Norðurljósið - 01.11.1963, Qupperneq 8
88
NORÐURLJÓSIÐ
Ég hefi þegið hana og þakka alltaf Guði fyrir, að sonur
hans dó fyrir mig. Hefir þú gert þetta? Ef ekki, hvers
vegna ekki að koma til Guðs núna og segja við hann eitt-
hvað á þessa leið: „Ég þakka þér, himneski faðir, að það
er til syndafyrirgefning handa mér. Ég þigg þessa miklu
gjöf þína. Ég vil snúa mér frá syndum mínum og reyna að
lifa þér þóknanlega, af því að sonur þinn dó fyrir mig.
Hann er frelsari minn. Þökk fyrir þetta, í Jesú nafni.
Amen.“
Þegar þú hefir gert þetta, getur þú sent ritstj. Nlj. línu
eða hringt tii hans og beðið hann að senda þér ókeypis
litla ritið: „Byrjunin með Kristi.“ Það leiðbeinir þér og
segir þér til vegar á hinni nýju braut.
EINLÆGIR, EN SKJÁTLAÐIST
I Ohio-ríki í Bandaríkjunum voru tveir menn að gera
við bifreið ekki alls fyrir löngu. Þetta var á sunnudegi
og það var rangt af þeim að nota daginn í þeim tilgangi.
Önnur yfirsjón af þeirra hálfu var sú að láta sig langa í
sopa af viský.
Þeir fengu sér að minnsta kosti ríflega sopa úr flösk-
unni. En það kom á daginn, að viský var ekki í henni,
heldur eitur til að drepa með illgresi. Annar þeirra var
andaður, þegar hann komst í sjúkrahúsið, og hinn lézt
fáum andartökum seinna.
Mennirnir voru alveg einlægir í því að halda, að eitur-
blandan væri áfengi. Þeir voru einlægir, en þeim skjátlað-
ist samt; og af því að þeim skjátlaðist, hjálpaði einlægn-
in þeim ekki vitund.
Sama reglan gildir, þegar hjálprœðið á í hlut. Það
skiptir engu máli, hve einlægur maðurinn er, nema hon-
um skjátlist ekki.
Orð Guðs segir: „Margur vegurinn virðist greiðfær,
en endar þó á helslóðum“. (Orðskv. 16. 25.).
Attu hina réttu von um himinsælu að loknu lífi?
(Þýtt úr „The Sword oj the Lord“).
Mikilvægur boðskapur til Chicago-borgar
I maí sl. var Chicago-búum tilkynnt, að þeir gætu fengiff aff heyra
mikilvægan boffskap, ef þeir hringdu í ákveðið númer. Svo margir
vildu heyra þennan boðskap, að símasamband rofnaði vegna of
mikils álags á línurnar. Hér kemur þessi boffskapur:
„Halló. Þetta er dr. Warren H. Cole frá Illinois háskóla, sem
talar af hálfu Ameríska krabbameinsfélagsins. Það er nú ekki leng-
ur nokkur vafi um þá staffreynd, að því fleiri vindlinga (sígarettur)
sem þér reykiff, því meiri hætta er á, aff þér fáiff lungnakrabba. Ef
þér reykiff einn pakka á dag, eru 8 sinnum meiri líkur fyrir því,
aff þér fáiff lungnakrabba heldur en maffur, sem reykir ekki. Ef
þér reykiff 2 pakka á dag, eru líkurnar fyrir því, að þér fáið lungna-
krabba, meira en 20 sinnum meiri heldur en hjá manni, sem reykir
ekki. Líkurnar fyrir því, að þér fáið aðra lungnasjúkdóma eða
hjartasjúkdóma vaxa einnig aff því skapi, sem þér reykiff fleiri
vindlinga.
„Reykingamaffurinn andar aff sér aff minnsta kosti 10 efnum, sem
valda krabbameini, í hvert skipti, sem hann sogar reykinn niffur í
lungun, og um 90 hundraðshlutar tjörunnar, sem geymir þessi efni
í sér, verður kyrr í lungunum eftir hvern reykjarblástur. Búizt er
við, að um 40.000 Bandaríkjamenn deyi úr lungnakrabba á þessu
ári. Og hlutfallið heldur áfram aff hækka. Til allrar hamingju fara
líkur þess að deyja úr lungnakrabba minnkandi hjá þeim, sem hafa
hætt aff reykja.
„Foreldrar, sem reykja, auka mjög líkur þess, aff börn þeirra geri
það. Slíkir foreldrar geta verið viff hættunni búnir, en hvaff þá um
ábyrgðina, sem þeir bera gagnvart börnunum? Ameríska opinbera
heilbrigðistofnunin hefir staðhæft, aff haldist núverandi stefna ó-
breytt, muni meira en ein milljón þeirra, sem nú eru börn á skóla-
aldri í Bandaríkjunum, deyja úr lungnakrabba. Bezta vörnin gegn
lungnakrabba er sú, að byrja aldrei á aff reykja vindlinga. Ef þú
hefir byrjað það, ættir þú aff hætta. Ein athugasemd aff lokum. Á
Englandi eru nú flestir læknar hættir aff reykja. Og í Bandaríkjun-
um er þriðjungur þeirra lækna, sem reyktu fyrir 10 árum, hættur að
reykja núna.
„Ef þér viljið fá nánari upplýsingar um vindlingareykingar og
lungnakrabba, hafið þá samband viff skrifstofu ameríska félagsins á
staðnum. Hún er í símaskránni. Þakka yður fyrir aff hlusta og
muniff, að því fleiri vindlinga, sem þér reykið, því meiri líkur eru
fyrir því, að þér fáið lungnakrabba og aðra alvarlega sjúkdóma í
lungum og hjarta."
LÆRÐI EFTIR ÁREKSTUR
Eftir Jack Brown, málafærslumann, Indianapolis.
Takið einkabarn, sem missti móður sína í frumbernsku,
dreng, sem alinn er upp í eftirlæti hjá afa og örnmu, sem
hefir nóga peninga undir höndum, og atvinnu síðar, sem
virðist krefjast þess, að maðurinn viti allt, og þar er
komin framleiðsla Satans. Bætið við spillandi áhrifum
valdsins, sem kemur af því að vera næst-yngsti málafærslu-
maður í Bandaríkjunum, og þar er kominn sannarlegur
sj álfshyggj umaður.
Þá lét Guð bifreiðaárekstur drífa á daga mína. Það var
eins og ég gæti heyrt til hans í sjúkrastofunni. Ef þú breyt-
ist ekki, Jack, muntu vissulega deyja. Já, ég heyrði hann
tala, hátt og skýrt. Ég heyrði til hans. En á minn eðlilega,
hrokafulla, sjálfshyggju- og efnishyggjuhátt fór ég að
reyna að vinna fyrir inngöngu í himnaríki. En það er ekki
hægt.
Éoksins var það dag nokkurn, að vinur minn símaði til
mín tíu mínútum fyrir hádegi.
„Jack“, sagði hann, „ég vil, að þú snæðir hádegisverð
með manni í dag, sem getur svarað öllu“.
„Drengur“, svaraði ég, „hingað til hefi ég ekki fyrir-
hitt nokkurn, sem nokkru geti svarað. Við skulum fara‘ •
Clay Conner, tryggingamaður í Indianapolis, sagði af-
dráttarlaust, ekki af eigin vísdómi, heldur frá orði Guðs:
„Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. Jesús Kristur
dó fyrir syndir þínar og mínar“. Einungis með því móti
að afhenda Jesú Kristi líf sitt, getur maðurinn fundið ei-
líft hjálpræði, sagði hann.
Rétt fyrir rúmu ári gerði ég einmitt þetta. Ég afhenti
hjarta mitt og líf Jesú Kristi sem frelsara mínum og
Drottni. Það hefir verið sannarlega dásamlegt.
NorSurljósið, 12 blöff á ári, kostar 30 kr., vestanhafs 1 dollar’
í Færeyjum 7 kr. færeyskar.
Ritstjóri og útgefandi: Sæmundur Q. Jóhannesson, Akureyri.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.