Fjallkonan - 31.01.1888, Qupperneq 6
14
FJ ALLKONAN.
31. jan. 1888.
stað, er nú orðinn forseti þjóðveldisins Carnot (frb.
Karnó) sonarsonr Carnots þess, er í stjórnarbylting-
unni kora hervörnum landsins á fastan fót. Ferry
var annars sá, er næstr þótti standa forsetatigninni,
enn menn þorðu eigi að kjósa hann fyrir ofstækis-
flokknum og Derouléde, er mundi hafa ollað uppreisn
og bardögum á strætum Parísar. Seinna í des. var
Ferry veitt banatilræði í forsal fulltrúaþingsins. Var
skotið á hann með marghleypu og særðist hann lítt.
Hefir atvik þetta aftr aukið þjóðhylli hans, sem skerst
hafði nokkuð við ófarirnar í Tonkin. — í miðjum
desember tókst Carnot loks að mynda nýtt ráðaneyti.
Forsætisráðlierra er Tirard og fjármálaráðhprra um
leið, en Flourens ráðherra utanríkismála.
ÞÝSKALAND. Eftir síðustu fréttum var nokk-
ur von um að krónprinsinum mundi batna, og það
er öilum mikið gleðefni, slíkr ágætismaðr sem hann
er sagðr. Keisarinn er lasinn enn seiglast furðan-
lega. — í vetr kom upp hneykslismál mikið, sem
tíðrætt varð um í blöðum, það er um skjalafölsun,
sem helst er dróttað að tignarfólki. Skjöl þessi hafa
verið prentuð í þýskum blöðum, það eru fölsuð bréf
sem í orði kveðnu eru frá Ferdinand Bulgaríu-fursta
til hertogaynjunnar af Flandern, og enn fremr tvö
skjöl, sem áttu að vera frá hinum þýska sondiboða í
Vín. í bréfum þessurn er því sérstaklega haldið fram,
að Bismark sé samþykkr prins Ferdínand og hafl
enda, ef til kæmi, heitið honum liðsinni. Mælt er
að skjölum þessum hafl í haust verið skotið að Rússa-
keisara á Fredensborg, líklega í því skyni, að auka
úlfúðina milli Rússlands og Þýskalands. Á heimför
sinni kom Rússakeisari við í Berlín, sem fyrr hefir
verið um getið, og sýndi Bismarck honum þá fram
á það, að hér niundi vera svik í tafli. að því er
bréfin snerti, og þau gerð til að spilla milli rikjanna.
Eftir þessa leiðrétting á að hafa batnað nokkuð vin-
skaprinn milli Rússlands og Þýskalands. -Enn ekki
var þó tryggara Astandið enn svo, að á öndverðu ár-
inu leit út fvrir ófrið, því að Rússar drógu herafla
allmikinn saraan á landamærum Galizíu, og var helst
við þvi búist, að ófriðr mundi hefjast í febrúarmán-
uði. Enn þessi ófriðaruppgangr lægðist þó aftr við
skýrslur þær, er Rússastjórn lét í té víð liðsafnað-
inn. enn þö má víst fullyrða, að friðrinn sé 'enn þá
síðr enn ekki tryggr, þar sem mál það stendr enn á
dagskrá, sem ekki mun útkljáð verða nema með
vopnum, það er að segja, málið um það, hverjiryfir-
ráðin skuli hafa á Balkanskaga, Rússar eða Austr-
ríkismenn, því að hitt stendr á minstu, livort Fer-
dinand heldr tigninni eða ekki. — 13. nóv. f. á. and-
aðist, prófessor Fr. G. Bergmann í Strassborg, nálega
76 ára. merkr málfræðingr og bókmentafræðingr og
fékst, meðal annars talsvert við norrænafornfræði og
skýrði nokkur af Eddukvæðunum.
ENGLAND. Hér gengr á sama harðræði stjórn-
arinnar sem áðr gegn þjóðernisbandam. íra. Borgar-
stjórinn í Dublin, Sullivan. var fvrir skömmu dæmdr
í varðhald fyrir æsingar og sömuleiðis tveir þingm.,
enskr þingmaðr Blunt og írskr þingmaðr Lane. Urðu
af þessu óspektir nokkrar. Gladstone fór skemtiferð
t.il ítaliu til að hressa sig undir hin ströngu parla-
mentsstörf, sem hann á fyrir hendi. Meðal annara
hafði páfinn boðið honum til sín.
ÍTALÍA. Við Rauðahaf má að líkindum bráðum
vænla atburða; hafa ítalir þar 20000 hermanna enn
Abessiníumenn standa til móts með fjórum sinnum
fleira lið. Á því lék orð, að Ras Abula, herforingi
Abessiníu konungs, hefði gert foringja ítalska hers-
ius kost á bandalagi til að steypa konungi, enn óvíst
er, hvort á því er að henda reiðr.
NOREGR. Ónægja er mikil út af því, að Sverd-
rup og hans ráðaneyti hefir ekki farið frá, svo sem
við hefði mátt búast eftir því, hvernig kirkjumálun-
um reiddi af í fyrra. — Björnstjerne Björnson var
kominn til Noregs, og þykir líklegt, að hann haldi
þar snarpa pólitíska fyrirlestra, svo sem hann hefir
gert, áðr, þegar líkt hefir staðið á. Hann hefir jafn-
an haldið uppi heiðri og sjálfstæði Norðmanna gagn-
vart yfirgangi Svíastjórnar, og er þess ekki hvað síst
þörf nú, þar sem Sverdrup og hans ráðaneyti hefir
i því máli farist einna slælegast og óhreinlegast.
DANMÖRK. Ríkisþingið var aftr tekið til starfa
og vísuðu vinstri menn í fólksþinginu aftr bráða-
birgðarlögum stjórnarinnar. Lögðu þeir svo fram
sitt frumvarp og komst það í nefnd. Ágreiningr er
enn sem fyrrum milli meiri hluta vinstri manna og
Bergs, ásamt þeim er honnm fylgja, þar sem þeir
vilja láta til skarar skríða, enn hinir málþinga við
ráðaneytið, svo þinginu verði ekki hleypt upp og
þeir nái þannig að koma fram einhverjum af þeim
málum, sem þeim er mest um liugað. — Um sýningu
þá er halda skal í sumar í Khöfn gera menn sér
miklar vonir, að hún verði þjóðinni til sæmdar og
höfuðborginni gróðavegr. v- Auðmaðrinn jmikli, Ja-
kobsen bjórgerðarmaðr, ætlaði auk þess að efna til
sýningar á frönskum málverkum og lætr reisa til
jiess stakt hús andspænis sjálfri sýningarhöllinni.
Svínapest hefir gengið í Danmörk, Noregi og Sví-
þjóð og liafa alvarlegar ráðstafanir verið gerðar til
að hnekkja henni og allvel tekist, enda lá mikið við,
því þýska stjórnin hafði bannað aðflutning svína frá
Danmörk (sem nemr 33 milj. króna á ári) meðan
pestin stæði yfir.
Merkismenn dánir: Schiellerup prófessor í stjörnu-
fræði og bóksali Hegel, auðmaðr mikill og ágætis-
maðr (eigandi fyrverandi Gyldendals bókaverslnnar).
Hann var fæddr 1817 ; dó 27. desember.
BANDARÍKIN í N.-AMERÍKU. Cleveland for-
seti gat þess i boðskap sínum til þingsins, að svo
mikið fé væri um fram útgjöld í ríkissjóði, að varla
væri unt að vita, hvað við það ætti að gera, því að
fé þetta drægist að óþörfu frá notkun þjóðarinnar
og arðsamri veltu i þarflegum fyrirtækjum. í júní
1887 var afgangs upphæðin 55]/2 milj. dollara og verðr
hún í júní þ. á. með því sem áðr hefir safnast fyrir
alt, að 140 milj. dollara. Þykir Cleveland einna
tiltækilegast að afnema hina háu verndartolla, sem
Bandaríkastjórnin hefir beitt til að verjast samkepni
Evrópu þjóða; einkum vill hann færa niðr tolla á
óunnum efnum sem verksmiðjur þurfa til þess að
amerískr iðnaðr geti færst meir í fang og eflst til
samkepni á útlendum mörkuðum. Þetta mun nú