Fjallkonan


Fjallkonan - 31.01.1888, Page 2

Fjallkonan - 31.01.1888, Page 2
10 FJALLKONAN. 31. jan. 1888. ÞJOÐ ERNIÐ. Bftir Piil llrieni. Hr. ritstjóri! Mig langar til að biðja yðr, að ljá þessum línum rúm í blaði yðar. Eg var í kveld að lesa blað yðar, og þar á meðal niðrlagið úr fyr- irlestri Hannesar Hafsteins um „Hnignun íslensks skáldskapar“, og þótti mér þá svo margt í því mótmælavert, sem hann segir um „hina afdregnu hugmynd: þjóð“, að ég get ekki orða bundist. „Yor tími er tími hinna verklegu framfara, gufunnar, rafmagnsins og rannsóknarinnar stolti tími. Það þarf að komast eftir meinum manna, mannfélagsmeinunum, sem standa einstaklingunum fyrir þrifum, svo að þau geti orðið læknuð“. Þessi orð Hannesar eru alveg rétt. Enn þetta stendr eigi andvígt fóstrlandi, þjóðerni og þjóð. Nei, þvert á móti, því að einmitt þetta hefir hafið hugmynd- ina þjóðerni og þjóð á miklu fegurra og háleitara stig enn áðr. Það er eins og Hannes sjálfr segir, „ekki nóg til þess að fullnægja tímans kröfu, að drekka skál fyrir sinni ástkæru fóstrmold, það er ekki nóg að tala um framfarir, án þess að tilgreina, hverjar þær eiga að vera", og ég vil bæta þvívið: án þess að gera neitt. Þetta bendir einmitt á, að það er ekki þjóðernið, sem er dottið úr hásætinu, heldr mun Hannes Hafstein, þegar hann talar um, að hugmyndirnar um þjóð, þjóðerni og fóstrland séu dauðar hugmyndir, er ekki hafi líf eða sögu- legan rétt lengr, eiga við sérstaka skoðun á hug- myndinni þjóð, og mun það vera sú skoðun, sem hefir áðr ríkt sumstaðar, að þjóðin væri sérstök vera, óháð einstaklingnum, sem hefði sitt líf, með- vitundarlítið líf, er stæði mitt á milli hins alveg meðvitundarlausa náttúrulífs og lifs 'hins einstaka manns, sem hefir fulla meðvitund. Tungumálin vóru ekki verk neins einstaklings. Hver einstak- lingr hefir ekki sitt tungumál, heldr tungumál sinn- ar þjóðar. Þjóðin hefir skapað tungumálin óháð einstaklingunum, var skoðunin. Á sama hátt átti réttr þjóðarinnar að hafa orðið til. Myndun hans var óháð einstaklingunum. Þessi skoðun var ekki „reaktionu móti yfirgangi Napoleons mikla og sigr- j vinningum hans, því að Napoleon mikli hefir aldr- ei verið sú hugmyndanna hetja, að heimspeking- arnir hafi þurft að eiga i höggi við hann. Nei, þessi skoðun var hafin gegn heimspekingum 18. aldarinnar og mannréttindum þeim, er stjórnarbylt- j ingin mikla lét ganga út eins og boðskap meðal i allra þjóða. Napoleon mikli stóð á grundvelli stjórn- arbyltingarinnar, enn hann afneitaði þeim grundvelli j og hann fóll fyrir hervaldi og bolmagni fjandmanna I sinna, enn þótt hann væri fallinn, vóru ekki falln- ar hugmyndir stjórnarbyltingarinnar, og þær hug- myndir myndu hafa orðið hinu helga sambandi, aftrhaldssambandinu, sem kom eftir fall Napoleons mikla, milli flestra þjóðhöfðingja í Norðrálfunni, að fótakefli, ef þær hefðu ríkt meðal manna. Það var j aftrhaldsskoðun, og liefir ávalt verið aftrhaldsskoð- j un, að álíta þjóðina á þennan hátt sem veru alveg óháða einstaklingunum. Þessi skoðun var alveg j ríkjandi á Þýskalandi um fyrri hluta þessarar ald- | ar og miðbik hennar, og þaðan breiddist hún út til ýmsra landa og varð meira og minna mögnuð. Sumstaðar náði hún aldrei festu, t. a. m. á Eng- landi og í Bandaríkjunum, enn sumstaðar varð hún alveg drotnandi og þar á meðal í Danmörku. Um miðja öldina var þessi skoðun drotnandi meðal flestra mentaðra manna í Danmörku og var næst- um eins og helg trúarsetning. Það var fyrir þessa trú á þjóðinni sem þjóð, að Danir lögleiddu hjá sér mjög frjálsleg grundvallarlög, sem þjóðin kunni eigi að nota, eða réttara að segja, sem einstakling- arnir kunnu ekki að fara réttilega með. Það var fyrir þessa trú, að Plógr og hans menn sungu sí- felda hetjusöngva fyrir þjóðinni og töiuou stóxt um að láta lif og blóð og falla fyrir fóstrlandið, og það var fyrir þessa trú, að Danir steyptu sér út í ófriðinn við Þjóðverja 1864, sem varð til þess að þeir mistu Hertogadæmin. Þá brast trúin, og þá fékk hún það áfall, að hún varð að víkja fyrir öðr- um skoðunum. Þessi skoðun er ávalt að víkja í Danmörku meira og meira, og áðr langt um líðr mun hún vera alveg horfin. Eins og ég sagði áð- an, þá var þessi skoðun aftrhaldsskoðun, og þetta sýndi sig ljóslega einmitt hjá hinum svo kölluðu „þjóðfrelsismönnum“ í Danmörku. Þótt þeir köll- uðu sig þjóðfrelsismenn, vóru þeir í rauninni hin- ir ófrjálslyndustu menn, bæði í innanlandsmálum og sórstaklega gagnvart öðrum þjóðflokkum enn Dönum. Það var „danska þjóðin“, sem átti að ríkja og Hertogadæmin og ísland áttu að lúta. Danir tóku móti frelsishugmyndunum, sem ruddu sér til rúms um miðja öldina, enn þeir héldu hinni gömlu þjóðarhugmynd. Enn af því, að þeir tóku við frelsishugmyndunum, mistu þeir fylgi aftrhalds- manna i Norðrálfunni, og af því, að þeir hóldu gömlu þjóðarhugmyndinni, enn afneituðu hinni nýrri þjóðarhugmynd, sem ekki hallaði rétti einstakling- anna, þá mistu þeir bæði traust og fylgi frjálslynda flokksins í Norðrálfu og fyrir því stóðu Danir ein- ir uppi vinum horfnir 1864. Gamli Plógr syngr enn þá um frelsi og framfarir, þótt hann vitanlega só hinn mesti ófrelsismaðr; hann talar enn þá stórt um að falla fyrir fóstrjörðina og berjast til seinasta manns, þótt þetta sé ekki nema orðin tóm. Síðan um 1870 hafa Danir barist móti hinum gömlu þjóð- ernishugmyndum af alefli. Enn þetta hefir Hann- es Hafstein álitið, að væri barátta móti öllu þjóð- erni. Enn það er alveg misskilningr. Það er eins og óg sagði í upphafi, að hugmyndirnar um þjóð, þjóðerni, ættjörð og ættj arðarást hafa einmitt á síð- ari tímum hafist á miklu háleitara og fegurra stig enn áðr. og þær gera miklu meiri kröfur til ein- staklinganna, heldr enn hin gamla þjóðarhugmynd, sem kendi mönnum að varpa allri sinni áhyggju upp á þjóðina sem þjóð, og kendi að framfarirnar kæmu út frá hjarta þjóðarinnar. Stórþjóðirnar þurfa ekki að berjast fyrir sínu þjóðerni nú sem stendr, því að þeirra þjóðerni er ekki undirokað. Enn hvað heyrist þó ekki i blöðum Þjóðverja um þjóðerni þeirra á Rússlandi ? Láta þeir það alveg afskiftalaust? Og hvernig var hljóðið í Þjóðverj- um, þegar þýska flaggið var svivirt í Parísarborg ? Sýndi það sig þá, að hugmyndirnar um þjóðerni og fóstrland væru dauðar og úreltar ? Eða láta Frakkar afskiftalaust þjóðerni sitt i Elsass og Loth- ringen? Segja íbúarnir þar: „Oss varðar ekkert

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.