Heimskringla - 15.08.1912, Blaðsíða 5

Heimskringla - 15.08.1912, Blaðsíða 5
HEIMSK5.INGLA WINNIPEG, 15. AGTjST 1912. 5. BLS, Hástígs tugga fyrir þá sem kretiast betra en vanalega gerist. uEmpire Navy Cut” er sérlega ágætt munn- tóbak—hreint, smekk- gott og varanlegt. YÖur mun áreiðanlega geðjast aö “ Empire Navy Pliig” ALLIK GÓDIR VEKZLARAR HAFA ÞAÐ — BIÐ.HU YÐAR. íslands fréttir. — Rannsókn gjaldkeramálsins er nú lokið. Rannsóknardómarinn M. Guðmundsson skilaði henni stjórn- arráðinu í hendur fyrir skömmu. A það síðan að ákveða, hvort höfða skuli sakamál gegn gjaldkera. Bú- ast má við, ef að vanda lætur, að stj. hraði sér ekki mjög í málinu. Og ætti það ekki að þurfa að hugsa sig lengi um, svo kunnugt var það orðið málavöxtum í vet- ur, sællar minningar. Nú er það líka orðið lýðum ljóst, að þetta mál á ekki heima nema á einum stað : fyrir dómstólunum. þang- að á það að komast sem fyrst til endilegra úrslita. En ætlar stjórn- arráðið að láta þá hneysu haldast að gjaldkerinn (H.J.) sitji á “hálf- um launum’’? Hve lengi? Er ekki kominn tími til, að gefa honum fullnaðarlausn frá “embættinu" ? Ganga má að því vísu, að herra Magnúsi Guðmundssyni verði falið að dæma málið. Væri og annað hugsandi ? En ekki væri nema rétt að annar yrði skipaður til með- dóms honum. — Sá er nú orðinn fyrsti árang- ur af þvi, að Ingólfur gerði mann- skaðann á “Geir” að umtalsefni, að stjórnarráðið hefir fyrirskipað rannsókú í málinu. það er gott og blessað. En alt er undir því kom- ið, hvernig rannsakað er. Hefir bæjarfógetanum hér í Kvík verið falið, að vfirheyra skoðunarmenn- ina hér m.m., — en í Hafnarfirði er sagt að sýslumaður þar eigi að rannsaka málið, og stappar það nærri þvi ótrúlegasta, þar sem jhann, eins og kunnugt er, lög- ! skráði mennina á þetta skip, og j spurningin p-æti verið um, hvort hann hefir þar gætt þeirrar eftir- jlitssemi, sem honum bar. I mál sem þessi á að skipa sérstakan | rannsóknardómara ; annað hlýðir ekki. | — Nýlega féll dómur í meiðyrða- máli, er A. J. Johnson bankaritari höfðaði gegn þorsteini Gíslasyni , rits-tj. Lögréttu. Var þorsteinn . dæmdur í 30 kr. sekt og 25 króna ; málskostnað, og meiðyrðin dauð og ómerk. — Stjórnarráðið hefir vikið Gísla sýslumanni ísleifssyni frá embætti um stundarsakir vegna vanskila ! til landssjóðs. Björn þórðarson lögfr. er settur til þess að gegna sýslumannsstörfum fyrst um sinn. — Menn eru orðnir hræddir um i þilskipið ‘Síldin’ frá Isafirði. Á því ! voru 14 menn, ílestir úr Dýrafirði. | — Embættispróf í læknisfræði hefir Björgólfur Olafsson nýlega tekið í Kaupmannahöfn og fékk II. eink. betri. i — Klemens Jónsson landritara hefir þýzkalandskeisari gert að riddara krónuorðunnar þýzku 2. flokks, en Danakonungur leyfthon- um að bera hana. Mentunarástandið í Canada. í landi, sem margir þjóðflokkar á mismunandi mentastigi byggja, sem hér í Canada, hlýtur mentun- arástandið að vera breytilegt, og yfirleitt lakara en i þeim löndum, sem bygð eru einni þjóð, er þar hefir verið öld íratn af öld og náð góðum og jöfnum mentunarþroska Sem vér vitum, er alþýðument- un á hærra stigi hjá þjóðum þeim, sem eru mótmælendatrúar, en hjá þeim katólsku, — að vér sleppum Múhameðstrúar mönnum alger- lega. Nú vill svo til, að nær helming- ur allra Canada búa, eða 41 pró- cent, eru katólskrar trúar, og verður því að álita, að mentunar- ástandið sé ekki á jafn háu stigi | yfirleitt, og ef mótmælendur væru ráðandi trúílokkurinn. þó er nú svo, að 75 prócent af öllum land§lýð, að fráskyldum börnum undir 5 ára aldri, er læs og skrifandi, og má það teljast furðu gott. Vér megum ekki gleyma, að hingað til lands koma árlega þúsundir manna frá Riiss- landi, Galiciu og öðrum þeim löndum, þar sem alþýðumentunin er á frámunalega lágu stigi, og sem hvorki kunna að lesa né skrifa. Yfirvöld þessa lands geta ekki mentað þá, sem hingað koma fullorðnir, en það eru börnin þeirra, hin uppvaxandi kynslóð, sem þau geta mentað, og gera vel og rækilega. Canada hefir nú 1,197,630 nem- endur á skólum sínum og 34,000 kennara ; svo að berlega sést, að meining og vilji stjórnarvaldanna er að uppfræða hina ungu kynslóð og koma Canada þjóðinni á sem hæst mentunarstig. Hér í Canada eru nú 14 háskól- ar, 108 listaskólar (academies), 4 landbúnaðar háskólar, 82 latínu- skólar, 20 verzlunarskólar, 42 kennaraskólar, 98 gagnfræðaskól- ar, 20 kvennaskólar, 16,490 al- þýðuskólar, 35 prívat skólar, 4 lvfjafræðisskólar, 15 prestaskólar, 10 iðnskólar, 2 Indiána skólar, og ídl-niargir sérfræðiskólar. Af þessu má sjá, að ekki er hörgull á skól- unum. A síðasta skólaári (1911—12) var nemendafjöldinn við helztu há- skóla landsins sem fylgir : Við Toronto háskólann 4,100 (hér með taldir nemendur Victoria og Trin- ity Colleges) ; McGill háskólann 2,188 ; Queen’s háskólann í King- ston 1,489 ; Ottawa háskólann 720; Manitoba háskólann 623, og rúmt þúsund samtals við hina aðra há- skóla landsins ; þar af 152 við Sas- katchewan háskólann og 180 við Alberta háskólann. Kjirkjurnar hér í landi hafa mik- ið að segja yfir skólunum, sérstak- lega þó æðri skólunum, og eru flestir þeirra eign einhvers trúar- bragðaflokks. Rómversk katólska kirkjan, sem voldugust er hér í landi, á 72 háskóla og latínuskóla, og þess utan 13 af hinum 15 prestaskólum landsins. Auk þess á hún 327 líknarstofnanir, sem ílestar eru jafnframt skólar. Metódistar og Presbyteríanar eiga og marga af æðri skólum landsins. Um 9,000 sunnudagaskólar eru víösvegar um landið, og allir í sambandi við kirkjurnar ; eru á þeim sem næst milíón nemendur og 100,000 kennarar. Aðallega kenna þeir andleg fræði, því barna- skólarnir, sem eru undir umsjón liins opinbera kenna engin trúar- brögð. Eftir nýjustu skýíslum eru hin ýmsu fylki þannig skipuð skólum og kennurum (sunnudagaskólum slept) : í Quebec fylki 6,760 skólar, æðri og lægri, með 486,568 nemendum og 14,000 kennurum, og eru 5,805 þeirra andlegrar stéttarinnar, en að eins 195 leikmenn, 6991 eru kvenkennarar , og er rúmur helm- ingur þeirra nunnur. 1 Ontario eru 6,825 skólar, æðri og lægri, með 8586 kennurum og 508,563 nemendum. í Nova Scotia eru 2,639 barna- skólar, með 102,910 nemendum og 2,799 kennurum. í New Brunswick 2,324 barna- skólar, með 92,354 nemendum og 2,516 kennurum. 1 Prince Edward Island 478 barnaskólar, 591 kennarar ; þar af 381 kvenmenn, og 17,932 nem- endur. 1 Manitoba eru 1,551 skólaum- dæmi, með 2,774 kennurum ; þar af 2,153 kvenmenn, nemendafjöld- inn 76,247. í Saskatchewan 1,912 barna- skólar ; 2,207 kennarar og 63,964 nemendur. í Alberta 1,436 barnaskólar, 1,916 kennarar og 58,214 nemend- ur. 1 British Columbia eru 724 skól- ar, æðri og lægri, með 39,822 nem- endum og 1,037 kennurum, þar af 749 kvenmenn. Mentunarástandið i hinum ýmsu fvlkjum er mismunandi, og stendur Quebec, þar sem katólskir eru yfirgnæfandi, á lægra menn- ingarstigi en hin fylkin, og sýna skýrslurnar, að þar eru fleiri menn, sem hvorki kunna að lesa né skrifa, en i öllum hinum fj'lkj- uniim til samans ; en aftur eru og tnargir hámentuðustu menn þessa lands í Quebec fylki. Mentamál þessa lands eru örðug viðfangs, vegna þess, hve margir óskyldir þjóðflokkar hafa tekið sér bólfestu, og eru að koma ár eftir ár. Flestar fjölskyldur, sem hing- að til landsins koma og ekki eru enskumælandi, hafa með sér börn á ýmsum aldri. þegar svo börn þessi eiga að fara að ganga á skóla kunna þau því nær ekkert í málinu og gengur því námið ifla, osr oft vilja nýkomnar fjölskyldur alls ekki senda börn sín á skóla. Örðugleikarnir eru því miklir, að fá hinar lítilsigldari aðkomuþjóðir til að færa sér í nvt mentun þá og fræðslu, sem landið býður þessum fósturbörnum sínum. Samt sem áður fer þetta alt af batnandi, — ekki sízt síðan að stjórnirnar komu því svo fyrir, að efnileg efnileg tingmenni af þessum ver mentuðu þjóðflokkum fengu sér- mentun, og síöan fengin til að uppfræða börn og ungmenni sam- landa sinna. Með þessu móti geta börn nvkomin hingað frá Galicíu eða Rússlandi fengið strax tilsögn í ensku og öðrum fræðum, sem verður þeim góð undirstaða síðar í lifinu. Stjórnarvöldum þessa lands er mjög umhugað um. að ala hér upp mentaða og sjálfstæða þjóð, og það varðar .mestu, að undir- staðan rétt sé fundin. Rússar, Norðmenn, Frakkar, Bretar, Gal- iciumenn, Gyðingar, ítalir og Is- lendingar eru bitarnir í hinum mikla bræðslupotti, sem bræðir hin óskyldu efni saman í eina þjóðarheild, og þessi heild verður hin canadiska þjóð. Upp af öllum hinum mörgu aðkomuþjóðflokka- brotum rís ein voldug og samhuga þjóð, þjóð, sem hefir eitt óskift ættarland, Canada. Slík er stefna stjórnarvalda þessa lands, og hún er nauðsynleg fyrir framtíðarheill landsins og þjóðmyndun, og skapast bezt með mentuninni. Mentunarástandið í Canada er í góðu horfi ; æðri mentun í bezta lagi og alþýðumentunin fer batn- andi með ári hverju. Yiðleitni yfir- valdanna er að bera góðan ávöxt, og áður en mörg árin líða verður hér í Canada mentuð og sjálfstæð þjóð, frjáls þjóð í frjálsu landi, — einhuga þjóð, með eitt óskift ætt- arland — Canada. Fréttir. — Frétt frá Tyrklandi 9. þ. m. segir jarðskjálfta hafa gereytt bæj- unum Tchanak og Kalessi. Fjöldi manna létu þar lífið og aðrir^töp- uðu aleigu sinni og heimilum, og mesti fjöldi fólks meiddist. — Ann- ar jarðskjálfti varð þann 10. þ.m., en vægari miklu. Mestar urðu skemdirnar á svæðinu um 150 míl- ur suður frá Constantinopel. þ>ar var sendiherra stöð Grikklands og sagt hún hafi hrunið til grunna. Fréttasamband við Constantinopel slitnaði. Fjöldi hinna særðu hefir verið fluttur þangað til borgarinn- ar til læknijga á sjúkrahúsum. — Annars eru fregnir um slys þetta ennþá ónákvæmar, en sagt að fjöldi bæja hafi skemst mjög mik- ið í jarðskjálftunum og margt manna farist. — Forseti svertingja lýðveldis- ins á eyjunni Hayti var brendur inni í höll sinni 8. þ.m. Óvinir hans höfðu lagt eld í púður forða- búrið, og olli það slíkri spreng- ineu, að öll höfuöborgin, Port-au- Prince, lék á reiðiskjálfi, og örg hús skemdust, en í forsetahöllinni kviknaði, en forsetafjölskyldan, að forsetamun sjálfum undanskildum, tókst að ná þtgöngu við illan leik. Forsetinn, Leconte, svaf vær- an og fórst i brunanum. óeirðir miklar höfðu verið á eynni stuttu áður, og hafði forsetanum tekist, að bæla þær niður með o-rimd mik- illi, og látið drepa hél/.tu forgöngu mennina ; nú kom hefndin. Sjálfur hafði Leconte brotist til valda og rekið þáverandi forseta, Antoine Simon, úr landi. Áður hafði og Simon brotist til valda á sama hátt. Síðan hefir hann komið á fót hverri uppreistinni af annari gegn Leconte, en beðið legri hluta bar til nú. Margir menn hafa ver- ið teknir fastir, grunaðir um, að vera valdir að forsetamorðinu. — T,ingið kaus samdægurs Tancrede Auguste hershöfðingja fvrir for- seta ; var hann hermálaráðgj fi áður. Allir hafa foi’setarnir verið kynblendingar. Nú er Simon fvrv. forseti, að undirbúa eina uppreist- ina enn ; situr hann í eyjunni Jam- aica og dregur að sér lið Op- er að útbúa skip í mesta ákafa, er flytja á hann og liðið yfir í HajAi, og þar býst hann við miklum liðs- stvrk. — Pólitíkin á Hayti hefir síðan lýðveldið komst á fót verið eintóm óöld, og þeir menn, sem forsetatigninni hafa náð, hafa ein- göngu hugsað um, að auðga sjálfa sig og ryðja mótstöðumönnum sinum úr vegi. Minnihluta stjórn- málamenn þar eiga gálgan vísan, þegar minst varir. — Á Hayti eru mestmegnis svertingjar, en þó nokkuð af hvítum kaupmönnum og fjárhyggjumönnum ; en þeir skifta sér ekkert af pólitikinni og eru óhultir undir vernd sinna sinna ríkja. Ekkert ríki vill hafa Hayti fvrir nýlendu, þó eyjan sé all-frjósöm, því eyjarskeggjar eru svo illa séðir þegnar af öllum. — Tala Goodtemplara í undir- stúkum. á íslandi var 1. febrúar í vetur 3,272 ; þar af 1,265 karlar, 1,564 kvenmenn og 443 ungmenni. Lang-fjölmennasta stúka landsins er Einingin í Revkjavík (212 fél.); þar næst st. Verðandi (155 fiél.). — Tala stúkna á landinu er alls 80 ; meðaltal félaga því rúm 40. Agrip af reglugjörð <tm heimilisréttarlönd í C a n a d a Norðvesturlandinu. Sérhver manneskja, sem fjöl- skyldu hefir fyrir að sjá, og sér» hver karlmaður, sem orðinu er 13 ára, hefir heimilisrétt til fjórðungs úr ‘section’ af óteknu stjórnarlandi í Manitoba, Saskatcliewan og AI- berta. Umsækjandiun verður sjálf- ur að koma á landskrifstofu stjórn arinnar eða undirskrifstofu í því héraði. Samkvæmt umboði og með sérstökum skilyrðum má faðir, móðir, sonur, dóttir, bróðir eða systir umsækjandans sækja um landið fyrir haus höud á hvaða skrifstolu sun er. S k y 1 d u r. — Sex mánaða á- búð á ári og ræktun á landinu í þrjú ár. Landnemi má þó búa á landi innan 9 milna frá heimilis- réttarlandinu, og ekki er minna en 80 ekrur og er eignar og ábúðar- jörð hans, eða föður, móður, son- ar, dóttur bróður eða systur hanæ I vissum héruðum hefir landnem- inn, sem fullnægt hefir landtöku skyldum sínum, forkaupsrétt (pre- emption) að sectionarfjórðungi á- föstum við land sitt. Verð $3.00 ekran. S k v 1 d u r : — Verftur að sitja 6 mánuði af ári á landinu f 6 ár frá þvi er heimilisréttarlandið var tekið (að þeim tima meðtöld- um, er til þess þarf að ná eignar- bréfi á heimilisréttarlandinu), og 50 ekrur verður að yrkja auk- reitis. Landtökumaður, sem hcfir þegar notað heimilisrétt sinn og getur ekki náð f"rkaupsretti (pre-emtion á landi, getur kevpt heimilisréttar- land i sérstökum heruftum Verð $3.00 ekran. Skv dtir Verðift að sitja 6 mánuði á landinu é ári f þrjú ár og rækta 50 ekrur, reisa hús, $3u0.00 virfti. W W. C O R Y, Deputv Minister o» the lnterior. 48 Sögusafn Heimskringlu hélt hún áfram á sinn vana hátt. ‘Margir menn hafa komist í basl og bágindi og orðið miklir menn síðar meir fyrir því. Ef þú að öðru leyti ert virðingar- verður maður, gerir þér þetta ekkert til. Nú skul- um við reyiia að koina þér á fætur’. ‘Eg hefi legið á spítala í sex vikur’, mælti han|i lágt, ‘og hefi komið — —’ ‘Já, ég sé að þú hefir verið veikur’, greip hún fram i, ‘cn hvaðan þú kemiir og hvert þú ætlar, þurf- um við ekki að vita. J>ú verður í nótt á herra- g^rðinum. Hvíld er þér efns nauðsynlev og fæða ; á morgun sjáum við til. Nú, upp með þig ; látum okkur reyna’. Hún tók um annan handle(g>g hans og hr. Markús um hinn ; maðurinn reis á fætur, en var of máttfar- inn til að geta gengið einn, svo þau leiddu hann á milli sín ; en auðséð var á honp|m, að hann fann sáran til eymdar sinnar. Völlurinn fyrir fram’an herragarðinn hafði verið sleginn. Ejj&ylykt lagði um loftið og tvær stúlkur voru þar við rakstur. Stúlkurnar litu upp og horfðu undrandi á þrí- menninijana, er smáfærðust nær, og Lovísa, er stóð við hKðið í ljósrauðum kjól með hvíta svuntu, kom hlaupandi á móti þeim, svo hart, að gulu flétturnar fleyigðust til á baki hennar. “Hefir liann meitt sig, mamma?” spurði hún og leit með meðaumktin til ókunna mannsins. Aftur roðnaði hann og reyndi að standa upprétt- ur, en árangurslaust. Frú Griebel kallaði til annarar vinnukonunnar að koma og styðja manninn, svo hún sjálf gæti kom- ist inn og tekið sitthvað til handa honum. Stúlkan kom, en muldraði í barm sér, að engin húsmóðir liefði nokkru sinni skipað sér, að taka betlara upp af veginum eða leiða fullan mann heim ; hún kvaðst Bróðurdóttir amtmannsins 49 vera í hreinum fötum Qg ekki kæra sig um óhreinka þau. Ókunni maðurinn stundi þungan. þegar Lovísa heyrði þetta, bauðst hún^strax til að hjálpa til. ‘Farðu, smásmílðið þitt’, sagði arnma hennar hlæjandi um leið og hún leit hýrt á hið mjúka en granna vaxtarlag einkabarnsins síns. ‘Eins og þú gætir það með brúðuh^ndleggina ; það ’væri eins og lítill rauðfugl kæmi hoppandi. Flýttu þér heldur inn í húsið og láttu súpupottinn á eldinn og hreinar rekkjuvoðir í eitt piltarúmið. ‘Við þig þarf ég að tala’, kallaði hún til stúlkunnar, er áður var getið, og sem tekið hafði upp húfu sína. ‘Að fjórum vik- um liðnum fer þú burtu frá Ilirschwinkel. Nú veiztu það! ’ Eftir hálftima var búið að koma ókunna mann- inum ofan í gott rúm. Glugginn á vinnumannaher- beiiginu, er var niðri í húsinu, var stór og bjartur, og perutrén í garðinum fvrir utan teygðu greinarnar upp með rúðunum. Kveldgolan þaut eftir trjátopp- unum og andaði angandi grasilm inn í litla, skemti- lega herbergið. Kalkúnarnir voru gengnir til hvíld- ar, en á vegg, er aðskildi hænsnagaröinn frá húsa- garðinum, sat hvitur köttur. þetta kveld tók hr. Marktis í fvrstá skifti lykl- ana út úr skáp, er stóð í stóra bogaglugganum, og opnaði með þeint vínkjallara gömlu skógvarðarekkj- unnar ; hann tók þaðan eina flösku af víni því, er ætlað var einungis handa veikum. ókunni maðurinn hafði étið sijr saddan og drakk nú líka dálítið af Madeira víni, en ekki mælti hann orð frá munni. það var sem örvænting hans kæmi enn betur í ljós, eftir að hann hafði-nærst og kraft- arnir aukist ; hann leit löngunar-augum til hins opna glugga, svo hr. Markús hugsaði með sjálfum | 50 S ö g u s a f n H’eimskringlu sér, að það fyrsta, er vesalings maðurinn gerði, eftir I að hafa hvílt sig, yrði að hlaupa út um g'luggann og koma aldrei aftur, svo hann og hans aumingjaskap- ; ur gleymdist sem fyrst. En litlu síðar hafði þreytan j'firstígið hann, og | sofnaði hann fast og rólega. Hr. Markús gekk burtu og út í garðhúsið,. þar sem frú Griebel haföi borið I kveldmatinn á borð handa honum. Hann borðaði ; lítið, en hugsaði með gremju til nýja brauðsins, er yrði nú á borði skógvarðarins í Grafenholz. Ilann j dáðist að, hve innilega fólk þetta annaðist hvað ann- j að. Frú Griebel var góð kona, með hjartað á r.étt- j um stað, en úr hans eigin vasa var borgað fvrir sil- j unginn og kartöflurnar. Malarinn hafði eigi gefið honum silunginn af ást til hans, og því síður kast- alavörðurinn kartöflurnar. Eins og til að bæta enn meira á gremju hans at- ; vikaðist það svo.J að vinnukonurnar voru að raka í j garðinum rétt undir glugganum, og létu þær munn- j inn ganga hvor í kapp við aiSra. ‘það gerir ekkert til, mér er alveg sama, þó hús- móðirin skipaði mér í burtu’, sagði önnur þeirra. ! Jafndugleg stúlka og ésg er, getur fengið vinnu hvar ! sem er’. ‘Ekki um þetta leyti’, mælti hin ; ‘nú er hvergi laus staður í allri Tilroda. það getur skeð, að þú j verðir að gera þér að góðu, að fara til fólks, sem er j eins og það i hjáleigunni : Vinna baki brotnu frá | morgni til kvelds og. fá engan eyrir í kaup’. I ‘Ó, vitleysa! Sú, sem er þar núna, hefir það á- j gætt. Skógvörðurinn hjálpar henni nær sem hann getur. Ilún má hlæja, og ég er viss um að hún fær kaup, því’ alt af er hún í beztu leðurstígvélum. — það hefi ég getað séð, þó hún forðist okkur sem heit- an eldinn’. ‘Já, hún er æöi sjálfbyrgingsleg’, mælti hin. ‘það Bróðurdóttir amtmannsins 51 verður gaman að sjá, hvernig hún verður, þegar hún er sezt að í Grafenholí. Hún er ga'fusöm, — jafn- mikiö i staðinn fyrir ekkert, og því líkt heimili . ‘Mér er satna. I'( að varðar mig um alt þetta úr þvi ég hefi einu sinni yfirgefið Hirschwinkel ? En ég er alveg forviða á húsmóðurinni. Flún kemur heim með flakkara, sem hiin fi.nnur á veginum, hátt- ar hann ofan í rtim eins og barn, og* gefur honum bezta vínið, sem til er í kjallaranum. Auðvitað leyf- ir húsbóndinn það. það er alt saman bandvitlaust, fólkið hérna. Við fáum verstu skammir, ef við skilj- um eftir opna hurð, — af hræðslu við þjófa ; en svo leiðir það sjálft inn ræfla, er enginn veit deili á. Eg skyldi deyja af hlátri, ef hann tæki eitthvað í vasa sinn á morgun tim leið Og hann fer. Rg vildi ekki vinna það fvrir t u dollara, að missa af þeirri skeimtan’. Herragarðseigandinn skelti alugganum hart aft- ur. Stúlkurnar þögnuðu og flýttu sér svo að raka, eins og þær ættu lífið að leysa. í þessum afkima jarðarinnar, þessu friðsæla öfuiid og illgirni mannanna sjálfra ráðku hann á skóglandi, hafði friðurinn ekki einu sinni friðland, —- burt. 7. KAFLI. Næsta morgun voru allir snemma á fótum á herragarðinum. Hr. Markús leit út unt gluggann, og sá Lovísu í grasinu fyrir framan húsið. Hún var í ljósleitum morgunkjól, og falleg hvít blæja hélt rnikla hárinu hennar saman. Htin var að gá að einhverju því hún leitaði vand-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.