Heimdallur - 01.03.1884, Síða 14

Heimdallur - 01.03.1884, Síða 14
niður í vatnið, og kemst enginn maður þar upp; en að vestanverðu er skógur; gata ein liggur í gegnum skóginn; brennihöggvararnir og veiðimenn- irnir þekkja hana, smalastúlkurnar ganga haná upp á fjallið og veiðidýrin hlaupa yfir hana fram og aptur. Á tveim stöðum liggur gatan fram hjá dálitlum rjóðruin í skóginum, og standa í þeim hjarðmannakofar og timhurskálar, og hafast hjarð- menn þar við á vetrum. En þegar upp eptir dregur, verður hlíðin æ brattari og brattari, og að sama skapi verður skógurinn gisnari, og loks gnæfir auður fjallskamburinn upp á milli grenitrjánna og horfir niður í dalinn, niður á Berchtesveg og vatnið, og slær dimmum blæ á það; þar sjest og hin gráa veiðihöll Bartholomá; hringinn í kringum hana standa hlynir, og blakta topparnir, og er eins og þeir gefi ferðamönnum bendingu um að ganga inn úr þessum eyðilega klettaklasa. Einusinni um haustið gekk ungur maður upp þessa bröttu götu, og fylgdi honum veiðisveinn hans. Maðurinn leit opt aptur, og horfði undrun- i arfullur niður á við. Hann var í veiðibúningi, og þótti sá búningur hentugur til þess að veiða í þar um slóðir, en vel mátti sjá á honum, að hann var eptir einhvern bæja-skraddarann, sem hafði ætlað að sýna hvílíkur listamaður hann væri. Treyjan var brydd með grænu silkiflosi, vestið var úr silki og grænt á lit, buxurnar voru úr leðri og náðu að eins niður að hnjám, hnjen sjálf voru ber, sokkarnir voru grænir og náðu upp undir hnjen; til þess að halda þeim uppi, voru dregin bönd í þá, og þar sem þeim var hnýtt saman, voru fest refahöfuð úr málmi; á fótum sjer hafði hann fjallgönguskó, sólarnir voru þykkir og járnaðir, en skórnir sjálfir voru spegilfagrirog reimaðir saman með gulum bönd- um; hann hafði á höfðinu spánnvjan, uppmjóan veiði hatt og var fest á hann gemsuskegg og hana- fjöður, en ekki á þann rjetta stað. þ>etta hafði drengurinn rekið augun í og gat ómögulega fellt sig við það, því þó treyjan hans væri ekki sem fallegust, þá var hann þó bezta veiðimanns efni, en að segja öðrum eins höfðingja frá því, það þorði hann ekki fyrir sitt lifandi líf. Hann gekk á eptir barúninum og bar fyrir hann fallega, tví- hleypta kúlubyssu, en í hjarta sínu hafði hann hálf- gaman af að sjá, hvernig eggjagrjótið markaði fallegu skóna barúnsins Annars segjum vjer þetta alls ekki í vondu skyni um barúninn með fallegu skóna. Hann \ kunni vel til veiða í skógunum á erfðaeign sinni, í en hann var óvanur því að veiða í fjöllum, og ' þokkti lítið siði fjallabúa. þ>ví hærra sem hann komst upp eptir, því skemmtilegra þótti honuin að í líta í kringum sig. Haustgolan bar hvert hljóð \ neðan frá vatninu upp til hans; hann heyrði að stúlkurnar, sem voru á siglingu til Bartholoma, í voru að syngja, hann heyrði byssuskotin niðri í ' dalnum og bergmálið í klettunum, og þegar aptur var orðið hljótt, heyrði hann axarhljóðið í skóg- ; inum og niðinn í litlu lækjunum. Han stóð við, ; tók hattinn af höfðinu og litaðist um með athygli. í «IJað er fallegt hjerna hjá ykkur Frygíus litli,» sagði hann við drenginn. «Já það er satt, herra barún», sagði drengur- j inn. «þ>að er líka nóg af gemsum uppi í Warteck, j ogofarí fjallinu eru «mankejar», ef yður einhvern j tíma langaði til að skjóta einhvern af þeim». Svo slitu þeir talinu, því drengurinn talaði i mállýzku þá, sem þar var töluð á fjöllunum, en barúninn var franskur, og skildi naumast helming- inn af því, sem hinn sagði; hann vissi ekki einu- | sinni að «mankej» er múrmeldýr, og í öðru veifinu \ var hann hræddur um, að ef hann færi að spyrja drenginn, þá mundi hann ekki bera jafnmikla virð- ; ingu fyrir sjer á eptir. Skógarstjórinn hafði sagt \ honum, að stór gemsuhafur hefðist við þar uppi í > fjallinu, og þennan hafur vildi hann, fyrir hvern • mun, ná í. Frvgíus vissi líka af honum, og nú \ um nóttina ætluðu þeir að vera í selinu, og fara ; þaðan snemma morguns að leita að honum. Hann | hirti því ekki um að komast eptir því hvað «mankej» þýddi, og hjelt þegjandi leiðar sinnar ; upp fjallið. peir gengu nú í marga klukkutíma, og kom ; þá maður á móti þeim ofan af fjallinu; hann var hár vexti og vasklegur; allt í einu stóð hann við i og virti þá fyrir sjer, og varð nokkuð skuggalegur á svipinn. Á að gizka, var hann tæpra 24 ára. Treyjan hans var bæði stutt og slitin; hann hafði ; hattkúf á höfðinu, með langri hanafjöður í; hann var í ullarsokkum, og var bert bil á milli um ' hnjen og voru þau allmikið veðurtekin; hann var ; ber á hálsi og brjósti, því skyrtan skýldi þar ekki. ; Hann hallaði sjer upp við háan klett, og stóð fyrir > þeim mitt á gðtuuni, og var ekki laust við, að \ hæðnissvipur væri yfir honum, og hann þokaði

x

Heimdallur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.