Heimskringla - 27.11.1913, Side 7
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 27. N6V. 1913. 7 BLS
I kulda, snjó og krapi
Þúiundir manna eru nú þægilega
skóaðir fyrirvont veður í
i$229
Pelivered Free
Allar stæröir fyri” karla, konur,
pilta og stúíkur.
Sama verð
Fóðraðir með þykkum flóka. Biðjið
um þá. Ef kaupmaðurinn þinn heflr
þá ekki, þá skrifið oss.
THE SCOTTISH WHOLESALE
SPECIALTY CO.
2fi3Talbo(AycWin nijeg
eða smásölubúð vorri 306 Notre
Dame Ave. (2 mínutur frá Eaton)
::Sherwin - Williams::
• • •
P
AINT
fyrir alskonar
húsmálningu.
^ Prýðingar-tfmi n&lgast nú. '*
• • Dálftið af Sherwin-Williams ::
*: húsmáli getur prýtt húsið yð- • •
.. ar utan og innan. — Brúkið
+ ekker annað mál en þetta. — • •
»• S.-W. húsmálið málar mest, J
JJI endist lengur, og er áferðar- l’.
.. fegurra en nokkurt annað hús • •
" • mál sem búið er til. — Komið
,: inn og skoðið litarspjaldið.— ••
| CAMERON & CARSCADDEN $
QUALITY UARDWARE
::Wynyard, - Sask. ••
GIMLI HOTEL
fast við vagnstöðina
reiðubúið að taka á móti gest-
um allan tíma sólarhringsins
Keyrsla um allar áttir frá hó-
telinu.
$1,00 á dag
J. J. SÓLMUNDSSON, eigandi
TIL SÖLU
Pool Room í Piney-bæ, Man.
að stærð 16x20, með byggingu
áfastri að baka til 42x16 ft. Bygt
er undir suðurhlið hússins alla
lengd 12 feta breiður “Shanty”.
Byggtngin því alls 28x32 fet.
Pylgir talsvert af vörum, tóbaki,
svaladrykkjum og fl. 1 pool borð
með öllu tilheyrandi Gott tækifæri
fyrir skeggrakara eða greiðasala.
Lot 32x208 ft.
Ég sel alt á $800, þriðji niður-
horgun.
Sé alt greitt út um leið og kaup
eru gerð gef 6g 10 per cent afslátt.
S. A. Anderson.
Piney . Man.
™ D0MINI0N BANK
Uornl Notre Dame og Sherbrooke Str.
Höfuðstóll uppb. $4,700,000.00
Varasjóður - - $5,700,00600
Allar eignir - . $70,000,000.00
Vér óskum eftir viðskiftumverz-
lunar manna °g ábyrgumst afi gefa
peim fullnaBgju. 5parisjóðsdeild vor
uTn , , s*;8ers*'a 86111 nokkur banki
hefar í borginni.
íbúendur þessa hluta borgarinn-
ar óska að skifta vid stofnun sem
Þeir vita ad er algerlega t.rygg.
Nafn vort er fulltrygging óhult.
Byrjið spari innlngg fyrir
sjálfa yður, konu yðarog börn.
C- M. DENIS0N, ráðsmaður.
Phone Larry 3 4 5 O
Fréttabréf.
TINEY, MAN.
9. nóv. 1913.
Ritstjóri Hþitnskringltt.
Elg lofaöi þér síðast, er við sá
umst að ég skyldi senda blaðinu
Heimskringlu, sem þú ert ritstjóri
að, svona aí og til nokkrar línur,
og er þetta, sem hér íer á eftir,
bvrjunin.
þetta ár 1913 hefir verið það
bezta ár meö alla nýting á öllum
jarðargróðri, sem við hér l’itiey-
búar höfum af að segja síðan ég
kom hér 1902. Grasvöxtur svona
í meðallagi,- nýting fyrirtaksgóð,
°g garðávextir í bezta lagi ; þetta
40—50 busli. af ekru af höfrum, og
allar aðrar korntegundir hlutfalls-
lega að salna skapi að vöxtum af
hverri ekru.
En því miður stunda hændur
hér í hessari bygð alt of lítið
jarðrækt. Aðallega er það korö-
viður, sem menn treysta á ; en sú
verzlunarvara hefir ekki borgað
sig vel þetta ár, sem er að líöa :
lágt verð, og svo sem verst var,
enginn til að kaupa, og svo þó
sala liafi fengist fyrir vagnhlass af
við, þá hafa menn ekki getað feng-
ið ilutning, nema með höppum og
glöppum, svo að sá sem pantaði
viðinn, vildi hann ekki fyrir neitt,
þegar loksins var hægt að senda
hann.
En vel að merkja held ég að
þetta sé nú gott fyrir bygð okkar
í íramtíðinni. Menn fara að leggja
meiri rækt við landið, plægja og
sá, og þá eru hændur fyrst á réttri
hillu, sem hændur ; ég get ekki
kallað há hændur, sem lifa “lum-
her jacks” lífi.
Framfarir.
Vegahætur hafa miklar verið
gerðar þetta ár, og er það gott
°g gleöilegt spor í framfaraáttina,
og éif hefi sterka trú og von um,
að þetta sé að eins hyrjun, og að
mikið mcira verði gjört að vega-
bótum næstkamandi ár, en þetta,
sem nú er að líða.
Lönd cru hér óðum að hækka í
verði. T.and, sem seldist næstliöið
vor fyrir $1000.00, var selt um
næstliöin mánaðamót fyrir $1800.
Annað land, sem hoðið var fyrir
ári síðan fyrir $700—$800, seldist á
$1100 ; menn frá St. Paul komu
og keyptu, og höfðn þeir sömu
menn skoðað sig vel um í norður-
hluta Minnesota, í hví augnamiði,
að kaupa þar, og að eins af til-
viljun lent Canada megin við lin-
una. þeir skoðuðu hæði unnið og
óunnið land hér, og virðu hrifnir af
landinu og afstöðu þess. Og hú-
umst vér við, að heill hópur af
mönnum úr þeirra bygðarlögum
komi hingað bráðlega í landkaupa
erindnm.
Nýr póstafgreiðslu-
m a ð u r. 6
Næstliðið vor uröu hér póstaf-
greiðslumanns skiiti. B. G. Thor-
valdsson, sem P. Pálmason setti
sem eftirmann sinn að gegna þeim
störfum, fékk af náð lausn. í hans
stað kom M. Davíðsson, og gegnir
Jón sonur hans öllum póststörfum
mcð stakri skjddurækni.
Heilsfar og félagslíf.
Engir hafa dáið hér í þessari
hygð á þessu ári, sem ég man, og
heilsufar yfirleitt gott, og það ég
bezt til veit, líður öllum löndum,
að minsta kosti, vel ; allflestir
skuldlausir, hafa nóg að bita og
brenna og þurfa ekki að kvíða
kuldanum.
Ekki er hér mikig gjört í félags-
lífinu ; ekkert bókasafn ; að eins
4—6 bændur í fúterskum söínuði,
hafa aldrei fundi og kalla aldrei
prest, og þó prestur komi, er ald-
rei cent fyrirliggjandi til að horga
ferð hans. Og er mín skoðun sú,
að þeim fáu hræðum, sem kalla
sig standa í lúterskum söfnuði hér
í Piney, væri sóma meira að segja
sig með öllu skilda við þetta safn-
aðar-nafn, þar tilveran cr að eins
nafnið otr ekki meir.
Mestur f jöldinn af löndum í þess-
ari bvgð eru frjálsrar skoðunar í
trúarefnum, geta ekki aðhylst
blinda hókstafs kenningu.
Að endingu óska ég af heilum
hug ritstjóra Heimskringlu lukku
og blessunar með hið nýbyrjaða
starf hans, og segi mig skyldugan,
að styrkja og styðja að útbreiðslu
blaðsins í Piney.
S. A. A n d e r s o n.
Páll Sigfússon dáinn.
iEviatriði hans eru þessi : Páll
var fæddur fyrri hluta aprílmán.
1846, í Gilsárvallahjáleigu í Borg-
arfirði í N.-Múlásýslu. Dáinn hjá
Sigfúsi syni sínum 14. nóv. 1913,
að 488 Toronto St.,Winnipeg. Fað-
ir hans var Sigfús Pálsson, ólafs-
sonar. Sá ólafur átti Guðnýju
Stefánsdóttur, ólafssonar prófasts
og skálds í Vallanesi f^’rir konu.
Er sú ætt kttnn. Kona Sigfúsar og
móðir Páls, var Anna Sigríður
Stefánsdóttir. Sigfús sá var að
nokkuru fóstursonur Jóns sterka J
Árnasonar frá ílföfnum, og var vel!
að manni. Páll var Skagfirzkur í
móðurætt. Hann ólst upp hjá for-
eldrum sinum í Gilsárvallahjáleigu
sem var langfeðgaeign. Ilann gift-
ist frænku sinni Guðrúnu Árna-
dóttur, frá sama hæ, árið 1872.
Byrjuðu þau búskap á nefndri jörð
og síðar bjuggu þau að Hvoli og
Kvannstóði í Borgarfirði, og fluttu
þuðan til Kanada 1886 og komu til
Winnipeg 15. júlí samsumars.
PÁLL SIGFÚSSON
Páll bvgði fyrsta húsið á Simcoe
St. hér í borg og bjó þar síðan til
dánardæp-urs.
þau hjón áttu 13 börn, 10 eru
dáin ,en 3 búa í Winnipeg og grend-
inni. það cru : Sigfús Pálsson, 'ex-
pressmaður’, að 488 Toronto St.
(kona hans er Sigríður þórðar-
dóttir undan Ej’jafjöllum) ; Árni
Pálsson, mjólkursafi (kona hans
Margrét Erlendsdóttir úr Biskups-
tunirum), og Anna Pálsdóttir, gift
liér, enskum manni, Th. Cameron.
Páll sál. var góður meðalmaður |
á vöxt og vel að manni, og lag-
legur ttjip á að sjá. Hann var vin-
fastur og viss sem gull, þar sem
hann tók því. En ekki var ltann
allra vinur. En enginn útsláttar-
maður var Páll, en glaður í við-
móti og tali. Naut að eins ferrn-
invartilsagnar á sinni tíð, en var
gefinn fvrir blöð og sögur. Hann
var alla tíð sjálfstæður að efnttm,
op hin síðari ár liaíði hann nægtir-
millum handa. Ifaiin var fjarri því
að láta mikiS á sér hera, eða sýrna
vfiriæti. En þeim, sem verulega
þektu liann, liaut hann álits og
trausts hjá, fyrir festu og reiðu-
legleika. það sýndi sig bezt í bana-
legu hans, að hann hafði ýmsum
veitt liðsinni, því margir heim-
sóttu hann til að kveðja í hinsta
skifti.
Kona hans Guðrún er öldruð og
fötluð, en hefir sæmilega mikil efni
á að taka.
Páll sál. var jarðsunginn frá
Tjaldbúðarkyrkju 17. sarna mán.
af sira Fr. T. Bergmann. Páll hafði
fvlgt þeim söfnuði um mörg ár.
Margt fólk var viðstatt jarðarför
hans.
Friður sé með hinum látna, og
alt hið æðsta og góða veiti hugg-
un O" umsjá hans eftirlifandi konn
og börnttm.
K. Ásg. Benediktsson.
Skyldmenni liins látna hiöja
biðja Austra á Seyðisfirði að taka
ttr-i þessa dánarfregn. K.Á.B.
ISLANDS FRÉTTIR.
Reykjavík, 29. okt.
— þann 26. þ.m. fékk landritari
símskeyti frá ráðherra. Er þá ráð-
herra kominn aítur frá Noregi til
til Khafnar og liefir gert samninga
við Bergensfélagið um skipaferðir
hér við land, eins og ráð var fyrir
gert af alþingi. Segir í skeytinu
að framgengt hafi orðið öllum
breytingartill. nefndaima, nema um
Ölafsvík og Flatey. þó sé enn ó-
útjrjört um Húnaflóa hafnirnar, að
Ilólmuvik undantekinni. Ráðherra
ráðgjörir, að koma heim með
Botníu 4. des.
— í gær byrjaði að koma hér út
nýtt blað, sem “Dagblaðið” heit-
ir. Magnús Gíslason ljósmyndari
er ritstjóri, en útgefandi “Félag í
Reykjavík”. Einnig er sagt, aö lir.
Vilhjálmur Finsen, sem hingað
kom frá útlöndum í liaust, ætli að
fara að gefa út nýtt dagblað, sum-
ir segja í einhverju samhandi við
ísafold. þriðja dagblaðið er hér
fvrir, svo sem kunnugt er, hefir
þegar komið út f nokkur ár og
náð allmiklum vinsældum, en það
er Vísir Einars kand. Gunnarsson-
ar. Fjölgi dagblöðunum svo sem
nú er útlit fyrir, þá vcrður það til
þess, að þau eyðileggja hvert ann-
að. Af útgáfu margra dagblaða
hér í bænum getur ekki orðið á-
góði.
— Einar Jónsson myndhöggvari
ltefir nýlega lokið við mikið og fag-
urt fistaverk. Er það minnisvarði
Viktoríu Englands drottningar, og
er hún þar mótuð á fíl, er stendur
á háum palfi, og halda lionum uppi
súlur. Táknar myndin ríki Viktor-
íu á Indlandi. Mynd af minnis-
varðanum er m. a. í “Illustrated
I.ondon News, og þykir mikið til
hans koma. Mun hann ætlaður til
Indlands.
— Menn rektir ef til vill minni
til, að sakamál var höfðað gegn
bónda á Snæfellsnesi, óla M. Arn-
grímssym, fyrir að hann skaut á
útlendinga, er komu á land þar að
ræna eggjum. Varð unglingur fyr-
ir skotinu, og særðist allmikið.
Var hann dæmdur í héraði en sýkn
aður í yfirdómi. Er nú fallinn
hæstaréttardómur í málinu, og er
undirréttardómurinn látinn standa
og ákærði dæmdur í 20 daga fang-
efsi. Einnig á hann að greiða út-
lendingmim 1365 kr. i skaðahætur
fyrir sjúkraleguna og meiðsl sín.
— Ilvalveiðar Norðmanna haía
genpið illa hér við land í sumar.
Veiddu 7 hvalveiðaskip ekki nema
56 hvali, eða 1900 föt af olíu.
— Hafsteiun Pétursson, prestur
i Kaupmannahöfn, valinkunnur
maður, hýður sig fram til þing-
mensku í Ilúnavatnssýslu við
næstu kosningar.
— Stúdentafélags-aðalfundur var
haldinn í gær og stjórn kosin :
Matth. þórðarson þjóðmenjavörð-
ur form., Benedikt Sveinsson rit-
stjóri varaform., Pétur Magnússon
Kr. Linnet og Andrés Björnsson.
— IMatthías þórðarson sagði frá
Noregs-för sinni. Matth. Jochums-
son skld hélt ræöu og margt var
til gleðskapar.
— Stúdentafélagið á Akureyri
kaus nýlega stjórn sína og urðu í
henni : Böðvar Jónsson cand. jur.
St Einarsson dýralæknir og
Karl Nikulásson deildarstjóri.
— Sigurjón Jónsson, M.A., frá
Winnipeg, er farinn að. kenna ensku
hér í Reykjavík.
Aknréyri 1. nóv.
— Fent hefir fé allmjög í þing-
etjarsýslu í snjóunttm um síðustu
helgi. Hefir llest af því fundist
dautt síðan. Á Einarsstöðum í
Reykjadal fórust 20 kindur, en
annars er ófrétt um, liver talan
var á hverjám bæ.
— Ilinn 8. f. m. voru 25 liðin
scra Bjami Jtorsteinsson á Siglu-
firði kom þangað fyrst. Héldu
hæjarmenn honum og frú hans þá
veilzlu veglega, og gáfu Jteim lijón-
um kaffiáhöld úr silfri, voru þau
grafin nijöe og hin prýðilegustu:
Ræðu fyrir heiðnrsgestunnm flutti
Guðmnndur héraðslæknir Hall-
grimsson. Stóð hófið lengi og
þótti hið ágætasta.
— Raflýsingin er nú nær fullgerð
á Siglufirði og hyggja hæjarbúar
hið bezta til hennar.
— Leiðarþing hefir Stefán í
Fagraskógi haldið þessa dagana á
Siglufirði, Ölafsfirði, Hjalteyri,
Saurbæ og þverá. Jieir Hannes
Hafstein verða háðir í kjöri í sýsl-
unni, en óráðið hverjir fleiri verða.
— A Dagverðareyri hrann 25.
f. m. síldarverksmiðla stór, sem
norskur maður átti, Alf Jolmsen í
Kristfaníu. Eldurinn hafði komið
upp kl. 7 um kvöldið, í vöruhúð-
um í skrifstofunni. Vörugeymslu-
hús, sem í voru að sögn alt að 20
þús. tunnnr af sildarmjöli, brann
upp til kaldra kola. Aftur á móti
hafði bjargast töluvert af síldar-
oliunni, sem var í tunnnm úti.
Tjónið er metið 200 þús. kr. Dag-
verðareyri er nokkuð fyrjr utan
Akureyri, vestan við Eyjafjörðinn,
hér um bil niður af Möðruvöllum,
og var síldarverksmiðjan bygð
þarna fyrir nokkrum missirum ;
var hún fullgerð í fyrra. En rekst-
urinn hefir ekki gengið vel, ýmis-
legt verið í ólagi, og því kent um,
að hún hafi verið reist á óheppi-
legum stað, í votlendi og á gljúp-
um jarðvegi, svo að undirstaðan
Iét eftir.
lyfjabOð
horni Wellington & Simcoe
I>ar fást "alskonar moí'öl, ritföug,
tímarit, vindlar.
Lœknaforskriftnm sérstakur gaum-
ur gefian,
E. J. SKJOLD
Eftirm. CAIRNS DRUG STORE
$>oo<
Garry 436»
^mimimmimiimimiiiwmmiiimmiiimmmiiimmma
I MAPLE l»F WIIIE liH.llri. |
(Thos. H. Lock, Manager)
^ Þegar þér leitið eftir GÆÐUM þá kqmið til vor. Vér ábyrgj-
fc umst fljóta afgreiðslu
y1 Mail Orders (póst pöntunum gefið sérstakt athygli
og ábyrgjumst yöru vora að vera þá BESTU — Heynið oss ÍS
^ eitt skifti og þér munuð koma aftur — Gleymið ekki staðnum zS
% 328 SMITH ST. WINNIPEC I
~ Plione Ilafn 4021 P.U.Kdx 1102 4
fmmmmmmmmmmii
PHILIP A. ECKMAN, D. D. S., L. D. S.
Norðurlanda Tannlœknir
Tannlœkningar af bestu tegund
mót sanngjarnri borgun — Ókeypis skoðanir
Skrifstofutímar : 9 f. h. til 8 e. h.
105 CARLTON BUILDING, Cor. P0RTAGE and CARLT0N
Eina block fyrir norðan EATON Phone Main 2622
Til -íslendinga í Saskatchewan
Eg. undirritaður hefi byrjað skrifstofu fyrir al-
menning f
Wynyard, Sask.
Og leysi þar af hendi öll lögmannsstörf, sem mér
er heimilt að gjörn, svo sem sölusnmninga, inn-
lieimtu skulda, o.s. frv Allar upplýsiugar sem
œskt er, og ég get veitt, geta menn fengið. Eg
er útskrifaður lögfræðingur frá háskólanum 1
Kaupmannahöfn; ég ábyrgist að öll störf, er ég
gjöri, séu áreiðanleg og samvizkusamloga af hendi
leyst. Borgun sanngjörn. Bréflegar upplýsingar
gefnar þeim sem æskja. Skrifstofa fyrst um sinn
í “Everybody’s Drug Store”
BJARNI TH. JOhNSON
l
i
i
i
WM. BOND
High C/ass Merchant Tailor
Verkstæði :
Aðeins beztu efni á boðstólum.
^ erknaður og snið eftir nýjustu
tízku. — VERÐ SANNG.IÁKNT,
Room 7 McLean Block
580 Main Street
♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦^♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦^♦^♦•♦««•♦•♦•♦
£3'
LATIÐ OSS SELJA KORN YÐAR.
Ef |»ér viljið fá fult verð fyrir koru yðar, þá sendið það
f vagnhlössum til Fort William eða Port Arthur, og merkið
‘Shippingbill’ þannig ; NOTIFY MONAKCH GRAIN COM-
i ’ .WJNNIPEG, — og sendið til vor með pósti, ásamt
söln fyrirskipun. Vér borgum yður fyrirfram, þegar vér
fáum ‘Shippingbill’ yðaí og afganginn strags og kornið selst.
Hæsta verð fengið.
Vér tilheyrum Winnipeg Grain Exchange’ og höfum
mikla reynslu f þessum efnum.
ukeypis markaðbröf sent þeim er óska.
Sendið oss sýnisliorn og vér látum yður vita verð ot? flokknn
Monarcli Grain Comnaíiy.
635 GRAIN EXCHANGE WINNJPEG. MAN.
L censed and Bonded. Reference-Bank of Montreal, W innipeg.
Borgið Heimskringlu
W. F. LEE
heildsala og smásala 6 *
BYGGINGAEFNI
til kontractara og byggingamanna. Kosnaðar áætlun gefin
ef um er beðið, fyrir stór og smá byggingar.
i36 Portage Ave. East Wall St. og Ellice Av.
PIIONE M 1116 PHONE SHER. 798
*