Fréttablaðið - 15.06.2002, Síða 8
8
FRETTABLAÐIÐ
15. júní 2002 LflUGARDAGUR
16-liða úrslit hefjast í dag
Danir mæta Englendingum
SÁR OC SVEKKTUR
Luis Figo, einn besti knattspyrnumaður
heims, þerrar hér tár á kinn sinni eftir að
Ijóst var að Portúgalar voru úr leik eftir tap
gegn Suður-Kóreu.
fótbolti Þýskaland og Paragvæ
mætast í fyrsta leik 16-liða úrslita
á heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu klukkan hálf sjö í dag.
Þjóðverjar sigruðu E-riðil örugg-
lega. Þeir lögðu meðal annars
Sádi-Arabíu að velli með átta
mörkum gegn engu. Liðið var ekki
talið líklegt til afreka fyrir mót en
nú fer að reyna á það. Paragvæj-
ar, með markvörðinn Chilavert í
fararbroddi, komst áfram úr B-
riðli á betri markatölu en Suður-
Afríka. Liðið er skipað mörgum
stórskemmtilegum leikmönnum
og gæti vel komið á óvart. Öll lið
geta komið á óvart.
Seinni leikur dagsins er leikur
Englands og Danmerkur. Danir
sigruðu A-riðil frekar örugglega.
Slógu meðal annars Heims- og
Evi'ópumeistara Frakka úr leik og
Úrúgvæ. Dönum er spáð góðu
gengi en ekki er hægt að útiloka
David Beckham og félaga í enska
landsliðinu. Englendingarnir
komust upp úr hinum gríðar-
sterka F-riðli, sem var nefndur
Dauðariðillinn, ásamt Svíum. Ní-
gería og Argentína sátu eftir en
síðast nefndu þjóðinni hafði verið
spáð heimsmeistaratitlinum. Það
má því búast við hörku viðureign í
dag klukkan 12.30.B
DAVID BECKHAM
Landsliðsfyrirliði Englands verður í eldlín-
unni í dag.
32-liða úrslit Goca-Gola
bikarsins:
IR mætir
Leiftri/Dalvík
Sjö leikir fara fram í 32-liða úr-
slitum Coca-Cola bikarkeppni
karla í dag. Sindri á Hornafirði
tekur á móti Val, ÍBV tekur á móti
ungmennaliði FH, Fjarðarbyggð
fær Breiðablik í heimsókn og ung-
mennalið ÍA mætir Víkingi
Reykjavík. Fram fer til Keflavík-
ur og mætir ungmennaliðinu þar á
bæ, ÍR mætir sameinuðu liði
Leifturs og Dalvíkur. Allir leikirn-
ir hefjast klukkan 14.00 og nú geta
litlu liðin sýnt þeim stóru hvað í
þeim býr. ■
Símadeild kvenna:
FH mætir
norðanstúlkum
fótbolti FH og sameinað lið þurfa nauðsynlega á stigum að
Þór/KA/KS mætast í Símadeild halda til að forðast fall. Það má
íslendingurinn á HM
Jon Dahl Tomasson annar markahæsti leikmaður heimsmeistaramóts-
ins er af íslenskum ættum. Langalangaafi hans kenndi við Lærða skól-
ann í Reykjavík. Afi hans var skóari í Hafnarfirði.
kvenna á Kaplakrikavelli klukkan
tvö á morgun, sunnudag. Bæði lið
eru í neðri hluta deildarinnar og
því búast við hörkuviðureign. FH
stúlkur hafa fengið tvær banda-
ríska stúlkur til liðs við sig. ■
/LOKADAGURa
AFSLATTUR
AF ÖLLUM
SKÓM
OPIÐ FRÁ 10 - 16 í DAG
TOPPSKORINN
SUÐURLANDSBRAOT 54
fótbolti Hinn íslensk ættaði
Jon Dahl Tomasson hefur farið á
kostum með danska landsliðinu á
heimsmeistaramótinu í Suður-
Kóreu og Japan. Hann skoraði
fjögur mörk í riðlakeppninni og er
næst markahæsti leikmaður
mótsins.
Jon Dahl er einn fjórði íslend-
ingur. Langalangafi hans var Hall-
dór Guðmundsson sem kenndi við
Lærða skólann, á árunum 1856-85.
Sonur hans hét Tómas og var skó-
ari í Hafnarfirði. Tómas þessi átti
son sem hét Halldór. Halldór var
sjómaður og hnefaleikakappi.
Hann fluttist snemma búferlum
frá íslandi til Danmerkur og tók
saman við danska konu. Þau eign-
uðust tvo syni, þá Ingolf og
Bjarne. Bjarne er faðir Jons Dahl.
Hægt er að rekja ættir Jons
Dahls til margra frægustu knatt-
spyrnukappa landsins. Oddur
Friðrik Helgason, ættfræðingur
og fyrrverandi sjómaður, rakti
ættir Jons Dahl. Hann og knatt-
spyrnutvíburarnir Arnar og
Bjarki eru skyldir í sjötta lið. Rík-
harður Jónsson, fyrrverandi leik-
maður ÍA, er skyldur hon-
um í sjöunda lið og Guðjón
Þórðarson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari, í áttunda.
Jon Dahl sló fyrst í gegn
með hollenska félaginu
Heerenveen á árunum 1994-
1997. Þá var hann keyptur
til Newcastle en stóð ekki
undir væntingum. Hann var
því seldur til Feyernoord
sama ár.
Þar lagði hann sig allan
fram um að bæta upp lík-
amlegan styrk og tækni.
Þess var heldur ekki lengi að bíða
að hann fyndi netmöskvana á ný.
Á þeim fjórum árum sem hann
spilaði með Feyernoord skoraði
hann 55 mörk. Frammistaða hans
Segðu skilið við óhollt skyndifæði, hreyfðu þig og
byggðu upp stinnan og fallegan líkama og vertu
FRJÁLS
>.
v ' 3
if-
r« ,;m
U k.S>
15 skammtar - verö aöeins kr.
1.995.-
með
HHEYSTI
F»ðub6tar>fnl - Æflnqafatn.ður - R«fþj4lfuo«rt»ki
hefur tryggt honum sæti í byrj-
unaliði danska landsliðsins og
hafa mörg lið verið á höttunum
eftir honum. ítalska stórveldið AC
Milan keypti kauða fyrr á þessu
ári og mun hann spila með liðinu í
ítölsku efstu deildinni.
Jon Dahl Tomasson er fæddur
29. ágúst árið 1976 og verður því
26 ára á þessu ári. Hann er eini ís-
lendingurinn sem vitað er um að
hafi spilað leik og skorað í loka-
keppni heimsmeistaramótsins.
kristjan@frettabladid.i
FORFEÐURNIR
Tómas Halldórsson, skóari úr Hafnarfirði,
er hér með fjölskyldu sinni. Halldór, afi
Jons Dahl, er lengst til vinstri á myndinni.
Oddur Friðrik Helgason ættfræðingur rakti
ættir hans til hinna ýmsu knattspyrnu-
manna.
lIkir
Jon Dahl Tomasson er sláandi llkur afa sín-
um i föður ætt, Halldór Tómassyni, sjó-
manni og hnefaleikakappa.
Brautryöjandi í lágu
lyfjaverbi frá 1996.
Ap#tekið
- Lipurö og lœgra vcrö
Skeifynni - íðyfelli - Akyreyrí
ÍÞRÓTTIR í DAG
15. JÚNl
06.10 Sýn
(Þýskaland - Paragvæ)
lLQO__Sýn
HM 2002 (Danmörk - England)
13.40 Sýn
Giilette-sportpakkinn
13.40 Sýn
HM 2002 (Þýskaland - 2b)
14.00 Sindravellir
Bikar karla (Sindri - Valur)
14.00 Keflavíkurvöllur
Bikar (Keflavík U23 - Fram)
14.00Vestmannaeyjavöllur
Bikar karla (ÍBV - FH U23)
14.00 iR-völlur
Bikar karla (ÍR - Leiftur/Dalvík)
14.00 Eskifjarðarvöllur
bikar (Fjarðabyggð - Breiða-
blik)
14.00 Fylkisvöllur
Bikar (Fylkir U23 - Stjarnan)
14.00 Akranesvöllur
Bikar (ÍA U23 - Víkingur R.)
16.00 Sýn
(Danmörk - England)
17.05 RÚV
Íslandsglíman 2002
17.25 RÚV
Austfjarðartröllið
16. JÚNl
14.00 Kaplakrikavöllur
Símad. kvenna (FH-Þór/KA/KS)