Heimskringla - 10.06.1909, Blaðsíða 5
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 10. JÚNÍ 1900. Bls. 5
Cleveland Massey Brantford
Imperial Perfect Rambler
Engin þörf að keyra með lúin hest til bæjar, þegar drengurinn
mundi með ánægju fara á hjóli. Grætið að tfmatapi og hestaníðslu
við það,að útvegaekki piltum reiðhjól,— það setn yrði yðurerfiði,
yrði þeim bara skemtun. — Spyrjið börnin hvað þau vildu heldur
en reiðhjól.—Það veitir þeim meiri ánægju og yður hagsmuna, en
flest annað er þér kaupið. — Kaupið piltinum reiðhjól !
Canada Cycle & Motor Co.,
147 PHINCESS STREET.
Ltd., Winnipeg.
Heimsius Beztu Reiöhjóla-smiöir.
Hiu nýja stefna heilsu-
iræðinnar.
FRAMHALD FRÁ BLS. 2
þvo sig alt of lítiö innan með
vatni. það getur aldrei gert nema
gott, sérstaklega á morgnana á
fastandi maga. það styrkir og
herðir öll innýflin. Hver maður,
sem lifir af kjarngóðri fæðu, ætti
að minsta kosti að drekka 2 potta
eða meira á hverjum degi. Sundið,
þessi forna, göfuga íþrótt forfeðra
vorra, er nú kvað vera, sem betur
fer, sem óðast að riðja sér til
rúms aftur á hinni fornu ættjörð
vorri, virðist alveg vera lögö á
hilluna hjá flestum ungum uppvax-
andi mönnum hjá þjóðflokki
vorum hér vestan hafs. — En
það verð ég að segja, að engri í-
þróttalist veit ég af, sem ég held-
ur vildi kjósa fyrir unga, uppvax-
andi landa mína, en einmitt sund-
ið. Islenzkar taugar þurfa að vekj-
ast og stælast, og þá er ekkert
betra enn kuldinn, ef hann ekki
kemst of langt inn í likamann, og
helst þar ekki of lengi.
Vatnsböðin hafa afarmikla þýð-
ingu, í meðferð þeirra sjúkdóma,
sem mikil hitaveiki fylgir. þau
reynast þar einu óbrigðulu meðul-
in, sem hægt er að hafa vhld á
hitanum með, enda hafa þau aö
mestu leyti útrýmt fyrri tíðar
hita-meðulum. það hefir og lengi
verið á vitund manna, að í sjón-
um feldust ýms þau efni, sem
heillavænleg áhrif hefðu fyrir lík-
amann, enda eru sjóböðin viður-
kend þau allra beztu, sérstaklega
steypiböðin, í öllum taugasjúkdóm
um (Nervous Dis'eases).
“Mehr I.dcht ! ” (meira ljós ! )
voru andlátsorð Göthes, þýzka
skáldkonungsins fræga, sem dó
1832. Ilafi það verið ljós líkam-
legra augna, sem fyrir honum
vakti, þá hefir hann verið bœn-
heyrður, því bæði er það, að fyrir
10 árum fann Roentgen, þýzkur
háskólakennari, nýjan geisla,
langt um sterkari enn alla aðra
geisla, sem þekst höfðu og þekkj-
ast enn, sem hefir haft mikla þýð-
ingu fyrir handlækningar, því með
honum er hægt að sjá alla fram-
andi harða hluti, t.d. byssukúlur,
sem felast í líkamanum einnig og
beinbrot, sem hefir lent í ólagi, af
því þau hafa ekki sest vel saman.
Og hitt, að sólarljósið auðnaðist
landa vorum Níels heitnum Finsen
að aðskilja, og nota svo hina ein-
stökvi, mismunandi geisla þess, eða
áhrif þeirra, til að útrýma og
gera út a£ við ýmsar skaðlegar
sóttkvedkjur í holdi og hörundi, —
til dæmis “I/upus Vulgaris”.
Einnig sálina hefir verið Teynt
að höndla í þarfir heilsuíræðinnar,
með því sem Hypnotism (dá-
leiðsla) kallast,eða þvi er nefnir sig
“Christian Scienee”, af því það er
dálítið fínna og gangi betur í al-
menning, að sumir segja. Ivg hefi
ekki nægilega kynt mér þau mál-
efni, en margt virðist benda í þá
átt, aö alt sé það sama tóbakið
— að eins “Mental Suggestion”,
sem kölluð er. En það hefir líka
lengi verið viðtirkent, að “trúin
flytti fjöll”, og er þá ekki rétt af
þeim, að vera með of miklar get-
sakir í þeirra garð, er halda fram
þessari kenning, sem engar tilraun-
ir hafa gert í þá átt, eða kynt sér
hana kostgæfilega, en jafnframt
verður mönnum að fyrirgefast, þó
þeim sumtint hverjum þyki hún
nokkuð strembin.
Háttvirti forseti, heiðruðu til-
beyrendur !'
það hefir aldrei þótt við lambið
að leika sér, hvort hellur hefir ver-
ið að rita eða flytja mikið nm
læknisdóma á voru kæra móður-
máli. J>ví að þó að það í mörgum
(öðrum fræðigreinttm geti ‘‘legið
lipurt og létt á kostum hreinum”,
þá er það ekki enn sem komið er
nógu auðugt af lækna-nýyrðum,
sökum þess, að fræðin eru svo til-
tölulega ung í landinu, — að það
geti náð fyllilega öllum þeim hug-
tökum, sem í hinu albeitnslega ^
máli læknanna felst.
Ég get því vel gert mér grein
fyrir þeim hinum megnu píslum,
sem sumir hverjir yðar, er næmt
eyra hafið fyrir fögru máli, hafið
orðið að líða meðan á þessum
upplestri stóð, og dettur mér þá í
httg vísa i því sambandi eftir
Hannes Hafstein, sem hljóðar svo:
Dýraverndan dygðaríka
drógar verndar þú.
Sýn hér þína líknsemd líka,
láttu hætta nú.
Og svo bið ég yður öll velvirð-
ingar.
Ferðasasa.
Stærsta borg í heimi.
i.
Arið 2009, í desember, var ég
staddur í höfuðborg Ameríku, eða
sem jafnvel mætti segja : — höfuð-
borg heimsins. En hún er Winni-
peg í Kanada. Undarlega bar vöxt
og viðgang þessarar borgar að
höndum. Á einum hundrað árum
hefir fólkstal í borginni aukist nær
því 77 sinnum. íbúatalan var þar
árið 2009 rúm hálf áttunda milíón.
Hún er höfuðborgin á meginlandi
Ameríku, og hefir skeiðað að vexti
°R upi>gangi fram úr öllum stór-
borgtim beimsins. Árið 1909 var
fólkstala þar ttm 110 til 120,000,
að öllu til tíndu. Fyrsta heimssýn-
ingin var haldin þar árið 1912. þá
var fólkstalan um 300,000. Hún
haföi þrefaldast á 3 ártim. Frá
1912—1918 stóð hún nokkurn veg-
in i stað. Árið 1912 tók Konserva-
tive flokkurinn í Kanada ríki við
stjórnartaumunum. Árið 1918 var
sá flokkttr búinn að tengja Winni-
peg við Hudsons flóann, og skipa-
leið opnuð þaðan til Norðurálf-
ttnnar.
I.iberal stjórnarflokkurinn hafði
marglofað að byggja þessa braut
norður að flóanum, en sveik þjóð-
ina allajafna um það fyrirtæki.
Stöfuðu svikin af óhemjttlegri fjár-
eyðslu úr ríkissjóði og stórvaxandi
þjóðskuld. þar af urðu vettjulegar
afleiðingar : vantraust og ótrú á
lánstrausti þjóðarinnar.
Sá stjórnarflokkur lét að visu
starfa að mælingum á vegstæðum
undir þá braut, að minsta kosti á
spottum hér og þar. Ilann lét líka
ryöja saman nokkrttm moldar-
hnausum og aka mold og sandi í
hjólbörum hér og þar, og nefndi
það brautargrunn. En tilgangur
þeirrar stjórnar var aldrei sá, að
byggja nefnda braut. Hann var að
ein.s til málamyndar og blekkingar
við þjóðina. Árangurinn var: stór
fjártöp, sökkvandi gjaldþrot og
vanvirða á þjóðina í Kanada.
Stjórnin svalg penmgana í sig
sjálfa, og leyfarnar gaf hún fylgi-
fiskum og flokkslegátum sínttm.
því var það, þegar Konservative
flokkttrinn kom til valda 1912, var
þetta fvrirtæki ekki meira virði en
glerbrot úti á öskuhaug. Frárekin
stjórn hafði haft þetta Ilttdson
flóa járnbrautarbrask fvrir glæsi-
beitu á trúgirni altnennings, og
var búin að ginna hana á von ut-
an vits, með alls konar pírumpári
og vammalátum. þjóðin stóð
liöndum uppi ráðþrota í hamra-
gljúfrum fjárglæfra og stjórnar-
svika. þá tók hinn nýkosni stjórn-
arflokkur Konservativa strax til
óspiltra málanna. Hann átti við
marga stóra örö'ugleika að etja.
þau ár var árferði tæplega i með-
allagi * Peningamarkaður daufur
Öll verzlun afar ísjárverð og nask-
nýtin. þjóðin stóð uppi í höku í
töpuðu lánstrausti, og náði hvergi
til botns í þjóðskuldasúpunni.
I.ánstraust ltennar var eitt hið
herfilegasta, hvar sem leitað var.
Eftir þriggja ára ríkisstjórn Kon-
servative flokksins (1915), fóru
kröggurnar ögn að lagast. Árferði
fór batnandi ár frá ári. Verzlunar-
fjör gerði hvervetna vart við sig.
“Vex hugur þá vel gengur”, segir
fornt orðatiltæki, og sannaðist
það á þjóðinni á þeim tímum.
Hagttr ríkisins tók algerðum
stakkaskiftum, og vellíðan ríkti í
landinu, eftir því sem nœst verður
komist í þjóðhagsskýrslum þeirra
ára.
þá gerði Konservative flokkurinn
mjög hyggilega og happasæla ráð-
stöfun og samninga á fjárláni til
að byggja hina margumtöluðu og
alment þráðtt járnbraut norður að
Hudson Bay. Stjórnin lét brautina
vera þjóöareign. Á fyrsta ári
revndist hún til stórframfara og
aröberandi fyrirtæki, og varð þeg-
ar afar vinsæl hjá alþýðu í Uestur-
landintt. þá, árið 1918, réðst Kon-
servative stjórnin í hin stórfrœgu
mannvirki, að gera hafskipaleið á
milli Winnipeg bæjar og Hudsons
flóans. Stóð það mannvirki yfir
til ársins 1925, eða jafnlengi og
“Sjö ára striöið” forðum daga. —
þar eftir gengu stærstu hafskip
daglega inn að og út frá borginni
Winnipeg á sumrum. Hún var þá
orðin hafnarbær, nærri því í mið-
depli á meginlandi Norður-Amer-
ríku. Frá þeim tíma befir Winni-
peg verið aðal slagæð allra megin-
verzlunar viðskifta milli Ameríku
og Norðurálfttnnar. Strax rann
borgin fram sem fífill í túni. Og
fylgdi þeim uppgangi hinn mesti
og hollasti menningarbragur, sem
hver stórborg þarf að bera, til
þess að ná festu i sessi tímanna.
Borgin stækkaði svo óðfluga þrjá
fjórðtt parta síðustu aldar, að þar
að komast engin dæmi áður þekt í
veraldarsögunni.
I.iverpool á F.nglandi er aðal-
hafnarbær i Evrópu, ' gagnvart
Winnipeg á meginlandi Vestur-
heims. þar nœst er Glasgow á
Skotlandi. Millistöðva hafnarbær
er Reykjavík á íslandi. Sú borg er
lítið afvega, af beinustu skipaleið
frá Winnipeg til Bretlands. Reykja-
vík ltefir tekið örskreiðum fram-
förttm síðan þessi Winnipeg, Hud-
son Bay & I.iverpool skipalínur
hófust. Reykjavik taldi 2009 um
500,000 íbiia. Hún befir sem sagt
margfaldast 50 sinnttm á síðustu
100 árum. Fólkstalan í Winnipeg
hefir margfaldast 77 sinnum, en
fólkstalan i öllu ríkinu hefir ekki
margfaldast nema 15 sinntim á
sama tíma.
í II. kafla verður ýmsu forn-
sögulegu lýst í Winnipeg. Aðallega
því, sem lýtur að Islendingasögu
þar, frá 1899—1909. Sumir kaflar í
þessari ferðasögu eru einkennilegir
og fróðlegir, sérdeilis fyrir fólk,
sem nú lifir, en býst við að deyja
og verða að sagnöndttm í hinu líf-
inu. Einnig getur höfundurinn um
nokkrar afturgöngur af Islandi,
sem endtir fyrir löngu laumuðust í
farangri íslenzkra innflytjenda, og
gerðu á ýmsan hátt vart við sig
vestan hafs, einkttm á sérstÖkum
stöðum í bænttm Winnipeg, sem
þá var.
í ritmál færir :
K. Ásg. Benedildsson.
TIL
Margrétar J. Húnfjörð.
t af láti dóttur hennar Hólmfríð-
ar, sem lézt árið 1908.
0r ýmsum áttum.
Úr bréfi frá Steinbach, Man., 31.
maí 1909 : — “Engar fréttir héðan
nema inndæl tíð og framtíðar út-
lit alt hið ánægjulegasta. Hátt
verð á hveiti, $1.15 bttsh. Svo hátt
hefir það aldrei fyr orðiðú þessari
bygð. — Marga hér fýsir að vita,
hvernig reiðir af milli Islands og
Danmerkur, og finst mál til kom-
ið, að það sé klárað. Um erindis-
lok íslenzku forsetanna og fram-
komu þeirra ytra hefi óg verið fá-
orður, eins og von var, í garð
þjóðar minnar, og finst það ekki
berandi á borð fyrir annara þjóða
menn. Mér dylst ekki, að stt fram-
koma var hreinasta hneyksli, svo
sem það, sem haft er eftir forset-
ttnum, að 99 af hundraði hverju
landsmanna væru andvígir skilnað-
ar hugmyndinni. Hver haíði heim-
ikl til þess, að gera slíka staðhæf-
ingu fyrir hönd íslendinga ? Ég
að Kristján Jónsson yfir-
dómari hafi engan dómararétt
haft í því máli. Hinsvegar eru lík-
ur til þess, að meðal Vestur-ís-
lendinga séu 99 af hundraði hverju,
sem óska aðskilnaðar íslands og
Danmerkur. — það var illa farið,
að Skúli var ekki kvaddur á kon-
ungsfund. Sá maður hefir sýnt
það með framkomu sinni, að hann
lætur ekki danska kögursveina
blása sverðið úr hendi sér.—Magn-
ús Johnson”.
Veit ég þín móður sorg er sár,
dóttir svo góð varð gröf að sæta,
i gjafvaxta fljóð nti dáuða’ að mæta,
falla í hljóði trega tár.
j Ilópinn í kæra er komið skarð,
elskaða mærin moldum hulin :
t myrkur er bær og gleði dulin.
Heimili fjaer hún hníga varö,
I Sem var sva blíð og ljúf í lund, —
ætið svo þýð og þekk í httga ;
þolgóð alt stríð að yfirbuga
sérhverja tíð við móður tnund.
þegar á grundu grértt blóm,
og þegar lundin lífið þráði, —
liðin var stund, sem gæftt spáði, —
hné hún í blund við dauðans dóm.
Sárt hefir skorist þanki þinn,
h e i m var hún borin bleik á fjöl-
u m ;---------
bernsku á vori lífs frá k v ö 1 u m
steig hún sitt spor í eilífð inn.
Hugga þig nú í harmi má
vitundin sú, sem von þér gefttr :
vorið í snúist eilífð
h e f u r
F r í ð u — og þú munt þetta sjá.
ó. T. J o h n s o n.
24. maí 1909.
— Á fjölmennum fundi námaeig-
enda í Kenora, Ont., þann 1. þ.m.,
skýrði herra Thurber frá nýrri
gulltekju aðferð, sem hann hefir
fttndið upp, og sem svo er nákvæm
að með henni má ná öllu gttlli,
sem hægt er að ná, án þess að
nokkuð af því missist í meðferð-
inni, og }>essu til sönnunar kvaðst
hann hafa prófað aðferð sína með
því, að ná með henni svo miklu
ulli úr málmblendingi þeim, sem
áður var búið að yfirfara og taka
alt gull úr, að því er séð varð, —
að verkið við endttrhreinsunina
hafi borgað sig vel. Meömæli sín
með nýjtt aðferðinni byggir ltann á
þessum atriðum :
1. Að ekkert af gullinu tapist við
uppgufun, þegar það er hreins-
að við eldshita úr grjótinu.
2. Að hann nái meira gulli úr
alls konar málmblendingi með
aðferð sinni, heldur enn fáist
með nokkurri annari aðferð.
3. Að hann geti með aðferð
sinni náð gulli úr grjóti, sem
gull náist ekki úr með nokk-
urri annari aðferð.
4. Að kostnaðurinn við gulltekj-
una úr tonni grjóts sé $6 með
nýju aðferðinni, og sé það
langt ttm minna en með nokk-
urri annari aðferð.
5. Að úr því málmgrjóti, sem
gefi aí sér 1 til dollar gulls
úr tonni með gömlu aðferð-
inni, geti hann meö nýjti að-
ferðinni náð frá 10 til 17 doll-
ars virði af gulli úr tonninu.
LEIÐBEINING AR - SKRÁ
YFIR ÁREIÐANLEGA VERZLUNARMENN í WINNIPEG
KENNARA
vantar fj-rir Thor skólahérað, No.
1430, í Argyle. Kenslutími að
byrja 1. júlí og varir til ársloka.
Umsækjandi geri svo vel að til-
taka kaup og mentastig. Tilboð-
um veitt móttaka til 20. júní.
Edvald Olason,
Sec’y-Treas,
Brú P.O., Man.
MUSIC OG HLJÓÐFÆRI
CROSS, QOULDINQ & SKINNER, LTD. 823 Portage Ave. Talslmi 4413
MASON & RISCH PIANO CO , LTD. 356 Main Stree Talslmi 4 80 W. Alfred Albert, Islenzkur umboösmaöur
WHALEY ROYCE & CO. 3 56 Main St. Phone 2 63 W. Alfred Aíbert, búöarþjónn.
BYGGINGA- og ELDIVIÐUR.
J. D. McARTHUR CO , LTD. Bygginga-og Eldiviöur í heildsölu og smósölu. Sölust: Princess og Higgins Tals. 5060,5061,5062
MYNDASMIDIR.
Q. H. LLEWELLIN, “MedallionsM og Myndarammar Starfstofa Horni Park St. og Logan Avenue
SKÓTAU í HEILDSÖLU.
AMES HOLDEN, LIMITED. Princess & McDermott. Winnipeg.
THOS. RYAN & CO. Allskonar Skótau. 44 Princess Sfc.
THE Wm. A. MARSH CO. WESTERN LTI). Framleiðendur af Fínu Skótaui. Talslmi: 3710 88 Princess St. “High Merit"’ Marsh Skór
RAFMAGNSVÉLAR OG ÁHÖLD
JAMES STUART ELECTRIC CO. 324 Smith St. Talslmar: 3447 og 7802 Fullar byrgöir af alskonar vélum.
QOODYEAR ELECTRIC CO. Kellogg's Talsímar og öll þaraölút. óhöld Talsími 3023. 56 Albert St.
RAFMAGNS AKKOKÐSMENN
MODERN ELECTRIC CO 412 Portage Ave Talsími: 5658 Viögjörö og Vír-lagning — allskonar.
BYGGINGA - EFNI.
JOHN OUNN & SONS Talslmi 1277 266 Jarvis Ave. Hðfum bezta Stein, Kalk, /:emeut, Sami o. fl.
THOMAS BLACK Selur Jórnvöru og.Byggiuga-efni allskonar 76—82 Lombard St. Talsími 600
THE W1NN1PF.G SUPPLY CO., LTD. 298 Rietta St. Talslmar: 1936 & 218T Kalk, Steiun, Cement, Sand og Möl
BYGGINGAMEISTARAR.
J. H. Q. RUSSELL Byggiugameistari. 1 Silvester-Willson byggingunni. Tals: 1068
PAUL M. CLEMENS Bygginga-Mcistari, 443 Maryland St. Skrifst.: Argyle Bldg., Garry st. Talsími 5997
VlNSÖLUMENN
QEO V E LIE
Heí’dsöln Vínsali. 185. 187 I^ortage Ave. E.
Smá-sölu talslmi 852. Stör-söln talsími 464.
8TOCKS & BONDS
W. SANEORI) EVANS CO.
326 Nýja Grain Exchanpre Talsími 869 6
ACCOUNTANTS & AUDITQRS
A. A. JACKSON.
Accountant and Auciitor
Skrifst.—"28 Merchants Hank. Tals.: 5702
OLÍA, HJÓLÁS-FEITI OG FL.
WINNIPEG OIL COMPANY, LTD.
Búa til Stein Ollu, Gasoline or hjólás-Aburö
Talsími 15 90 611 Ashdown Block
TIMBUR og BULOND
THOS. OYSTAD, 208 Kennedy Bldg.
Viöur 1 vasrnhlössum til notcnda, bulönd til söln
PIPE & BOILEK COVERING
GREAT WEST PIPE COVERING CO.
182 Lombard Street.
VÍKGIRÐINGAR.
THE QREAT WEST WIRE FENCE CO., LTD
Alskonar vlrgiröingar fyrir bændur og borgara.
76 Lombard St. Winnipeg.
ELDAVELAR O. FL.
McCLARY’S, Winnipeg.
Stœrstu framleiöendur í Canada af Stóm,
Steinvöru [Granitowares] og fl.
ÁLNAVARA í HEILDSÖLU
R. 1. WHITLA & CO., LIMITED
264 McDermott Avo Winniþ>eg
“King of the Road” OVERALLS.
BILLIARD & POOL TABLES.
W. A. C A R S O N
P. O. Box 225 Room 4 1 Molson Banka,
öll nauösynleg áhöld. Ég gjöri viö Pool-borö
N A L A R.
JOIIN RANTON
208 Hammond Block Talslmi 4670
Sendiö strax eftir Verölista og Sýnishornum.
GA5SOLINE Vélar og Bmnnborar
ONTARIO WIND ENGINK and PUMP CO. LTD
301 Chambcr St. Slmi: 2988
Vindmillur-- Pumpur— ngsetar Vélar.
BRAS- og RUBBER-STIMPLAR
MAMTOBA STENCIL & STAMP WORKS
421 Main St. Talslmi 1880. P. O. Box 244.
Hönm til allskonar Stimiila úr mAlmiogtOKleBri
BLOM OG 80NGKUGLAR
JAMES BlRCKl
442 .Notre I)ame Ave. Talslmi 2 6 3 8
BLOM- allskonar. Söng fuglar o. fl.
BAN K ARA R,G UFUSKl PA AGENTR
ALLOWAY Ai CHAMPION
North End Branch: 667 Main st^eet
Vér seljum Avlsanir borganlegar á Islandi
LÆKNA OG 8PITALAAH0LD
CHANDLER & FlSllER, LIMITED
Lækna og Dýralækna áhöld, og hospitala áhöld
185 Lombard Sfc., Winnipeg, Man.
þiessi mál, þá er vert að minnast j ®
þess, að á síðasta ári var slátrað |
einni milíón gripa f æ r r a enn ;
árið á undan. þegar bændurnir í !
Iowa, Minnesota og Nebraska j
geta fengið 65 cents fyrir hvert 1
bushel af maís-korni heima í hér- ,
aði, þá má búast við að þeir selji
alla kornvöru sína”.
— Gamli James J. Hill var ný-
lega á Seattle sýningunni. Hann
var spurður um skoðun hans á
framtíðarverði hveitis hér í
landi, og hvert sú saga væri sönn,
að James A. Patton, hveitikaup-
maðurinn nafnkunni, væri orsök í
vaxandi verði hveitis. Hill gamli
svaraði á þessa leið : — “}>að er
rangt að segja, að herra Patten
hafi náð yfirráðum á hveiti mark-
aðnum hér í landi. Hann greip að
eins það tækifæri, sem honum var
lagt upp í hendurnar. það eru ekki
nema fá ár liðin síðan sú áætlun
var gerð, að notkun hveitis hér í
landi væri 6 bushel á mann að
jafnaði. lin nú segja íróðir menn,
að hveiticyðslan sé 7 bushel á
mann á ári liverju í Bandaríkjun-
um. Manntalið, sem tekið verður
árið 1910, mun sýna, að Bandarík-
in hafa 90 milíónir íbúa, sem þýð-
ir það, að vér þurfum til heima-
nota 630 milíónir bushela héreftir.
En vér framleiðum ekki nema 650
miliónir hushela á ári, og höfum
því ekki til útflutnings meira en
20 milíónir bushela, í stað þess að
á liðiium árum höfum vér getað
selt til útlanda 120 milíónir busli-
ela á ári. Af þessu er 'það ljóst,
að vér þurfum sjálfir að nota ált
það h'veiti, sem vér framleiðum,
til þess að fæða vort eigið fólk. —
Innan 5 ára verður hveiti frá aust-
ur Washington sent austur til að
fæða fólkið í austur og mið-vestur
fylkjunum. Og þegar vér athugum
Segið til þeirra.
Hver, sem veit um núverandi
heimilisfang Helga Isakssonar, sem
flutti hingað vestur frá Akureyri
fyrir 2 árum, og ölínu Tjörfadótt-
ur, ættaðri úr Eýrarsveit í Snæ- I
fellsnessýslu á Islandi (gift dönsk- ,
um manni, Oskar Sveistrup), — |
er vinsamlega beðinn að gefa upp- j
lýsingar um það á skrifstofu þessa
alaðs, sem allra fyrst.
R. A.
THOMSON
AND C0.
Cor. Sargent & Maryland St.
Selja allskonar MATVÖRU
af beztn tegund með lægsta
verði. Sérstakt vörnúrvaí nú
þessa viku Vér óskum að
Islendingar vildu koma og
skoða vörurnar. Hvergi betri
né ódýrari.—
Munið staðinn:—
HORNI SARGENT AVE.
OG MARYLAND ST.
PHONE 3112.
Herra Jón Hólm, gullsmiður að
770 Simcoe St., biður þess getið,
að hann selji löndum sínum gull-
og silfur-muni og gigtarbelti. —
Belti þessi eru óbrigðul við gigt,
ef þau eru notuð samkvæmt fyrir-
skipunum Jóns. Kosta að eins
dollar og kv-art.
S. R. HUNTER&CO
Skraddarar,
189 Lombard Street
Búa til ný-móðins karl-
mannafatnaði eftir máli.—
Efniog vinnubrðgð afbeztu
tegund, og alt ábyrgst að
vera jafngildi þess bezta
sem fáanlegt er í borginni.
Verðið er við allra hæfi. —
S. R. Hunter & Co.
189 Lombard St.
Telephone 1395.
-F. Deluca-
Verzlar meö matvörn, aldini, smé-kökur,
allskonar sætiudi, mjölk og rjóma, sötnul.
tóbak og vindla. Óskar viðskifta íslend.
Heitt kaífi eöa te ó öllum tímum. Fón 7756
Tvœr bdfir:
587 Notre Dame oy 714 Maryland St.
DR.H.R.RQSS
C.P.R. meðala- og sknrðlækuir.
Sjúkdómum kvenna og barna
veitt sérstök umönnun.
WYNVARD,
SASK.
JOHN DUFF
PLDMBER, GAS AND STEAM
FITTER
Alt verk vel vanaaö, og veröiö rétt
664 Notre Dame Ave.
Winnipeg
Phone 3815
™°Domiiiioii Bank
NöTRE DAME Ave. RRAN'CH Cor. Nena St.
VÉR GEFUM SÉRSTAK
AN GAUM AÐ SPARI-
SJÓÐSDEILDINNI. —
vextir:borgaðir af innlögum.
HÖFUDSTOLL ... $3,983,392.38
SPARISJÓÐUR - - $5,300,000.00
A. E. PIERCY, MANAOER.
KOlsOG
VI D U É
Þur, beinharður eldiviður, —
Poplar, Pine, og Tamarac með
mjög sanngjörnu verði.— Nú
sem stendur verið að afferma
mörg vagnhlöss af BEZTA
DAUPHIN TAMARAC. —
McElroy Bros.
Cor. Sherbrooke <('; Ellice
FIIONE: 6612