Fréttablaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTABLAÐiÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið á pdf-formi á vísir.is. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Fjöldi starfandi einstaklinga: Körlum fækkar atvinnuwiál Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2002 var 157.300 manns samanborið við 158.000 árið áður, sem jafngildir 0,5% fækkun. Starfandi körlum fækkaði um 1.900 en konum fjölg- aði um 1.100 á fyrsta ársfjórðungi 2002 miðað við sama ársfjórðung ári áður. Hagstofa íslands byggir niður- stöður sínar á gögnum ríkisskatt- stjóra um staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi, auk þess sem hliðsjón er höfð af niðurstöð- um vinnumarkaðsrannsókna Hagstofunnar. ■ FRÉTTABLAÐIÐ 15. júní 2002 LAUCARDACUR Garðabær: Nefndir fjórum færri sveitarstjórnarmál Nefndum Garðabæjar fækkar um fjórar frá síðasta kjörtímabili. Þetta var ákveðið á fyrsta fundi Garða- bæjar sem haldinn var á fimmtu- dagskvöld. Byggingarnefnd og ferlinefnd verða sameinaðar, menningarmálanefnd og bóka- safnsnefnd sameinast og fjöl- skylduráð og húsnæðisnefnd verða að einni nefnd. Hafnar- stjórn er lögð niður og umhverf- isnefnd eru falin verkefni starfs- hóps um Staðardagskrá 21. Ákveðið var að stofna eina nýja nefnd, nefnd um málefni eldri borgara. Til þessa hafa ýmis málefni er varða hag eldri borgara heyrt undir ólíkar nefndir. Jafnframt var starfs- hópi um vímuvarnir breytt í fastanefnd um forvarnir. Þá var Laufey Jóhannsdóttir kjörin forseti bæjarstjórnar og Erling Ásgeirsson formaður bæj- arráðs. A fundinum var jafn- framt samþykkt að ráða Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra í Garðabæ. ■ GARÐABÆR Ákveðið var að stofna eina nýja nefnd, nefnd um málefni eldri borgara. Hlutafjárútboð Lands- bankans: Seldust upp á korteri einkavæðing Sala 20% hlutafjár í Landsbanka íslands hófst klukkan 10:00 í gær. Fjárfestar létu ekki á sér standa og keyptu bréfin upp á u.þ.b. 15 mínútum. Þetta er eitt umfangsmesta einkavæðingar- verkefni ríkissjóðs og það stærsta sem framkvæmt er með almennu útboði. Til sölu voru 1.369.140.724 krónur og var útboðsgengi fest, fyrstu 3 daga útboðstímabils, í 3,50. Söluandvirði þessa 20% hlut- ar er því 4.723.535.498 krónur. Ríkissjóður á 48,29% í Lands- bankanum eftir söluna. ■ SIKA Hitamælar og hitamælisstöðvar Hæðarrofar Margar gerðir •L^L Fiskislóö 26 Sturlaugur Jónsson & Co. ehf. S: 551 -4680 www.sturlaugur.is • sturlaugur@sturlaugur.is Vanmátu viðbrögð almennings STJÓRNVÖLD Ákvörðun ríkisstjórnar um að neita meðlimum Falun Gong um vegabréfsáritun til landsins, meðan á heimsókn Jiang Zemin forseta Kína stæði, kom mörgum spánskt fyrir sjónir. Fáa óraði fyrir þeim hörðu viðbrögð- um sem urðu um allt samfélagið. Veðrið lék við landsmenn, en ráða- menn fengu ekki notið þeirrar veð- urblíðu. Forsætisráðherra og ráð- herrar dóms- og utanríkismála báru sameiginlega ábyrgð á ákvörðuninni. Þar á bæ gerðu menn sér fljótlega grein fyrir því að málið væri óþægilegt. Embætt- ismenn dómsmálaráðuneytis vörðu ákvörðun stjórnvalda. Rök yfirvalda voru þau að fámennt ís- lenskt lögreglulið gæti ekki feng- ist við nokkur hundruð mótmæl- endur. Enginn dró þó í efa að mót- mælin yrðu friðsamleg. Stjórnvöld höfðu eftir lögregluyfirvöldum í nágrannaríkjum að meðlimir Falun Gong reyndu að komast eins nálægt forsetanum og þeir gætu. Vopnaðir lífverðir gæta forsetans. Að sögn yfirvalda óttuðust menn að mótmælendur gætu verið í hættu, ef fámenn íslensk lögregla gæti ekki haft hemil á þeim. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum var sá listi sem var not- aður til að útiloka fólk frá ferða- heimild til landsins, frá kínversk- um stjórnvöldum kominn. Kín- versk yfirvöld munu einnig hafa farið fram á að meðlimir Falun Gong yrðu ekki á vegi forsetans, meðan á heimsókninni stæði. Gagnrýni á ákvörðunina varð háværari með hverjum deginum. Mönnum ofbauð að íslensk stjórn- völd létu harðstjórana í Kína ákveða fyrir sig hverjir fengju að koma til landsins. I ljósi öryggis- gæslu á NATO fundinum drógu menn líka í efa að íslensk lögregla réði ekki við nokkur hundruð frið- samra mótmælenda Falun Gong. Fréttastofa sjónvarps greindi frá því að samkvæmt sínum heimild- um hefði lögregla ekki haft uppi efasemdir um að hún réði við verkefnið. Þessu mótmælti Har- aldur Johannessen, ríkislögreglu- stjóri. Gagnrýni á ákvörðunina kom úr fleiri áttum en fyrirfram hefði verið hægt að búast við. Björn Bjarnason taldi meðal ann- arra aðgerðir íslenskra stjórn- valda alltof harkalegar. Ungliða- hreyfingar stjórnmálaflokkanna sameinuðust í því að mótmæla að- gerðunum. Auglýsing þar sem af- sökunar var beðist á framkomu ís- lenskra stjórnvalda birtist í Morg- unblaðinu. Þar mátti sjá nöfn sem , betra, fínna og flottara Það toppar ekkert “Rolsinn” ígrillum Sumir borða til að lifo - aðrir lifa til að grilla! STERL/NG6 - ergrillið! i Sf, est Skeifunni - Garðheimum- Nóatúnsbúðunum afar sjaldan birtast saman undir mótmælalistum. Stjórnarand- stöðuflokkarnir og félagasamtök ályktuðu gegn aðgerðunum. Jiang Zemin naut fyrirfram lítilla vin- sælda á íslandi. Neitun Falun Gong meðlima um vegabréfsárit- un dró neikvæða athygli að opin- berri heimsókn hans. Mun meiri en annars hefði orðið. Aðgerðir stjórnvalda reyndust umfangsmeiri en menn héldu í fyrstu. Ekki var einungis um það að ræða að þeim meðlimum Falun Gong sem þurftu vegabréfsáritun væri neitað um hana. Flugleiðir höfðu einnig fengið skipun um það frá íslenskum stjórnvöldum að hleypa ekki meðlimum samtak- anna um borð í vélar félagsins. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður, sendi af því tilefni erindi til fjöl- margra stofnana um að Flugleiðir yrðu sviptir flugrekstrarleyfi. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, sagði að fyrir- mæli stjórnvalda hefðu verið svo afdráttarlaus að ekki hefði verið annað hægt en að fara að þeim. Ragnar gerði einnig fjölmargar aðrar athugasemdir við aðgerðir stjórnvalda. Ráðherrar höfðu sig ekki mikið í frammi til að byrja með. Sólveig Pétursdóttir, dóms- málaráðherra sagði þegar umræð- an fór af stað að aðgerðirnar væru til þess að gera lögreglu kleift að sinna starfi sínu og tryggja öryggi erlends þjóðhöfðingja. I byrjun vikunnar var ekki að merkja á svörum embættismanna að tilslak- anir yrðu gerðar. Seint á þriðju- dagskvöldinu ákváðu þó ráðherr- arnir að heimila þeim Falun Gong meðlimum landgöngu sem voru í haldi í Leifsstöð. Var vilyrðið veitt gegn undirskrift yfirlýsingar um að fólkið færi í einu og öllu að fyr- irmælum lögreglu meðan á heim- s ókn forseta Kína stæði. Halldór Ásgrímsson tjáði sig ekki mikið um málið. Hann sagði óþægilegt að standa í þessu, en enga aðra kosti mögulega. Davíð Oddsson tjáði sig mest af þeim ráðherrum sem báru ábyrgð á ákvörðuninni. I-lann gerði fremur lítið úr andstöðunni. íslenskur al- menningur vissi það og skildi að agi þyrfti að vera í herbúðunum. haflidi@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.