Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1921, Síða 3

Norðurljósið - 01.01.1921, Síða 3
NORÐURLJÓSIÐ. 3 í hjónaband, og lifa satnan meðan þau eru ennþá ó- stálpuð. Ekkjum var fórnfært á leiðum eiginmanna sinna, þangað til bresku yfirvöldin lögðu strangt bann á það. Mönnum var fórnfært við hina hræðilegu »juggernaut« hátíð. Rjettlát lög, hjúkrun hinna veiku og þjáðu og mann- kærleiki yfirleitt, þektist varla í þessum löndum, þang- að til kristnir menn komu og kendu mönnum að »Guð er kærleikur*. Hin mýkjandi áhrif náðarboð3kaparins á harðúð hins mannlega hjarta sjást alstaðar þar, sem Kristur er boðaður, en alstaðar annarstaðar er grimd og harðneskja í algleymingi. Ef menn hæla Shastras kenningunni, þarf ekki að svara þeim öðruvísi, en að benda á Indland, eins og það er og hefir verið um margar aldir. Ef menn hæla kenningum Konfúsíusar, er nægilegt að benda þeim á Kina. Ef þeir hæla Kóraninni, skal þeim bent á Tyrkland. Sundar drakk af brunni mannlegra trúarkenninga og hann þyrsti aftur. Síðan drakk hann af því vatni, sem Kristur gaf honum og hann mun aldrei að eilífu þyrsta, heldur er vatnið orðið að lind í hjarta hans, sem sprett- ur upp til eilífs lífs. (Jóh. 4. 13.—14.) Hver og einn, sem finnur til syndasektar sinnar, má drekka af brunni Krists. »Hver sem vill, hann komi og taki ókeypis lífsvatnið* er einn hinn síðasti boð- skapur frá Kristi í heilagri ritningu. (Opinb. 22r 17.) Komi allir lesendur og drekki nægju sína! Athugasemdir ritstjórans. Ritstjórinn heilsar öllum lesendum blaðsins, með inni- legri ósk um blessunarríkt ár. Hann sendir blaðið út aftur með þeim einlæga ásetning, að gera það, með Guðs hjálp, betur úr garði en nokkru sinni áður, þrátt fyrir dýrtíð og alla erfiðleika. Hann treystir trygð gam- aila vina blaðsins, sem nú eru orðnir margir, og von- ast eftir, að þessi árgangur nái ennþá meiri útbreiðslu cn hinn síðasti. Ró að blaðið komi víða, og sje keypt á nær því hverju einasta heimiii í sumum sveitum, eru ennþá margir, sem mundu taka á móti því sem kær- komnum gesti, ef einhverjir lesendur vildu kynna það á heimilum þeirra. Verð blaðsins er hækkað upp í 2 kr., sem er litil- fjörleg hækkun, í samanburði við hina geysimiklu verðhækkun á prentun, pappír og öllu, er að blaða- útgáfu lýtur. Ef litið er á verðið í hlutfalli við nú- verandi verðmagn peninga, mætti reyndar skoða það öllu heldur sem \erðlœkkun. Gengur ritstjórinn að því vísu, að enginn kristindómsvinur gangi frá blaðinu þetta ár, vegna verðsins. í staðinn fyrir »MoIa frá borði meistarans« koma greinar fyrir trúaða um »Sigur«, og í hverju tölublaði verður einn dálkur helgaður börnunum. Ferðasaga rit- stjórans frá útlöndum byrjar í þessu tölublaði. Smágeislar (fyrir börn). (I hverju tölublaði þessa árgangs verður einn dálk- ur með þessari fyrirsögn tileinkaður börnum og ung- lingum, ásamt mynd). Einu sinni var haldin skuggamyndasýning fyrir börn, þar sem margar fallegar litmyndir voru sýndar, hver eftir aðra, á stóru, hvítu tjaldi. (Myndirnar eru málað- ar eða prentaðar á glerplötur, og sterkt ljós er haft bak við þær, svo að þær sjást stækkaðar á tjaldinu). Ein myndin var einmitt sú, sem hjer er prentuð, en hún var lituð og sást á tjaldinu svo stór, að börnin á myndinni voru eins stór og börnin, sem sátu og horfðu á! Sá, sem sýndi myndirnar, sagði frá því, að þetta væri freisarinn, er hann tók börnin að sjer og bless- aði þau. Og hann las upp orð frelsarans: »Leyfið börnunum að koma til mín, og bannið þeim það ekki, því að slíkra er guðsríkið«. A meðan hann var að lýsa því, hversu kærleiksríkur frelsarinn er, og hversu heitt og innilega hann elskar börnin, stóð ein lítil stúlka upp úr sæti sínu, gekk fast að tjaldinu, og ætlaði auðsjáanlega að vera með börn- unum á myndinni og taka á móti blessun frelsarans! Alt var þetta svo lifandi fyrir henni. Rað var eins og hún sæi frelsarann þar, og hún vildi af öllu hjarta koma til hans. Nú getum við ekki sjeð frelsarann, eins og börnin sáu hann, þegar hann var hjer á jörðu. En þó við sjáum hann ekki, sjer hann okkur. Og það er í raun og veru alveg nóg. Hann veit, að hjörtu okkar eru syndug og að við gerum ýmislegt Ijótt og syndsamlegt, þó við sjeum ung; en ef við horfum upp til hans í innilegri bæn og könnumst við syndir okkar og veikleika, þá mun hann fyrirgefa okkur og gera okkur að sínum börnum. Hann dó á krossinum fyrir okkur. Æ, hve heitt við ættum að elska hann fyrir það!

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.