Heimskringla - 21.09.1905, Side 1
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
T. THOMAS
lglenzltur kaupmaOur
selur Kol og Kldivid
Afgreitt fljótt og fullur mælir.
537 Ellice Ave. Phone 2620
V
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
T. THOMAS, kaupmaslb
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
umboðssali fyrir ýms verzluu&rfélðg
I Winnipe* og Austurfylkjanum, &f-
greiði r alskonar pantanir íslendinfra
ur nýlendunum, peim að kostnaðar-
lausu. Skriflð eftir upplysingnm til
537 Ellice Ave. - - - Winniþeg
♦
♦
♦
:
♦
♦
♦
♦
XIX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 21. SEPTEMBER 1905 Nr. 50
PIANOS og ORGANS.
Heintzman A €o. Fianos.-Bell Orgel.
Vér seljum med ménaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H- Mc^EAN & CO. LTD.
530 MAIN S«. WINNíPEQ.
►............. .................... »
NEW YORK LIFE
Insurance Co. J,,l,..í,K111
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upphæð
$342,212,569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíön-
um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt
4 nokkru undanfömu ári. — Nærri 20 millfónir dollara
var borgað fyrir 6000 dánarkröfur. Yfir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini
þeirra móti 5 próeent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um millfón. — ISjóður þess hækkaði um 38
millfónir, er nú $390,660,260.— Lffsábyrgð í gildi liækk-
aði um $183,396,409. Öll lífsúbyrgð í gildi 1. Jan. 1905
$1,928,609,308.
CHR. ÖLAFSSON, J G. M O RGAN,
AGENT. WlNNIPEG MANAGEH
Ami Eggertsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. Wlnnlpeg.
Eg hefi til sölu lot á Beverly St.
norðan við Sargent að vestanverðu
fyrir $350.00.
A Arlington St. fyrir $10 fetið.
“ Alverstone St. fyrir $10 fetið.
“ Vietor St. fyrir $16 fetið.
“ Maryland St. fyrir $23 fetið.
“ Agnes St. fyrir $15 fetið.
“ Furby St. fyrir $24 fetið.
“ William Ave. $14 fetið.
A Notre DameAve. 33x198 ft. til
Winnipeg Ave. Gjafverð $25 fetið.
Nú hefi ég nóg af oeningum að
lána út á góð hús.
Eldsábyrgð, Lífsábyrgð.
Komið og hafið tal af mér.
Árni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blk
Telephone 3364
Fregnsafu
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Eldur f Adrianopole á Tyrklandi
eyðilagði 7 þúsund íbúðar og verjol-
unarhús nýlega. Aðeins 15 af öll-
um liúsunum voru f eldsábyrgð.
Margt manna fórst einnig f þess-
um bmna.
— Einhver náungi henti sprengi-
kúlu I hóp manna f borginni Baree-
lone á Spáni. Þar mistu 60 manns
lífið.
— Maður að nafni R. D. Wil-
son, sem grunaður er um að hafa
framið skjalafölsun og náð með
því móti 40 þús. dollara frá bönk-
um í Bandaríkjunum, var handtek-
inn f Chioago fyrir skömmu. Lög-
reglupjónar voru búnir að elta
mann þenna á annað ár um alla
Norðurálfu, Bandaríkin ogMexico.
Hann ferðaðist undirýmsum fölsk-
um nöfnum og gefur það illan grun
um sekt hans.
— Ræningjar f New York náðu
í 100 fúsund dollara virði af skraut-
gripum úr liúsi auðmanns nokkurs,
meðan hann var að heiman f
skemtiferð með konu sinni.
— Til þess að vfkka Piccadilly
götuna í London ú Englandi hefir
bæjarstjórnin orðið að kaupa land-
spildu nokkra, sem er alls 1200
ferh. fet fyrir 41 púsund pd. sterl-
ing. Þetta er sama sem borgað
væri nær 7 milliónir dollara fyrir
eina ekru lands.
— Símlaus talskeyti (Telephoue)
eru nýuppfundin af 17 ára gömlum
pilti, Francis J. McCarthy f San
Francisco. Hann bjó sjálfur til
sendi og viðtökutölin og gerði
fyrstu opinbera tilraun með þau
hjá Oyster Bay snemma í þessum
mánuði. Hann hafði nokkra fregn-
rita f mflu fjarlægð frá sendistöð
sinni og yfir þá vegalend heyrðu
þeir livert orð úr kvæði, sem hann
söng, eins ljóslega og hann hefði
staðið hjá þeim. Piltur þessi hefir
unnið að uppgötvun þessari um
nokkurra mánaða tíma, og þó hún
sé enn ekki svo fullkomin, sem
hann kveðst muni gera hana, er
hún sarnt talin mjög þarfleg'og
verður eflaust alment notuð er tfm-
ar lfða.
— Sfíinnál hefir risið upp á
Rússlandi móti manni einum þar
fyrir það, að hann talaði við hund
sinn, sem liann var að venja, en
sem gekk illa að læra og gat ekki
gert það, sem lionum var sagt, —
þessum orðum: “Þú ert svo heimsk-
ur og óupplýstur, að þú ert fær um
að takast tafarlaust á hendur her-
stjórn f Manchurfu, og ef þér tekst
að verða enn heimskari en J>ú ert
nú, þá má vænta þess, að þú verðir
sæmdur St.George orðunni”. Þessi
orð þóttu svo mikil ósvinna í garð
hervaldsins, að sakamál var tafar-
laust höfðað móti manninum.
— Rider Haggard, söguskáldið
brezka, vill láta Breta sjá um að
setja 50 þúsund brezkar fjölskyld-
ur á búlönd f Canada, meðan f>au
eru enn fáanleg. Til þessa vill
hann láta taka 50 millfón dollara
lán auk 8 millfón ekra af landi.
Hann telur að liy2 millfón dollara
þurfi til bygginga og 20 millíónir
fyrir verkfæri og girðingar, 5 mill-
fónir fyrir útsæði og aðrar 5 fyrir
matvæli til að byrja búskapinn með.
Og telur liann, að sá matarforði
endist f 5 máuuði. I fargjöld fólks
ins að heiman og á iöml sfn, telur
hann að muni ganga um 10 millí-
ónir dollara. Fyrir þetta framlag
vill hann’að lánveitendur fái fyrsta
veðrétt í löndunum og 3 prócent ár-
lega rentu afJfé sfnu. Hann býst
við, að eftir 10 ár irruni fólkið verða
búið að borga lánið og eigi þá
skuldlaus lönd sín og búslóðir. Að
þessi áætlun só áreiðanleg, sannar
hann með þvf, að fólk það, sem
frelsisherinn styrkti fyrir nokkr-
um árum til þess að setjast á lönd
í California, undir svipuðu fyrir-
komulagi, sé nú orðið alveg skuld-
laust og eigi þess utan 2 þús. doll-
ara virði f eignum á hvert manns-
barn f héraðinu.
— Skrifstofustjóri eftirlauna-
skrifstofunnar í Bandarfkjunum
segir, að 1. jan. sl. liafi verið á eft-
irlaúnalísta ríkjanna 1,004,196
manns og að eftirlaun þeirra hafi
numið 136,745,295 doll. Á árinu
dóu 43,883 eftirlaunaðir menn. En
30. júuf voru á listanum 998,441;
af þeim eru||945,8l3 gamlir her-
menn, hitt ekkjur og börn gamalla
hermanna. 185,242 menn bættust
við á eftirlaunalistann á sl. fjár
hagsári.
— Bæjarstjórnin í Montreal hefir
sent mjólkurfræðing út um alt
Quebec fylki til að komast eftir
hvernig á þvf'standi, að ekki fáist
ósúr mjólk|frá bændum úti á lands-
bygðinni. Sendimaður hefir lokið
rannsókn sinni og skýrir svo frá,
að mjólkin thjá bændunum sé óað-
finnanlega'_lirein, en Montreal búar
séu svo latir eða trassafengnir, að
þeir nenni ekkijað þvo mjólkur-
ílátin áðurjen peir sendi þau út til
bændanna.
— Kirkjufélag’eitt í Lundúnum
ætlar að [senda 2 þúsund atvinnu
lausa menn þaðan til Canada f febr-
úar næstk.
— Fólksvagn rann út af lyfti-
brautarspori í New York borg {>.
11. þ.m. og varð 40 manns að bana
og margirjjsærðust.
— Ájþessu ári, fram að 1.
hefir peningasláttustofnun Banda-
rfkjanna fengið 13 millíón dollara
virði afjgulli frá Alaska og Yukon
héraðinujog búist við 8 millfónum
meirajfyrir árslok. Ennþá er ekki
sjáanlegjnein þurð á gulltekju þar.
— Herskipið “ Misaka ”, sem
Togo flotaforingi Japana var á, er
hann barðist við Rússa f japanska
sjónum. sökk þann 11. þ.m. og fór
ust um 600 rnanna. Sly8 þetta
orsakaðist af [>vf, að eldur kviknaði
f skipinu.
— Svo ganga samningnr stirð-
lega milli fulltrúanefndar þeirrar,
er Norðmenn og Svíar kusu til
[>ess að jafna ágreiningsmál sfn, að
ekki iftur út fyrir, að saman gangi
með [>eim. Norðmenn segjast ekki
geta gengið að kröfum Svfa. Þeir
hraða herliði sfnu sem mest iná
verða að Jlandamærunum og búast
til ófriðar.
— Spánarstjórn liefir unnið sig-
ur í n/afstöðnum þingkosningum.
Hún hefir sett nefnd manna til
f>ess að hafa á hendi strangt eftir-
lit með starfsemi Anarkista f Bar-
celona. Einnig hefir stjórnin á-
kveðið, að byrja tafarlaust á ýmsum
opinberum verkum í landinu, svo
að þeir geti fengið atvinnu, sem nú
Ifða hungursneyð I Andalúsfu og
öðrum héruðum.
— Gen. Booth, foringi frelsis-
hersins, er f undirbúningi með að
senda 5 f>ús. fjölskyldur frá Eng-
landi til Ástralíu á komandi vetri.
— Ný rfkisstjórnar ákvörðun
(“Order in Council”) er nú útgefin,
sem fyrirskipar, að höreftir tilheyri
Keewatin héraðið, sem liggur fyrir
austan og norðan Manitoba, Norð-
vesturhéruðunum. Þykir f>essi á-
kvörðuu stjórnarinuar einkennileg
og er Manitobabúum með öllu ó-
skiljanleg.
— Jarðskjálfti í héraði einu á
Ítalíu gerði stórtjón þann 8. þ.m.
og varð mörgum mönnum að bana;
fangelsi lirundi og margir fangar
sluppu, einnig sjúkrahús, og særð-
ust rnargir af sjúklingunum. Oll
hús í bænum Stefaconi hrundu
í grunn niður, oe biðu margir af
íbúunum batia. Einnig eyðilögðust
algerlega bæjirnir Piscopio og Tri-
parni og Martirano. Ýmsir bæir
hafa einnig skemst meira og minna
og fjöldi manna beðið bana, þvf
svo hundruðam skifti af fólki varð
undir rústunum, þó mörgum yrði
bjargað. Þetta er talinn einn sá
mannskæðasti jarðskjálfti, sem
komið lietír á Italíu.
— Ástaudið í Baku á Rússlandi
er orðið mjög alvarlegt. Oll al[>vð-
au ei öom æðisgengin mótx s<j■-ii.
og landeigendum. Stórskotalið
hefir verið sent til að skakka leik-
inn, og hefir það skotið á alþýðuna
og drepið fjölda manna. Eitt skotið
kom í spítala svo hann eyðilagðist,
en sjúklingar létu lffið hrönnum
saman. Varð þá manufjöldinn
sem óður og liljóp móti stórskota-
liðinu og helti yfir það sjóðandi
olfu og gekk svo hart að hermönn-
unum að þeir^yfirgáfu fallbyssur
sfnar og lögðu á flótta. Tók þá
múgurinn fallbyssurnar og skaut á
hermennina, sem snéru þá við og
reyndu að ná byssunum á sitt vald
aftur, en urðu fri að hverfa við svo
búið. Þetta sýnir ljóslega, livað
alþýðan getur áorkað, þegar liún
með eindregnum áliuga og samtök-
um gengur að ákveðnu starfi. —
Stjórnin er ráð[>rota að sefa fólkið,
en búist er við, að stórar herdeildir
verði sendar þangað til þess að
bæla niður uppreistina og J>annig
stemma stigu fyrir útbreiðlu henn-
ar, ef unt er.
— Fyrrum fylkisþingmaður H.
A. Mullins hefir selt 25 [>ús. naut-
gripi á Cochrane hjarðlandinu f
Alberta fyrir 250 þús. doll. Mor-
mónar keyptu alt lijarðland þetta f
fyrra og nú hafa þeir keypt naut-
gripina, sem á [>ví voru.
— Mormónar I Cardston hérað-
inu f Alberta hafa í ár ræktað 25
þús. tons af sykurrófum og búa til
úrþeim 6 mill. pd. af sykri. Það
er alment viðurkent, að mormónar
þessir sén [>eir efnuðustu, verkfróð-
ustu og duglegustu innflytjendur,
sem flutt hafa til Norðvesturlands-
ins á nokkru tímabili. Þeir eru að-
eins búnir að vera örfá ár f Al-
berta.
— Frá Tokio er það sfðast að
frétta, að öll þjóðin er f uppnámi
út af friðarsamningunum, og nú á
að biðja keisarann með almennri
bænarskrá að neita samningunum
samþyktar og að halda áfram með
strfðið þangað til Rússar verði
fegnir að ganga að kröfum [>jóðar-
innar að borga fullan herkostnað.
Svo er mikið æði skrflsins í Tokio,
að ftrekaðar tilraunir hafa verið
gerðar til þess að brenna upp og
gjöreyða húsum stjórnarráðgjaf-
anna, sérstaklega þeirra, sem unnu
að samningunum við Rússa, Einu
blaði hefir stjórnin bannað að koma
út um óákveðinn tfma. Búist er
við, að keisarinn semji ávarp til al-
þfðuimar um mál þetta, en hvort
f>að hefir friðandi áhrif, verður enn
eklá sagt. Allar lögreglustöðvar í
borginni hafa orðið fyrir miklum
skemdum af völdum skrflsins, sem
lieldur áfram uppihaldslausum of-
sóknum á stjórn landsins og þjóna
hennar.
— G. T. P. járnbrautarfélagið
hefir keypt land mikið af stjórninni
f British Columbia. Landið er &
Kaien eyjunni, sem liggur um 40
mflur suður af Port Simpson. Þar
er talin ágæt hðfn, og segist félagið
hafa valið stað þenna af f>ví, að
[>ac var alment álitið, að það mundi
byggja endastöð sfna í Port Simp-
son og svo hlupu spekúlantar til og
keyptu upp land alt þar umhverfis
og heiintuðu svo ránsverð af félag-
inu fyrir [>að. Félagið varð því að
kaupa land annarstaðar.
— Dr. D. H. Harrison, eitt sinn
stjórnarformaður í Manitoba, and-
aðist að heimili sínu í Vancouver
[>. 6. þ.m., 62 ára gamall.
— Fundist hefir á North Fox
eyíunni í Michigan vatninu sjóður
mikill afgulli, að upphæð um 150
þús. dollara. Ætla memi að fé
þessu hafi verið stolið f Chicago ár-
ið 1871. þegar borgin brann. Ýms-
ar filraunir liafa gerðar verið til að
fim.a fé þetta, en það hefir aldrei
hej.nast fyr en nú.
ISLAND.
* \
Út af tollhækkuninni hafa kaup-
menn afráðið að fara í málaferli.
Ætla að láta dómstólana skera úr,
hvort þeir eeti orðið skyldaðir til
að greiða tollinn, sem lagður var á
f sumar. — 5 frumvörp feld á Al-
þingi 17. ágúst, [>ar af 3 f efrideild.
Þau voru um brýr á Fnjóská, Rangá
og Héraðsvötnum. Hin 2, er feld
voru í neðrideild, voru um skifting
bæjarfógeta embættisins f Reykja-
vík og um flutning á læknissetri
Höfðahverfishéraðs vestur fyrir
Eyjafjörð. — Um miðjan ágústm.
brann brauðgerðarhúsið á Siglu-
firði, hús og áhöld í ábyrgð fyrir 4
þús. kr. — Tíðarfar öllu mildara
sunnanlands um 20. fyrra mánaðar
efx áður. — Faxaflóa þilskipin, er
komið höfðu inná Reykjavfkurhöfn
f ágúst, höfðu flest aflað f minna
lagi sökum stakrar ótfðar við norð-
vesturkjálka landsins,þar sem skip-
in hafast inest við f júlí og ágúst.
— Höraðsdómur f Reykjavík hefir
sýknað ritstjóra Ingólfs af saka
málskærum, er Jón Jacobsson
höfðaði gegn honum út af uinmæl-
um blaðsins um væntanlega send-
ingu forngripa á dönsku n/lendu
sýninguna. — Frumvarp stjórnar-
innar um gjöld sýslufélaga til
landssjóðs feld í þingi með 16 at-
kvæðum gegn 9. — I Eyjafirði var
öll taða óþurkuð seiut f júlf f surnar
sakir stöðugra ópurka. — Hr. Jón
Sveinsson, landi vor. sem er prest-
ur við St. Andreas Kollegium,
skamt frá Kaupmannahöfn, skrif-
aði f vetur f katólska tfmaritið Var-
den grein um forn-fslenzkar bók-
mentir og vakti grein sú töiuverða
eftirtekt hjá Dönum, euda er hún
vel rituð. í þessu sama tímariti
er hann nú byrjaður á annari grein
frá Islandi, ferðaendurminninguna
frá því liann fór hér um land fyrir
nokkurum árum og skfn f gegn um
hana ræktarsemin til lands og
þjóðar. Jón Sveinsson er að sögn
væntanlegur til íslands á [>essu
sumri (Nl.). — Mannalát: Páll Sig-
urðsson, bóndi á Torfufelli f Eyja-
firði, er nýlega dáinn úr lungna-
bólgu; mpsti elju og dugnaðarmað-
ur. Ingibjörg Sigurðardóttir, Jóns-
son á Oddeyri, andaðist nýlega;
efnileg stúlka á bezta aldri. Þá er
og nýlátin hér á sjúkrahúsinu Ásta
Sigurðardóttir, stúlka á fermingar-
aldri. Báðar þessar stúlkur dóu
úr tæringu (Norðurl.).
/
Islenzk vestræna.
Efdr Priist.
V i n á 11 a.
Svo er vinmálum varið hjá flestum
eins og vorfs, sem straumur burt
pvær,
og á morgun þær kerliugar klóast,
sem þó kystust í hálftfma’ f gær.
Grátleg sjón.
Aúmra hefi ég aldrei söð
en upp þá svipu keyrði
hundurinn sem hundi nieð
á hundasleða keyrði.
Trygð.
Til dauðans að elska hvert annað
með ástblíðu sagt, var f gær,
f dag er það meinleysis molla,
á morgun er annar [>eim kær.
Leiðbeinzla.
Þér lijálpar lftt að hringla’ f centum
ef liimni komast viltu nær,
en dragir þú upp dollars seðla
mun drottinn þér ei standa fjær.
Almennings samf>ykt.
Við skulum skáldin láta lifa,
ljóðin verða ei svo dýr
ef að á kvöldin alt þau skrifa
en á daginn hirc^kýr.
Jafnrétti karls og konu.
Kvennfrelsis þá kemur tfð
kunngert verður öllum lýð:
konan þjóti strax í stríð
stáli klædd,en — vainbarsíð.
Lengi getur vont versnað
Oft hefir dembt á Island snjó,
ösku, sandi og ryki,
en líagyrðingahríðin þó
held ég skæðust þyki.
I W i n n i p e g.
Forðast allan falskan grun
far og heyr ólatur
meyja málbéin þeytt:
tízka, dans og trúlofun,
trúbrögð, cent og matur. —
Þeirra alt og eitt!
Rússnesk flotaliöfn í Rvík?
I grein þeirri eftir J. S., sem get-
ið er hér að framan, er dálftil frá-
sögn, sem sörstaklega er þess verð,
að vér veitum lienni eftirtekt. —
Hann skýrir frá [>vf, að fyrir tveim
árum, eða svo, hafi mikill orða-
sveimur verið um það, að Rússar
vildu fá lijá Dönum ráð á Reykja-
víkurhöfn, til þess að hafa hana
handa herskipaflota sfnum. Málið
komst svo langt, að enska stjórnin
fór að veita málinu athygli. í
enska þinginu var borið upp frum-
varp til laga um víggirðitigar á
Vesturströnd Skotlands og var sú
tillaga studd með því frá stjórn-
inni, að rússneskur floti gæti á 3
til 4 dögum náð til Englands frá
Reykiavíkurhöfn.
Þessa sfðara atriðis minnir oss
að getið væri einhverntfma í fs-
lenzkum blöðum, en fróðlegt væri
fyrir oss íslendinga að fá að vita,
hvort nokkuð er til í þvf, að Rúss-
ar hafi verið að fala hér herskipa-
höfn; [>vf þó málið hafi væntanlega
farist fyrir í [>að skifti, væri Rúss-
um vel trúandi til þess að vekja
[>að upp af n/ju, ef þeir [>ættust sjá
sér hag við pað. (Nl.).
Brennisteiasnámarnir við
Mývatn.
Fundið gull og fleiri
m á 1 m a r.
Blaek vélfræðingur, sá sem f
fyrra skoðaði brennisteinsnámana
við Mývatn, hefir verið f Reykja-
hlfð í fyrra mánuði, ásamt fleirum
frá f>ví félagi. Er sagt að nú sé
fullráðið, að leggja járnbraut frá
Húsavfk til Reykjahlfðar og þykj-
ast þeir hafa fundið þar auk brenni-
steins, blýhvltu og ýmsar fleiri
vörur til málninga. Gull segjast
þeir lfka hafa fundið nálægt Kröflu.
Sagt er ennfremur að Black hafi
boðið Einari bónda f Reykjahlíð
14 þúsund kr. fyrir jörðina (húu
var keypt fyrir fáum árum fyrir 7
þús. kr.), en jörðin mun ekki vera
föl að svo stöddu.
Fregn þessi er höfð eftir skilorð-
■um bónda 1 Mývatnssveit. (Nl.)
Til Sölu
Alþekt gistihús til sölu 1 West
Selkirk fyrir aðeins $1100.00. —
Yægir skilmálar.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
205 Mclntyre Blk., Winnipee
Telefcn 4159