Norðurljósið


Norðurljósið - 01.09.1963, Blaðsíða 3

Norðurljósið - 01.09.1963, Blaðsíða 3
NORÐURLJÓSIÐ 67 (Jes. 41.10.) Heldur þú ekki, að það sé nóg, að Drottinn sé við hlið þér, styrki þig, hjálpi þér og styðji þig? En Drottinn Jesús hefir enn þá meira en þetta handa þér. Hann segir: „Sjá, ég stend við dyrnar og knýr á. Ef ein- hver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, mun ég fara inn til hans.“ (Opinb. 3.20.) Hvaða dyr talar hann um? „Hjartadyrnar,“ svaraði lítill drengur, þegar börn voru spurð að þessu á barnasamkomu. Þetta var alveg rétt svar. Drottinn vill, að þú ljúkir upp fyrir sér vilja þínum og til- finningum, hjarta þínu. Hann sjálfur, Drottinn Jesús Krist- ur, kraftur Guðs og speki Guðs, eins og biblían kallar hann (I. Kor. 1.24.), vill koma inn í hjarta þitt, inn í innsta djúp veru þinnar. Þannig vill hann búa í þér, dvelja í þér, vera með þér í vöku og svefni, í starfi og í hvíld, á gleði- stundum og alvörutímum ævinnar. „Sjá, ég er Drottinn, Guð alls holds, ■— er mér nokkur hlutur um megn?“ (Jerem. 32.26.) „Snúið yður til mín og látið frelsast,“ segir hann. (Jes. 45.22.) Drottinn megnar að frelsa þig. Hann vill frelsa þig. „Er mér nokkur hlutur um megn?“ segir hann. Vertu hughraustur. Óttastu ekki. Komdu til hans. „Þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka.“ (Jóh. 6.37.) Farðu með syndir þínar og freistingar til hans. Vísaðu öllum vandamálum til hans. „Eg styrki þig, ég hjálpa þér,“ segir hann. Sérhver sjúkur maður, sem þráir bata, vill að læknir hans geri hann heil- brigðan. Drottinn Jesús vill frelsa þig frá syndum þínum. Hann vill sigra allar freistingar þínar. Hann vili gera þig alfrjálsan, svo að þú getir þjónað Guði óttalaust í heilag- leika og réttlæti alla daga þína. (Lúk. 1.74., 75.) Gríptu þetta gullna tækifæri nú. Enginn á ráð á morgun- deginum, ekki þú heldur. Hafi Guð talað til þín við lestur þessara orða, hlýddu honum nú, því að ritað er: „I dag, ef þér heyrið raust hans, þá forherðið ekki hjörtu yðar.“ Guðs tími er nú. Hann segir: „Sjá, nú er mjög hagkvæm tíð, sjá, nú er hjálpræðisdagur.“ (II. Kor. 6.2.) Ákveð að snúa frá syndum þínum nú. Festu traust þitt á Drottni Jesú nú. Opnaðu hjartadyr þínar og bjóð þú honum að koma inn nú. Taktu ákvörðun nú! „Vér biðjum í Krists stað: Látið sættast við Guð.“ Trúðu á Drottin Jesúm, festu traust þitt á honum. Þú verður þá hólpinn nú. — S. G. J. -------;-X--------- ÁKVÖRÐUN MÍN: Þar sem ég trúi því, að Drottinn Jesús Kristur hafi dáið á krossinum fyrir mig og sé nú lifandi, vil ég taka þessa ákvörðun nú: Eg viðurkenni fyrir Guði, að ég hefi syndgað og játa honum syndir mínar. Eg tek við Jesú Kristi sem persónu- legum frelsara mínum. Eg vil trúa á hann, opna hjarta mitt fyrir honum, reiða mig á hann, játa trú mína á hann og halda mér fast við hann sem Drottin minn. Nafn ............................................... Heimili ............................................ Dagsetning ......................................... BARNAÞÁTTUR: (Framh.) Móse mætir Drottni Við sáum í síðasta þætti, að Móse vildi hjálpa ættbræðrum sínum, Israelsmönnum, úr ánauð þeirra, en gat það ekki og varð að flýja burt úr landinu. Har.n fór til Midíanslands og settist þar að hjá presti einum og gætti fjár hans. Þannig leið tíminn í nærri því fjörutíu ár. Lengst af þann tíma leið Israelsmönnum illa. Þá fóru þeir að biðja Guð að hjálpa sér. Guð sá, hvað þeim leið illa, og loks kom hans tími að hjálpa þeim. Þá bar svo til, að Móse var farinn langa leið með féð frá heimili sínu. Þegar hann var staddur hjá fjalli, sem hét Hóreh, sá hann allt í einu einkenni- lega sjón. Þarna uxu runnar af þyrnum. Allt í einu sér hann þyrnirunn, sem stóð í Ijósum loga, en brann þó ekki. Hann ætlaði að skoða þetta betur og fara þangað, en þá kallaði Drottinn til hans út úr runnin- um og sagði: „Drag skó þína af fótum þér, því að Guð föður þíns, Guð Abrahams, Guð Isaks og Guð sá staður, sem þú stendur á, er heilög jörð. Eg er Jakobs. Ég hefi sannlega séð ánauð þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt, hversu hún kveinar utidan þeim, sem þrælka hana; ég veit, hversu bágt hún á. Ég er efan farinn til að frelsa hana af hendi Egypta og til að leiða hana úr þessu landi og til þess lands, sem er gott og víðlent. Far þú nú; ég vil senda þig til Earaós, og þú skalt leiða þjóð mína, ísraelsmenn, út af Egyptalandi.“ Við hefðum getað húizt við, að Móse yrði mjög glaður, þegar hann heyrði, að hann ætti að fara að flytja fólkið á hrott. Hann varð það samt ekki. Hon- um fannst hann ekki geta þetta. Þá sagði Drottinn: „Sannlega skal ég vera með þér.“ Móse sagði þá, að fólkið mundi ekki trúa því, sem hann segði. Þá spurði Drottinn hann: „Hvað er það, sem þú hefir í hendi þér?“ „Stafur er það“, svaraði Móse. Drott- inn sagði: „Kasta þú honum til jarðar“. Móse gerði það. Þá lét Drottinn stafinn breytast í höggorm, og Móse hörfaði undan honum. Þá sagði Drottinn: „Rétt út hönd þína og gríp um ormshalann.“ Móse gerði það. Þá varð ormurinn aftur að staf. Þá sagði Drottinn honum að stinga hendinni í barminn og þá varð höndin hvít eins og snjór. Svo lét Drottinn hann stinga henni í barminn aftur, og þá varð hún eins og hún átti að vera. Drottinn var með þessu að sýna Móse mátt sinn, og með þessu átti hann að sannfæra ísraelsmenn

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.