Norðurljósið - 01.04.1963, Page 6
30
NORÐURLJÓSIÐ
Molar frá borði Meistarans.
(Greinir fyrir lœrisveina Krists.)
„Konungur þinn kemur tii þín"
„Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni Drottins.“
Þannig hrópaði allur flokkur lærisveina Jesú frá Nazaret
þann dag, er hann hélt innreið sína í Jerúsalem forðum.
Með hrópi sínu boðuðu þeir trú sína: að Jesús væri Krist-
ur, hinn fyrirheitni konungur Israels. Jerúsalem komst í
uppnám við hrópin og spurði: „Hver er þessi?“ En hún
trúði því ekki, að Jesús væri Kristur. Svo afneitaði hún
honum fáum dögum síðar.
Þessi trú, að Jesús sé Kristur, konungurinn fyrirheitni,
er sérkenni allra sannra lærisveina Jesú. Það er endurfæð-
andi trú. „Sérhver, sein trúir, að Jesús sé Kristur, er af
Guði fæddur.“ (I. Jóh. 5.1.) Hún er trú, sem hvílir á fyrir-
heitum Guðs, festir rætur í orði hans.
Við játum vafalaust öll, að við trúum á Jesúm Krist og
þar með, að hann sé konungur okkar. Ættum við ekki að
hugleiða snöggvast, hvað er falið í þessu.
Gamla testamentið geymir ákvæðin um réttindi kon-
ungsins. I. Sam. 8. Meðal þeirra var þetta:
„Sonu yðar mun hann taka, .... dætur yðar mun hann
taka.“ Synina mundi hann gera sér að þjónum og her-
mönnum og láta dæturnar vinna fyrir sig.
Hefir Guð gefið þér hörn, sonu eða dætur, sem þú
elskar? Má Kristur taka þessi börn þín og hafa þau til
sinna verka? Má Kristur kollvarpa öllum þeim áætlunum,
sem þú kannt að hafa gert um framtíð barnanna þinna? Ef
hann er konungur, hefir hann rétt til þess.
„Beztu lendur yðar, víngarða og olíugarða mun hann
taka og gefa þjónum sínum“. Finnst þér, að þú hafir al-
geran umráðarétt yfir eignum þínum? Þú hefir hann ekki!
Það er Drottinn Jesús Kristur, sem hefir hann. Ef hann er
konungur, þá hefir hann fullan rétt til að taka eigur þínar
og nota þær, eins og honum sýnist. Meira að segja, raun-
verulega áttu ekki neitt. Þú ert aðeins ráðsmaður hans,
sem verður krafinn reikningsskapar á sínum txma.
„Sjálfir munuð þér verða þrælar hans.“ Ef þú trúir því,
að Jesús sé Kristur, þá áttu ekki einu sinni svo mikið sem
sjálfan þig. Drottinn Jesús Kristur, konungurinn, á þig.
„Ekki eruð þér yðar eigin, því að þér eruð verði keyptir,“
(I. Kor. 6. 19., 20.)
Jerúsalem þarfnaðist konungs, þegar Kristur bauð sig
henni. Þjócjin stundi undir oki erlendra valdhafa. Hún
varð að bera þungar byrðar og lítt bærar af erfikenning-
um fræðara sinna. A hálsi hennar lá ok hennar eigin synda.
Alls konar plágur, sjúkdómar og illir andar herjuðu á fólk-
ið. Allt þetta megnaði Jesús að bæta. Honum var hafnað.
Það er sorgleg staðreynd, að margir þeirra, sem játa
trú á Drottin Jesúm Krist, virðast aldrei hafa gert hann
að konungi sínum. Þeir njóta ekki þess frelsis, sem Kristur
hefir frelsað oss til. í líferni sumra drottnar synd í ein-
hverri mynd. Þessi synd skattleggur þá, rænir þá ef til vill
miklu fé, sviptir þá góðri samvizku, sálarfriði og rósemi
hjartans. Aðrir ganga hlaðnir byrðum, sem Drottinn hefir
þeim aldrei á herðar lagt. Þeir rogast með alls konar erfi-
kenningar manna, sem engan stað eiga í heilagri ritningu.
Sumir eru andlega sjúkir með ýmsu móti. Stundum á and-
leg vanlíðan þeirra beinar rætur að rekja til árása Satans
og illra anda á þá, — anda þeirra, sál eða líkama. Þeir
vita þetta ekki og kunna heldur ekki að standa gegn djöfl-
inum og að sigra hann í krafti Krists.
Hefir ÞU veitt Jesú viðtöku sem konungi þínum? Ef
ekki, hvers vegna ekki?
„Þá verð ég að gera margt, sem ég vil ekki,“ segir þú.
,,Eg verð að láta hann ráða alveg yfir mér og fyrir mig.
Hvers konar líf og tilvera er það, að vera þannig eins og
ánauðugur þræll.“
Þetta er samt hið sanna líf kristins manns! Allt annað
er hégóminn einber. Aðeins sá maður, sem er í sannleika
þræll Krists, er í rauninni frjáls! „Ef því Sonurinn gerir
yður frjálsa, munuð þér verða sannarlega frjálsir,“
sagði hann. Þú ert þræll þíns eigin vilja, unz þú hefir valið
að leggja hann undir vald Krists. Þú ert þræll ástríðna
þinna, girnda, metorðafíknar, gróðafíknar, ágirndar og
hvers annars, sem tilheyrir föllnu manneðli, unz Kristur
hefir frelsað þig frá valdi þess yfir þér. Þú ert frjáls, ef
Kristur hefir gert þig frjálsan.
Þegar Israel hélt inn í sitt fyrirheitna land, voru þar
fyrir voldugir óvinir, sem átti að reka á brott. Þjóðin gerði
það ekki. Þess vegna átti hún öldum saman í ófriði öðru
hvoru við þessar þjóðir, sem eftir urðu, beið ósigra, þjón-
aði þeim. Loks kom Davíð til sögunnar. Undir forystu hans
vann þjóðin sigur, yfirhugaði og kúgaði kúgara sína.
Kæra Guðs barn. Ef trúarlíf þitt er auðugt af mistökum
og hrösunum, syndum og yfirsjónum, athugaðu þá, hvort
orsökin geti ekki verið sú, að þú hafir aldrei, í raun og
veru, krýnt Drottin Jesúm sem Krist, konung þinn, sem
þú lýtur og lætur stjórna þér.
„Sjá, konungur þinn kemur til þín.“ Ef til vill nú, meðan
þú lest þessi orð, er sem Drottinn Jesús nálgist þig. Hann
á erindi við þig. Hann vill vera konungur þinn, stjórna
þér og stýra þér, ef þú vilt leggja vilja þinn og líf þitt niður
við fætur hans. Það eru gegnumstungnir fætur, áðui
negldir við krossinn á Golgata, af því að hann elskaði þig
svo mikið. „Réttlátur er hann og sigursœll.“ Honum verð-
ur ekki skotaskuld úr því, að láta þig vinna meira en sigur,
þegar hann er orðinn konungur ævi þinnar, konungur þinn.
„Sjá, konungur þinn kemur til þín.“ Hvaða afstöðu hefir
þú tekið gagnvart honum? S. G. J.
--------x---------
Biblíuskýringar.
Jesaja. (Framhald.)
40.—49. kap. Röksemdir fyrir tilveru Guðs.
I upphafi þessara skýringa voru flutt þau rök, sem
spekingar allra alda og vísindamenn Iiafa fundið, að
sönnuðu tilveru Guðs. En hér í þessum 10 kapítulum koma
fram röksemdir Drottins sjálfs fyrir tilveru sinni. Skulum
vér nú athuga þær.
I þessum köflum er Drottinn að hugga þjóð sína, hrakta
og þjáða, sannfæra hana, að hann er til og að enginn sann-
ur Guð er til nema hann. Þær röksemdir, sem Guð ber