Fréttablaðið - 15.06.2002, Qupperneq 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
15. júní 2002 LAUGARPAGUR
• Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á
léttar veitingar. Lítil en vaxandi velta og
miklir möguleikar.
• Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hag-
nað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki í svipaðri
starfsemi.
• Verslun, bensínssala og veitingarekstur í
Búðardal. Eigið húsnæði. Mjög góður hag-
naður. Ársvelta 180 MKR og vaxandi með
hverju ári. Sérstaklega hentugt fyrir stóra
fjölskyldu eða tvenn hjón.
• N-1 bar í Keflavík. Til sölu eða leigu.
Vinsæll skemmtistaður á besta stað í
Keflavík.
• Bón & þvottabíllinn. Sniðugt þjónustu-
fyrirtæki í fullum rekstri. Sérlega hentugt
fyrir framtakssama námsmenn sem vilja
hafa góðar tekjur.
• Veitingastaður í atvinnuhverfi.
Mánaðarvelta 3 MKR á mánuði. Eingöngu
opið virka daga kl. 7-17. Lágt verð -
auöveld kaup.
• Snyrtivörudeild úr heildverslun. Litalína
sem er í nokkrum góðum verslunum og
hægt er að efla. Hentugt fyrir konu sem
hefur vit á snyrtivörum og langar í eigin
rekstur. Lágt verð.
• Sólbaðsstofa í Garðabæ. Sú eina í
bænum. 5 bekkir + naglastofa. Verð 6
MKR, góð greiðslukjör.
• Heildverslun með tæki og vörur fyrir byg-
gingariðnaðinn. Ársvelta 130 MKR. Góður
hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt
verð.
• Lítil blómabúó í miðbænum. Besti tíminn
framundan. Verð 2,7 MKR, góð greiðs-
lukjör.
• Skyndibitastaður í Kringlunni. Einstakt
tækifæri.
• Verksmiðja sem framleiöir gróðurmold o.fl.
Góð viðskiptasambönd.
• Sérstaklega góður söluturn í Kópavogi.
Tvær bílalúgur, mikil veitingasala. Góður
hagnaður.
• Vel þekkt og vaxandi sérverslun með flísar.
50 MKR ársvelta. Góð umboð.
• Þekkt kvenfataverslun í Skeifunni. Góð
þýsk innkaupasambönd. Auðveld kaup.
• Videóleiga á Akureyri. Góð staðsetning.
Skipti möguleg.
• Góður og vaxandi söluturn í Grafarvogi.
Velta 2,7 MKR á mánuði.Verð aðeins 4,5
MKR.
• Lítil smurbrauðsstofa með góð tæki og
mikla möguleika.
• Bílaverkstæði á góðum stað í Kópavogi.
Hentugt fyrir 2 menn. Verð 2,5 MKR.
• Lúxus snyrtistofa í miðbænum. Gott tæk-
ifæri fyrir nýútskrifaðan snyrtifræðing.
Eigandi til í að hafa umsjón sem meistari.
Auðveld kaup.
• Skemmtilegt fyrirtæki í afþreyingar
iðnaöinum sem búið er að byggja upp
með öflugri markaðssetningu og öflun fas-
tra viðskiptavina. Hentar bæði sem
sérstakur rekstur eða í bland með öðrum
rekstri.
• Spennandi sérverslun með notaðan fatnað
(second-hand) í miðbænum.
• Lítil rótgróin sólbaðsstofa í
Vesturbænum.4 bekkir og stækku-
namöguleikar. Auðveld kaup.
• Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir,
heildverslanir og iðnfyrirtæki í ýmsum
greinum fyrir rétta kaupendur.Ársvelta 100-
1000 MKR
• Videósjoppa í Breiðholti með 5 MKR veltu
á mánuði. Auðveld kaup.
• Eitt af vinsælustu veitingahúsum bæjarins.
Mjög mikið að gera.
• Lítill sport pub í Árbæjarhverfi. Besti tíminn
framundan. Auðveld kaup.
• Heildverslun með þekkt fæðubótaefni sem
aðallega eru seld í apótek. Ársvelta 20
MKR.
• Lítil en vel þekkt heildverslun með
iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1 -2 starfs-
menn, sérstaklega smiði.
• Sérhæft fyrirtæki sem setur lakkvörn á
bíla. Gott einkaumboö, tæki og lager.
Hentugt fyrir tvo menn.
• Rótgróin deild úr fyrirtæki, sala mælibú-
naðar fyrir framleiðslu- og matvælafyrirtæ-
ki. Framlegð 5 MKR á ári.
• Rótgróið og vel arðbært gistihús
miðsvæðis í Reykjavík. 15 herbergi,
ársvelta 20 MKR. Möguleiki á 15 her-
bergjum til viðbótar og lítilli íbúð fyrir
eiganda.
• Verslunin Dýrið, Laugavegi. Sérstök ver-
slun með mikla möguleika.
• Fiskréttaverksmiðja í lítilli starfsemi. Góð
tæki, húsnæði, vörumerki og uppskriftir.
Auðveld kaup.^|,
mn
FASTEIGNASALA
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
• Sími 533 4300 • Gsm 820 8658
Listdansskóli íslands:
Lokaverkefni í
Loftkastalanum
FYRSTA ÁRS NEMENDUR
Nemendurnir semja verkin í Saltare sjálfir.
dans í dag flytja nemendur List-
dansskóla íslands lokaverkefni
ársins í Loftkastalanum. Undan-
farin þrjú ár hafa nemendur verið
látnir sjá algerlega um að setja
lokaverkefni sitt upp utan skól-
ans. Þetta árið heitir sýningin
Saltare, sem er latína og þýðir að
dansa.
„Við gerum þetta alveg sjálf,“
segir Anna Tómasdóttir, einn
nemendanna sem standa að sýn-
ingunni. „Þetta eru tíu frumsamin
verk en alls erum við tuttugu sem
tökum þátt í sýningunni." Verkin
eru ýmist eftir nemendur á fyrsta
eða öðru ári í skólanum. Eitt er
eftir danskennarann Cameron
Corbett, sem dansaði áður með ís-
lenska dansflokknum. Tveir
strákar taka þátt í sýningunni og
Anna segir alltaf vanta fleiri í
skólann.
Listdansskóli íslands skiptist í
klassíska deild og nútímadansa. í
þeirri klassísku er meiri áhersla á
ballet. Það skilar sér lítið í Saltare
þar sem verkin eru ýmist nútíma-
dans eða djassballet. „Það er ver-
ið að þjálfa okkur upp í að verða
atvinnudansarar í skólanum,“
segir Anna. Flestir nemendurnir
eru bjartsýnir á framhaldið þegar
skólanum er lokið. „Það verður
nóg að gera þegar við erum búin
að útskrifast."
Sýningin er klukkan 19 í Loft-
kastalanum. ■
10.00 Árni Björnsson þjóðháttafræð-
ingur heldur fyrirlesturinn Lands-
lag, fólk og menning á Loftinu í
Hinu húsinu. Þar ræðir hann
áhrif náttúrunnar á þróun ís-
lenskrar menningar í gegnum ald-
irnar. Aðgangur er ókeypis.
13.00 Diane Burko heldur fyrirlesturinn
í leit að landslagi á Loftinu í
Hinu húsinu. Myndasýning af
rannsókn hennar á formi lands-
lags í suðvesturhluta Ameríku,
Himalayafjöllunum, Normandy og
Bellagio. Einnig sýnir hún myndir
frá eldfjöllum. Aðgangur ókeypis.
GÖNGUR______________________________
9.50 Félag eldri borgara í Hafnarfirði
ætlar í morgungöngu og tekur
rútu frá Hraunseli.
14.00 Guðmundur Halldórsson skor-
dýrafræðingur skoðar smádýralíf-
ið i Alviðru. Upplýsingar í síma
898 1738.
OPNANIR___________________________
14.00 Safnasafnið í Eyjafirði opnar sér-
sýningu á leirverkum eftir Sigríði
Ágústsdóttur á Akureyri.
15.00 Sýningin LiST MEÐ LyST opnuð I
Norræna húsinu. Á opnuninni
verður síld og snaps. Sendiherra
Svíþjóðar, Herman af Trolle, opn-
ar sýninguna að viðstaddri Birgittu
Castenfors sýningarstjóra.
17.00 Farandsýningin Ferðafuða opnar í
Ketilshúsinu á Akureyri. Sýningin,
samanstendur af smáverkum fjöl-
da listamanna. Ferðafuða verður
á Akureyri til 7. júlí og heldur þá
til Seyðisfjarðar.
SÝNINGAR__________________________
Islenska kvennalandsliðið í fótbolta,
sem á góðan möguleika á því að kom-
ast á HM í Kína, áritar í HM-heiminum í
Smáralind í dag.
„Eins og það gerist best í bíó“
Sólstöðuhátíðin á Fjörukránni í Hafnafirði hefur verið haldin árlega frá
því 1994. Hún stendur nú yfir sem hæst og fara menn þangað og horfa
menn drepa mann og annan. Kann kat thad lasta.
VÍKINGAR Á FJÖRUKRÁNNI
Dagskrá hátíðarinnar er hægt að sækja á www.fjorukrain.is.
hátíð Á fimmtudag var sett Sól-
stöðuhátíð á Fjörukránni í Hafna-
firði. Þetta er orðinn árlegur við-
burður sem er ávallt á dagskránni
í kringum 17.júní. Sólin er hæst á
lofti ár hvert þann 21. júní. Hafn-
firðingar kunna vel að meta söng,
mjöð, mat, bardaga og dans að
hætti víkinga. Jafnvel svo mikið
að það var eitt af fyrstu verkum
nýja bæjastjórans, Lúðvíks Geirs-
sonar, að ávarpa gesti.
„Dagskráin er í gangi allan
daginn,“ segir Jóhannes Viðar
Bjarnason, eigandi Fjörukráar-
innar „Hér eru bardagar, leikhóp-
ar, sögumenn, bogaskyttur, járn-
smiðir og dansleikir á hverju
kvöldi. Það er færeyska hljóm-
sveitin Taxi sem hefur komið
hingað nokkrum sinnum og gert
allt vitlaust. Svo ætlar barna-
stjarnan Brandur að syngja fyrir
gesti í dag.“
Taxi leikur hefðbundna ball-
tónlist en á staðnum er dönsk-ís-
lensk hljómsveit sem hefur sér-
hæft sig í því að leika íslenska
þjóðlagatónlist. Þau leika á eftir-
líkingar af hljóðfærum sem hafa
fundist frá þessum tíma.
í bardögunum er svo sannar-
lega tekist á og rennur svitinn af
mönnum í lítratali. Er engin hætta
á því að fólk meiði sig?
„Þetta eru þjálfaðir menn.
Þetta er bara eins og það gerist
best í bíómyndunum. Auðvitað
getur fólk meitt sig en það hefur
ekki gerst ennþá. Og svo deyja
allir, þetta er mjög raunveru-
legt.“
Hasarinn vekur greinilega
áhuga yngri Hafnfirðinga því Jó-
hannes segir að nokkrir mæti
með sverð í hönd á staðinn. Hann
segist einnig vona að byggðar-
safnið í Hafnafirði nái að næla
sér í víkingaskipið íslending.
„Það væri nú aldeilis flott að hafa
það hér í nausti hér fyrir aftan.“
Sólstöðuhátíðin stendur alla
helgina og fram á 17.júní.
biggi@frettabladid.is
MYNDIRNAR BEINT HEIM AG¥A<&
firmpokfcnn m á pósthúst,
HEIMS&m*ÐtJ? „ FRAMKÖLLUN & FILMUR
........ 1W, 2SW lKíjR#«í$i, Slffli $44 4(1 .'8(1 &
<■ • *
Húni II hentar einkar vel til sjó-
manns í einu við veiðarnar. Efti
á meðan skipstjórinn spilar á n
/
Ogleymanleg upplifun!
Upplýsingar& bók
Hvalciskodun - Sjósfoiigaveiði - Veisltfsainr - B