Heimdallur - 01.06.1884, Síða 3

Heimdallur - 01.06.1884, Síða 3
honum, en hún svaraði: inaðurinn minn er einbeifctur. Embættið fjekk hann ekki. I’etta, sem hjer hefur verið sagt er stutt ágrip at æfisögu Nordcnskjölds, sem hann hefur sjálfur samið. Nordenskjöld er frægur vísindamaður ogeinkar vel að sjer í náttúrufræði, en mest er hann kunnur fyrir uppgötvunarferðir sínar. Árin 1858 > og 61 fór hann með Tore’l I til Spitsbergen norður í íshaf og komst að 81. stigi 42 mín. norðl. breidd- : ar, og var það lengra enn nokkurt skip hafði : komizt áður. 1870 fórhann að kanna Grænland, og ; aptur í fyrra sumar og kom við í Reykjavík. Yeturinn 1872—73 hafðist hann við á Spits- bergen. 1875- 76 kannaði hann Novoja Zemlja, ■ eyju fyrir norðan Rússland, og norðurstrendnr : Síberíu og 1878—80 hjelt hann á gufuskipinu Yega norður fyrir Norðurálfu og Síberíu, ígegnum Beringssundið, sem greinir Austur- og Vesturálfuna, og austur í Kyrrahafið, en þá leið hefur enginn nema hann komizt. Frá Beringssundi hjelt hann suður fyrir Asíu, í gegnum Suezskurðinn, vestur fyrir Evrópu og heim til Svíþjóðar. Eptir þessa för gjörði Svíastjórn hann að aðalsmanni. Björn Bjarnarson. Pjetr Havstein 1870. (Svur upp á brag úr Höfðahverfi pað ár) Nú spurðu vjcr norðan, naut lians fyr í þrautum, stiginn enn sem annan öldurmann frá völdum: kostr mun heldr hraustum Höfðhverfingum erfa valdsmann vígi feldau vopnalaust á hausti. Hælist ei þeir, er Ála eld-tý hafa svo feldan, hann var mörgum mönnum mætr, úr hefðarsæti: skáld biðr hins, að haldi Höfðhverfingar gerva enn við einurð sinni afardrengi þó lengi! Marts 1871. Gísli Brynjúl/son. Páll Sveinsson f 1874. (kveðið við fregn um andlát lians). Hættr er hönd að rjetta hríðar- Páll um síðir -lands, og bækr binda, bókstörfum títt görva: margr er góðr, þó ei greiðist gæfan sling urn æfi: Sveins nam mögr að mínu mannviti það sanna. Sumarið 1874. Gísli Brynjúljson. Brennivínshatturinn, garnansaga eptir Hannes Hafstein. Kvcld eitt í septembermánuði undir rökkur gekk unglingsmaður suður hjá spítalanum á Akur- eyri. fað hafði verið gott veður um daginn, kyrrt og hlýtt, en seinni partinn fór að syrta til, og um þetta leyti var farið að slíta úr honum nokkra dropa, og var mjög rigningarlegt. Fáir voru úti, en nokkrar stúlkur voru þó nýlega gengnar suður fjöruna, og þó að þær væru allar með stór sjöl, hafði samt sjezt, að þær voru prúðbúnar, því að þær höfðu ekki getað stillt sig um, þótt dálitið ýrði, að lypta við og við frá sjer sjölunum að framan eins og stúlkum er títt, einkum þegar þær eru í spari- fötunum, til þess að hagræða fellingunum á brjóst- inu, sjálfum sjer til hæginda, og piltunum til ánægju. Allt var kyrrt, nema ómur barst frá Bauk. I>ar voru auk annara gesta nokkrir danskir hásetar af haustskipunum að hressa sig, og tóku sjer fleiri og fleiri bjóra, eptir því sem þeir sögðu af ergelsi yfir | því hvað bjór gæti bæði verið dýr og vondur í einu.

x

Heimdallur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.