Heimskringla - 29.02.1912, Síða 1
j Talsimi Heimskringlu ^
é Garry4110 é
é
é
^ Heimilistalsími ritstj.
J Garry 2414
é
é
é
é
XXVI. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 29. FEBRÚAR 1912.
Nr. 22.
Manitoba-þingið.
Eins og til stóð v.ar fylkisþingið
sett fimtudafrinn 22. þ.m. af íylkis-
stjóranum nýja, IIon.Douglas Col-
in Cameron. Var þar samankomiö
fjölmenni mikiö og fór þingsetn-
ingin fram meÖ hinni mestu við-
höfn.
Hásætisræðan eöa boðskapur
stjórnarinnar til þingsins, sem
sem fylkisstjórinn las upp, hafði
mörg og þörf nýmæli að fly.tja.
Var þar minst á stækkun fylkisins,
sem nú væri vissa fyrir að fengisrt
meö ákjósanlegum kjörum, og sem
lagt yröi fyrir þetta þing.
Ennfremur var þess g,etiö, að
sambandsstjórnin heföi selt fylkis-
stjórninni hinn svo nefnda her-
mannaskála hér í botginni fyrir
vildarverð, og þar yrði hið nýja
þinghús bygt.
þá var dr.epið á talsímakcrfis-
rannsóknina, krýn nguna á Bret-
landi og landsstjóraskiftin í Can-
ada, og var lýst velþóknan yfir út-
nefningu hertogans.
Af nýmælum voru þessi helzt :
1. Stjórnin hefir gert ráðstafanir
til að koma upp opinherum og
óháðum gripamarkaði í St.
Boniface, sem þeim fylkisbúum,
er griparækt stunda, ætti að
verða til mikils hagnaöar.
2. Frumvarp verðttr lagt fyrir
þingið um að skipuð verði
Puhlic Service Commission
þjóðarþjónustu nefnd) með
fullu framkvæmdarvaldi.
3. Breytingar á sveitastjórnalög-
unum.
4. Breytingar á skattalöggjöfinni.
5. Breytingar á ‘‘Kings Bench”
lögunum.
þetta var mergurinn málsins í
Tiásætisræðunni.
Kosnir voru til svara Sam
Hnghes þingmaður fyrir Gilbert
Plains og A. M. Lyle, þingmaður
fyrir Arthur kjördæmið.
þing.inu var því næst frestað til
mánudagskvelds.
Eftir að þessum fyrsta þingfundi
hafði verið slitið, héldu þinginenn-
irnir með íjölskyldur sínar og ýms-
ir aðrir boðsgestir til Royal Alex-
andra hótelsins, þar sem þeim var
haldin veizla af þingforsetanum,
Hon. James Johnson.
Á mánudagskveldiö hófst annar
þingfundur. þá var hásætisræðan
■til umræðu. Auk þeirra tveggja
þingmanna, sem kosnir höfðu ver-
ið til að svara, leiddu þar saman
hesta sína Hon. R. P. Roblin
stjórnarformaður og andstæðinga-
leiðtoginn T. C. Norris, og var
all-mikill hiti í háðum. '
þriðji þingfundur var á þriðju-
dagin, frá 3—6 síðdegis, og var
þá hásætisræðan ennþá umræðu-
efnið. Umræðurnar hóf Dr. Arm-
strong, þingmaður fyrir Gladstone
kjördæmið, og var honum svarað
ai B. L. Baldwinsson. Nokk-
urir fleiri tóku þátt í umræðun-
um.
Umræðurnar um hásætisræðuna
halda einnig áfram í dag (miðviku-
öa)t)-_________________
Tripolis-stríðið.
þar gengur hvorki né rekur
fremur en að vanda. Smáorustur
hafa þó verið háðar öðru hvoru,
og ítölum að jafnaði veitt betur.
Hroðasögur ganga af níðings-
verkum Tyrkja og Araba á særð-
um mönnum er falla í licndur
þeim. Er lífið kvalið úr þeim með
fáheyrðri grimd ; eru bútaðir sund-
ur í smástykki, sem síðan er
fleygt hér og þar. Úr sumum eru
augun stungin löngu áður en þeir
gefa upp andann. Segir einn brezk-
ur fréttaritari, að hann hafi víða
séð mannsaugu negld upp á tjald-
veggi Araba, og að þeir geymi af-
högna limi í pokum, sem menja-
gripi. Alheimslögunum um, að
hjúkrunarmenn og sjúklingar séu
friðhelgir, gefa Tyrkir og Arabar
engan gaum, og hafa þráfaldlega
ráðist á sjúkravagna, er verið hafa
að bjarga særðum af vígvellinum,
og- drepið bæði hjúkrunarmennina
Og þá særðu.
Italska þingið hefir nú samþykt
innlimun Trípolis í hið ítalska riki
°g hefir konungur staðfest þau
lög.
Mælt er, að Englendingar og
Frakkar muni ætla að skerast f
leikinn og koma sáttum á.
Hið ný.ja brauðgerðarhús herra G. Thordarsonar á Ingersoll St.
Fregnsafn.
Markverðnstu viðhnrðir
hvaðamefa
A sambandsþinginu í Ottawa
gengur það fjörugt til, þó litlu sé
afkastað. Hafa I.iberalar auðsjá-
anlega sett sér það fyrir mark og
mið, að draga alla starfsemi
þingsins á langinn með máltöfum,
og virðist ekkert geta hamið hið
ótæmandi málæði þeirra. En
stjórnarfiokkurinn hefir einnig sína
málagarpa, se jafna tilfinnanlega
um suma af Liberal smœlingjun-
tim, sem eru að gera sig gleiöa. —
Mestur tími þingsins þessa vikuna
hefir verið upptekinn af umræðum
um hina fyrirhuguðu tollmála-
nefnd, sem þeir Liherölu virðast
óþreytandi að andæfa, þó ekkert
það komi fram í ræðum þeirra,
sem sýni vanþörfina á slíkri nefnd.
Loksins hefir þó tekist, að vísa
málinu til þriðju timræðu.
Á mánudaginn var kom laga-
frumvarp Ilon. Geo. E. Fosters
til annarar framhalds umræðu.
Lýsti ráðgjafinn því þá vfir meðal
attnars, að það væri ætlun stjórn-
arinnar, aS kattpa á þessu ári tvö
eða íleiri korngeymslttbúr við enda
vatnanna miklu oo- starfrækja þatt
undir umsjón stjórnarinnar, með
það vakandi fyrir atigum, að
korna í veg fvrir blöndun kornteg-
ttnda ; — ‘‘slíkt verðttr að hætta
með öllu", sagði ráðgjafinn. þessi
fvTÍrhuguðu kattp á tveimur eða
fieirtim korngeymslubúrum er að
eins til reynslu, áður en stærra
s]ior verður stigið af stjórninni til
að gera kornhlööur allar að þjóð-
eign.
Landamerkjamál Manitoba var
til fyrstu umræðu á mánttdaginn,
en var frestað til fimtudags, sam-
kvæmt beiðni Sir Wilfrid Laur ers.
George H. Bradbur)-, ríkisþing-
maður fyrir Selkirk kjördæmið,
ltefir fengið loforð Borden stjórn-
arinnar um, að fiskiklak skuli sett
á stofn á norðurenda Mikkyjar.
Hann hefir Og fengið því til leiðar
komið, að þeim, sem vinna fyrir
opinberra verka deildina, verði
hér eftir borgttð laun sín fljótar en
verið hefir að ttndanförnu.— Brad-
bury. sýnir einlægan hug á, að
verða ekki eingöngu kjósendum
s-num að eins miklu liöi og kraft-
ar hans frekast leyfa, heldur einn-
ig öðrum út í frá.
— Aukakosningin til sambands-
þingsms fyrir South Renfrew kjör-
dæmið í Ontario fór fram fyrra
fimtudag, og náði Hon. Geo. P.
Graham, fyrverandi járnbrautaráð
gjafi í Laurier stjórninni, þar kosn
ingu með 292 atkv. umfram þing-
mannsefni Conservatíva. þegar
þess er gætt, að kjördæmið hefir
allajafna verið Liberal, og aö viÖ
síðustu almennar kosningar hafði
Liheralinn, Thomas Low, 619 at-
kvæði umfram, er sigur Grahams
nauSa fátæklegur. Kosningin var
sótt af kappi miklu á báSar hlið-
ar, og sjálfur Laurier ferðaðist um
kjördæmið og hélt fundi. — Hon.
Graham tekur nú sæti í þinginu
sem önnttr hönd Lauriers og verð-
ttr sessunautur hans. Karl hafSi
sem sé haldið sætintt auðu frá
þinghyrjun.
— Kolanámaverkfall um þvert
og endilangt Bretland virSist ó-
hjákvæmilegt. Milli verkamanna
og námaeigendanna hefir lengi ríkt
ósamlyndi, og höfSu hinir fvr-
nefndu samþykt fyrir nokkrum
vikttm síðan, að geta allsherjar
verkfalf 1. marz, ef vinnuveitend-
urnir gengu ekki aS kröfum þeirra.
Nú er 1. marz því nær kominn og
enginn jöfnuður málanna enn,
þr.átt fyrir ítrekaðar tilraunir
stjórnarinnar, að koma sáttum á
og afstýra verkfallinu. Hiefir As-
qu th yfirráðgjafi haft fundi með
fulltrúum beggja málsaðila, og
lagt þar fram miðlunar tillögur ;
hafa verkamenn ekki veriS ófúsir
að fallast á þær, en námaeigend-
urnir með öllu ófáanlegir. Komi
því ekki eitthvað nýtt fyrir á síð-
ustu stundu, dynttr verkfallið yfir,
og verður það ekkert smáræðis-
verkfall, því full milíón manna
leR)da þar niður vinnu, og v.erk-
smiðjur um land alt verða að
hætta starfsemi, ef verkfallið verð-
ur ekki mjög skammvint, sem eng-
ar líkur eru til. Sama gildir með
járnbrauta samgöngur og gufu-
skipa ; ennfremur með gas og raf-
urmagns lýsingu. Alt hvílir á kol-
ttntim, og þegar þau þverra, er
driffjöðrtn í öllum iðnaði landsins
og samgöngum brotin. — Verkfall
þetta verður hið gífurlegasta, sem
nokkru sinni hefir yfir Bretland
komið, — standi það svo nokkru
nemi. Ratfttar hafa einstakir tmun,
félög og verksmiðjttr, hyrgt sig
með óvanalega miklttm kolaforða.
Ertt sökkhlaðnir kola-byrðingar í
þústtndatali á Thamcs fljótinu og
fram með járnbrautunum viðsveg-
ar um fandið eru fjallháar kola-
dyngjur. Öll skip hafa og hlaðið
sig með kolabirgðum. Flötamála-
ráðgjafinn Winston Churchill hefir
skipað svo fyrir, aS fjögur af her-
skipum flotans skyldu útbúast til
kolaflutninga og flytja kol frá
Bandaríkjunum til Énglands rne.S-
an á verkfallinu stæði. — Orsök
vcrkfallsitis ertt hin lágtt laun
námamannanna. Segja leiStogar
þeirra þau ekki hrökkvi til lífsvið-
ttrværis, og krefiast þvi hækkunar,
en hækkunina vilja námaeigendurn-
ir ekki veita, — segjast heldur
láta námttr stnar vera óttnnar, því
að hið lága verð, sem sé á kolun-
um, geti ómögulega gert þá imegn-
ttga, að hækka lattn verkíimann-
anna. Um þetta er þrætan.
— Hon. William Miller, elzti
senator í Canada senatinu, og sá
eini, sem þar hefir átt sæti frá
upphafi þcss, dó í Ottawa á föstu-
daginn var, eftir stutta legu. Var
mikilhæfur lögmaður og hafði haft
mörgum ábyrgðarmiklum störfum
aö gegna. Hann var meölimur í
leyndarráði Breta. Varð 76 ára.
— Óeirðirnar fara vaxandi í
Mexico með degi hverjum og hefir
nú Comez, uppreistar forsprakk-
inn, tekið sér forsetanafn og safn-
ar nú liði kappsamlega i norður-
hluta landsins. Eru það margir af
hinum gömlu fylgismönnum Miad-
ero forseta, sem standa fyrir þess-
um upphlaupum, því þeim brugð-
ust þær vonir, að hann mundi
launa þeim dvggilega fylgd með
embættum og landeignum óvin-
anna, en það brást þeim, því Mad-
ero gaf flestum óvinaforingjunum
upp sakir. — þó mest beri á óeirð
unum í norðurhluta landsins, þá
má nú svo heita, að óeirðir og
róstur séu í hverju fylki. Járn-
brautir eru evöilagöar, brýrbrotn-
ar, og stjórnarbyggingar brendar.
— Bandaríkjamenn í Mexico flýja
landið í stórhópum, því lands-
menn hatast við þá og gntna þá
um, að vilja véla Mexico undir
Bandaríkin. — Sjálfur situr Mad-
ero forseti í höfuðborg ríkisins,
Mexico City, og hefst lítið að ;
segir, að uppreistarsögurnar séu
ýkjur að mestu, og að það séu
Bandaríkjamenn, sem mestan há-
vaða gera út af ástandinu í land-
inu. Hann segir sig o.g tjórn sína
örugga í sessi og alls óhrædda við
Comez og hans fylgismenn. Síð-
ustu fréttir segja, að uppreistar-
menn, undir forustu Emilo Campa
hafi unnið borgina Juarez eftir
stutta viðureign.
— Kosningar til fylkisþingsins í
Quehec eiga að fara fram í næst-
komandi júnímánuði.
— Kvenréttindahreyfingin á Bret
landi hefir nú fengið öflugan tals-
mann, og er sá enginn annar en
Lloyd George, fjármálaráðgjafinn.
Var harin nýveriö aðalræðumaður
á afar fjölmennum fundi i Lund-
linum, er haldinn var að undirlagi
kvenréttindakvenna. Lýsti ráð-
gjafinn því þar yfir afdráttarlaust
að hann væri því fylgjandi, að
kvenþjóðin fengi jafnrétti við
karlmenn í öllum málum, og að
áður en núverandi þingtímabil
væri iitrunnið mundi þingið hafa
samþykt lög þar að lútandi.
Raunar sagði hann, að stjórnm
sjálf myndi ekki leggja þannig lag-
að frttmvarp fyrir þingið, því það
yrði til þess að auka æsingar og
mótspyrnu gegn henni, og sundr-
ung meðal ráðgjafanna sjálfra ; en
væri frumvarpið borið fram sem
þingmaiuiafrumvarp, mundi það
greiðlega komast í gegnum þingið
og ná staöfestingar. Kvenréttinda-
konur eru í sjöunda KTmni yfir
þessum yfirlýsingum Lloyd George
— því þó aldrei nema kvenré.tt-
indamálið nái ekki fram að ganga
á yfirstandandi þingtímahili, þá
eru þær vissar um, að ekki er sig-
ursins langt að biða úr því Llo.yd
Geor.ge hefir heitið málinu fylgi
sínu. Aftur á aðra liönd hafa and-
stæðingar hreyfingarinnar risið
upp við þessa ræðu ráðgjafans og
hervæðast nú í ákafa. Veröur fund
ur haldinn í dag í Albert Hall,
undir forustu Cromers lávarðar,
þar sem kvenréttindamálið verður
fordæmt. Meðal ræðumannanna
eru margir af bezt kunnu stjórn-
málamönnum og rithöfundum
!H>« h., af háðuin stjórnmálaflokk ■
ttm, svo sem Curzon lávarður,
Lewis Harcourt nýlenduráögjafi,
I/Oreburn lávaröur og skáldkonan
M.rs. Humphrey Ward. — A.stqtpith
stjórn n er sem kunnugt er klofin
í þessu máli ; er Asq.uith sjálfur
og riimur helmingur ráðgjafanna
andvfgur því, að konur fái jafn-
rétti ; en Lloyd George, Winston
Churchill, Sir Edward Grey og
Ilaldane lávarður eru því fylgj-
andi. Má því búast við, að allmik-
ill hiti verði í mörgitm, þegar
frumvarp S kemur fyrir þingið.
— Borgin Houston í Texas varð
fyrir skaða miklum gf eldsvoða
fyrra miðvikudag. Brann austur-
hluti borgarinnar að mestu, og
er tjónið talið nema rúmum sex
milíónum dollars. Margar þúsund-
ir manna stóðu uppi hcimilis- og
bjargarlausar, cn rö.ggsamlega hef-
ir verið gengið fram í því, að
hjálpa hinttm nauðstöddtt. Fimm
manns mistu lífið í eldinum, og
fjöldi hlaut slæm brunasár. Tíu
verksmiðjur og tvö hótel brunnu.
— |>að borgar sig að vera pré-
dikari í Bandarikjunum. Prcstling-
ttr einn, William Sunday að nafni,
i borginni Canton, Ohio, hóf ný-
veriö samskotasöfnun ; átti að
verja fénu til að byggja björgunar-
heimili fyrir villuráfandi stúlkur.
Gekk klerki fjársöfnunin vel, og á
sex vikum hafði hann safnað rúm-
ttm tólf þúsund dölum, víösvegar:
í búðum, verksmiðjum og við
bænasamkomur. En alt í einu
hverfur klerkur og peningarntr, og
hefir til hvorugs spurst síÖan.
— Fréttir frá St. Pétursborg
segja, að 164 menn hafi orðið úti
og frosið til dauöa í héraðinu
Omsk í Síberíu núna fyrir nokkr-
um dögum.
— Theodore Rooseúelt hefir nú
lýst því yfir opinberlega, að hann
verði við himim mörgu áskorun-
tim og sæki um forsetaefnis út-
nefnirt,guna fyrir Repúblikan flokk-
inn. Tekur hann það fram, að það
sé ekki sin eigin lönguti,, sem hér
r.áði, heldttr sé það skyldan, að
verða við kalli þjóðarinnar. Menn
höfSu búist við, að Roosevelt
myndi gefa kost á sér, eins og nú
er komið á daginn, og víðsvegar
um Bandaríkin hafa félög mynd-
ast, sem vinna aS útnefningu hans
AS Roosevelt veröur í kjöri til út-
nefningar, skaSar La Follettc -r kiy
mikið, því margir af hans beztu
styrktarmönnum, svo sem Hiram
Johnson, ríkisstjórinn í Californíu,
hafa nú gengiS undir merki 7>oose-
velts. Stefna þeirra La Follettes
j kg Roosevelts er því nær hin sama
STÓRIR OG
SMAIR.
Gamlir og ungir, ríkir og fá-
tækir—Hlustið !—
Éf þér viljið vita leyndartlðminn
til pe8s að gera betra brauð
og kilkur, pies, sm&bakningar __________________
búðinga og um leið gera þetta hollara og yður ódýrara. Biðjið
matsalan ætið um
Royal Household Flour
MALAÐ í CANADA STÆRSTU MYLNUEIGENDIR
í BREZKA RÍKINU.
og þar sem álit margra or, aS
Rooscvelt hafi. meiri lýðhylli að
fagna, þá álí ta þeir réttara aö
fylkja sér um hann. Engu að síSur
heldur La Follette áfram barátt-
unni, og neitar algerlega að draga
sig í hlé, þó fram á það hafi vorið
farið af hans eigin fylgismönnum,
því þeir óttast, aS skiftist atkvæði
hinna frjálslyndu Repúblikana á
milli hans og Roosevelts, þá verði
þaS til þess, að Taft nái útnefn-
ingu. HvaS Taft viövíkur, þá er
hann vongóður um aS verða fyrir
kjörinu, enda sækir hann það af
kappi. Eru fundir í hans þágu
I haldnir viðsvegar um öll ríkin, þar
sem hann sjálfur eða ráögjafar
lians tala, og af ríkjum þeim, sem
. þegar hafa kosið fulltrúa á út-
1 nefningarfund Repúblikana, hafa
flest kjörið Tafts menn.
— Dómur er nýverið fallinn fyr-
ir ‘‘Privy Coiincil" Breta, í tnál-
inu, sem Winnipeg borg hafði höfð-
j að gegn Winnipeg sporbrauta og
■ raflýsingafélagimt. Ileimtaði borg-
■ in, að félagið tæki á burtu alla þá
staura á strætum borgarinnar cg
ljósvíra aðra en þá, sem stæðu i
sambandi við vagnana, því íélagið
hefði enga lagaheimild fvrir öðrti.
Yfirréttur Manitoba feldi dóm
I borginni í vil, og bjuggust menn
I við að l‘Privy Council” mvndi
verða sömu skoðunar, en það varð
ekki. Dómur þessi gengur alger-
■ lega félaginu í vil, og á borgin
þess utan að borga gífurlegan
málskostnað. Meö þessum dóms-
ttrskurði er það ótvíræSlega viðttr-
kent, að prívat félög hafa fullan
rétt til aS keppa viS hiS opinbcra
t stárfrækshi fyrirtækja, og er þaS
harður skellur fy'rir þjóSeignar-
stefnuna.
— Fylkisþingið í British Colum-
bia heíir vcrið rofið og nýjar kosn-
ingar eiga fram að fara 28. marz.
Svo gersamlega eru I/iberalar von-
! lausir um að vinna nokkuð á, að
j aðalhlað þeirra í Vancouver legg-
ur til, að flokkurinn hafi ckkert
þingmannsefni í kjöri. Á s’ðasta
l þingi átti einn Liberal sæti og j
j tveir Jafnaðaæmenn, hitt alt Con- |
! servativar. McBride stjórn n er því
eins örtigg í sessinum, sem fram-
ast getur verið, enda hefir hún
revnst frábær að dugnaði.
— Gull hefir fundist nálægt
Cochrane, Alberta, í fjöllunum
kringum Ghost Creek, og er þegar
straumur af fólki þangaö aS festa
sér námalóöir. Náma-sérfræðingar
álíta mikið af gulli þar í jörðu.
Til skýringar.
118 Emily Street, Winnipeg
26. iebr. 1912.
Háttvirti herra ritstjóri!
Seim svar upp á grein þá, sem
birtist i síöasta blaöi Heims-
kringlu viSvíklandi fjarv.eru minni
frá þorrablóts-samkomunni og
Borgfirðinga-mótinu, vil ég hér
taka það fram, að þótt ég hafi
tekið á móti heimboði til beggja
samkomanna, og gengið að því,
þegar mér var boðið, aS syngja
eða spila eitthvað, þá hvorki vissi
ég íyrirfram, og heldur ekki var
mér gerð nein grein fyrir því, að
þorrabiotið vrði mestmegnts dans-
samkoma, eða að á Borgfirðinga-
mótinu yrði langt músikalst pró-
gram, sem mér var ætlað aö taka
þátt í ; ekki heldur var mér gerð
nein grein fyrir því, aS það mundi
verða auglýst í hlaði og auglýs-
ingu, að ég mundi skemta mönn-
um með söng og hljóðfæraslætti á
þessum samkomum. Ilvorttveggja
var gert án míns vilja og sam-
þykkis.
það heföi verið miklu kurteis-
ara, ef höfundur greinarinnar hefði
fyrst grenslast eftir, af hverri á-
stæðu ég kom ekki á þessar sam-
komur, áötir en hann skrifaði
hana, því hi'tn lýsir illa hugsunar-
hætti góðs Islendings.
Virðingarfylst,
Sv. Sveinbjömsson.
Ný Tjaldbúðarkirkja.
þann 20. þ. m. var á safnaðar-
fundi TjaldbúSarinnar rætt tilboð,
sem herra J. T. Bergmann hafSi
gert söfnuðinum um, að byggja
nýja, veglega kirkju yfir hann; var
máli því frestað, þar til á safnaÖ-
j arfundi, sem haldinn var í fjrrra-
kveld. þar var mál þetta ítarlega
j yfirfariS, og aS lokum samþykt
með stórum meirihluta atkvæSa,
j að láta byggja kirkjuna og að
j byrja nú þegar á því verki. Kirkj-
an á að standa á Victor stræti
vestan%ærðu, 200 fetum suSur frá
Sargent Ave., og vera svo stór,
aS 800 til þúsund manns komist
i þar fyTÍr. ÁætlaS verS þessarar
íeignar er um 50 þús. dollars.
VEGGLIM
Patent hardwall
vegglím (Empire
tegundin) gert úr
Gips, £erir betra
vegglím en nokk-
urt annað vegg-
líms efni eða svo
nefnt vegglíms-
ígildi. : :
PLÁSTER BOARD
ELDVARNAR-
VEGOLÍMS
RIMLAR oq
HLJÓDDE YFIR.
Manitoba Gypsum
Company, Limited
WHNIPEW