Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1921, Page 8

Norðurljósið - 01.01.1921, Page 8
8 NORÐURLJÓSIÐ. Botnlangabólga. (Framhald frá 11. tbl. í 6. árg). Þegar maður hefir einu sinni haft botnlangabólgu er altaf hætt við, að hún taki sig upp aftur, upp úr þurru. Er sjúklingurinn því aldrei öruggur. Menn verða að reyna að forðast hægðatregðu, og verða gefin ráð til þess í greininni, sem fylgir hjer á eftir. Reir, sem hafa oftar en einu sinni fengið botnlanga- bólgu, og sjerstaklega ungt fólk, ættu að láta skera botniangann í burt. í vanalegum tilfellum er uppskurð- urinn alls ekki hættulegur, er góður skurðlæknir á í blut. Hœgðairegða. Rað mætti frekar kalla þenna kvilla sjúkdómseinkenni, beldur en sjúkdóm. Hann fylgir í svo mörgum öðrum sjúkdómum. Rað er ilt að venja sig á, að nota sterk hreinsunarmeðöl. Rau hjálpa í bráðiría, en það er hætt við, að það sæki i sama horfið. Breyting á matarhæfi er oft nægilegt ráð, ef hægða- tregðan er ekki því verri; en hjer á landi er, því mið- ur, ekki alstaðar liægt að fá neina verulega matarbreyt- ingu, og síst á þeim tímum árs, sem ávextir og græn- meti er óíáanlegt. Eitt pund af eplum, eða fjórar eða fimm appelsínur reynast oft betri en hreinsunarmeðöl, ef hægðatregðan er ekki á háu stigi. Og þær hafa þann kost fram yfir lyfjasamsetninginn, að þær gera engan skaða, þar setn þær eru náttúrunnar meðöl. Oott er það, að kaupmenn eru farnir að flytja nýja ávexti til landsins. Rað væri mörgum manni heilsubót, að nota ávexti meira til átu, Á ávextina ber að líta frem- ur sem fæðu en sem munaðarvöru. Ef meira væri keypt, yrði varan ódýrari og betri en hún hefir verið hingað til. Stólpípan er ekki eins mikið brúkuð og hún á skilið, því oft er það betra og sjúklingnum hollara að setja honum stólpípu, heldur en að gefa honum inn sterk hreirísunarlyf. Ef nauðsynlega þarf á hreinsunarmeðölum að halda, þá er best að nota laxerolíu. Hafragrautur og rúgbrauð (ef sjúklingurinn þolir það á annað borð), hefir góð áhrif á sjúklinga, sem þjást af hægðaleysi eða hægðatregðu. En mjólk, egg og hveitibrauð hafa hin gagnstæðu áhrif. Gott ráð og margreynt er það, að drekka einn kaffi- bolla af köldu vatni á hverjum morgni á fastandi maga og aftur á kvöldin um leið og háttað er. Reir, sem eiga vanda fyrir hægðatregðu, eiga að venja sig á það, að draga andann djúpt, svo að kviðurinn hreyfist upp og niður við hvern andardrátt, en ekki brjóstið. Raun- ar ættu allir að venja sig á, að draga andann á þenna hátt. Hefir það góð áhrif á heilsuna yfirleitt, að and- að sje rjett og eðlilega. Líkamsæfingar hjálpa þeim, sem þjást af hægðatregðu, sjerstaklega ef að æfingarnar reyna á kviðarvöðvana. Pegar ung börn hafa þenna' kvilla, er það gott ráð, að móðirin beri olíu (t. d. bómolíu), eða vaselín, eða eitthvað því utn líkt, á höndina og nuddi líf barnsins í nokkrar mínútur tvisvar eða þrisvar á dag. Nýjar niyndir og bækur. Regar kaupendttr senda áskrifendagjöld sín, er gott tækifæri til að panta eftirfylgjandi myndir og bækur frá afgreiðslu »Norðurljóssins«: Biblíumyndir, 5 ágætar litmyndir af »Krafia- verkuni Krists*, eftir hinn fræga listmálara H. Copping (25X15u2 sm). — (1.) Lœkning hins likþráa; (2.) Sonur ekkjunnar í Nain; (3.) fesás mettar 5000; (4.) Endurtifgun dóttur /airusar; (5) »Lazarus, kom þú út!« Kosta aðeins 25 au. stykkið. (Umbúðir, af- greiðsla og burðargjald, 50 au. hver sending, margar rnyndir eða fáar; færri en fimm ekki afgreiddar með pósti). iBarátta Allans«, (saga, 96 bls.) 1 kr. • Söfnuður Guðs«. 1 kr. (ítarleg lýsing á stefnu blaðsins í trúmálum). »Andatrúin afhjúpuð«. (25 au.). Öllum er nauð- synlegt, nú orðið, að átta sig á þessu máli. Veggspjöld. Ritningarorð með litmyndum. (22xl-i XI2 sm.) 4 teg. 30 au. stykkið. »Norðurljósið«. II. árg. Innheftur, 75 au., IV. 1 kr„ V. 75 au„ VI. 1 kr. 50 au. »Guðs sonur vjefengdur og ofsóttur«, eftir L. P. Larsen. (31 bls). 50 au. Sendið borgunina fyrirfram, en bætið c. 10°/o við fyrir burðargjald. Ókeypis myndablöð handa börnum send tneð hverri sendingu, ef óskað er. Norðurljósið ,kemur út mánaðarlega, og verður 96 blaðsíður á ári Argangurinn kostar 2 kr. og greiðist fyrir- fram. Verð í Vesturheimi 75 cents. Ritstjóri og útgefandi: Arthur Gook, Akureyr/. Prentsmiðja Björns Jónssonar. Akureyri. 1921.

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.