Heimskringla - 31.12.1914, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 31. DESEMBER 1914.
HEIMSKRINGLA
JMA S
TIMRÍTR • • Spánnýr
* i ITI D U Iv • • Vöruforði
Vér afgreiöum jður fljótt og greiðilega
og gjörum yður í fylsta máta ánægða.
Spyrjið þá sem verzla við oss.
THE EMPIRE SASH AND DOOR CO. , LIMITED
Phone Main 2511 Henry Ave. East Winnipeg
Fréttabréf.
i • —
i> Blaine, Des. 17. 1914.
Ritstj. Heimskringlu:
Einu sinni varst þú kunnugur í
Blaine, og bæði vegna þess og líka
hinns, að mér finnst öllum ísl. gott
að vita sem inest hvorir um aðra,
ræðst eg í að rita þér nokkrar línur
f fréttaskini sem þú notar í Kringiu
«f þér sýnist, en brennir ella.
I>á skal þess fyrst geta er alla varð.
ar, í ríki þessu, en það er sigur sá
hinn mikli er bindindismenn unnu
í ríkiskosningunum í haust; var
það þurrum mönnum gleðiefni hið
mesta, en öllum votum hryggðar-
«fni. Láta vínvinirnir sem áhugur
þeirra stafi mest af vorkunsemi við
««rkamenn er vinnu missa. Eða
skattgreiðendur, sem stynja muni
nú undir aukum sköttum. Eins og
Evrópu þjóðirnar sem myrða f
mannúðar og menningr nafni ,berj-
ast þeir nú gegn fullnægingu þeirra
laa'a er gjöra skuli 'Washington
Dry næsta ár. Eins og Evrópu-
þjóðirnar sem stikla á líkum hinna
dauðu og drekkja ópum dcyjandi
manna og syrgjandi ekkna og barna
f skotdrununum, einblína þeir votu
á peninga tapið sitt, en benda al-
menningi á atvinnu skortinn, svo
hann gleymi ekkjum, eiginkonum
og börnum sem orðið hafa að and-
legum og líkamlegum vesalingum
fyrir ofríki og harðstjórn Bakkusar.
Millíónunum þeim—fyrir nokkur
þúsund atvinnuleysingja. Hvoru-
tveggja er slæmt, en af tvennu íllu
skal þó velja það sem minna er ílt.
Málsóknir eru nú í aðsígi út úr
sigri þessum og líklega ný atkvæð-
agreiðsla, hvernig sem svo fer.
Meðal vor íslendinga eru og ýms-
ar byltingar og breytingar, sam-
komur og hvað annað sem setur
blæ menningar á alla. Um sam-
komurnar ætla eg engum orðum að
eyða, tíma né rúmi. Þær eru haldn-
ar af hinum ýmSu félögum og hver
annari iíkar. Allar stofnaðar í góð-
um tiigangi og sæmilega góðar eftir
föngum.
Félagsiíf er vakandi og fer vax-
andi. Lútherski söfnuðurinn held-
ur sínu og meira til. Safnaðarfólk
hafði nýlega skyndi heimsókn hjá
presti sínum Sigurði ólafsSyni,
færði honum pyngju með 30 dölum.
Fylgdu vanalegum víkingasið, tóku
hús á þeim hjónum, og veittu ,sér
og þeim vistir og drykki til óttu-bils
Áttatíu manns var í aðför þeirri, og
má nærri geta að ekki varð fyrir-
staða mikil.
Menningarfélag var og stofnað hér
nýlega. Stefna þess er söm og Menn-
ingarfélagsins í Winnipeg. Nokkra
fundi hefir það nú haldið en aðeins
í prívat húsum. Það ætlar að hafa
opna fundi og fría, sva fljótt sem
efni og aðrar kringumstæður leyfa.
Annað undur skeði og í félags-
legu tilliti nóv. 29. s.l., þá messaði,
Rev. W’eel frá Bellingham, Unitara
prestur, hér, og að lokinni guðs-
þjónustunni stofnaði meðal íslend-
inga Unitara félag. Síðan hefir það
féiag haft fund, ráðið fulltrúa, og
Rev. Weel til að messa aftur í Blaine
milli jóla og nýárs. Það á og von á
Dr. Powers frá Seattle, bráðlega, og
síðar Séra Rögnv. Péturssyni frá
Winnipeg. Vænta margir góðs af
komu hans. Margir hefðu viljað
að sú koma hefði átt sér stað fyrir
þrem árum, eða fyr.
Að því er eg man, hafa þessar
giftingar átt sér stað í Blaine og
nágrenninu, síðan síðustu fréttir
þaðan voru sendar Kringlu. Hra.
Óskar H. Sigurðsson (sonur Hjartar
og Maríu Sigurðsson frá Argyle) og
ungfrú Emelía Anderson, frá Cres-
cent B. C., 3. nóv. s.l. Settust þau
að hjá foreldrum brúðurinnar. Og
nýlega giftist ungfrú Hansína Hans-
son (dóttir Hansar fótalausa) norð-
manni, ekki man eg nafn hans.
Látist hefur og ekkjan Jakobína
Olson, dóttir Jóns og Sigurlaugar
Þorbergsdóttir Freeman, sem um
margra ára skeið bjuggu f Argyie.
Maður Jakobínu sál var svenskur,
misti hún hann eftir þriggja ára
samveru, og tveggja ára legu úr
bcintæringu. Skömmu seinna
fylgdi honum sonur þeirra, tæp-
lega ár’s gamall, og nú er hún
sjálf farin á eftir þeim heim. Ör-
lög hinnar ungu raunamæddu
konu syrgja nú aldur hnignir for-
eldrar. Sjö syskini og þriggja
ára gömul dóttir, ásamt fjölda íjær-
skyldari frændum og vina.
Taldar eru nú þær fréttir er eg
man í bráðina, nema ef geta skyldi
þess—og þess er jafnan vert að geta
sem gjört er, að ísl. Kvenfél. fFram-
sókn” í Blaine hefir sent til Red
Cross félagsins fáeina dali, og aug-
lýsir sig sem móttakanda hvers þess
Kœru vidskifta vinir:
Hafið þökk fyrir, hve vel þér hafið nolað þaa kjörkanp, sen
eg auglýsti í siðustn blöðum. — Auðséð á undirtektum yðar, at
þér kunnið að meta það, sem vel er gjört við yður.
Nú nýlega hefi eg keypt stórt upplag af skófatnaði af atlri teg
und og stierö, úr búð J. E. Petersons, Edinbnrg, N. D. Mr. Peterso
dó siðastliðið sumar, og voru vörurnar þá á eftir seldar út í stói
slumpum. Ekkert af þessum skófatnaði er yfir tveggja ára gam
alt, og sumt alveg nýtt, og eg keypti hann allan á minna en háll
virði. Minn gróði er yðar gróði. Og ætla eg þvi alla næstu viku, «■
gefa yður tækifæri, að kaupa hvað sem þér viljið af þessum skón
fyrir HÁLFVIRÐI af vanalegu verði, — $2.00 skó á $1.00, $2.5'
skó á $1.25, $3.0< skó á $1.50, o. s. frv. — Þetla er sérlega ódýri
og þvi fremur, þegar þess er gætt, hve mikið skótau hefir komi'
upp i verði síðuslu tvö árin.
Þessi sala byrjar næsta mánudag og helst alla næstu viku, eð
á meðan upplagið endist.
Alt annað höldum við áfram að selja með niðursettu verði
°g gefum 20 pund af sykri fyrir einn dollar með hverri fimm doti
ara verzlun.
Þessa dagana hefi eg verið i stórbæjunum St. Paul og Minm
apolis, að kaupa skrautvarning fyrir jólin. Hefi eg þvi meira upf■
lag af Jólavarningi mi, fyrir yður að velja úr, en nokkru sinni áðui
Komið — komið og sjáið fyrir yður sjálfa.
E. Thorwaldson
MOfJNTAIN, N. U.
Vér dákum öllum vorum viðskiftavinum
GLEÐILEGS NÝÁRi
White & Manahan Ltd. 5Cð M";" ^
-F++++++++++++FF++♦+♦++♦++++++++++♦++♦++++♦++♦+♦+
Þorsteinn Erlingsson.
Hnípin er Bragadís i dag,
Dauft er um haga ljóðs og sögu —
Enginn svo fagurt bjó til bögu,
Bjartara lag um frjálsan hag.
Valhöll nú skipar vitrum gest’
Vikings með svip — hjá Agli og Snorra!
Nútíðar lipurð ljóða vorra
Líka gat gripið manna bezt.
Kappahug lanst og kraft í lýð!
Kvæðið þó braust til vegs og frama;
. Jafnan var raustin sú hin sama,
Sumar sem haust, svo frjáls og þýð.
Eldheitt og liðugt tungutak, —
' Töfrandi niður lækjarstrauma,
Örvandi kliður æskudrauma,
— ókönnuð svið og vopnabrak!
Ljóðvökur öndin hófst svo hátt,
hlekkjum og böndum ölluin fjærri;
Sannleikans-strönd oss sýndi nærri —
Sólfögr lönd i hverri átt.
Þorsteinn með ljóða-högum hug
Ileillaði þjóð að frelsisdegi;
Sótti oss glóð frá sólarvegi —
Syngjandi i blóðið kraft og dug.
ókomna daga harpan hans
Illjómar oss lag frá strengjuin björtum;
Lifandi sagan lýðs í hjörtum
Leiftrar um haga SANNLEIKANS.
O. T. Johnson.
■F++++++++++ + ++++++++++++++ ++++++++++-++++++++++-++
-
er íslendingar í Blaine og nágrenn-
inu kynnu að vilja gefa til þess.
Ekki vil eg taka rúm í grein þessari
til að brýna nauðsyn þá. Blöðin
gjöra það daglega.
Þess minnist eg nú að þau hjónin
Jónas og Guðríður Laxdal mistu
íeimili sitt nýlega í eld.—eldsábyrgð
nokkur var á því, og innanhúsmun-
um nokkrum bjargað. Skaðinn er
samt eðlilega töluverður, og óþæg-
indin mikil.
Á tíðina hérna á ströndinni þarf
ekki að minnast. Hún er óvenju-
lega góð, jafnvel þó mikið rigni á
stundum. Menn gleyma því svo
fljótt. Núna hefir verið hreinviðri
og frost í viku eða meir. Margir
kunna því illa, en það yngir mig
upp um tíu ár meðan á því stendur.
Loftið er svo hýrt og svo hreynt.
Eins og hreinleiki göfugrar sálar.
En hræsnin og lognmollan leið
lepja úr mönnunum dug.
Ef þér sýnist að nota þetta í
Kringlu, þá lofaðu henni líka að
bera öllum gömlum kunningjum
mínum, hjartans kveðju mína og
hugheila ósk um gleðileg jól og far-
sælt nýár.
Með sömu ósk til þín og þinna.
þín einlæg,
M. J. BENEDICTSSON.
Fréttir frá Oak Point og
nágrenninu.
Mcr datt í hug að senda þér, rit-
stjóri góður, dálitinn fréttapistil,
sem þú getur látið i blaðið, ef þú
vilt.
Heilsufar hefir verið heldur gott;
samt hefir gengið hér kvef, en ekki
mjög vont. Tíðarfar hefir verið gott,
það sem af er vetrinum; svo má
kalla, að ekkert sleðafæri sé hér enn.
Fiskveiði var hér góð fyrstu tvær
vikurnar; síðan lítill afli við Oak
Point, en betri veiði norður með
vatninu. Verð á fiski hér strax í
áyrjun markaðar allgott, því Gyð-
'ngur sunnan úr Bandaríkjum hækk-
aði verðið strax og hann kom,
jn um leið og hann fór settu hinir
verðið niður. Við eigum von á, að
hann koini aftur eftir nýár og lag-
ast þá verðið, og hafa sumir geymt
fisk sinn. Það má segja, að ef ekki
kæmi hér Gyðingur þessi, þá væri
hér versta einokun á fikisölu. Merki-
legt má það heita, að fólk, sem þarf
að kaupa fisk, skuli ekki kaupa hann
beint frá fiskimönnum; eg veit að
þeir væru viljugir að selja hann svo-
ieiðis, og fólk gæti fengið hann ó-
dýrari og betri, — ekki sízt þegar
ijötið er svona hátt og það er nú.
Wér datt því í hug, að bjóða fólki,
;em þarf að kaupa fisk, að selja því
'iann með mjög sanngjörnu verði;
;et eg því hér verð á fiski, fluttum á
árnbrautarstöð: Hvítfiskur 6c pd.,
’iekerel 4Vzc pd., Pike 2c pd. og
Uirtingur 2c pd. Hver og einn verð-
jr að borga flutningsgjald sjálfur,
>g með hverri pöntun verður að
ylgja full borgun og greinileg utan-
'iskrift. Allar pantanir verða sendar
.trax og eg ábyrgist, að fiskurinn sé
;óður. Látið ekki dragast, að panta
'iskinn. Eg hefi fengið pantanir
mnan úr Bandarikjum. Því ætti þá
'ólk í Manitoba ekki að nota sér,
ð kaupa fiskinn frá fyrstu hendi
i þcssum erfiðu tímum?
Heyskapur var hér góður síðast-
iðið sumar og nýting í bezta lagi.
Iey reynast víða létt og ekki holl:
r líklegt það stafi af ofmiklum
Einfaldar, Öílugar
og Endingargóðar Gasoline Vélar
Með Réttu Verði
1% h.a. $35.00. 6 h.a. $170.00. 8 h.a $240,00
Fóður mulnings vél-“Baby” 5 þml. $10.50. “Daisy” 6 >mL
$26.40. 12 þml. 41.50.
Fimm stærðir af vélum, hopper-cooled, og ábyrgstar a,ð
hafa fyllilega þann kraft sem sagt er. Sex stærðir
af mulnings vélum. Verð hlutfallslega það sama og
ofangreint. Peningunum verður skilað
aftur með ánægju ef ekki ber saman við
það sem við auglýsum.
14
The
1WINNIPE&
þyngstu og mestu sárin hafn fengið,
hafa látist á vigvöllunum, áður en
þeir komust í lækna hendur. En alt
fyrir það sýnir skýrsla þessi bæði,
hvaða ástundun er lögð á það, að
hjálpa særðum mönnum og ein-,
hvað læknar eru Iangt komnir. Áðui
fyrri hefði víst helmingur eða %
þessara manna dáið af illa hirtum
sárum sínum eða kunnáttuleysi.
Þurkum. Það varð að slá meira en
vant var af forarflóum, sem vatn
hefir staðið í.
Hér hefir gjört vart við sig krank-
leiki í grísum, sem áður hefir ekki
þekst, og hafa sumir mist grísi úr
þessari veiki. Eg hcfi skrifað til
dýralæknira og lýst sjúkdóminum.
Segja þeir, að þetta stafi af vondu
vatni síðastliðið sumar og óhollum
leyjum.
Uppskera var hér i meðallagi, en
)ó voru hafrar hér léttir. Akuryrkja
-r hér ekki mikil, en meira stundað
iúabú; og mun það borga sig betur
)ér, , þvi að það er góð sala fyrir
jóma, bæði á smjörgjörðarhúsið á
.undar og til Winnipeg. Svo eru
.umir byrjaðir að senda mjólk til
Vinnipeg, og er eg einn af þeim og
mun framvegis gjöra það meira, það
borgar sig bezt; en til að geta gjört
það að sumrinu, þarf góðan útbúii-
að.
Lundar er að byggjast upp og þar
verður með timanum stærsta ísl.
þorp. Þar hafa sezt að margir okk-
ar duglegu landar, sem hafa hygg-
indi og dugnað, samfara vilja til að
framkvæma. Einnig er það um-
kringt af góðum bændum, sem
hjálpa því áfram. Verzlun bygðar-
manna er að mestu leyti komin þang
að og eykst stórum. Félagslíf er þar
i blóma sínum. Lundar búar og ná-
grennið eiga marga unga og fríska
drengi, sem ei*u að æfa sig í ýmsum
iþróttum, og munu þeir skemta fólk-
inu næsta íslendingadag og keppa
um hin vanalegu verðlaun. Hr. Páll
Reykdal á mestan þátt i þvi. Hafi
hann kærar þakkir fyrir.
Shoal I.ake búnaðarfélagið hélt
sinn fyrsta ársfund 9. desember og
voru margir á fundinum og inörg
mál til meðferðar; sýndist mér vera
mikill áhugi fyrir þeim félagsskap.
Fyrir næsta ár voru kosnir þessir
embættismenn: F'orseti Stef. Björns-
son, varaforseti Guðbrandur Jör-
undsson, skrifari Sigurbjörn Krist-
jánsson, og 12 aðrir meðráðamenn,
og er óhætt að segja, að það eru góð-
ir menn. Vonast eg eftir, sem einn af
þeim, að við störfum af alhug og
dugnaði, og að hver maður, sem er
i félaginu, taki þátt i ræðum þar og
segi reynslu sina af búskapnum. Það
má margt læra af svoleiðis samtali.
— 1 fundarlok var samþykt, að gefa
i $50.00 úr sjóði félagsins til styrktar
Þjóðræknissjóðnum, og var það sam-
þykt í einu hljóði. Næsti fundur
verður 5. janúar og er vonandi að
hann verði vel sóttur.
Svo hætti eg i þetta sinn.
Með vinsemd og virðing.
Th. Thorkelsson,
Oak Point, Man.
KONUNGA-FUNDUR.
Þeir komu saman á föstudaginn
og laugardaginn í seinustu viku í
borginni Málmey í Svíþjóð, konung-
arnir þrír: Kristján Danakonungur,
Gústaf Sviakonungur og Hákon Nor-
egskonungur. Með þeim voru ráð-
gjafar þeirra og héldu þeir stefnu
mikla.
Það var Gústaf Svíakonungur, sem
stefndi til mótsins. Allir voru þeir
einhuga, að fylgjast að og halda sam
an, hvað sem yfir dyndi og lýstu yf
ir þvi, að þeir vildu hlutlausir vera
af striði þessu.
Að loknum umræðum var fundi
slitið, og ákveðið að hittast aftur, e!
vanda bæri að höndum. Fór fundur
þessi vel fram og þokaði nú miklu
□m samvinnu og bræðralag rikja
þessara.
.... Ástæðan fyrir fundinum..
Fundur þessi var ekki haldinn að
ástæðulausu, þvi að rétt áður er sagt
að Gústaf hafi brugðið sér til Berlin,
að minsta kosti fór Ostvald, prófes-
sor og ráðunautur konungs, þangað.
V’ildi þá Vilhjálmur, að Svíar gjörðu
samband við Danmörk og Noreg og
gengju i lið með sér. Lofaði hann
Svium þá, að þeir skyldu fá F'inn-
land, Estland, Lifland og eitthvað
af Kúrlandi.
En þegar Svíar vildu ekki gleypa
við þessum loforðum, þá er sagt að
Þjóðverjar hafi hótað þeim með
þvi, að láta Rússa fá Svíþjóð, þegar
'riður yrði saminn, i staðinn fyrir
Pólland, sem þeir tækju af Rússum.
Þetta var það, sem olli því, að Gú-
staf kallaði konungana á fundinn.
SÆRÐIR MENN OG GRÆDDIR.
F'rá Parisarborg kemur sú fregn
að 54 prósent af særðum Frökkum
„uii verið komnir á vigvöllinn aft
ur hinn 12. des. En 24 prósent hinna
særðu fengi) leyfí til að hvíla sig þar
til þeir yrðu hressari og alheilir.
17 prósent voru ennþá á spítölun-
um, og 1 % prósent hafði verið gefin
lausn frá herþjónustu Eru þo eftir
JM; p.^sent, og er það tala þeirra,
sem dou.
Þetta sýnir, hvað læknislistin er
komin á hátt stig og hvað hjúkrtin
er nákværn og f ill
komin. Enda eru þar nú hópar hinna
'":’) m I iiiiluni.
Vitaskuld er það að allir þeir, sem
Hervör á laugi Angantýs.
Þín er dóttir Hervör hér--
Heyr þú faðir gótii,
fá úr haugnum lijörinn aaér
Hjálmars roðinn blóði.
Heyrðist rödd í haugnum sterk-
Hvað er nú á ferðum,
Skal mín dóttir vígs í verk
vafin hildar gerðum?
Betur hafði liringa-sól,
hannyrðir við sitja;
enn um nótt í haug og hól
huldra drauga vitja.
Fljóðið veit að féllum vér,
fræknar eftir varnir;
brandinn tóku svo með sér,
sigur-vegararnir.
‘Undandráttur það er þinn.’
þá nam mærin svara;
Hann er aðeins arfur minn
Á því með að fara.
Þú ei blekkja þyrftir mig,
það eg veit af sögum
ekki rændi Oddur þig
ykkar móti lögum.
Llfs ei Hjálmar héðan fór,
hlaut af Tyrfing bana.
Oddur fylti einsog sór,
alla skilmálana.
Hreint eg ekki heima sit,
heldur fell í stríði;
öllum framar auð eg mct
ágætt dveiga smíði.
Hirði’ eg ei um hik né spaug,
hjörinn sel mér rauða.
Alla kveð eg upp úr haug
Arngríms syni dauða.
Angantýr þá mælti af móð,—
Mun þú dverga spjallið—
Ei hann slið'ast utan blóð
á hann hafi fallið.
'•f^inpsvp'Vir) har með þrjú,
þessum fylgja brandi,
■’-inið nú.
eftir tvö þó standi.
Vits með gnægð og vaskan hug,
vandinn að þér stefnir,
eignast munt þú illan mö»,
er þú Heiðrek nefntr.
Glapstig þýðist ganga eá
gjarn á stríð og frama;
ekki hlýðir honum íá,
hjörinn Svafurlama.
Lítið gott enn heldur hitt,
hlýst af Tyrfings blaði;
hann mun aðeins óhapp þltl
ættar spjöll og skaði.
‘Fari það sem auðið «F,
aftur mærin svarar;
opna’ eg hauginn yfir þér
ef þú brandinn sparar.’
Þú ert dóttir æð og óð;
af oss sviftir náðum,
Tak þá svcrðið fagra fljóð,
föðurs móti ráðum.
Hróðug mær við Tyrfing IÓK
tryld af víga-móði;
eitri-herta hjörinn skók,
hulinn storknu blóði.
Haf þú faðir þæga þðkk;
bá nam mærin inna.
Hún svo burt frá haugnum stðkk,
heim til skipa sinna.
Marga hildi vifið vann,
valinn herforingi.
Skipið heim að hausti rann.
hlaðið arma bingi.
Þarf ei undrast, vifið van.
víða frægð í löndum,
af þeirri ætt, með þvílfkann
þarfa grip í höndum.
Seinna giftist svanni dýr.
sagan trú eg kenni.
Svo fór alt sem Angantýr.
áður spáði henni.
Þetta gengur eins til enn,
ekki er kominn friður.
Margt sem gráðugt girnast m«®n
gæfu lítið styður.
Hjálmar Arngrímsson Vopni.
Eg vil geta þess að Svafurlami er
manns nafn. Nafn þess konungs
sem fyrstur átti sverðið Tirffng. Það
lafn kemur hvergi annarstaðar fyrir
í fornum sögum svo eg viti.—H.A.V,
Kaupið Heimskringlu.
H..JOHNSON
Bicyle & Machine Works
Gjörir við vélar og verkfæri
reiðhjól og mótora, skerplr
skauta og smfðar hluti f bif-
reiðar. Látið hann sitja fyrir
viðskiftum ykkar. Alt vel af
bendi leyst, og ódýrara en hjá
öðrum.
651 SARGENT AVE.
CARBON PAPER
for
TYPEWRITER—PENCIL—
PEN
Typewriter Ribbon for every
make of Typewritcr.
G. R. Hradley
& Co.
304 CANADA BLDG.
Phone Garry 2899.