Fjallkonan


Fjallkonan - 23.11.1898, Síða 1

Fjallkonan - 23.11.1898, Síða 1
Kemr 4t um miðja viku. Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.) Anglýsingar ðdýrar. GJalddagi 15. jdli Upp sögn skrifleg fyrir 1. okt. Afgr.: Þingholtsstræti 18 FJALLKONAN. XV, 46. Reykjavík, 23. nóvember. 1898. Um landsins gagn og nauðsynjar. Eftir Dalliúa. IV. Stórlega heflr sjávarútvegurinn breytst á hinum síðari árum, ekki eízt við Faxaflóa. Þar þjóta þil- skipin upp, mest þó gamlir kúttarar, sem Englend- ingar eru að leggja niður, en taka upp í staðinn gufu- skip til fiskveiða. Enn veiði á opnum skipum er nálega þrotin þar. Við ísafjörð og Arnarfjörð eru og fiskveiðar stundaðar á þilskipum. Þetta þykja nú framfarir, og eru það að því leyti, að á þilskip- unum geta menn borið sig eftir fiskinum lengra enn á fiskimiðum fram undan bænum sínum. Enn aftur er það ókostur við þilskipaveiðar, að ýmsar afurðir fisksins, svo sem sundmagi, höfuð, lifnr og kútmagi, sera alt má verða að gagni, þegar menn stunda sjó á opnum bátum og lenda heima hjá sér að kveldi, verður alt að eagu og í sjóinn kastað, þsgar fiskað er á þilskipum, Margir þeir sem veiði stunduðu á opnum bátum vóru að vissu leyti Iandbændur, eigi eíður enn sjávarbændur, höfðu hross, kýr og kindur og stunduðu I&ndvinnu, að minsta kosti sumartímann, annaðhvort heima hjá eér, eða þá sem kaupamenn til sveita. Fengu þá sjávar- menn úr sveitinni smjör, kindur og vaðmál o. fi., ým- ist fyrir vinnu sína eða sjávar-afurðir. Enn þessu er gersamlega breytt við þilskipaútveginn; hálft árið eru menn við sjómenskuna, frá marz til ágúst-Ioka, enn hinn tímann margir gerðahægir. Drengir fara strax um fermingu á þilskipin og læra þannig aldrei landbúnaðar vinnn, t. d. slátt. AUar afurðir þilskipa- sjómenskunnar eru lagðar inn i kaupstaðinn, enn viðskiftin milli sjávar og sveitamanna hverfa hér- umbil gersamlega. Þar sem sjómenskan á opnum skipum styður landbúnaðinn að meira eða minna leyti, og landbúnaðurinn þannig lagaðau sjávar útveg, verður landbúnaðurinn og sjómenskan einskonar and- stæðingar, þegar hún er stunduð á þilskipum. Eftir því sem þilskipin fjölga, eftir því fækkar þeim sem landbúnaðinn stunda; enn það er sann- reynt í öðrum löndum, og svo mun einnig hér fara, að sjómenskunni fylgi eigi eins reglubundið og sið- gott líf, eins og landbúnaðinum, og það verð ég að segja, að slíka sorgar sjón hefi ég aldrei á æfi minni séð, eins og hinn mikk sæg drukkinna skútu-háseta um síðastliðin vorvertíðarlok í Reykjavík. Mér gat ekki annað enn runnið til rifja að sjá þessa vesalings menn. Sumir riðuðu og skjögruðu, aðrir hlunkuðust og hlömmuðust áfram, eins og þeir gætu ekki gengið, eða kynnu ekki að ganga. Mér gat þá eigi annað enn komið sú ósk í hug, þó hún kannske þyki ekki falleg, að ef þilskipaútvegurinn gerir æskulýðinn ís- lenzka að meira eða minna leyti þannig á sig kominn, þá væri bezt, að fiskiþilskipin væru sem fæst og helzt engin. Helzt til lítið fanst mér bera á kónga- blóðinu forna í þessum álappalegu og drukknu sjó- manna tetrnm, sem ég sá viti sínu fjær álpast á göt- unum í Reykjavík. En sem betur fer munu marg- ar heiðarlegar undantekningar meðal sjómanna £rá þessu ráðlagi. Þilskipaeigendurnir kvarta sáran, að útvegurinn borgi sig ekki eða naumast; enn þó hafa þeir ráð til þess, að borga formönnunnm fyrir 2/9 árs vinnu, auk fæ ðis, mikið meira kaup enn margur presturinn hefir árið um kring, en hásetunnm boðin slík vildarkjör, að engin atvinna virðiet hér á landi borga sig betur. Enn hér er sama laumuepilið eins og svo víða ann- arstaðar i viðskiftalífi íslendinga. Hásetarnir fá ekki, nema ef til vill að einhverjum örlitlum hlut, kaup sitt í peningum, en verða að taka nauðsynjar sínar hjá útgerðarmanninum, það er verzla við hann, og þarf ekki að lýsa því, hvé skaðlegt þetta fyrirkomulag getur verið, bæði í efnalegu og sjálfstæðislegu tilliti, fyrir sjómanninn. Það er engum vafa bundið, að ég ætla, að lands- mönnum væri hollara að stunda fiskveiðar á gufu- skipum; á þau þyrfti miklu færra fólk, og þau væru nokkuð betur löguð til samkepninnar við útlendinga enn niðurlögðu uppgjafadallarnir, sem landsmenn eru nú að sækjast eftir. Enn efnin og samtökin vanta til þess, eins og svo margs annars. Yfirleitt held ég að fiskveiðar á opnum skipum hafi verið og séu landemönnum mikln hollari og gagn- legri enn þilskipaveiðarnar, enn um slíkt er ekki að tala, þar sem þær eru á sumum stöðum nálega eyddar. Þá eru ýms hlunnindi að ganga til þnrðar, svo sem laxveiði, rjúpnaveiði og selveiði. Yirðist að minnsta kosti laxveiði og rjúpnaveiði á fullkomnum eyðileggingar vegi. Mun það engnm vafa bundið, að rýrnun hlunninda þessara er of mikilli stundun þeirra að kenna, sem lögin þurfa að hemja. Maðurinn er og verður hvarvetna sterkasta rándýrið, sem réttsýn lög og skynsamleg skoðun verður að temja og halda í skefjum. V. Mikið hafa menn þjarkað um stjórnarskrármálið síðan þingi lauk í fyrra eigi síður enn áður, Það mál er landsmönnum svo frámunalega leiðinlegt, að varla les nokkur maður með viti stjórnarskrárgreinarnar í blöðunum, nema ef vera skyldi helzt i ísafold, nema sjálfir stjórnarskrárorru8tu-hanarnir, og fer svo sjálf- sagt með tímanum, að enginn landsmanna vill horfa á þeirra stjórnskrálegu skrípalæti cða hlusta á þeirra pólitisku, margtuggnu endileysu. Það mun hægri og vinstrimönnum í Danmörku koma sam-

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.