Heimskringla - 13.10.1910, Blaðsíða 6
BIfik 6 WINNIPEG, 13. OKTÓBER 1910
HEIMSKRIN GL A
MELBA
Heimsiii8 mesta söugkoi.a
notar
HEINTZnAN & CO.
PIANO
á sigurferð hennar um mestu
borgir f Canada. Hún vill
engin öunur nota.
MIKIL LISTA KONA
MIKIÐ I’IANO,
Herra Chris. Breckman, sem um
li5iu ár hefir unnið við verzlun á
Oak Point, var hér í borg í s).
viku, að kaupa vörur fyrir verzluu
þá, sem hann er að setja upp í
Clarkleig'h. Hann ætlar að hafa
þar GENERAIf STORE og vand-
aðar vörur. Ha:in býst við að
haia svo mikið úrval að vel geti
mætt þörfum sinna mörgu við-
skiftavina, og alt með sanngjörnu
ver5i.
I
J. W. Kully. J. Kedmond, W. J. Ross
Cor Portage Ave. & Hargrave
Phone: Main ð08.
Fréttir úr bœnum.
þann 5. þ.m. ,lagði Mrs. M. J.
Benedictsson af stað héðan vestur
að Kyrrahafi. Bjóst hún við að
verða þar nokkurn tíma. Áritun
hennar verður ifyrst um sinn að
Blaine P.O., Wash. — Henni sam-
ferða vestur varð Miss Bertha
Anderson, sem hugði að gera þar
framtíðarbústað sinn.
Nú hefir Manitoba stjórnin aug-
lýst, að hún ætli að færa Búnað-
arskólann nýja suður til St. Vital,
5 mílur suður fyrir Winnipeg borg,
og setja hann þar niður á 500
ekra svæði því, sem hún keypti
nýlega á bökkum Rauðár þar
syðra. — Tilgangurinn er, að
stljórnin selji Máltevfsingjaskólann,
sem stendur 4 horninu á Sher-
brooke St,. og Portage Ave., en
færii málleysingjana í eina eða
fleiri af byggingum núverandi Bún-
aðarskóla. Stjórnin kveðst hafa
fulla þörf fyrir allar þær bygging-
ar, sem nú mynda akuryrkjuskól-
ann, svo að ekkert peningatap
þurfi að verða við flutninginn. —
Gamla málleysingja.skóla-svæðið ir
orðið alar-dýrmæt eign, og alt hið
mdkla land, sem Búnaðarskólinn
stendur nú á, er ednnig komið í
mjög hátt verð, svo að stjórnin
getur haft upp úr báðum þessum
landieignum miklu meira en þær
hafa kostoð. En svæði það, sem
hún hefir valið fyrir skólann, er
edtt hið fegursta í ifylkinu og hefir
auk þess nægilegt landrými til
framtíðarþarfa.
1 hjónaband gengu 19. sept. sl.
j þati herra Rafnkell Eiríksson, frá
I Stonev Hill, og ungfrú Halldóra
j Sveinsdóttir hér í borg. Séra Tón
í Bjarnason, D.D., gaf brúöhjónin
! saman að heimili bróður brúðar-
innar, að 926 Ingersoll St. hér í
borg. Brúðhjónin fóru samdægurs
til Bdrch Island í Manitoba-vatni
og hyggja að setjast þar að fyrst
um sinn.
N okkrar kvenréttarfélags konur
komu satnan í húsi Mrs. Gróu
: Magnússon, 680 Arlington St., að
í kveldi 4. þ.m., til þess með ofur-
litlu samsæti að kveðja þær Mrs.
j J- Benedictsson og Bertha And-
; erson, sem kveldið eftir lögðu af
stað vestur að hafi. Fylgdu þá
I fiestar þessar konur þeim á iárn-
i brauitarstöðvarniar, og báðu þeim
allra heilla. — í samsætimt voru
þeim flutt hlý kveðjuorð í ræðum
j og fáein erindi í ljóðum.
Kvenréttarfélags-deildin hér miss
ir mdkils við burtför Mrs.Benedict-
soniar, sem er aðal-ledðtogi hins ís-
Jenzka kvenréttarfólags í þessu
i landi. En þess er óskað og vænst,
að hún hafi það gott af þessari
ferð, og félagið sömuleiðis, að
heilsa hennar og kraftar fái þá
lendurnærandi hvíld og hressiug,
! sem hún lieitar eftir og þarínast,
og að httn komi svo til baka með
nýjit fjöri og nýjum dug, og taki
þar til óspiltra mála, “er fyrr var
frá horfið’’.
Mrs. Beneddctssoni ráðgerir að
vera um þriggja mánaða tíma
vestitrfrá, og biður hún alla, sem
kynntt að vilja skrifa sér, að adr.
bréfin til Blaine, Wash- C.D.
YFIRLYSING.
Herra ritstjóri Heimskrr.iglu.
þar sem mjög margir hafa spurt
mig að því, hverndg herra S.Gísla-
syni liði, bið ég yður, herra rit
stjóri, að taka meðfylgjandi yfir-
lýsingu í blað yðar :
Beinkramar, hreyfi-ósamræmis,
mátt- og tilfir.'ningiar-leysis sjúk-
ldngurinn SIGURÐUR GÍSLA-
SON, nú að 540 Toronto stræti,
Winnipeg, — d a n ð a r hreyfi- og
tilfinninga-taugar, :ni 1 i f a n d i,—
er nú kominn á fætur, eftir 3. ára
rúmvist, og getur gengið um hús-
ið, og upp og ofan í kjallara,
stuðnings-litið ; lennfremur kipp og
kipp stuðningslaust, og þarfnast
eigi lengur pípnr til nauðsynja ; —
hefir þanniig lifnað við, við haud-
l'ækningar séra O. V. Gíslasonar,
á tímabilinu frá 27. júlí 1909 til
2. sept. 1910. — Sjádð manninn !
‘ ‘ Niánari - skýring. síðar’ ’.
Winnipeg, 1. okt. 1910.
O. V. GÍSDASON.
Barnlaus hjón óska að fá leigt
eitt stórt herhergi með aðgang að
stó. Heimskringla vísar á hjónin.
A föstudaginn var gaf séra Jón
Bjarnason, D.D., saman í hjóna-
band Dr. Jóhannes Pál Pálsson og
ungfrú Sigríði Octaviu Peterson.
Heimili beirra hjóna vérður að
Ár.borg, Man.
Herra Pétur G. Magnus, frá
Chioago, kom hingað norður um
fyrri helgi og brá sér vestur í Ar-
gýle bygð og kvongaðist þar þann
4. þ.m. ungfrú Guðrúnu Arason.
Hjónavígsluna gerði séra Friðrik
Hallgrímsson. Brúðhjónin héldu
suður til Chdcago þanti 7. þ.m.
þiedm fylgja hughieilustu árnaðar-
óskir allra Argyfe-ibúa og annara
vina brúðhjónianna, — og Heims-
kringlu.
Séra Dárus Thorarensen kom til
bcrgiarinnar á fimtudaginn var, og
m.eð honum þessir vesturfarar : —
Margrét Jónsdóttir frá Reykjavík,
Björg Jónsdóttir frá Tabbukoti í
Rangárvallasýslu, og Valgerður
Jóhannsdóttir frá Hól í Reykja-
vík, hún fór til Bcston. Einnig
komu tveir Vestur-íslendingar :
þaiii Valgerður Swanson frá Winni-
peg, og Victor Olson, frá Lögherg
P.O., Sask.
I bréfi frá herra Jóni Westmann,
dags. 2. þ. m., stendur meðal ann-
ars þetta : — “Nú er ég kominn í
nokkra fjarlægð frá öllum tslend-
ingum. Eg hefi 'keypt m.ér 5 ekru
landspildu 16 mílur frá Seattle en
25 mílur frá Tacoma. Islendingir
eru í báðum þeim borgum. Land
mitt er alt rutt, að undanteknum
ldtlum bletti, sem hefir eldivið til
10 eða 15 ára ; það er alt furuvið-
ur. Öll hús eru á landinu og í
góðu ástandi. Ua.ndið er á hentug-
um stað til allra aðflutninga ; á-
got akbraut liggur frá landeign-
innd inn í Kent bæ mílu vegar.
Bær sá hefir um 6000 íbúa. Tals-
vert er land hér hæðótt og malar-
kent sumstaðar. Alt er það skógi
vaxið. Á landi mínu er talsvert at
ávaxtatrjám, svo sem Plum- epla-
og Cherry-tré, og Raspberry og
Strawfcerry runnar. Eg hefi 50
hæms, og kosta þau $1.00 hvert og
sum meira. Egg til útungunar
kosta hér $1.25 tylftin ; góðar kýr
kosta $65.00, og annað þar eftir.
Eg hygg hér sé góð framtíð fyrir
dugandd fólk”.
þann 30. sept. sl. andaðist að
heimili sínu, 563 Victor St. hér í
borg, bóndinn Guðmundur Guð-
mundsson, 48 ára gamall. Bana-
mein hans var lungnabclga. Guð-
mun.dur sál. var bróðir þeirra Ei-
ríks og Ilögna Guðmundssona,
I bænda í Álptavatns-nýlendu. Hann
j var ættaður úr Norður-Múlasýsln
á íslmdi. Foreldnar hans voru þau
j Sesselja Högnadóttir og Gnð-
mundur Eiríksson, er bjuggu alla
æfi sína í Borgarfirði, — bæðifyrir
lönigu dáin. Gttðmundur sál. flutti
til Amertku fyrir 20 árum. Arið
1892 kvongaðist hann eftirlifandi
konu sinni, Sigríði Guðmuii'dsdótt-
ttr, sem nú syrgir hann, ásamt 3
börnum þeirra hjóna, tveimur
i stúlkum og einum dreng, því hann
var ástríkur ektamaki og faðir.
Eftir.beiðni lterra J. H. Johnson,
að Hove P.O., Man., sel ég við
opdinbert uppboð á landi hans suð-
austurfjórða af Sec. 10 Tp. 18
R. 3. w.
Mánudag 24. okt. 1910.
Alla nautgripi hans, sem eru :
30 Jtýr, sem eiga að bera í vetur
og 4 næsta vori.
15 geldneyti 4 þriðja ári.
12 geldneyti á öðru ári.
8 vetrar og vor kálfa.
2 naut.
Einnig sel ég þar nokkra hesta
og ýmislegt fieira.
Salan byrjar kl. 1 e. h.
Miðdagsverður veittur ókeypis.
KaupskilmáJar eru : 9 mánaða
iNotífS tíekifferiifr I ff.ialdfrcstur gegn trygðum borgun-
arskuldbindingum (Approved Joint
Note) með 6 prósent ársvöxtum.
Eg sel með góðu verði mi' ið af
bókum og fclöðum á íslenzku,
dönsku, norsku og ensku.
Sigmundur IVl I.on?:,
790 Notre Dame Ave., Winndpeg.
Uppboðssala.
Ilerra Peter Anderson, frá Les-
lie, Sask., kom til borgarinnar um
síðustu helgi. Hann segir ágæta
uppskeru vestra og I,eslie bær sé
í sæmilegum uppgangi. Almenn
uppskera varð um 30 bush. af ekru
aif hveiti, og um 70 bush.af höfrunt.
öllu,
út í
Herra Siguröur Johnsen, frá
Ilairtford, Conn., f Bandarfkjunum,
kom til borgarinnar á sunnudag-
in:t var. Ilann hefir verið 6 ár þar
syðra. Ilann segir þar illa borg-
aða vinmt, en dýrt að lifa. Viku-
fæðið þar á almennum gredðasölu-
húsum $8.00, ea- kaupgjald 20c á
klukkustuad. Herra Johnsen ætlar
að setjast hér að.
Herra Jósef Davíðsson, frá Bald-
ur, Matt., sem dvalið hefir bér i
borg við smíðavinnu sl. 2 mánuði,
bélt heimledðis í gærdag.
Glevmið ekki að sækja HEKLU
Tombólnttia i Templarahöllinni á
mánudagskveldið kemttr. Sá, setn
kaupir drátt, fær að dansa á eftir.
Herra Jobn Westmann, sem um
nokkurn undanfarinn tíma hefir
dvalið að South Hill, Vancouvcr,
B.C., biður þess getið, að hann sé
fluttur til Bandaríkja, og er þetta
áritun hans : Kent P.O., Wash.,
U.S.A., Box 215, R.F.D. No. 1.
ANCHOR
B R A N D
HVEITl
er bezta fáanlegt mjðl til
nota í heimahúBum og
annarstaðar. Það er gert
úr No. 1. Hard HVEITI
eftir nýjustu aðferðum.
Sfmið 4326 eftir
söluverði þess.
Leitch Bros.
LOUK MILL5
Winnipeg skrifstofa
240-4 Grain Exohange
*!*.!**!-!**!‘<**!»*!**!**!**!*,!"!**!**!“!**!-!,v4*'
Til vina minna.
það hefir dregist mikið lengttr
en ég hefði óskað mér, að votta
þeim velgerðavinum minum, Mr.
óllafi Vopna og Mr. þórarinn Ó1
son mitt i:inilegasta þakklæti fvrir
alla þá vinnu og fyrirhöfn, er þeir
lögðu á sig á þeim tíma, er þeir
gengust fvrir að “rafla’’ redðhjóli
miannsdns míns sál., og færðu þeir
mér að því loknu $67.00, þar af
$6.00 gjöf frá Mr. Bárði Sigurðs-
svnd, sem ég af hjarta þakka hon-
um.
Einnig votta ég hér með mitt
alúðarbezta þakklæti öllum, er a5
einhverju levti unnu að því, að
gera peningasjóð þennan svo stór-
a:t og mvndarlegan, og sem um
ledð verður svo ósegjanlega mikil
hjálp évrir mig og hörnin mín á
þessum íhöndíarandi vetri.
En aldrei hefi ég fundið jafnmik-
ið sannleiksgildi í þessum orðum,
er við öll kunnum : “Sælla er að
gefa en þiggja”, — eins og siðan
1 ég misti minn ástríka og umönn-
unarsama eiginmann. E:i á sama
tíma heft ég grœtt ótakmarkað
traust á því góða og kærleiksrika
i heiminum, fullvíss orðin um, að
han:t hefir meira af því að kjóða
en almenningur vedtir eftirtekt.
Mínir kæru vinir, þökk, já,
hjartans þökk fyrir alt og
alt.
Mrs. Frí??a Helgason.
Munið eftir IIEKLU TOMBGL-
UNNI á mánudagskv-eldtð kemitr
17. október
Byrjar kl. 8. — Fólk er fceðið að
koma snemma, svo að aðrar
skemtanir geti farið fram sem
fljótast. — Kvenfólkið í nefndinni
hefir tekið að sér að veita fólkinu
kaffi og brauð. — Nokkrir menn
úr stúkunni Heklu hafa leigt sal-
inn frá kl. 10, og verður þar datts-
að tál kl. 1. — Mahers Orchestra
skemtir með hljóöferaslætti frá
klukkan 8.
Inngangur cg einn dráttnr kost-
ar 25 cents..
Fallegir
KVENHATTAR
af nýjustu gerð til sölu í
híittabúðinni á horni Sargent
og Victor stræta. Gamlir
hattar einntg gerðir um. Mun-
ið eftir staðnum og látið ís-
lenzku konurnar, sem eiga
búð þessa, njóta viðskifta yð-
ar, því þér getið gert eins
góð’kaup þar og nokkurstað-
ar annarstaðar i bænum.
Sex prósent afsláttur af
sem borgað er í peningum
hönd.
Dags. að Lundar, 1. okt. 1910.
PAUL REYKDAL,
uppboðshaldari.
Hjá J. R. TATE & Co.
522 Notre Dame Ave.
er staðurin til að fá góð föt gerð
eftir mftli úr frægustu dúkum og
fyrir lægra verð en slik föt eru
gerð fyrir neðar í borginni. Vér
höfum mesta úrval af fatadúkum
og ábyrgum hverju spjör, íslend-
ingum boðið að konta og skoða vör
urnar. Vör óskum viðskifta vtð þá.
J. R. TATE & Co. Skraddarar
Dr. G. J. Gíslason,
Phy.iclau and Surgeon
18 South 3rd Slr, Orand Forlts, N.Dai
Athygli veitt AUONA, EYRNA
og KVERKA S.JÚKDÓMUM A-
SAM7’ INNV0RTI8 SJÚKDÓM-
UM og Ul'PSKURÐI, —
Anderson & Garland,
LÖGFRÆÐINGAR
35 Merchants Bank Building
PHONE: main 1561.
Dr. M. Hjaltason,
Oak Point, Man.
BUÐIN Á SARGENT.
Kennið únglingunum að nota vel
tíman. Það gerist best með því að
þau beri á sér vasa úr. Eg sel vönduð
K venn-úr fiá $2.50 ogr upp. Eg sel
$10.00 Konu-úr fyrir $6.00 þau eru í
gullþynnu kössum, með ágætu gang-
verki ábyrgð fygir hverju úri.
r
Prengja úr sel eg fyrir $1.25 og þar yfir.
i
G. THOMAS
Gull og Silfur
Smidur
674 Sargent Ave.
Phone Sherb. 2542
Góðar stöður.
Geta ungir, framgjarnir menn og
konur feugið á járnbrauta eða
loftskeyta stöðvum.
Síðan 8 kl. stunda lögin gengu í
gildi og síðan loítskeyta fregu-
sending varð útbreidd oá vaiitar
10 þúsund telegraiphers (Iregtt-
siendla). Launin til að biria uieð
eru frá $70 til $90 á máuuði. Vér
störfum undir umsjón telegrapn
yfirmanna og öllum sem verða
fullnuma eru ábyrgðar atvinmt-
stöður.
Skrifið eftir öllum upplýsingum
til þeirrar stofnunar sem næst vð-
ur er. NATIONAL TELEGRAF
INSTITUTE, Cincinatti, Ohio,
Philadelphia, Pa., Memphis, Tenn.,
Columbia, S. C., Davenport, 111.,
Portland, Ore.
J, T. STOREY
S. DALMAN
Your V'alet
HREINSAR, PRESSAR, GERIR VIÐ
OG LITAR FATNAÐ.
Alt ágwtlsga gert. Komiö þvl nieö
fötiu tll okkar.
690 Notre Dame Ave.
Talsímí Main 279H
Sherwiii-Williams PMNT
fyrir alskonar húsmálningu.
Prýðingar-trfmi nálgast nú.
Dálítið af Sherwin-Williams g
húsmáli getur prýtt húsið yð-
ar utan og innan. — B rú k i ð
ekker annað mál en þetta. —
S.-W. húsmálið málar mest,
endiöt lengur, og er áferðar-
fegttrra en nokkurt annað hús
mál sem búið er til. — Komið
inn og skoðið litarspjaldið.—
Cameron &
Carscadden
QUALtTV HAKDWARE
Wynyard, • Sask.
S. K. HALL
TEACHKR OF PIANO and HARMOvY
STLTDIO: 701 Victor St.
flaustkensla byrjar lst Sept.
Þarft þú ekki að fá
þér ný föt?
EF ÞAU KOMA FRA
CLE.MENT’S, — ÞÁ
VERÐA ÞAU RÉTT
R«*ttur að efni. réttur í sniði
réttur f áferð og réttur í verði.
Vér liöfum miklar byrgðir
af fegurstu og b e z t u fata-
efnttm. —
Geo. Ciements &Son
Stofnaö áriö 1874
204 Portage Ave. Rótt hjá FreePress
? B’aatassk fssæssan raæsÐÐf a
Th. JOHNSON |
JEWELER
!6 Main St. Talsfmi: 6606
Sveinbjörn Árnason
FaNtelsiiHKiili.
Selur hás og lóöir, eldsábyrgöir, og lánar
peninga. Skrifstofa: 310 Mclntyre Blk.
offlce
TALSÍMI 4700.
hÚH
TALSÍMI 2108
—G. NARDONE—
Verzlar meö matvöru, aldini, smá-kökur,
allskonar sœtindi, mjólk og rjóma, söinul.
tóbak og viudla. Óskar viöskifta ísleud.
Hoitt kaffi eöa teá öllum tlmum. Fóu 7756
714 MARYLANÐ ST.
Boyd’s Brauð
Alt af hin sömu 4gætu
brauðin. pað er ástæðan fyr-
ir hinni miklu sölu vorri. —
Fólk v.eit það getur reitt sig
á -gœði brauðanna. þau eru
alt af jafn lystug og nær-
aadi. Biðjið matsala ykkar
um þau eða fónið okkur.
BakeryCor.SpeuceA Portage Ave
Phoue fcherb. 680
BILOFELL * PAULSON
Union Bank 5th Floor, No. 520
selja hás og lóöir og annast þar aö lát-
andi störf; átvegar peuiugaláu o. fl.
Tel.: 2685
TIL SÖLU:
160 ekrur af bezta landi. stutt
frá járnbrautarstöð. — Fyrsti
maður með $7.00 f®r hér góð
kaup. — Fiunið
Skúli Hansson & Co.
47 Aikens’ Bldg.
Talwíml. Maln6476 P. O. Box 833
Miss Jóhanna Olson.
Piano kennari, byrjar aftur að
veita nemendum tilsögn að heimilíi
sfnu 557 Toronto tít.
GE0. ST. JOHN
VAN HALLEN
Máiafærzinmaður
Gerir öll lögfræðis störf
Útvegar peningalán
Bæjar og landeignir keyptar
og seldar, með vildarkjörum.
skimsujöi $»oo
KaupHuniniiiKHr $3.00
Sanngjörn ómakslaun
Reynið mig
Skrlfstofa 1000 Maln St.
Talsími Main 5142
llcimiN talsíml Main 2357
í* ÍNNIPEO
MARTYN F. SMITH,
TANNLÆKNIR.
Falrbalrn Itlk.
Cor Maln & Selklrk
tíérfræðingur f Gullfyllingu
og öilum aðgerðum og tilbún
aði Tanna. Tennur dregnar
án sársauka. Engin veiki á
eftir eða gómbólga. —
títofan opin kl. 7 til 9 4 kveldin
Office Phone 69 4 4. Heimilis Phone 6462
BONNAR, TRUEMAN
& THORNBURN,
LÖGFRÆÐINGAR.
Suite 5-7 Nanton Blk. Tals. 766
VVinnipeg, Man. p.o.box 223
DR.H.R.ROSS
C.P.R. meðala-ogskurðlækuir.
tíjúkdómnm kvenna og barua
veitt sérstök umönnun.
WYNYARD,-----SAtíK.
The Evans Gold Cure
229 balmoral St. Sími Main 797
Varanleífl kning viö drykkjuskap á 28
dötfiim án nokkurrar tafar frá vinnu eftir
fyrstu vikuna. Algerlega prívat. 16 ár
1 Winnipefr. Ui>plýsin*ar 1 lokuöum
umslögum.
J.Dr. D. R. WILLIAM5, Exam. Phys
J. L. WILLIAMS, Managcr
W. R. FOWLER a. piercy.
Royal Optical Go.
307 Portage Ave. Talsími 7286.
Allar nútíðar aðferðir eru notaðar við
anen-skoðun hjú þeim, þar með hin nýja
aðferð, Skupga-skoðun,"sem gjöreyði?
öllum ágískunum. —