Máni - 18.09.1880, Blaðsíða 4

Máni - 18.09.1880, Blaðsíða 4
7 M Á N I. 8 (A3sent). Alþingiskosumgin i Reykjavik 1880. f>á er búið að kjósa til alþingis í höí'- uðstað landsins, og margir af landsmönnum munu undrast stórlega, þegar þeir heyra, að hinn gamli apturhaldsmaður Halldór Kr. Friðriksson hlaut aptur kosningu. J>etta mega menn samt ekki taka, sem ótvílugt merki upp á það, hversu menn séu almennt ánægðir með þingmanninn, heidur var aðai orsökin sú, að enginn bauð sig til þings, nema prentstofueigandi Einar pórðarson, sem fiestum mun hafa þótt óreyndur í þeim störfum; þó skal geta þess, að hann bauð kjósendum á almennan fund á undan kjör- degínum, og lét þar ,í Ijósi skoðanir sínar á ýmsum landsmálum, sem allar voru í frjáls- lega stefnu. |>etta hefir Halldór aldrei gjört, því í rauninni er hann bókstafsins maður, sem þykist geta þvegið hendur sínar, gagn- vart kjósendum sínum, með þvf, að hann brjóti ekki á móti stjórnarskránni, þar sein í henni standi þessi orð: «Alþingismenn eru eingðngu bundnir við «sannfæríngu sína, og eigi við neinar regl- «ur frá kjósendum sínum». En hann gleymir því, sá góði maður, að enginn frjálslyndur þingmaður dirfist þannig að ganga fram hjá sínum kjósendum, og bjóða þeim aldrei á fund, það er líka auðséð á þessum orðum stjórnarskráarinnar, að þau eru mjög eintrjáningsleg, sem ásamt fleiri stór-göllum þyrfti sem fyrst að breyta. þ>ó Halldór fengi flestöll atkvæði á kjörfundin- um hinn 1. sept.; þá ber þess vel að gæta, að af 230 kjósendum fékk hann einungis 80 atkvæði, því allir hinir sóttu ekki fundinn; var aðal orsökin sú, að margir vildu með engu móti kjósa Halldór. Um hádegi byrjaði kjörfundurinn, í þing- sal bæjarins. í kjörstjórninni voru þessir 3 belglærðu lðgvitringar, bæjarfógeti E. Th. Jónassen, assesor M. Stephensen og landfó- geti Árni Thorsteinsson. Áöur en farið var að kjósa, héldu bæði þingmannaefnin stutta ræðu, og var hið helsta efni í ræðu Hall- dórs, «að hahn vonaðist eptir, að hinir heiðruðu kjósendur Reykjavíkurbæjar viður- kendu það, að hann hefði jafnan fylgt sannfæringu sinni, og að hann efað- ist ekki um, að það væri allra þeirra ósk, að hann gjðrði slíkt>>. |>að dettur víst eng- um í hug, að neyta því, að þingmaður Reyk- víkinga hefir talað satt, enn á slíkri ræðu er ekki að græða fyrir kjósendurna. þ>að virðist vera Ijóst hverjum manni, að það nægir ekki að lofa kjósendum sínum, áður en maður kemur á þing, að maður skuli ein- ungis fara eptir sannfæringu sinni, því sú hin sama sannfæring getur verið mjög ófrjálsleg, og væri betur að kjósendurnir vissu eitthvað um hana, áður en þeir sendu þingmannsefnið á þing. Hvað stoðar sann- færing hans í fleiri mikilsvarðandi málefnum á seinasta þingi? f>eir sem vilja kynna sér það, ættu nú þegar að lesa þingtíðindin. jpegar þingmaður Reykvíkinga hafði endað þessa mjög léttvægu ræðu, baðst verslun- maður |>orlákur Ó. Johnson um orðið, og kvaðst vilja gjöra nokkrar athugasemdir við ræðu Halldórs. Sagði þá bæjarfógeti E. Th. Jónassen, sem var oddviti kjörstjórnarinnar, að hann gæti eigi leyft fundarmanninum orðið, nema því að eins, að hann framsetti ræðu sína í spursmálum, kvaðst hann hafa einhvern lagabókstaf fyrir því, en hvar sá lagabókstafur er, væri fróðlegt að vita? í lögum um kosningar til alþingis, sem lesa má í stjórnartíðindunum stendur, þannig prentað í 31. gr.: «Kjósendur þeir, sem eru á fundi, og «standa þar við meðmæling sína, eiga «rétt á að taka til máls, og hið sama «er um þau þingmannaefni, sem boðnir «eru fram til kosningam. Hvar stendur, að meðmælandi sé skyldugur á kjörfundinum að framsetja ræðu sína í spursmálum? Og hvað verður nú úr visku bæjarfógetans ? Slíkur pólitiskur uppþemb- ingur á frjálsum mannfundi gjörir þann hlægilegan, sem kemur með slíkt, svo hann hlýtur að standa þar eins og pólitiskur við- vaningur, sem ekki veit hvar hann er gagn- vart frjálsum mönnum; er það sannarlega sorglegt, að þurfa að hafa slíka pilta sem oddvita á kjörfundum. Hvað skal þá segja

x

Máni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Máni
https://timarit.is/publication/111

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.