Heimskringla - 28.04.1910, Qupperneq 2
ttiM. 2
WINNIPEG, 28. APRÍL 1910
.ti K. K i
2KEEE
Heimskringla
Pablished every Thureday by The
deiniskringla News & Publisiiiiiu Co. Ltd
»erö blaCsins 1 Cauada o* bandar
tfi.00 nm áriö (fyrir fram honpaO).
8ent til islands $2U) (fjrir fram
••rgraöaf kaupendum biaösins hér$l.ftb.)
B. L. BALDWINSON
Editor A Manager
Offiee:
/29 Sherbrook* Street, WiDnijieg
i O.BOX 3083. Talslmi 3312,
Þráðlaus talskeyti.
í fyrri viku kom hingaS til Wiu-
nipeg Dr. Dee DeForrest, rafmagns
fræðingur sá liinn mikli, sem fyrst-
ur fann aö'erðina til þess, að
menn á fjarlaegum stöðum gaetu
talast við gegn um loftið, án þess
að hafa nokkuru tengiþráð eða
annað samband en loftið. Dr. De-
JForrest kvað þetta vera fyrstu
ferð sina til Vestur-Canada, og
hefði hann komið hingað frá New
■Yprk i þeifil éfíndufrt aðallega, að
stoinsetja hér i Vestur-Canada
loíttalskeytastöðvar, er haft £rœtu
daglegt tal-samband við Chicago-
borg. Ekki kvaðst hann geta sagt
ákveðið, hvar helzt stöðvar sínar
yrðu bygðar, en byrjað mundi
með því, að setja þær niður í Win-
nipeg, Brandon, Regina, Calgary
og Vancouver. Um aðra staði gat
hann ekki sagt að svo stöddu, þó
ætla megi að hann skilji ekki eftir
Bdmonton, Victoria og Saska-
toon.
Hann gat þess einnig, að hann
mundi tafarlaust tryggja sér hér í
foorg landspildu til þess að byvgja
á loftskeyta talstöð sína., sem
hann sagði að yrði með sama lagi
og sú, sertí félag hans hefir bygt i
Detroit í Michigan ríki. En þar er
350 feta hár stálturn, og eru tal-
skeytin send frá honum út um
alla álfuna.
En auk þess kvað hann félag
sitt ætla að byggja verksmiðju hér
í borg, og í þeirri verksmiðju á
að framleiða alla þá hluti, sem
þarf tdl loft-samtalsins við aðrar
stöðvar landsins. Einnig á hér að
vera rannsóknar og tilraunastöð í
sambandi við verksmiðjuna. Frá
þessari verksmiðju ætlar DeFor-
rest félagið að fá öll þau tal-
skeytatæki, sem það jxirf að nota
við allar stöðvar félagsins i Can-
ada, og 25 menn eiga að hafa þar
stöðuga atvinnu. Hér á að vera
mið- og aðal-stöð fílagsins i Can-
ada.
Dr. DeForrest sagði, að hvergi í
heimi væri hægra að sýna loft-
viðtals möguleikana en eibmitt hér
í Vestur-Canada, vegna þess,' hve
landið væri flatt. Og hann lét þá
skoðtin í Ijós, að þess yrði ek-ki
langt að bíða, að hver bóndi í
Vestur-Canada hefði þessi viðtals-
tæki í húsi sínu, með því að þau
yrðu svo ó dýr, að hver maður
gæti eignast þau. Aðal-kostnaður-
inn lægi í því, að setja áhöldin
upp og i starfandi stellingar. Til
þess þyrfti dálitla gasoline vél, og
margir bændur ættu nú þegar slík-
ar vélar, sem þeir gætu notað.
Hvert viðtalstól þyrfti að hafa
vald á tveggja hestafia krafti. —
Dr. DeForrest kvaðst aldrei hafa
þurft að nota meira afl en það
fvrir öll vanaleg áfnot. En vitan-
legt væri, að þegar samtalið færi
fram milli mjög fjarlægra staða,
þá væri nauðsynlegt að haéa meira
afl. Til dæmis : þiegar send eru
loftskeyti frá Eiffel-turninum í
Parísar borg til Marseilles, sem er
500 mílur vcgar, þarf þriggja hesta
afl til þess.
Dr. DeForrest hélt fyrirlestur
hér í borginni um þessa uppgötv-
an sína, og gaf þar ýmsar mark-
verðar upplýsingar henni viðvíkj-
andi. Hann kvaðst hafa stemming-
artæki á talfærum sínum, svo að
hægt væri að stemma þau saman
til viðtals. þegar tvö talfæri væru
svo stemd, að raföldur beggýi
væru jafn-langar, bá væri hægt að
talast við með þeim. það mœtti
og nota tæki þessi bæði til þess
að tala saman og senda ritskeyti
gegn um loftið. Hann kvað það
og vera meðmæli með talskeyta-
aðferð sinni, að hún væri þanmg
að talskeytin væru heimuleg, svo
að ekkí beyrðu aðrir það, sem
talað væri, en þeir sem til væri
talað. Engir aðrir en þeir, sem
væru að tala saman, gaetu heyrt
það, sem talað væri.
Fyrirlesarinn sagði, að þessi við-
talstól væru nú á öllum skipum
■Bandaríkja-flotans, og reyndust á-
gætlsga. Brezka stjórnin hefði
einnig fengið talskeyta-áhöld sín,
og sett þau á eitt af skipum sín-
um, og væri nú að gera tilraunir
með þau. Hann taldi víst, að inn-
an skamms tíma mundi öll her-
skin Bretaveldis verða útbúin með
þessum tækjuai. í samningum
þeim, sem hann hafði gert við
Bandaríkja stjórnina, hafði hann
ábyrgst, að hægt væri að senda
skeytin 5 mílur milli skipa. En
reynslan befði oft orðið sú, að
skeytin hefðu borist 40 mílur milli
skipanna, og stundum lengra.
Hann hélt því fram, að loft-
skeytasendingar og loft-viðtal væri
í svo mikilli framför, að innan
skamms tíma yrðu allar fregn-
sendingar hér um landið svo ódýr-
ar, að kostnaðurinn yrði að eins
lítill hluti þess, sem nú á sér stað.
Músik mætti einnig senda gegn
um loftið þannig, að þegar sungið
væri í einu leikhúsi, þá gætu aðr-
ir heyrt það, þótt í all-mikilli fjar-
lægð væru. þetta hefði verið reynt
og tekist vel.
Hann áleit Marconi loftskeyta-
aðferðina ekki eins góða og sína
eigin aðferð, af því sérstaklega, að
miklu meira afl þyrfti við .Marconi
aðferðdna. þar yrði að nota frá 25
til 40 þús. volts, en við sína aö-
ferð þyríti að eins II þús. volts.
Ýmislegt fieira taldi hann aðferð
sinni til gildis. Hann gat þess og,
að einn aí þjónum sínum hefði
með 3. hesta afli sent loftskeyti
1277 milna langan veg. IVIarconi-
félagið hefir sent skeytí yfir At-
lantshaé, en til þess þurfti 70
hesta afl. Auk þess væri Marconi-
aðferðin miklu kostnaðarsamari en
Dr. DeForrest-aðferðin, og þyrfti
að öllu leyti meiri vinnukraft.
Dr. DeForrest sýndi loftviðtals-
aðferð sína hér, sendi skeyti milli
Royal Alexandra hótelsins og
Eaton búðarin'nar, og reyndist það
vel á svo stuttri vegalengd.
Dr. DeForrest er fæddur í Coun-
cil Bluffs í Iowa ríki, en ólst upp
í Suður-Alabama ríkinu, og þar
byrjaði hann fyrst að stunda raf-
magnsfræði, þegar hann gekk á
alþýðuskólann. Síðar fór hann á
æðri skóla, og að lokum á Yale
háskólann, og þar fékk hann Dokt-
ors-nafnbót í rafmagnsfræði. Eftir
það fór hann til Chicago og starf-
aði þar að uppfyndingu sinni, og
hafði fullgert hana árið 1901. þá
var hann svo fátækur, að hann
varð að liía á $5.00 á viku. Hann
átti afar-örðugt uppdráttar á ung-
dómsárum sinum, og alt fram að
þeim tíma, sem hann fékk viður-
kenningu fyrir hugvit sitt og hina
nú heimsfrægu uppfynningu sína.
Hann er unglegur ásýndum, en þó
talsvert gráhærður, meðalmaður á
hæð og grannváxinn, etl hraustleg-
ur, og hefir þau einkenni öll, sem
ákafia-starfsmönnum jafnan fylgja.
Tæringar spítali.
Herra Charles I.ewis Shaw hef-
ir beðið Heimskringlu að flytja
eítirfarandi greinarkorn :
“ J>að hefir verið ákveðið, að
byggja lækningastofnun hér í fylk-
inu fyrir þá, sem langt cru leiddir
af tæringarveiki, og samskotadag-
ur hefir verið ákveðinn.
“jjrann 19. og 21. maí næstkom.
eiga fylkisbúar að fvlkja til atlögu
móti hinni miklu hvitu plágu, —
tæringarveikinni. þann dag eiga
fylkisbúar að heíja skothríð mikla
móti þeim voðagesti, sem hótar
hreysti þjóðarinnar grandi.
*• Hver eftdr aðra hafa gömlu
þjóðirnar háð þá barda.ga, sem
vísindi og mannúð segja nauðsyu-
lega til þess að tryggja velferð
heimsmenningarinnar. Hvergi cr
hentugr.i orustuvöllur heldur enn
hér, á “hollvöllum’’ Vestur-Can-
ada. 1 eldri bygðarlögum er bar-
daginn háður ýmsum örðugledkum
og jafnvel hér í Mandtoba, sem þó
má heita nýtt og strjálbygt land,
er það undravert, hve margir fá
tæringu og” hafa hana á öllum
stigtim. I.ækningastofnun hefir þeg-
ar verið sett á fót fyrir þá, sem
hafa sýkina á fyrsta eða lægstu
stigum hennar. En fyrir hina hefir
enn engin læknishjálpar eða hjúkr-
unar-ákvörðun verið tekin.
“ Mannvindr tel ja það vafamál,
hvort ekki sé ennþá meiri nauðsyn
til að hjúkra og einangra þá, sem
langt eru leiddir af sýkinni, en
hina, sem m©ga teljast læknanleg-
ir. Að vísu má sýkin álítast lækn-
anleg á ölltim stigum, en eftir bví,
sem hún ltefir náð fastari tökum á
einstaklingnum, eftir því er hún á-
reiðanlega hættulegri fyrir aðra,—
er enn meira smittandi.
“ það er því áríðandiv þó ekki
væri það fyrir annað œðra mark-
mið en eigingjarna sjálfsvernd, að
gera hjúkrunar ráðstafanir fyrir
þá, sem langt eru leiddir af sýk-
inni, og sérstaklega nú á va.xtar-
skeiði landsins. Aðal-ástæðan fyr-
ir peningalegri h jálparleitan í
þessu efni er því það heróp, að
vernda verði vort nýja land fyrir
allri hættu af þessari voða sýki.
“ Heilbrigðisreglur, mentun og
sjúkrahæli fyrir þá, sem nýlega
hafa fengið tæringu, höfum vér
þegar fengdð. En svo lengi, sem
tæringarsjúklingum er leyft að
umgangast annað og ósjúkt fólk,
þá verður það ekki umflúið, að
sýkin breiðást út um landið og
fari árlega vaxandi, svo að vöxt-
ur sýkinnar étur sig inn í hreysti
og ánoegju hinnar ungu, uppvax-
andi þjóðar. þess vegtta er nauð-
syn á einangran sjúklinganna auð-
sæ, og þetta þarf að gerast strax
í byrjun, — nú. Og með hjálp og
stuðningi allra fylkisbúa, er hægt
á fáurn árum að útrýma sýkinni
algerlega.
“ Manitoba ætti að gera sinn
part í því, að hefja þennan bar-
daga tuttugustu aldarinnar, og á
þeim orustuvelli, sem gaíur meiri
von um sigur, en nokkur annar
staður á hnettinum.
“ Gætið þess að vinna að því,
sá 19. og 21. maí verði merkis-
dagar fyrir heilstt og hagsmuni
íbúanna í V.estur-Cattada”.
Stefán Jónsson.
Árið síðasta hjó stórt skarð í
fylkdngu hinna íslenzku frumherj i,
sem fyrir þriðjungi aldar reistu
sér bygðir hér vestan hafs.
Yíirstandandi árið byrjaði meö
því, að bœta við þá tölu einum af
vorum vedmetnustu íslenzku frum-
herjum, er dvalið hafði hér nær-
íelt þriðjung aídar.
Stefán 'Jónsson, bóndi í Mikley,
sem andaðist um miðjan februar-
mánuð sl., var fæddur 8. júní 1831,
að Einarsstöðum í Reykjadal í
Jjingeyjarsýslu. Ilann var sonur
óðalsbónda Jóns Jónssonar, Jóns-
sonar, frá Breiðumýri, og konu
hans, Guðbjargar Markúsdóttur,
ættaðri úr Ivræklingahlíð í Evja-
fjarðarsýslu. Jiau foreldrar Stefár.s
sál. bjtiggu allan sinn búskapar-
aldur, nærfelt hálfrar aldar skeio,
að Binarsstöðum, og þar ólst
hann upp ,með þeim til 19 ára ald-
urs, að hann flurtist til Kristjáns
bónda Arngrímssonar og Ebnar
konu hans, að Sigríðarstöðum í
Ljósavatnsskarði 'í sömu sýslu, og
dvaldi með þeim tveggja ára tíma
og stundaði smíðavinnu. Kristján
bóndi var þjóðhagasmiður og kendi
hann Stefáni tré- og járn- og
rokkasmíði. í þessari vist kyntist
Stefán Björgu, dóttur Kristjáns
bónda og konu hans, og kvongað-
ist henni árið 1051, þá 20 ára gam-
all. Árið eftir fluttu ungu hjóniti
sig að Hólum í Reykjadal í sömu
sýslu, og bjuggu þar 13 ára tíma
J>á hugði Stefán, ásamt mörgum
fleirum þar um sveitir (árið 1864),
að flytja til Brasilíu, undir for-
ustu Einars sál. Ásmundssonar í
Nesi. Seldi hann þá bú sitt alt og
bjó sig til fararinnar. En skipið,
sem flytja skyldi útfarana, kom
aldrei, svo ekkert varð af Brasilíu-
ferðinni. Réð Sbefán þá að flytja
sig með fjölskyldu sína til Flat-
evjar í Skjálfandaflóa, og þar stað
næmdist hann 7 ára tíma. J>á
flutti hann að Garði í Aðaldal, og
dvaldi þar 5 ár, þar til árið 1870,
að hann með konu sína og 5 börn
þcirra flutti vestur um haf, og
settist að í Mikley i Winnij>eg-
vatni, og bjó þar til dánardægurs,
að undanteknu 18 mánaða tíma-
bili árin 1882—3, að hann dva.ldi í i
Austur-Selkirk við sm'iðar.
Öll þau nærfelt 33 ár, sem Stef-
án sál. dvaldi hér í landd, stund-
aði hann auk búskaparins fiskiveið-
ar og smíðavinnu, einkum báta-
smíði og járnsmíöi, því að hann
var maður listfengur og ágætur
smiður.
Hann var tim nokkurra ára tíma
umsjónarmaður fiskiveiða í Winni- j
peg vatni, fyrir ríkisstjórnina í
Canada, en sagði þtirri stöðu af
sér, vegna ýmissa annara anna,
sem hann varð að gegna.
Stefán sál. var lágur maður
vexti, en þrekinn og burðamikill.
Hann var réttnefndur atgerfismað-
ur til sálar og líkama, prýðisvel
skynsamur. Hann var jafnan glað-
ur í lund, og aldrei þó kátari, en
er mestu andstreymi var að mæta.
þrekið og kj trkurinn og framsókn-
arfýsnin óbilandi, alt fram á síð-
ustu lífsstundu hans. Ilann var
hiifðingi í lund, ágætuF heimilis-
faðtr, og jaínan framárla í öllti
því, er laut að félagslegum i'ram-
kvæmdum í héraði hans.
Við lát Steíáns sál. hafa iVestur-
íslendingar mist úr sínum hópi
einn ágætasta frumherjann, sem
jafnan vann með alúð og ósér-
plægni að því, að leggja traustan
grundvöll undir framtíðar vel-
gengtti lattda vorra hér í álfu.
Af þeim 5 börnum, sem Stefán
sál. og eftirlifandi ekkja hans eign-
uðust, er þrþí á lífi. Hin dánu :
Kjartan skipstjóri, druknaði á
Winnipeg vatni fyrir nokkrum ár-
um, og Jónina Guðbjörg McDon-
ald, andaðist í fyrra í Duluth.
J>au eftirlifandi eru : Kristjana
xsxj^istzd
Fjalldrotning heill sé þér há,
ættskyldu bundin þér böndum
börn þín úr fjarlægum löndum
enniþá í anda Jpig sjá.
Norður við Dumbsheima dyr,
þar sem að sækjast itm sigur
sóldn og frostnornin digur,
enn ertu fögur sem fyr.
Sitjandi á stuðlabergs stól.
Ilreinleg í lirímkufli gráum.
Hýrleg í regnfeldi bláum.
Dj'rðleg í daggeisla kjól.
Húmskyggt við heiöblámans tjald
lindar úr ljósvirum þöndum,
lagðir af meistara höndum,
skreyta þinn fannhvíta fald.
J>itt hoiðloft er heilnæmds lyf ;
en ef J>að ofþyngjast tekur
andbárur lífgandi vekur
himinsins blævængja bif. ,
ísjötna harðneskju hót
sefast, þá sjálfir þig líta.
Sœguð með brimlokka hvíta
krjúpandi kyssir þinn fót.
J>ín fegurð er frumlista verk.
J>ó skógur ei skreyti þig fagur,
skínandi miðnætur dagur
vefur þér sólroðinn serk.
Örnefnin einkenna þig.
Firðdrnir, hálsarnir hlíðar,
heiðarnar, elfurnar stríðar, —
hvað hefir sögu fyrir sig.
Margt er J>ér hollvætta hjá.
Álfar í fjöllum og íellum.
Framsýnu tröllin í hellum.
Dísir við dalvötnin blá.
B.ergrisar hjirta með heitt,
búnir í blámóðu serki,
bera þitt eldlega merki
biikandi bálörvum skreytt.
Sögudís sýnir þér fróð
burtliðna blómatíð þína.
Bragi með gullhörpu sína
syngur þér sólkomu ljóð.
Langt ertu lífsglaumi frá,
en þegar gista þig gestir *
gleðdnnar ávextir flestir
bornir á borð eru þá.
/»
Ásthlý, sem unnusta snót,
heimkomnum langar um ledðir
ljúílega f.iðminn þú bredðir
fiugmóðum farfugl á mót.
Skaut þitt er friðsælt og frítt.
Börnum þín ástfólgin ertu,
óblíð á stundum þó sértu
brosið þitt bætir það hlýtt.
Okkur — vor ást er ei blind —,
lauguð í ljósgeisla straumi „
löngum í minninga draumi
birtist þín móðurleg mynd.
Lífsins þá dagurinn dvín,
og himinn í hinsta sinn kveður
hugur vor ljóshraða meður
svífa mun síðast til þín.
Kallast'því ei getum á —
vcstræna biðjum vér blæinn
að bera þér kveðju yfir sæinn
ástmögum fjarlægum frá.
Thor. Bjarnarson.
jjakobína I’ickett, sem býr með
| man.ni sínum í Austur Selkirk t;
þuríður Sigurlaug Minister, býr í
Grand Forks í Norður Dakota, og
húsfrú Helga Davíðsson, býr hér í
Winnipeg. Og hjá henni dvelur nú
ekkja Stefáns sál. nær áttræð að
aldri.
KurteiSi.
Fáar dygðir er jafnfagrar og á-
vaxtaríkar, sem kurteisin, og jafn
víst er hitt, að hennar er miður
gætt en skyldi í daglegri um-
gengtii fólks hvert við annað.
Við skulum nú fyrst og fremst
athuga, hvað sönn og rétt kur-
teisi í raun og veru er. Ef dætna
skal eftir breytni manna, virðist
fólk skoða hana seni fagran og fá-
séðan skrautgrip, sem þvi beri að
eins að nota við sérstaklega hátíð-
leg tækifæri, en eigi þess á milli að
geymast falin og ónotuð, því við
dagleg störf og áhyggjur, í návist
vina og vatidamanna, sé hennar
i ekki þörf. Og þá er hitt ekkd síð-
í ur alment, að álíta henni fullnægt
með því, að fylgja vissum ákveðn-
ttm reglum í breytni sinni gagn-
vart öðrum.
Hvorttveggja er rangt með ,öllu.
Kurteisin á að vera okkur óaðskilj
anlegur förunautur. Hún á að
ráða breytni vorri allstaðar og æf-
inlega, gagnvart öllum, engu síðttr
fátækum en ríkttm, fáfróðttm en
vitrum, — engtt síður í daglegri
umgengni milli vina og vanda-
manna, en í framkomtt vorri við
ókunnuga, eða þá, setrt tíl mann-
virðinga eru komnir.
Eigi verðttr hún heldttr lærð með
mörgttm og margbrotnum reglttm,
því fyrir henni er að eins edn ó-
fráv'íkjanleg höfttðregla, nfl., hin
yfirgripsmikla gttllna regla meist-
arans mikla frá Nazaret : það,
sem þú vilt að mennirnir geri
þér, það skalt þú og þeim gera.—
Með öðrum orðttm : Sönn og full-
komin kurteisi lýsir sér að eins í
góðvild, ttmburðarlyndi og næm-
leika fyrir tilfinningum annara og
Viellíðan. Ilún er í einu orði sagt
sá viðmótsþýðleiki, sem laðar sál
að sál, sem tcngir trtenn ævarandi
vináttu og samhygðarþöndiim,
sem dregttr sviðann úr sárttm vor-
um eins og græðandi töfralyf, og
breytir eigingirni og ömurlejk ein-
stæðingsskaparins í kærleik og
gleði.
Alt mannkynið er ein margþátt-
uð, starfandi heild, þar sem aðal-
takmark og löngun einstaklingsins
er gleði og hamingja. Til þess að
nálgast þetta langþráða takmark,
er samvinna og samhygð meðal
einstaklinganna fyrsta og helzta
skjlvrðið. Ef hamingjuvonir vorar !
eiga nokkurntíma að rætast, þurf- |
um vér að kattpa kærleika og sam
hygð meðbræðra vorra með um-
burðarlyndi af vorri hálSu.
Alt, sem, særir tilfinningar vor-
ar, — vekttr hjá oss gremju eða
sorg — er dins og eyðandi ólyfjan,
sem lamar tilfinttinga næmleika
vorn og gerir oss óhæfari til þess
að ttjóta lífsins fyrir okkttr sjálfa,
og miðla öðrttm ánæ.gjtt og gleði.
Eitt særandi orð talað í óað-
gætni eða attgnabliks geðshrær-
ingu getur vakið gremju með-
bræðra vorra, spilt glpði þeirra og
eyðilagt fyrir sjáHum oss þann
ómetanlega hagnað, sem vét get-
ttm haft af velvild þtírra og sam-
úð.
Eitt vínsamlegt orð, talað af
góðvild og bróðurhug, glæðir þar
á móti kærleika og samúð þeirra
til vor, með öllum s’ínttm góðu og
blessunarríkti afloiðingttm fyrir oss.
J>annig er það kærleiki og sam-
ttð, sem stafar 'ylgeislum friðar og
gleði inn í sálir manna, — frjófg-
ar þær eins og vordöggin jörðina,
vermir þær eins og árgeislinn
blómin. Upp úr þessum frjógaða
jarðvegi uppskerum vér aftur hina
gullnu ávexti : lífsgleði og ánœgju,
sem einir eru þess megnugir, að
gera lífið eftirsóknarvert.
Eg hefi nú leitast við að sýna
og sanna, að örtiggasta og lang-
skemsta leiðin til.sannrar farsæld-
ar sé, að attðsýna öðrttm kurteisi
og velvild í daglegri ttmgengni.
IWtt mttn flestum liggja í augunt
ttppi, að háttprýði í framgöngu er
ávöxtur og afleiðing göfttgra httgs-
ana, mannkærleika og sannrar
menningar.
þegar ég leita eftir orsökum:
fyrir tómleika lífsins, fyrir því, aði
margar göfugustu og beztu htigs-
artiir tnanna deyja út og drukna í
eilífri þögn og hluttekningarleysi,
þykist ég glögglega sjá aðalorsök-
ina í skorti á velvild og sannri
kurteisi í daglegtii* umgengni.
manna á meðal.
Að svo mæltu vil ég láta hér
staðar nttmið, með þá einlægu ósk
í brjósti, að þeir, sem þessar línur
lesa, vildu jafnan hafa það hug-
fast, að sérhvert verk, sem unnið-
er í þeim tilgangi, að gera lífið
bjartara og betra og unaðsrikara
fyrir mbðbræðttr vora, — stráir
geislttm ttnaðs og fagnaðar a
framtíð vora.
H u 1 i n n.
Friðrik Sveinsson,
MÁLARI,
hefir verkstæði sitt nú að 245"'
Portage Ave. — herbergi nr. 43-
Spencer Block — beint á móti
pósthúsinu. Ilann málar myndir,
leiktjöld, auglýsingask'ilti af öllum'
tegundum, o. s. frv. — Heimdli :
443 Maryland St.
Jóhanna Olson
PIANO KENNARI
557 Toronto St.
Winnipeg
Þeir, sem heitin sín halda.
í útlendings raunttm á ókendri strönd,
í átthögum sóllausra daga, —
sem kvöldstjörnu leiftur við lognskýja bönd
skín land vort og fortíðarsaga.
Sem mæni svipdr úr myrkri nætur,
hver minning vaknar og rís á fætur.
Ilver dýrasta hugsjón og dulspektar þrá,
sem draumsýn í þroskanum vaknar.
Ilver framtíðar ímynd í æskttnnar spá
með aldrinum grætur og saknar.
Og blóðfórna hugsjónir hraktar og sviknar
þær hrópa til lífsins, .svo minningin viknar.
1 framtíðar gleymsktt við fortíðar heit,
er íramsóknar lögmálið rofið.
Af falslausum dáðum í frumherja svcit,
er fjallið að síðustu klofið.
J>ar komast þedr eittir, sem heitin sín halda
við hugsjónir lífsins í þjóðsögum alda.
P.