Fréttablaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 22
SAGA DAGSINS 15. JUNI Islendingar unni stærsta sigur sinn í handbolta á þessum degi áriö 1999. Þá lögðu þeir Kýpur- búa með 42 mörkum gegn 11. vikmyndaleikar- i\inn John Travolta kom til landsins á þessum degi árið 1987. Hann ferðaðist með einkaþotu sinni og með honum var níu manna fylgdarlið. A' rið 1877 útskrifaðist fyrsti blökkumaðurinn í Bandaríkj- unum frá herskólanum í West Point, sem mikil virðing er borin fyrir þar í landi. Öll fjögur árin sem Henry Ossian Flipper var við nám mælti enginn samnem- enda hans, sem allir voru hvítir, eitt orð við hann. 22 FRÉTTABLAÐIÐ 15. júní 2002 LAUGARDAGUR Fyrsta kaþólska ferming- in eftir siðaskipti Við erum þrjú kaþólsk hér á heimilinu,“ segir Lárus Bjarnason, pípulagningameistari á Kirkjubæjarklaustri, en hann ætlar að ferma Tinnu dóttur sina í dag í kaþólskum sið. Er það fyrs- ta kaþólska fermingin á Klaustri eftir siðaskipti. „Eiginkona mín og elsta dóttir eru hins vegar ekki kaþólskar,“ segir hann. Kaþólski biskupinn yfir ís- landi, herra Jóhannes Gijsen, mun mæta til athafnarinnar og ferma Tinnu i kapellunni á staðn- um sem reyndar er lútersk. Með honum í för verður séra Jakob Rolland en hann hefur gert sér ferð austur á Klaustur reglulega til að messa fyrir Lárus og dætur hans tvær sem samferða eru í trúnni: „Lúterska kirkjan má eiga það að hafa leyft okkur afnot af kapellunni; hún hefur alltaf staðið okkur opin,“ segir Lárus sem ætl- ar að slá upp hefðbundinni ferm- ingarveislu að lokinni athöfn eins og vera ber: „Eini munurinn á kaþólskri fermingu og lúterskri er sá að í kaþólskunni er það alltaf biskupinn sjálfur sem fermir," Persónan Tinna Lárusdóttir verður fermd á Kirkjubæjarklaustri í dag. Þetta er fyrsta kaþólska fermingin á Klaustri eftir siðaskipti. segir Lárus sem er kvæntur Birnu Bragadóttur skólastjóra Tónlistarskólans á Kirkjubæj- arsklaustri. ■ FERMINGARBARNIÐ Tinna Lárusdóttir - brautryðjandi á Klaustri. MENNINGARSKOKK TAKIÐ daginn snemma og mætið á fyrirlestri hjá Ama Bjömssyni þjóðháttafræðingi klukkan 10 í Loftinu (gamla pósthúsinu í Pósthússtræti). Ámi ræðir um landslag, fólk og menningu og hvemig íslensk nátt- úra hefur haft áhrif á menninguna í landinu. Fróðlegt og skemmtilegt fyrir hádegi. YFIR í Norræna húsið. 50 mál- verk og listmunir frá Nationalmuseet og Moderaa Museet í Svíþjóð sem öll sýna mat og jafnvel óhófsrétti á lérefti. Einnig sýnt hvemig fólk dekkaði borð fyrir veislur og hvunndags. Kaffistof- an slær taktinn með og býður upp á smárétti í stfl; gratinerað- an aspas með ruccosalati og hvítvínsglas á 900 krónur - svo eitthvað sé nefnt. UPP í bílinn með bömin og stefnan tekin á Alviðru undir Ingólfsfjalli. Þar verður Guð- mundur Halldórsson skordýra- fræðingur á milli 14 og 16 og sýnir gestum fjölbreytt úrval af skordýram. Kakó og kleinur fylgja. 700 krónur. INDÍÁNADANS á Hverfisbam- um á Hverfisgötuhorninu þeg- ar líða tekur á kvöld. Sísí fríkar út með Geira Smart. 22 ára ald- urstakmark. Hætta á biðröð mæti fólk ekki tímanlega. Þeir sem ekki vilja dansa geta gengið strandlengjuna umhverfis Reykjavík með einhverjum sem er sama sinnis. OVO heim að sofa. AFMÆLt RfKHARDUR ÖRN Nóterar hjá sér daginn og reynir svo að gleyma sem fyrst. Varðveitir bamið í sjálfum sér - og skammast sín ekki fyrir Rikharður Öm Pálsson tónlistarmaður er 56 ára í dag. Tíminn vill ekki tengja sig við mig þannig að ég tek ekki sérstaklega eftir þessu,“ segir Ríkharður Öm Pálsson tónlist- armaður sem er 56 ára í dag. Hann er ekki vanur að halda upp á daginn enda segist hann búa í þröngu húsnæði sem henti illa til samkvæma. „Annar hef ég farið svo hroðalega illa með tím- ann að mér finnst ég eiga dálítið inni hjá sjálfum mér. Nú er ég fyrst farinn að þroskast eitthvað og hefði mátt vera fyrr. Mestu skiptir að varðveita barnið í sjálfum sér og skammast sín ekki fyrir það eins og margir yngri menn gera,“ segir Rík- harður sem hitaði upp fyrir af- mælið í gærkvöldi með því að flytja fyrirlestur um íslensk þjóðlög á norrænu kóramóti hjá karlakórnum Þresti. Þar talaði Ríkharður á dönsku enda ágæt- lega fær í málinu eftir að hafa búið í Danmörku í bernsku og lært dönsku í skóla: „Mér finnst ómögulegt að vera að tala ensku á norrænu kóramóti,“ segir hann. Ríkharður Örn ætlar ekki að gera sér neinn dagamun í tilefni afmælisins; hvorki að fá sér kakó eða snaps. Heldur bara halda áfram eins og ekkert hafi í skorist: „Ég nótera þetta hjá mér og reyni svo að gleyma sem fyrst,“ segir afmælisbarnið. eir@Fréttabladid.is Mikil leynd hvíli yfir því hver flytji ávarp fjallkonunnar á þjóðhátfðardaginn. Er það sam- kvæmt hefð að gefa ekki upp nafn hennar en hluti af uppákomunni er spennan um hver verði fyrir valinu. Að auki þykir það heiður að fá að fly- tja ávarp fjalikon- unnar og í raun upphefð f heimi leiklistarinnar í höfuðborginni. Margar fremstu leikkonur landsins hafa komið fram sem fjallkonan á 17. júní og nægir að nefna Herdisi Þurvaldsdóttur, Tinnu dóttur henn- ar, Steinunni Óiinu. Halldnm Geirbarðsdóitur og Mavgféti VU- bjáhnsdóttnr, svo fáar séu nefndar. Nú er veðjað á að fjallkonan í ár verði nýjasta st jaman á himni leiklistarinnar, Þómnn Clausen, litla systir Ragn- beiðar sjónvarps- þulu. Þórunn leikur í sumar í Sögu Guðríðar, eða The Saga of Gudrid- ur, sem sýnt er í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Gárungamir þykjast vera búnir að finna nýtt gælunafn á Unga jafnaðarmenn í Reykjavík. {ljósi þess að þeir eru Evrópusinnaðir með eindæmum og urðu um daginn fyrsta hreyfingin til að álykta til vamar einkadansi sé ekki hægt aó nefna þá annað en evrókratfska klámhunda. Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að forseti Kina mun ekki heimsækja Byggðastofnun vegna ótryggs ástands sem þar ríkir ........... - •.. ;S " '.. t-'-' ' ' ' . - - ■ • -ir^z .... .......- - •• ' ' ........•"' • ■ -- • • ■. - - / * P-irJX'tij • . • ss,-____________________________w.v- :*■» - - I •■•' ,• ■ . i5* áL ■ mm .v zni A FRÁ BESSASTÖÐUM Bílalest Kínaforseta á leið frá Bessastöðum I blíðviðrinu fyrir hádegi í gær. Kínverski forsetinn fór beint frá fundi forseta Islands til fundar við forsætisráðherra. TÍMAMÓT JARÐARFARIR 11.00 Guðrún Ásta Sveinbjörnsdóttir, Norðurgötu 6, Seyðisfirði, verður jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju. 11.00 Valgerður Guðlaugsdóttir frá Vlk í Mýrdal, verður jarðsungin frá Vfkurkirkju. 13.30 Aðalheiður Þorleifsdóttir, Karls- braut 6, Dalvík, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju. 13.30 Hermann Guðmundsson, Selja- landsvegi 44, Isafirði, verður jarð- sunginn frá ísafjarðarkirkju. 14.00 Helga Kristjánsdóttir, Silfrastöð- um, verður jarðsungin frá Silfra- staðakirkju. 14.00 Hinrik Finnsson, kaupmaður, Skúlagötu 14, Stykkishólmi, veður jarðsunginn í Stykkishólmi. 14.00 Hreggviður Guðmundsson, Sæviðarsundi 35, Reykjavík, verð- ur jarðsunginn frá Hvalsneskirkju. 14.00 Minný Gunnlaug Leósdóttir, Skúlagötu 44, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju. 14.00 Þuríður Ólafsdóttir Bríem, verð- ur jarðsungin frá Reyðarfjarðar- kirkju. 15.00 Jóhanna Guðmundsdóttir frá Múla, verður jarðsungin frá Graf- arkirkju. AFMÆLI_______________________ Ragnar Fjalar Lárusson er 75 ára I dag. Sigrún Magnúsdóttir fyrrverandi borg- arfulltrúi er 59 ára I dag. Ríkarður Örn Pálsson er 56 ára I dag. ANPLÁT__________________________ Baldvin Helgi Einarsson, prentari, Sól- vallagötu 1, lést 12. júní. Daníel G.E. Sigmundsson, Hllf 2, fsa- firði, lést 12. júní. í jf

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.