum dögum var
munur á milli R-
lista og D-lista
innan skekkju-
marka. Nú munar
hins vegar rétt um
12 prósentum. „R-
listinn þarf að
klúðra miklu til
þess að tapa,“
Helgi Kristinsson
um þá
Stutt og
snörp kosninga-
barátta að skila
sér, segir Ingi-
björg Sólrún
Gísladóttir,
borgarstjóri.
—♦—
sagði Gunnar
stjórnmálafræðingur
stöðu sem nú er uppi.
Sem fyrr segir var munur á
milli framboða lítill fyrir fáum
dögum. Sjálfstæðisflokkur hefur
misst fylgi í könnunum. „Kannan-
ir hafa sveiflast til og frá, þannig
að við teljum að sjálfsögðu enn
möguleika á að ná þeim árangri
sem stefnt var að,“ sagði Björn
Bjarnason. En hvað er sem veld-
ur breytingunum? „Mín tilfinn-
ing er að ekki hafi verið klókt hjá
Sjálfstæðismönnum að bregðast
jafn hart við og þeir gerðu,“ sagði
Gunnar Helgi um viðbrögð sjálf-
stæðismanna við viljayfirlýsingu
Jóns Kristjánssonar. Undir það
tekur Baldur Þórhallsson stjórn-
málafræðingur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri segir líklegast að
stutt og snörp kosningabarátta R-
listans sé að skila sér. „Kannanir
fyrir viku sýndu hins vegar að
mjög mjótt væri á mununum og
við lítum þannig á að ég sé í bar-
áttusætinu," sagði hún.
Gísli Blöndal, markaðsfræð-
ingur, sagðist taka skoðanakönn-
unum með varúð en þótti fylgis-
sveiflan athyglisverð og taldi
hana skýrast af ákveðnum
BJÖRN BJARNASON Sjálfstæðisflokkur mælist með minna fylgi en fyrir fjórum árum. INGIBJÖRG SÓLRÚN Flest bendir til stór- sigurs hennar og að R-listinn fá níu menn í stað átta.
KANNANIR SKÖMMU
FYRIR KOSNINGAR:
R-listi D-Iisti
1998 51,6% 40,8%
2002 52,6% 46,9%
hræðsluáróðri. „Hann virðist
snúast um að ef F-listinn hefði
fellt út Ingibjörgu Sólrúnu þá
væri Alfreð Þorsteinsson vænt-
anlega næsti borgarstjóri og það
hygg ég nú að fólki hugnist ekki,“
sagði hann.
Gunnar Steinn Pálsson, al-
mannatengill, sagði erfitt að spá
fyrir um ástæður fylgissveifln-
anna. Hann sagði að sér virtist
sem hallaði á Sjálfstæðisflokkinn
víðar og nefndi Kópavog og
Hafnarfjörð sem dæmi. „Það sem
er að gerast í Reykjavík er eigin-
lega það sem búist var við í upp-
hafi,“ sagði hann. Gunnar Steinn
taldi ekkert sérstakt í landsmála-
umræðunni geta skýrt þróunina
nema ef vera skyldu málefni
aldraðra í Reykjavík og umdeilda
viljayfirlýsing heilbrigðisráðh-
erra.
oli@frettabladid.is
ÞETTA HELST
TVTýlegar lagabreytingar setja
ÍN Persónuvernd þröngar skorð-
ur um aðgang að upplýsingum
um einstaklinga sem eru skráðir í
gagnabanka lögreglunnar.
bls. 2
Faðir fórnarlambs Skerjafjarð-
arslyssins segir Flugmála-
stjórn ætla að kaupa nýja björg-
unabáta sem uppfylli ekki grund-
vallar skilyrði. bls. 4
Hestum var beitt gegn reið-
hjólamanna sem staddur var
í Elliðarárdalnum. bls. 6.
IKópavogi deila menn um hraða
uppbyggingar og þjónustu við
íbúa. bls. 2
SKJÁR EINN MEINAR HÚMANISTUM AÐGANC Ástþór Magnússon og Metúsalem Þórisson, leiðtogi framboðs Húmanista í Reykja-
vik, gerðu tilraun til þess að komast í kosningaþátt Silfurs Egils í gærkvöldi. Húmanistar voru ósáttir við að vera ekki boðaðir i þáttinn.
Starfsmenn Skjás eins komu í veg fyrir þá fyrirætlan.
Evrópuferð Bandaríkjaforseta hafin:
Þúsundir mótmæla Bush
BANDARIKJAFORSETI Georg W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, sagði við
komuna til Þýskalands nauðsyn-
legt að berjast af hörku gegn
hryðjuverkamönnum. Þýskaland
er fyrsti áfangastaður Bush í sjö
daga Evrópuferð. Gerhard
Schröder, kanslari, og Klaus
Wowereit, borgarstjóri Berlínar
tóku á móti honum.
Þúsundir manna flykktust út á
götur Berlínar í gær til þess að
mótmæla auknum stríðsrekstri
Bandaríkjanna gegn hryðjuverk-
um. Auk mótmælendanna voru
10.000 lögreglumenn á staðnum
til þess að sjá til þess að allt fari
fram með frið og spekt.
Frá Berlín heldur Bush til Par-
ísar, þaðan áfram til Rómar og
endar loks Evrópuferð sína í
Moskvu í næstu viku.
Colin Powell sagði í viðtali á
mánudaginn að Bush hefði gert
ýmis mistök í utanríkismálum frá
því hann tók við embætti. Hins
vegar hefði Bush lært á þessum
mistökum og sé nú orðinn miklu
hæfari til þess að takast á við
þau. ■