Heimskringla - 12.11.1914, Page 8
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 12. NÓV. 1914.
Úr Bænum
t TakiíS eftir.
Fálkinn er að fljúga af stað og
byrjar með dansi. — 1 því augna-
miði, að afla sér ofurlítilla skild-
inga til að borga með fyrstu útgjöld
vetrarins, ætlar FALCON HOCKEY
KLÚBBUHINN að hafa DANS í efri
sal Good-Templara hússins, þann
20. þessa mánaðar. Byrjar kl. 8 að
kveldinu. Ingangur 50c. — Van-
rækið ekki, landar góðir, að koma
á þessa dansskemtun. Drengirnir
hafa vcrið okkur fslendingum til
sóma og verða það framvegis, — og
það er hvers manns skylda, að
styðja þá og styrkja.
Einstök Kaup fyrir
Kvennfólk----------
Nú erum vér að selja kven-
klæðnað afar ódýrt,—niður-
sett verð á öllu. Vér búum
nú til Ladies’ Suits fyrir
frá $18.00 og upp. Kven-
manns haust yfirhafnir frá
$13.50 og upp. Komið og
skoðið nýtísku kvenbún-
inga vora.
B. LAPIN
Phonk Uarry 1982
392 Notre Dame Avenue
Eins og auglýst hafði verið hélt
/slenzki Conservetíve Klúbburinn
fyrsta fund sinn á mánudaginn var.
Fundurinn var vel sóttur, þegar til-
lit er tekið til, hve margir voru fjar-
verandi úr bænum, í skemtiförinni
til fslendingafljóts. Aðalefni fundar-
ins var að útnefna embættismenn
fyrir næsta klúbb-ár, og voru marg-
ir útnéfndir, en bæta má við fleirum
á kosningafundinum. Eins og aug-
lýst er á fyrstu bls. verður kosninga-
fundurinn haldinn næsta þriðjudags
kveld, 17. J). m., í Únítarasalnum.
Auk kosninganna verður þar nýtt
mál til meðferðar, sem er mikils-
varðandi fyrir framtíð klúbbsins,
Það er því áríðandi, að meðlimirnir
fjölmenni á þenna fund.
Jósep lyfsali Skaptason kom fráj
Souris, N. D., á mánudaginn, og með ;
honum Miss Kr. Sigurgeirsson, og
verður hún eftir, en hann fer suður
á föstudag.
1 blaði þessu er auglýsing um upp-i
boð hjá Benedikt Rafnkelssyni kaup-|
manni á Clarkleigh, og eru þar svo|
margir hlutir, sem seljast skulu, að j
líklegt er, að sumt af því fáist meðj
góðu verði. Og þetta eru hlutir, sem |
bóndinn þarfnast. Það væri gaman
fyrir margan, að reyna að draga nú
einu sinni gull úr greipum Bene-
dikts. Ef það hefir ekki tekist áður,
þá er nú tækifærið, piltar!
Lögreglumaður einn var að elta
autó hér á strætunum nýlega og reið
mótorhjóli, og fór að sagt var nær
50—60 rnílna ferð á klukkutímanum,
en þegar hann kom af Home St. á
Sargent Ave., l)á rann hann beint á
eitt strætiskarið, marg-braut mótor-
hjólið, en hjóst allur á andliti og
lamaðist svo að bjarga varð honum
burtu þaðan. Var það mildi, að hann
drap ekki eða braut fleiri eða færri
menn og konur með þessari ferð
sinni á förnum vegi.
Mánudags- og þriðjudagskveld-
in, 23. og 24. þ. m„ ætla Goodtempl-
ara stúkurnar Hekla og Skuld að
Ieika hinn víðfræga leik “Æfintýr
á gönguför”. Auglýsing í næstu
blöðum.
Næsta sunnudagskveld verður
umræðuefni i únítarakyrkjunni:
Einkenni göfugs manns. — Allir
velkomnir.
Látinn hinn 10. nóvember Jón
Sigurðsson, að Pioneer Lodge, St
James, Winnipeg, 81 árs gamall.
Hann var fæddur á Ormsstöðum í
Eyðaþinghá á íslandi. Kom hingað
vestur árið 1883, og hefir mestan
tímann verið hér í Winnipeg. Jarð
arförin fer fram kl. 2 e. m. hinn 12.
J). m. frá heimili hins látria.
Hr. Skúli Jónsson, frá Foam
Lake, Sask., kom til vor 6. þ. m„ áð-
ur en hann færi heimleiðis vestur.
■ Ungmennafélag Únítara heldur
fund á fimtudagskveldið í þessari
viku. Meðlimir eru mintir á að
sækja fundinn.
íslenzka Stúdentafélagið hélt hinn
venjulega fund sinn á laugardags-
kveldið var. Fundurinn var vel sótt-
ur, og bættust tiu nýjir meðlimir við
í hópinn. Fór þar og fram fyrsta
kappræðan um Brandson bikarinn.
Mæltist kappræðendum öllum vel að
vonum; en sérstaklega má geta Ein-
ars Skagfelds; sýndi hann gott form.
Báru þeir sigur úr býtum Einar
Skagfeld og Kristján J. Backmann..
Voru og þrjú embætti skipuð, er auð
voru sökum fjarveru þeirra, er í
vor voru kosnir. Var Sveinn E
Björnsson skipaður ritstjóri bók-
mentadeildar félagsblaðsins Auroru,
i stað Baldurs Jónssonar, B.A.; Kr.
J. Backmann var kosinn ritari,
stað Miss Jónassonar og Miss Karó-
lina Thorgeirsson annar varafor-
seti, í stað Miss Ollu Bardal.
Var svo borin fram tillaga um
grundvallarlög félagsins. Verður til-
laga þessi birt i næstu blöðum, og
eru stúdentar mintir á, að það er til-
laga aðeins, og þarf að þræta til
hlýtar á næsta fundi.
Jóhann Jóhannesson kaupmaður,
bróðir Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar,
dáinn á íslandi. Var talinn enihver
mesti framfaramaður í Reykjavik.
Misti konu sína í september.. Hafði
farið til Kaupmannahafnar, lá þar
á spitala og lézt þar, en var flutt
heim til Reykjavíkur og var jörðuð
þar frá I'rikyrkjunni seint í septem
ber. Varð því skamt milli þeirra
hjóna. — lsland á þar góðum manni
á bak að sjá.
Menningarfélagíð.
Fyrsti fundur Menningarfélags-
ins á þessurri vetri verður haldinn í
Únitara kyrkjunni miðvikudags-
kveldið 25. nóvember. Á þeim fundi
verður talað um Þorstein sál. Er
lingsson. Þrjár minningarræður
verða fluttar og ljóð sungin eftir
Þorstein.
Nákvæmari auglýsing um tilhögun
birtist i næsta blaði.
FÍFLAR
Smásögusaín, I. hefti; fást nú keypt-
ir hjá. flestum umbotSsmönnum Lög-
bergs og Heimskringlu, og íslenzkum
bóksölum í Canada og Bandaríkjum.
Einnig hjá útgefanda t>orsteini t>. t>or-
steinssyni, 732 McGee St., er sinnir
öllum pöntunum tafarlaust.
Fíflar kosta 35c. Lestur þeirra lýsir
upp rökkriö og styttir veturinn. t.f.
FLUTTUR.
Eg hefi flutt verzlun mina að
690 Sargent Ave„ — aðeins yfir
götuna.
Nú hefi eg meiri og betri húsa-
kynni og get því gjört meiri og
betri verzlun. — Þetta eru allir
beðnir að aðgæta.
Svo þakka eg öllum kærlegast
fyrir viðskifti í gömlu búðinni og
vona þau haldi áfram í hinni
nýju. — Vinsamlegast.
Phone Sher. 1120
B. ARNASON
Hr. Gísli Sigmundsson kom hing-
að nýskeð frá Grants Camp, norður
með vatni. Hafði þar fiskistöð í
haust með fjölda fiskimanna og hef-
ir fengið góðan afla, 117 ton af fiski,
er hann sendi jafnóðum inn til bæj-
anna þýðan. Komu gufuskipin tvis-
var og þrisvar í viku til hans að
taka fiskinn. — Þetta er mikill afli
og er Gísli vel að þvi kominn, því
hann hefir þar sýnt atorku mikla
og dugnað, og er auk þess drengur
hinn bezti. Hann er gamall vinur
Heimskringlu og árnar hún honum
alls góðs.
Landar eru beðnir að -taka eftir
auglýsingu í blaði þessu og hinu síð-
asta þar á undan um söngsamkomu
— CONCERT— i Tjaldbúðinni, Cor.
Victor St. og Sargent Ave„ þann 12.
þ. in. (í kveld, fimtudag). Þar verð-
ur sjálfsagt skemtun góð, og þar má
heyra lögin fögru eftir tónskáldin
góðu, þá Haydn og Beethoven og
Verdi og Handel og Schumann og
Mendelsohn og Einarsson, og svo
íslenzka söngva. — Komið, drengir
og stúlkur, og þakkið svo Kringlu
fvrir að hún hvatti ykkur til þess.
Áríðandi er fyrir alla þá, sem hafa
í huga að nota kveldskóla Jmnn, sem
Jóns Bjarnasonar skóli býður, að
þeir gefi sig fram tafarlaust. Skól-
inn byrjaði síðastliðinn föstudag og
verður á miðvikudaginn og föstu-
daginn í þessari viku; en því aðeins
verður honum haldið áfram, að
nógu margir nemendur fáist, áður
en þessi vika er liðin. Skólinn er
haldinn í Skjaldborg á Burnell St„
og byrjar kl. 8 að kveldinu.
R. M.
Sjö klúbbum, sem hafa haft vín-
söluleyfi, var lokað hér í Winnipeg
fyrir helgina. Verður kannske meira
talað um það seinna. En fagnaðar-
efni munu flestir telja það.
Svar upp á fyrirspurn er skrifað,
en verður að bíða næsta blaðs, og
sömuleiðis grein frá hr. Jónasi
Þorbergssyni, og eru hlutaðeigend-
ur beðnir að afsaka það.
RÁÐSKONU VANTAR á bæ í Sas-
katchewan. Aðeins tveir í heim-
ili. Litið að gjöra. Skrifið eftir nán-
ari upplýsingum til Ágústs Árnason-
ar, Hólar, Sask.
Síra Hjörtur Leó gaf saman i
hjónaband á laugardagskveldið 7.
nóvember, á heimili Eiríks Þor-
bergssonar, 13 Clement Court, Win-
nipeg, liau Ásmund Johnson, bónda
frá Pipestone bygð og Sveinbjörgu
Flóventsdóttur, ættaða af Húsavík
á íslandi.
Samsæti var á eftir og talaði síra
Hjörtur fyrir minni brúðhjónanna,
og einnig þeir Árni Eggertsson og
ólafur konsúll Thorgeirsson; en Jón
Runólfsson flutti kvæði það, sem hér
fer á eftir. Veitingar voru góðar,
söngur og skemtun hin bezta.
Á hverjum stað við eigum bú og bæ,
und blíðsól lifs þótt kaldan stund-
um viðri.
Hvað hirðum við um heimsins frost
og snæ,
ef hlið við hlið við njótum sam-
lífs æ,
Þá búum við i okkar Eden miðri
og æðrumst lítt þótt kaldan stundum
viðri.
Þótt verða kunni brestur efnum á,
mun okkur freyða nautnin lífs úr
bikar;
við hyljum reynslu-merkin brend á j
brá
und blómsveig hjartans vermireiti |
frá,
þá verður sætt livert sorgatár, er
blikar
og sælu-nautn hver dropi i lifsins
bikar.
Með dagsbrún hverri Ást sem Æska
frið
i endurnýung ljómar björt og fögur.!
Við hirðum ei um horfna æfi-tíð;
við hugsum fram í tímann ár og sið, |
sem flytur okkur kvæði og segir
sögur:
í sólskins dýrð skín okkar lífstíð
fögur.
Við bygðum okkur himinn heimi í,
því hans við Jjörfnumst nú sem eilif- •
lega
og virði sorgar þekkjum við, og því
skal þraut hver verða okkur blessun j ■
ný.
Á sólskins hæðum lífsins, laus við
trega,
við lifum tvö í kærleik eilíflega.
TIL LEIGU—Þrjú góð herbergi; gas
og rafurmagn í húsinu; rýmileg
leiga, — að 475 Langside St„ Cor.
Ellis St.
8-np T. THOMAS.
HERBERGI TIL LEIGU—Eitt eða
fleiri, i nýrri og vandaðri Block
á Sherbrooke St„ örskamt frá Sar-
gent. Aðgangur að eldhúsi. Heims-
kringla vísar á. 7-29-p
HERBERGI TIL LEIGU.
Á mjög hentugum stað á Sher-
brooke Street. öll vel uppbúin,
með gasi og öllum þægindum.
634 SHERBROOKE STREET
Talsími Garry 4495
10-n.p
Dr. Miles’ Nervine læknaði mína
konu af flogum
og þér væri ánægja at5 sjá breytinguna
sem á henni hefir orbib. í>egar cg
sendl syni okkar í Texas myncl af mótt-
ur sinni eftir at5 hún haftii brúkað Dr.
Mi?es me?5ai J)á gat hann ekki trúa'ð
]>vi fyr eneg var búin fullvissa
hann í annað sinn.
WALTER P. HALL,
ELIZA J. HALL
636 Court St., Brooklyn, Mass.
Dr. Miles’ Nervine
hefur sannað sitt gagn, hundruðum
sem hafa kvalist einsog Mrs. Hall.
Meðal sem orsakar það að maður
kvílist vel í svefni, og sem stöðvar
taugakerfið er best fyrir tauga veikl-
aða, svo sem niðurfallssýki, flog og
St. Vitus veiki. Dr. Miles Nervine
hefir sannað með 25 ára reynslu
sinn verðleika sem meðal við tauga
sjúkdómum. Selt með þeirri ábyrgð
að peningunum verður skilað aftur
ef fyrsta flaskan bætir ekki. Fáan-
legt hjá öllum lyfsölum. augl.
H.JOHNSON
Bicyle & Machine Works
Gjörir við vélar og verkfærl
reiðhjól og mótora, skerpir
skauta og smíðar hluti í bif-
reiðar. Látið hann sitja fyrir
viðskiftum ykkar. Alt vel af
hendi leyst, og ódýrara en hjá
öðrum.
651 SARGENT AVE.
Enginn fundur í St. Skuld í kveld.
AUGLYSING
Til yfirlits og gróða fyrir fólkið
Uppboðssala fer fram á
Clarkleigh, 24 þ.m.
Byrjar kl. 10 f. h., móti peningum út i hönd.
Varningur sá sem seldur verSur innibindur:
Leirvöru, Járnvöru, Bygginga pappír, Mjólkurvélar, Tinvöru
Álnavöru, Matvöru, Fatnað, Sleða, Vagn, Kerru,
Nautgripir, Hesta, Hænsni, Svín.
Hestarnir eru allir ungir og ógallaíSir; stórir og smáir. VerSur gefin ábyrgS meS
þeim, samkvæmt lýsingu af þeim. Getur vel veriS aS þeir verSi seldir meS gjald-
fresti á 2-3 verSs. Þessháttar verSur tilkynt á uppboSsdegi.
Þessi sala má kallast hálfgjörS nauSungar sala vegna hinna höruS tíma og verSur
þetta gróSa sala fyrir alla þá sem koma meS skildinga og væri vonandi aS sem flestir
kæmu til aS njóta hagnaSarins, því varningurinn má til aS seljast.
Einnig verSur verzlunarhúsiS og lóSin seld ef kostur verSur, meS því skilyrSi aS
sá sem kaupir kaupi þær vörur sem kunna aS verSa eftir í búSinnimeS innkaups verSi.
• Einnig má geta þess aS eg hef gripafóSur og hveiti til sölu uppboSsdaginn meS
niSursettu verSi handa þeim sem ekki skulda mér þann 23. nóvember. Ekki svo aS
skilja aS neinn einn fái aS kaupa ótakmarkaS af því. Mig vantar aS sem flestir nái
í hiS niSursetta verS. Býst viS aS hafa tólf hundruS poka.
B. RAFNKELSS0N
óskar að sjá fjöldafólks
Dýrtíðar útsala á Tví-
bökum og hagldabrauði
Seldar og sendar til allra staSa
í Canada fyrir niSursett verS um
óákveSin tíma: 1 14 punda köss-
um, í 25 punda kössum, í 43
punda tunnura.
Tvíbökur, pundiS...........lOc.
HagldabrauS, pundiS.........8c.
Fínar Tvíbökur.
I 1 punda kössum á.........15c.
1 2 punda kössum...........25c.
Kökur af ýmsum tegundum
“mixed”
38 dús. fyrir.............$3.00
G. P. Thordarson
PHONE GARRY 4140
1156 Ingersoll St. Winnipeg
Success Business
College
Tryggið framtfð yðar með
því að lesa á hinum stærsta
verzlunarskóla Winnipeg-
borgar — “THE SUCCESS
BUSINESS COLLEGE” sem
er á horni Portage Ave. og
Edmonton St. "Við höfum
útibú í Regina, Moose Jaw,
Weyburn, Calgary, Leth-
bridge, Wetaskiwin, La-
combe og Vancouver. 1»-
lenzku nemendurnlr sem
vér höfum haft á umliðnum
árum hafa verið gáfaðir og
iðjusamir. Þessvegna vilj-
um vér fá fleiri Islendinga.
Skrifið þeirri deild vorri
sem næst yður er og fáið ó-
keypis upplýsingar.
SKEMTISAMKOMA,
kökuskurður og veitingar
í samkomusal Únitarasafnaðarins, undir umsjón
hjálparnefndar safnaðarins.
Fimtudagskveldið, 19. nóv.
1. —Piano Soio...........Miss Jean Campbell
2. —Ræða................Séra Rögnv. Pétursson
3. —Upplestur.........Mrs. G. J. Goodmundsson
4. —Solo...............Miss Dóra Friðfinnsson
5. —Upplestur...........Mr. Þ. Þ. Þorsteinsson
6. —Ræða................Séra Guðm. Árnason
7. —Piano Solo...........Miss Jean Campbell
8. —Kappræða, kökuskurður og veitingar.
Allur ágóði af samkomunni gengur til að hjálpa þurfandi fólki
INNGANGXJR 25c
CONCERT
verSur haldinn í TjaldbúSar k yrkju
Mánudagskveldið, 23. nóv. 1914
kl. 8.30 e.m. Er hún haldinn fyrir landa einn, sem slasaSist
stórlega fyrir ári síSan og er veikur og hjálparvana ennþá.
Nú á hann aS fara undir annan uppskurS.
Forseti.................Rev. F. J. Bergman
Organ Solo................Mr. Jónas Pálsson
Vocal Solo...................Mrs. Dalman
Violin Solo..............Miss Clara Oddson
Vocal Duett..........Mr. & Mrs. Alex. Johnson
Violin Solo..................Mr. Árnason
Vocal Solo.................Mr. Thorólfsson
Quartette. .........Alfred Albert, Ðaldur Olson
Paul Bardal, S. Bardal
Piano Solo..............Miss L. Halldorsson
INNGANGUR 25c.
DANS
verSur haldinn í Good-Templara salnum
Þriðjudagskveldið, 17. nóvember
undir umsjón Trustee nefndarinnar. Nýtt gólf, glansandi eins og
spegill. Ágætt músíc. Nýtízku dansar. Dans prógramme gefiS
viS dyrnar. Komið og dansiS á nýja gólfinu.
ASgangur 25c.