Fréttablaðið - 23.05.2002, Page 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
23. maí 2002 FIMMTUDACUR
Á HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ
Glæpasögur heilla:
Mýrin á hollensku
bækur Hollenska forlagið
Signature hefur keypt
útgáfuréttinn á Mýrinni
og Grafarþögn eftir Arn-
ald Indriðason. Utgáfu-
réttur á Mýrinni hefur
áður verið seldur til
Finnlands, Danmerkur
og Þýskalands. Bókin er
tilnefnd til Glerlykilsins,;
norrænu glæpasagna-
Verðlaunanna, en upplýst
verður á morgun hver
hlýtur þau í ár. Réttur
Grafarþagnar var nýlega seldur
til Þýskalands.
Si'gnature sérhæfir sig í útgáfu
á glæpasögum, ekki síst frá Norð-
ARNALDUR
INDRIÐASON
Fær hann Glerlykilinn á
morgun?
urlöndunum þar sem
greinin hefur blómstr-
að á síðustu árum.
Meðal höfunda for-
lagsins eru Karin
Fossum, Unni Lindell
og Bjarne Reuter, sem
hafa unnið eða verið
tilnefnd til Glerlykils-
ins. Nú eru í undirbún-
ingi tvær kvikmyndir
eftir bókum Arnaldar.
Baltasar Kormákur
vinnur að gerð bíó-
myndar eftir Mýrinni og Snorri
Þórisson stefnir að gerð alþjóð-
legrar stórmyndar eftir Napóle-
onsskjölunum. ■
Snorri Ásmundsson, borgarstjóraefni Æ-listans.
„Við lifum á upphafstímum Vmstri Hægri
Snú, upphafstímum sælu og fagnaðar.
Sæla og fögnuður
Námskeið í Kafíileikhúsinu:
Leitað að leikurum
leikhús Nú um helgina fer fram nám-
skeið í Kaffileikhúsinu þar sem gef-
in er innsýn í leiklist. Veitt er til-
sögn í leikspuna, persónusköpun,
raddbeitingu, framsögn, tjáningu
og hreyfingu á leiksviði.
Kristín G. .Magnús í Ferðaleik;
húsinu stendur að námskeiðinu. í
júlí hefst 31. leikár Light Nights í
Reykjávík og kemur til greina að fá
hæfileikaríkt fólk af riámskeiðinu
til að koma fram í sýningunni sem
„lifandi leikmyndir". Auk aukahlut-
verka í Light Nights er einnig leitað
að tæknimanni á leikhljóð og ljós.
Námskeiðið fer fram á laugardag,
sunnudag og mánudag. Innritun er í
síma 551 9181. Fyrir nema kostar
LICHT NIGHTS
Kemur til grelna að gefa hæfileikafólki á
námskeiðinu kost á að koma fram í sýn-
ingunum I sumar.
námskeiðið um helgina fimm þús-
und krónur. Fyrir aðra sjö þúsund. ■
Fimmtudagsforleíkur:
Tónleikar á Loftinu
tónleikar f dag er fara fram næst
síðustu tónleikar tónleikaraðar-
innar Fimmtudagsforleikur í
Hinu húsinu. Þrjár hljómsveitir
koma fram.
Tron er skipuð Kára Tulinius
ljóðskáldi, Elvari „Auxpan" Kjart-
anssyni og Guðmundi Gunnars-
syni djassgítarleikara. Tron leik-
ur tilraunakennda spunatónlist!
Hún hefur aðeins verið starfrækt
í rúma tvo mánúði en verið at-
hafnasöm síðan. Hljómsveitin
Isidor hét áður Ubik óg spilar
rokktónlist. Þriðja híjómsveitin
heitir Spur pópijnar og er hugar-
srníð.i árna Viðarssonar. Spur
Pópunar kynnir' á tónleikunum
efni af geisladisk, sem verður gef-
inn út í kvöld. Fimmtudagsfor-
leikurinn er haldinn á Loftinu í
nýju húsnæði Hins hússins að
PósthúSstræti 3-5.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20 og standa til klukkan 22.30. Að-
gangur er ókeypis. ■
FRETTABLAÐIÐ
Sportvörugerðin hf. Skipholtí 5, s. 562 8383
Sérfræðingar
í fluguveiði
Mælum stangir, splæsum línur og setjum upp
FIMMTUDAGURINN
23. MÁÍ
FYRIRLESTRAR_______________________
12.30 Jón Ólafsson heimspekingur flyt-
ur erindið Myndir af byltingunni
í kaffistofu Listasafns íslands.
16.15 Dr. Barbara W. Hodson, prófess-
or (talmeinafræði við Wichita
State University í Kansas, heldur
fyrirlestur á vegum Rannsóknar-
stofu KHÍ í sal Sjómannaskóla is-
lands. Fyrirlesturinn heitir Ljóð-
kerfisvitund og málvitund:
tengsl við lestur.
TÓNLEIKAR__________________________
12.30 Eydís Franzdóttir óbóleikari
frumflytur fslensk einleiksverk fyrir
óbó eftir Rikharð H. Friðriksson,
Atla Heimi Sveinsson og Elínu
Gunnlaugsdóttur í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
20.00 Útskriftartónleikar Láru Bryndísar
Eggertsdóttur einleikara á orgel
frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar í
Hallgrímskirkju. Kennari hennar
var Hörður Áskelsson. Á efnisskrá
eru Franck, Messiaen, Buxtehude
og Bach. Aðgangur ókeypis.
20.00 Anna Alexandra sópran, Védís
Cuðmundsdóttir flautuleikari og
Guðmundur H. Guðjónsson pí-
anóleikari halda tónleika í Saln-
um í Kópavogi.
20.00 Fimmtudagsforleikur á Loftinu í
Hinu húsinu. Hljómsveitirnar
Tron, Isidor og Spur pópunar.
Aðgangur ókeypis. Sextán ára ald-
urstakmark og skylda að sýna
skilriki.
21.00 B3 tríó leikur á djassklúbbnum
Múlanum f Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum. Miðaverð eru 500
krónur fyrir námsmenn, eldri
borgara og öryrkja, þúsund fyrir
aðra. Ekki tekið við kortum í
miðasölu.
22.00 KK heldur tónleika á Við Pollinn
á Akureyri.
22.00 Hljómsveitin Buff heldur tónleika
á Vídalín við Ingólfstorg.
SAMKOMUR___________________________
21.00 Stjórnmálaflokkurinn Vinstri
Hægri Snú stendur fyrir sigurhátíð
á Húsi málarans. „Tilefnið er
væntanlegur stórsigur flokksins í
komandl borgarstjórnarkosning-
um," segir í fréttatilkynningu. Allir
velkomnir.
LEIKLIST___________________________
17.05 Örleikverkið Núllið eftir Benóný
Ægisson og Bryndísi Erlu Hjálm-
Agnar Már Magnússon, Ásgeir Ásgeirsson og Eric Qvick spila í Kaffileikhúsinu í kvöld.
B3 í Múlanum:
• •
legri plötu
tónleikar Djassklúbburinn Múl-
inn býður upp á tónleika með B3
tríó í kvöld. Tríóið skipa Agnar
Már Magnússon á orgel, Ásgeir
Ásgeirsson gítarleikari og Eric
Qvick trommuleikari.
í kvöld leikur B3 tríó bæði
frumsamin lög eftir Agnar og
Ásgeir og nokkra vel valda
standarda í útsetningum þeirra
félaga. Tríóið hefur starfað í
rúma níu mánuði. Á haustmánuð-
um er stefnan sett á útgáfu
geisladisks með frumsömdu efni.
Nokkur laga disksins eru á efnis-
skránni og verða flutt í kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
Þeir fara fram í Kaffileikhúsinu,
þar sem djassklúbburinn Múlinn
hefur aðsetur. ■
arsdóttur í beinni útsendingu á
Rás 1 frá almenningssalerninu í
Bankastræti 0. Harpa Amardóttir
leikstýrir.
20.00 Uppselt á Hollendinginn fljúg-
andi eftir Ríchard Wagner á stóra
sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Uppselt á Veisluna eftir Thomas
Vinterberg á Smíðaverkstæðinu.
20.00 Nokkur sæti laus á Kryddlegin
hjörtu eftir Lauru Esquivel á stóra
sviði Borgarleikhússins.
20.00 Laus sæti á uppistands Jóns
Gnarr á þriðju hæð Borgarleik-
hússins.
OPNANIR______________________________
Sýningin Konan - Maddama, kerling,
fröken, frú ... opnuð klukkan 20 f Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar. Við opnun-
ina skáldkonur lesa Ijóð, sem þær hafa
samið við verk Sigurjóns. Þær eru Guð-
rún Eva Mínervudóttir, Friða Á. Sigurð-
ardóttir, Þórunn Valdimarsdóttir, Krist-
ín Ómarsdóttir, Vilborg Dagbjartsdótt-
ir, Linda Vilhjálmsdóttir, Elísabet K.
Jökulsdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Sigurbjörg Þrastardóttir, Margrét Lóa
Jónsdóttir og Vigdís Grímsdóttir. Aðra
sýningardaga geta sýningargestir hlýtt á
lestur skáldkvennanna af geisladiski.
Sýningin stendur til 30. júnf.
Ríkharður Jónsson og Vilhjálmur Eina-
rsson íþróttahetjur opna formlega
klukkan 15 sýninguna íþróttasaga ís-
lands í Safnaskálanum að Görðum á
Akranesi. Þar er sögð saga íþrótta á (s-
landi og tengsl þeirra við sögu landsins.
Sýningunni er ætlað til frambúðar að
verða í nýju sýningarrými í Safnaskálan-
um.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabiadid.is
í Gamla bíó
Islensku óperunni
31.maíog l.júníkl. 20:30
Aðeins þessar 2 sýningar.
Forsala íverslunum Skífunnar.
Geisladiskurinn vinsæli með Kaffibrúsakörlunum erfánlegur aftur.
O
o