Norðurljósið


Norðurljósið - 01.10.1963, Blaðsíða 5

Norðurljósið - 01.10.1963, Blaðsíða 5
NORÐURLJÓSIÐ 77 þér ónæði á jóladaginn, en læknirinn lét mig lofa sér því að ég færi og talaði við þig. Eg á í miklum erfiðleikum. Eg kom hingað aftur frá Þýzkalandi, er ég hafði fengið bréf um, að maðurinn minn væri dáinn. Eg hefi verið hér í tvo mánuði að leita mér atvinnu. Ég hefi aldrei stundað atvinnu áður, en nú finn ég, að það er nauðsyn- legt til þess að hafa ofan af fyrir mér og barninu. I gær fékk ég bréf frá stúlku í Bandaríkjunum. Hún tilkynnti mér, að maðurinn minn væri ekki dáinn, heldur hefði hann kvænzt sér fyrir tveimur mánuðum, og væri hann nú farinn frá henni til að taka saman við einhverja aðra. Eg elskaði manninn minn, frú Burkhardt, og hjarta mitt er brostið. Eg kæri mig ekki um að lifa lengur. Eg hefi ekki lært neina atvinnugrein, og ég get ekki þolað að sjá litlu stúlkuna mína alast upp undir þeirri smán, sem faðir hennar hefir bakað okkur“. Síðan tók Joan upp eiturglas, sem hún ætlaði að taka til að binda endi á allt. „Þú verður að fá mér þetta“, sagði Ethel, „þetta leysir ekki vandamál þín. Þú átt eilífð í vændum, og þetta eitur endar ekki allt, eins og þú heldur. Núna er jóladagur, Joan, dagurinn, þegar Guð sendi son sinn í heiminn til að vera frelsari okkar. Hann kom til að bera byrðar okkar og til að hreinsa syndir okkar í burtu. Vilt þú ekki veita honum viðtöku sem eigin frelsara þínum og láta hann gera þetta allt fyrir þig. Ef þú aðeins vilt treysta honum, mun hann frelsa þig frá syndum þínum og greiða úr öllum vanda- málum lífsins fyrir þig. Og ekki eingöngu það, Joan, hann mun veita þér fullvissu um heimili á himnum. Þetta gerði hann fyrir mig. Þegar ég mætti honum, breytti hann allri ævi minni og veitti mér svo mikinn frið og gleði. Ég varð að komast af án eiginmanns míns og ala upp börnin mín tvö, Joan. Eg hefði aldrei getað það án hans hjálpar. Mér fannst oft, að ég væri komin að því að gefast upp, áður en ég mætti frelsaranum. Blátt áfram treystu honum nú á þessum afmælisdegi hans. Krjúptu niður með mér og bið þú hann að koma inn í hjarta þitt, taka byrði synd- anna og bera þínar byrðar fyrir þig, Joan“. Meðan Joan hlustaði á bæn Ethelar, fann hún allt í einu frið. Ný gleði fyllti sál hennar, og hún fann nýjan tilgang í því að lifa. Er hún reis á fætur, þakkaði hún Ethel fyrir að koma sér í kynni við frelsarann. Hún varð kyrr hjá Ethel, unz hún fékk ráðskonustöðu hjá lækninum trúaða, og þar óx hún í náð og þekkingu Drottins Jesú Krists. (Framhald). ---------x---------- „Flaskan" Hann var kallaður „Flaskan“, af því að hann drakk svo mikið. Choi liðþjálfi, grófur og ofsafenginn mötu- neytisliðþj álfi, var hataður af hermönnunum, sem voru ®eð honum. Hann lifði lauslætislífi, bjó með skækjum sinn mánuðinn hverri. Hann seldi matvæli hersins til að greiða kostnaðinn við synda-líferni sitt. Hrjúfur, grimmur, með fullan munninn af formælingum og hjartað fullt af synd, sökk „Flaskan“ 'Jýpt'a og dýpra í spillingarfenið. Dag nokkurn veitti hann athygli pappírsblaði nálægt hirzlu herbergisfélaga síns. Þetta var smárit frá „Every Home Crusade“. (Allra heimila krossferðinni). Það var ritað einkum handa hermönnum: „Það hlýtur að vera til svar“. Aftur og aftur las Choi liðþjálfi þennan dásamlega boðskap. „Eg vissi þá“, sagði hann seinna, „að ég yrði að breyta líferni mínu með því að snúá frá syndum mínum og trúa á Krist“. Hann gat ekki skrifað, svo að hann bað herbergisnaut sinn að skrifa fyrir sig. Og hér kemur það, sem Choi lið- þjálfi sagði: „Eina ástæðan fyrir því, að ég lifði svo ó- mannlegu líferni, var sú, að mér datt aldrei í hug, að nokk- ur von væri til í þessu lífi. Eg var svo haldinn af þeirri tilfinningu, að heimurinn kærði sig ekki um mig. Ég gekk í herinn til að gleyma þeim erfiðleikum, sem ég hafði átt í, í borgaralegu lífi. Eg reyndi að gleyma sjálfum mér við peninga, konur og drykkjuskap og með hörku við aðra. En svo skammast ég mín svo mikið, þegar kyrrláta stundin kemur. Ég hefi aldrei sagt frá þessu áður. Er ég hafði lesið smáritið, varð ég að ákalla Jesúm Krist, sem ég hélt einu sinni, að væri aðeins handa þeim, sem lifðu eðlilegu og heiibrigðu líf- erni. Ég játaði allar syndir mínar. Er ég hafði játað synd- ir mínar, fann ég hvíld í hjarta mínu. Smáritið segir, að Guð sé fús að fyrirgefa mér, en ég er enn að velta því fyr- ir mér, hvort réttlátur Guð muni fyrirgefa spilltum mönn- um eins og mér. Gerið svo vel að gefa mér eins fullkomið svar og þið getið“. Johnny Lee skiptist á nokkrum bréfum við hann. Senn var hinn áður harðsnúni maður orðinn stjórnandi tíu biblíuflokka í framlínum kórenska hersins! Jonny Lee heimsótti 6. herflokkinn og hitti Choi lið- þjálfa. „Herra Lee“, sagði hann, „ég er að læra meir um Jesúm á hverjum degi. I hvert skipti, sem ég les í biblíunni er sem ég verði nýrri maður. Jesús er mér svo raunveru- legur. Hann er mér uppspretta hugrekkis eins og líka hugg- unar. Gamla eðlið freistar mín ennþá öðru hvoru. Þegar það kemur fyrir, negli ég með allri minni hugarorku minn gamla mann á krossinn, sem Drottinn minn dó á fyrir mig.‘ Tíu hermenn söfnuðust saman til að hlusta á. „Væri það ekki vegna smáritsins, sem ég las, gæti ég ekki fengið svar- ið. Sumir minna gömlu félaga geta ekki enn trúað breyt- ingunni, sem orðin er á mér. Þeir stríða mér stundum með glettum. Þegar þeir eru drukknir, gera þeir jafnvel gys að mér. En, eins og segir í biblíunni, allt samverkar þetta til að gera mér gott. Þegar ég verð brautskráður úr herþjón- ustu, ætla ég í skóla. Mig langar til að verða þjónn Guðs.“ ---------------------------x-------- Heiðingjar gera ekki verra Sagnir herma, að trúboði nokkur, dr. Scudder að nafni. var á heimleið frá Indlandi. A þilfari skipsins stóð hjá honum sonur hans ungur. Allt í einu heyrði dr. Scudder, að maður nokkur með hárri röddu hellti úr sér blótsyrðum og guðlasti. „Heyrðu, vinur,“ sagði trúboðinn og sneri sér að manninum. „Þessi drengur, sonur minn, er fæddur og alinn upp í heiðnu landi, í landi dýrkunar heiðinna skurð- goða. En hann hefir aldrei á ævi sinni heyrt mann formæla Skapara sínum fyrr en nú.“ Þýtt úr The Sword of the Lord.

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.