Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1912, Qupperneq 3

Norðurljósið - 01.01.1912, Qupperneq 3
Norburljósið 3 Brúin yfir Forth-fjörð. Margir, senr ferðast hafa erlendis, hafa fengið tæki- færi til að sjá hina miklu brú yfir Forth-fjörðinn, þegar skip þeirra hafa legið í Leith. Hún er einhver hin stærsta brú heimsins, og mörgum þykir furða að sjá þenna minnisvarða hugvits og dugnaðar verkfræðing- anna. I mörg ár var það verkfræðingunum ráðgáta, hvernig hægt myndi vera að brúa svona breiðan og djúpan fjörð, en loksins tókst þeim að ráða gátuna á þann hátt, sem hjer segir: A eynni Inehgarvie, í miðjum firðinum, var steyptur sterkur grunnur og bygt ofan á hann. Þá var farið að þyggja út frá yfir- bygging- unni báð- um megin samstund- is, til þess að halda jafnvæg- inu. Aftur steyptu mennaðra grunna á sjávar- botni í firðinum og bygðu ofan á þá, og út frá yfirbyggingunum báðum megin, á sama hátt, þangað til útbyggingarnar náðu saman. Þá voru þær tengdar sam- an með stálböndum. Brúin er 2500 álna löng í heild sinni og kostaði ærið fje, sem nærri má geta. Tveir verkfræðingar gerðu samning um að byggja brúna alla fyrir 1,600,000 pund sterling (28,800,000 kr.), og var mikill fjöldi verkamanna nær því sjö ár að byggja hana. í hana voru notaðar 45,000 smálestir af stáli. En nú er hægt fyrir almenning að fara yfir fjörðinn fyrir lítið verð. Vjer leyfum oss að nota tækifærið til að leiða at- hygli manna að annari brú, sem er enn þá nauðsyn- legri en Forth-brúin, og sem heimspekingar og aðrir hálærðir menn hafa verið að brjóta heilann um í mörg hundruð ár. Það er brúin yfir hina miklu gjá, sem syndin hefir grafið á milli mannkynsins og Guðs. I fornöld andvarpaði Job áður en honum varð það ljóst, að Guð ætlaði að brúa gjána: »Jeg vildi að jeg vissi, hvernig jeg ætti að finna hann« (Job 23. 3), og aftur: »Enginn er sá, er úr skeri okkar í milli, er lagt geti hönd sína á okkur báða« (Job 9. 33). Hann þráði milligöngumann, sem gæti samstundis lagt hönd sína á hásæti hins rjettláta Guðs og á málstað hins syndum spilta manns og gæti sameinað þá í sjálfum sjer. En síðar fjekk Job að heyra þessi lífgandi orð: »Sje þá þar fyrir hann árnaðarengill, einn af þúsund, til þess að boða manninum skyldu hans, og miskunni hann sig yfir hann og segi: ,Endurleys hann og lát hann eigi stíga niður í gröfina; jeg hefi fengið lausnargjaldið,' þá svellur hold hans af æskuþrótti, hann snýr aftur til æskudaga sinna. Hann biður til Guðs, og Guð misk- unnar honum, lætur hann líta auglit sitt með fögn- uði og véitir mannin- um aftur rjettlæti hans. Hann syngur frammi fyrir mönnum og segir: ,Jeg hafði syndgað og gert hið beina bogið, og þó var mjer ekki goldið líku líkt Hann hefir leyst sálu mína frá því að fara ofan í gröf- ina, og líf mitt gleður sig við ljósið.‘« (Job 33. 23—28.) Þetta stendur heima við það, sem Jóhannes segir mörgum þúsundum ára seinna: »Þótt einhver syndgi, þá höfum vjer árnaðarmann hjá föðurnum, Jesúm Krist hinn rjettláta, og hann er friðþæging fyrir syndir vor- ar« (I Jóh. 2. 1 —2). Jesús Kristur, einkasonur Guðs, fór sjálfur ofan í hin tnyrku vötn dauðans til að brúa djúpið á milli Guðs og manna. Með fórnardauða sínum borgaði hann lausn- argjaldið, og þar sem hann var Guð íklæddur mann- legu holdi, friðþægði hann heiminn við Guð. En hann segir: »Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig« (Jóh. 14. 6). Sumir þykjast ætla að koma til Guðs, með því að kasta fáeinum góðverkum í syndadjúpið, sem ligg- ur á milli, í því trausti að geta einhverntíma með þessu móti lagt brú yfir um. En þeim er ekki ljóst 1 Forth-brúin (við Leith) er um 2500 álnir á lengd. Kostaði hún 28,800,000 kr., og 45,000 smálestir af stáli fóru í hana. Menn voru nærri 7 ár að smíða hana (1883—9).

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.