Norðurljósið


Norðurljósið - 01.10.1963, Blaðsíða 4

Norðurljósið - 01.10.1963, Blaðsíða 4
76 NORÐURLJÓSIÐ heldur ættu þeir að safna þeim sjálfir. Þetta tafði svo mikið vinnuna, að fólkið gat ekki lokið við dags- verk sín. Þá voru barðir þeir meim, sem voru verk- stjórar, og þegar þeir fóru til Faraós og kvörtuðu við hann, fengu þeir enga áheyrn, heldur var þeim sagt, að þeir yrðu að gera eins marga steina á hverj- um degi eins og áður. Þetta virtist þeim óleysandi vandamál, og Faraó hefir sjálfsagt verið mjög hróð- ugur með sjálfum sér yfir þessu bragði smu. En Faraó sagði satt, þegar hann sagði: „Ég þekki ekki Drottin.“ Hann hélt, að sjálfur væri hann voldugastur allra og meiri en Drottinn. Þetta halda líka murgir inenn enn í dag. Þeir þekkja ekki Drott- in né mátt hans og finnst, að maðurinn sé allra vera æðstur og mestur og að honum sé ekkert ómögulegt. Drottinn lætur slíka menn stundum reka sig á það, að maðurinn er megnugur lítils, þegar Guð á í hlut. Þegar, til dæmis, Guð lætur jörðina skjálfa, þá get- ur enginn maður stöðvað jarðskjálftann. Þeir verða hræddir eða ráðalausir, meðan jörðin skelfur og titrar. Guð er máttugur. Þess vegna er gott að treysta honum. „Treystið Drottni æ og ætíð,“ segir ritning- in. Geiðu það barnið mitt. Þá fer vel fyrir þér. (Framhald.) --------x---——- ETHEL EKKERT Eftir Hope Evangeline. 16. kafli. (Framhald). Sorgardagur fyrir Ethel. Allt gekk nú sinn vanagang í heimilinu. Guð annaðist allar þarfir þess á undursamlegan hátt. Ásamt því, sem gladdi Ethel, kom einnig það, sem hryggði. Hjarta hennar hryggðist mjög, þegar hún var kölluð að rúmi Klöru, sinkadóttur sinnar. Guð hafði dásamlega hlíft Klöru nú í 19 ár eftir það, að læknar höfðu gefið upp alla von um afturbata hennar. Klara var í heilsuhæli, í súrefnistjaldi. Hún hafði feng- ið alvarlega lungnablæðingu. Hún bað hjúkrunarkonurn- ar að sjá um, að hún væri hrein og senda eftir móður sinni. Hún vildi ekki láta móður sína sjá þjáningu sína. Þegar Ethel kom, var Klöru þungt um andardráttinn. En svípur friðar og sælu var yfir ásjónu hennar. Hún rétti fram hendurnar til að taka um hendur móður sinnar og sagði: „Hefir ekki Guð verið góður, mamma, að lofa mér að lifa svona lengi? Nú fer ég að sjá hann. Haltu áfram með starf þitt, og ég mun bíða eftir þér þarna uppi. Núna er ég þreytt, móðir mín“, sagði hún, um leið og hún reyndi að lyfta höfðinu til að kyssa móður sína í hinzta sinni. „Eg held þú ættir að fara heim núna“. Tilfinningarnar gripu Ethel svo, að hún mátti eigi mæla. Hún kvaddi hana með kossi, og er hún sneri sér við til að horfa á dóttur sína, sá hún, hvar fagurt bros breiddist yf- ir auglit hennar, eins og hún væri nýbúin að sjá englana koma til að flytja sig á vængjum sínum til launa hennar. Ethel var naumast komin úr sjúkrahúsinu, þegar Klara fékk aftur blóðspýting og var dáin. Ethel var yfirkomin af sorg að vera skilin frá Klöru, en samtímis því þakkaði hún Guði fyrir gæzku hans við sig og Klöru í öll þessi ár. Dauði Klöru skildi eftir autt rúm í ævi Ethelar, en hún varpaði sér meir og meir út í starfið, og Guðs orð varð hennar huggun dag frá degi. Hún treysti fyrirheitum Guðs og fann, að hann reyndist henni sannarlega „vinur, sem tryggari var en bróðir“. 17. kafli. Jól á heimilinu. Jólin voru ánægjutími á heimilinu. Stúlkurnar allar söfnuðust saman kringum geysistórt jólatré, sem þátttak- endur í trúföstum bænahópi Ethelar höfðu gefið. Þær sendu gjafir handa hverri stúlku og bjuggu út kassa með leikföngum handa börnum þeirra. Sumar þeirra höfðu aldrei fyrr fengið gjafir hjá jólatré. Jólamaturinn var sendur, þar á meðal kalkúnshani og tilheyrandi krydd. Vinkonur hennar sendu nærklæðnað og föt handa þess- um fátæku stúlkum, og Ethel hengdi þetta upp í skáp eftir stærðum. Sjálf hafði Ethel aldrei verið eilis glöð á jól- unum áður en hún hóf þetta heimili handa stúlkunum. Svo lengi sem hún var að hjálpa öðrum og gleðja þá, var hún sjálf glöð. Þrjár gamlar konur frá öryrkj aheimilinu lét hún koma á jólum til að vera með þeim. Hún hafði heimsótt þær í sjúkrahúsinu, og henni fannst, að það mundi verða mjög einmanaleg jól hjá þeim, svo að hún fékk hjúkrunarkonu til að koma með þær í leigubifreið. Þær gátu varla skjökt inn úr dyrunum, en Ethel lét fara vel um þær, og þær voru yfir sig glaðar og sælar að koma. Samúðarfullt hjarta hennar sneri sér að einmana, buguðum og hræddum sál- um, hvar svo sem hún fór. Hún talaði ekki einungis um kristnu trúna, hvar sem hún fór, hún lifði eftir henni á hverjum degi ævi sinnar. Rétt þegar Ethel og stúlkurnar voru að ljúka við jóla- máltíðina, hringdi síminn. Það var trúaður læknir, mjög góður vinur hennar, sem hringdi. „Ég hefi hérna unga konu hjá mér“, sagði hann. „Hún á í miklu sálarstríði, frú Burkhardt. Ég hefi gert allt, sem ég get fyrir hana, og ég veit, að það er jóladagur, en held- ur þú, að þú gætir talaö við hana? Ég er hræddur við aÖ draga það, að hún komi og finni þig“. „Láttu hana koma undir eins“, svaraði Ethel hiklaust. Hún neitaði aldrei að hjálpa, á hvern þann veg, sem hún gat, enda þótt jóladagur væri. Brátt var barið að dyrum. Ethel lauk upp, og úti fyrir stóð fölleit, vansæl, vandræðaleg stúlka með litla telpu við hlið sér. „Ég heiti Joan“, hóf hún máls. „Mér þykir leitt að gera

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.