Heimskringla - 01.07.1915, Blaðsíða 1
XXIX. AR. WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 1. JÚLl, 1915. Nr. 40
Flokksþing Konservatíva verður haldið í
Coliseum byggingunni, á Fort St.
14. og 15. júlí, þ.á.
Forsetar hinna Konservatívu félaga í hinum 49 kjör-
dæmum fylkisins, hafa kvatt til fundar þessa, eins og ráð var
gjört fyrir á fundi Konservatíva hér í Winnipeg hinn 16. júní.
Þangað getur hver Konservatív maður komið sem í
fylki þessu býr, en til þess að fá aðgang á fundinn þurfa menn
að sýna skýrteini frá Konservatív nefndinni í hverju sveitar-
félagi eða forseta hennar.
Allir sem á fundinn koma hafa þar málfrelsi. En aðeins
5 úr kjördæmi hverju hafa rétt til að greiða atkvæði. Komi
færri en fimm fulltrúar frá einhverju kjördæmi, verður þeim
þó veitt þessi atkvæðatala því að ætlast er til, að hvert kjör-
dæmi geti notið sinna 5 atkvæða.
Stríðs=fréttir
Það er eiginlega svo sem ekkert,
sem hægt er að segja um stríðið
núna. Það er barist á 1200 milr.a
löngu svæði á austurkantinum dag
og nótt. Þýzkir hafa tekið Lemberg
og Rússar eru á útjöðrum Galizíu.
Þeir hafa barist á daginn þar syðra,
en haldið undan á nóttunni. ósigur
hafa þeir eiginlega engan beðið —
annan cn að hörfa undan, og víst
einar 200—300 þúsundir manna hef-
ir það kostað Þjóðverja, að koma
þeifn þetta. Þeir ætluðu að kljúfa
þá þarna sundur, Þjóðverjar,, — en
þeir gátu það ekki. Enn er sami
garðurinn Rússa fyrir þcim. En nú
er hann austar; þó víða í Galiziu
ennþá. Og sunnan við Dniester-ána
cða fljótið ætluðu Þýzkir að lirekja
]>á, og komust yfir fljótið með tölu-
vert lið; er J>ar ilt yfirferðar, fen og
mýrar með fljótinu beggja megin.
En Jjar snerust Rússar svo hart á
móti þeim, að þeir gjöreyddu sveit-
um þeim, seni yfir komust; stráfeldu
cða hröktu þær út í fenin og þar
urðu þær til.
.Þó að Þýzkir gætu haldið áfram
]>arna og Rússar yrðu einlægt undan
að hrökkva, þá er löng lcið til Mos-
kow og það tæki Þjóðverja marga
mánuði að komast ]>angað, þó að
þeir héldu áfram dag og nótt. En
enginn efi cr á því, að þangað vildu
þeir gjarnan komast. En það er hér
unt bil óhugsandi.
Norðurfrá hafa Þýzkir hvergi á-
fram komist og heldur farið halloka
fyrir Rússum. En nú er ætlað að
þeir séu að byrja annað hroða-
áhlaupið 4—5 hundruð mílum norð-
•ur af Lembert í Pólen og muni það
stefna á Warshau. Menn hafa getið
sér til að þeir mundu reyiia þetta,
og við Rzura ána vestur af Warshau
jhafa þeir byrjað eina þessa stör-
irkotahríð sina, þegar þetta er skrif-
■ t,ð; en ekki er ólíklegt, að þar tefj-
ist fyrir þeim eina viku cða tvær.
Hellusund.
í Hellusundum og á skaganum er
nuddað við það jafnt og þétt. En
hörð eru þar vígi að sækja; grafin
inn í hryggina og klettana og eru nú
sundin ófær. En neðansjávarbátum
hafa Bretar komið i gegnum þau.
Og er nú engri fleytu Tyrkja óhætt
í Marmarahafi, þvi Bretar sökkva
þeim. Hræddir eru Tyrkir í Mkla-
gárði, og eru þar smáupphlaup cin-
lægt og eins hér og hvar um Austur-
ríki. Sagt er að ftest alla hermenn
lmfi Tyrkir nú tekið úr Adrianópel
til að verja Hellusund og halda sín-
um eigin mönnum i skefjum i Mikla-
garði. Hlýtur þetta að vera freisting
niikil fyrir Búlgara, því að mikið
langar ])á til að ná Adríanópel. En
engin hreyfing er á þeim ennþá og
ekki heldur Grikkjum eða Rúmenum.
Kemur ]>að alt af því, er Rússar urðu
undan að halda í Galizíu. Smáþjóð-
irnar eru hræddar við Þjóðverja og
þora ekki að fara á stað meðan þessi
gassi er á þeim.
Italía.
ítalir eru við það sama. Þeir kom-
ast nú svo sem ekkert áfram, en
l'.alda öjlu sem þeir hafa náð. Hafa
AustuiTÍkisfmerin gúkið lið sitt á
móti þeim og berjast nú harðan,
bæði i Trent dölunum og við Is-
onzo.
Frakkland.
Á I’rakklandi héfir Frökkum veitt
! betur og eru harðar hríðir þar á
degi hverjum; einkum norður af
Arras á Frakklandi. Þar nyrðra
liafa Canada mennirnir enn sýnt
lireysti sína. Þeir tóku hverja röð
skotgrafanna á eftir annari, og þykja
nú engir menn vaskari en þeir. Var
þetta við La Basse. Var þar þriggja
daga orusta, frá 15. til 17. júni Þeg-
ar þeim var sagt að ráðast á Þjóð-
verja, þá stukku þeir upp úr gröfum
sinum og hlupu á Þjóðverja og að
15 minútum liðnum voru þeir búnir
að ná hinuin fyrstu gröfum Þjóð-
verja. Þeir blésu þar snöggvast og
runnu svo á aðra röðina og tóku
liana á sama hátt. Þá voru 2 eftir,
því að grafir Þjóðverja voru ferfald-
ar og hver röðin aftur af annari.
En að fáum mínútum liðnum voru
þeir búnir að taka hiria 3. og 1. röð
jæirra. Þeir fylgdu á eftir hinum
Þýzku, er þeir flúðu og gáfu þeim
ekki tima til að stansa eða átta sig.
Þama áttu Canadamenn i höggi við
hina beztu hermenn Vilhjálms.
En Jjó að Þýzkir verði nær all-
staðar að láta undan þarna, þá er
það ekki nema litið eitt: J>eir tapa
nokkrum þúsundum og eyða mörg-
um skotum. Og eiin hafa Bretar ó-
nóg skotfæri, þó að mikið.sé að lag-
ást síðart Lloyd George tók við mál-
um þeim.
En það er eins og Þjóðverjar séu
farnir ða hugsa sig um. Fulltrúar
Sósíalista ú þingj eru farnir að tala
um að þeir vilji frið og engin lönd
unnin af öðruin þjóðum. En litlu er
þeim sint. Það er eins og menn séu
farnir þar að hugsa út i liað, að
þeir séu nokkuð dýrir þessir sigrar
Þjóðverja. Einlægt hrynja þeir nið-
ur í hundrað og þúsundatali, og þeir
einir koma heim sem særðir eru og
hálfdauðir. — Rétt nýlega leið yfir
keisarafrúna, er hún kom á spítala
særðra manna; ekki af Jdví, hvað
hún sá heldur af því hvað hún
lieyrði.
Hún kom að sæng herforingja eins
sem mist hafði báðar hendur og báð-
ar fætur og lá fyrir dauðanum. Hún
spurði, hvers hann vlidi óska. Hann
gat ennþá talað og mælti:
“Ósk mín er sií, að keisarinn og
allir hans vinir og skyldmenni fái
að reyna og þola liað, sem eg hefi
liðið”. — Þessu átti frúin ekki von
ál Það leið yfir hana og urðu menn
að bera hana út.
Canadamenn þykja
úrræðagóíir.
Eanada mennirnir þykja fremur
ráðagóðir þarna á vigvöliunum og
litt bundnir við gamlar venjur. Þeir
voru um daginn i gröfunum og voru
nú bæði forugir og útataðir, en þó
þúrrir og höfðu setið J)arna nokkra
daga og dauðlangaði að komast burt
til l>ess að geta fengið sér bað og
þvcgið sér. En nú sáu þeir að þrumu
veður var í lofti og þeir myndu
verða hundvotir, J>ví að ekkert var
þar afdrep né skýli. Þá kom einum
þeirra til hugar, að þeir gætu slegið
þarna tvær flugur í einu hciggi: þeir
gætu baðað sig og haft fötin öll þur.
Óðara fór þá hver maður úr öllum
sínum spjörum og komu Jieim undir
skýli þar sem regnið náði þeim ekki,
og nú stóðu þeir allsþerir og tóku
við steýjjibaðinu; vatnið rann og
streymdi niður af þeim og þarna
fengu þeir J>að bezta steypubað, sem
nokkur þeirra hafði áður fengið; og
er skúrnum létti fóru þeir í hin
þurru föt sín. I.itlu seinna mættu
þeir tveimur hersveitum Breta, sem
verið höfðu í þrumuskúrnum og
voru svo blautir, að vatnið rann i
lækjum úr fötum Jæirra. Þeir urðu
hissa að sjá Canada mennina svona
Jrnrra eftir annan eins þrumuskúr.
Seinustu stríðsfréttir.
Fullyrt er, að seinasta hreðan við
Lemberg hafi kostað Þýzka hálfa
millíón manna.
— Rúmenía heimtar nærri Jiriðj-
ung af Ungverjalandi af Austurríki.
Rúmenar búnir að ná inn mestallri
uppskeru og því albúnir að fara af
stað.
— Spánverjar óðum að búask
Þeir vinna dag og nótt að byssu-
smiði og vopnabúnaði. Erú J>eir nú
að búa hálfa millíón manna.
— ítalir komnir i strið við Tyrki.
Senda hermenn til Hellusunda og
herskip einnig undir forustu hertog-
ans af Abruzzi.
Dönsk nýlendustjórn.
Píningarsaga Vestindisku eyjanna.
Kjör eyjarskeggja aumlegri en
á þrælaöldinni. — Síra H’cster-
gaard sannar, aö margir deyji
úr hungri, einkum gamalmenni.
Danir hafa ekki alls fyrir löngu
sett ncfnd af færustu mönnum þjóð-
ar sinnar til þess að íhuga, hversu
helzt inundi mega ráða fram úr
eymdinni á eyjum þeirra í Vestind-
íum. Nefndin hefir nú lokið störf-
um sínum og í stuttu máli komist að
þessari niðurstöðu, að þvi er Poli-
tiken segir 16. apríl: ,
“Vér sáum engin ráð til umbóta,
hér er ekki við bjargandi”.
Blaðið Social-Demokraten skýrir
all-greinilega frá hag eyjanna ný-
lega, með Jicirri fyrirsögn, sem hér
stendur yfir, og birtum vér brot úr
grein þessari til fróðleiks “samþegn-
unum”.
“Saga eyjanna er sífeld hnignun-
arsaga siðastliðna hálfa öld og eink-
um hefir hagur þcirra hríðversnað
síðan 1901. Þá var injög i ráði, að
selja eyjarnar en hætt við það og
heitið góðu um að rétta Jieim hjálp-
arhönd, en aldrei hefir fólksfækkun-
in verið jafn hraðfara og síðan”.
fbúatalan hefir stöðugt lækkað.
siðan 1841, eins og manntalsskýrsl-
irnar sýna:
1811 voru J>nr 40,956 íbúar; 1860:
38,231; 1880: 33,763; 1890: 32,786;
1901:30,527; 1911:27,086.
Verst liefir eyjan St. Jan orðið
úti: Þar voru 2555 íbúar úrið 1841,
nú hjarir þar 941 hræða.
1 St. Croíx, mjög frjósamri ev, er
hnignunin svo herfileg, að fækkað
hefir á landsbvgðinni úr 17,897 nið-
ur i 7,672. Bæjirnir hafa einnig ver-
ið á hnignunarskciði.
Fækkuninni veldur mannflutning-
ur ti! Bandarikjanna og hræðilegur
manndauði, og sprettur hvorttveggja
af fátækt og vesaldómi eyjanna.
A Árunum 1904—-1914 fæddust
j 1 (1,011 börn; en á sama tíma létust
j 11,873 inenn. — Stafar þetta mest af
í feykilegum barnadauða. Hundruð
borna á hiindrúð ofan hrynja niður
sakir vanhirðu og þö einkum af
hungri.
“Þetta hlýtur svona að vera, þar
sem fólk er jafn snautt, sem á eyjun-
urn og landsstjórnin bregst skyldum
si ium svo herfilega, sem þar hefir
átt sér stað”. ,
“Sannorðir menn, sem eru þessu
grgnkunnugir, staðhæfa, að aumari
tátækt finnist varla í víðri veröld,
er: á eyjum Jiessum og það er vafa-
lítið, að eyjarskeggjum vegnaði bet-
ur á Jrrælaöldinni”.
Fyrirkomulagið er hið sama, sem
á þrælaöldinni. Ríkisbubbar eiga
jarðeignirnar og bezta landið á hið
“Stóra danska baðmullarfélag”. —
Auðkýfingarnir græða stórfé, en al-
þýðan sveltur. — Prestur einn, sem
Westergaard heitir og dvalist hefir
árum saman J>ar vestra, segir skort-
inn svo mikinn, að mörg gamal-
menni deyji beint lir hungri. Kem-
ur það heim við bréf, sein skrifuð
li.’.fa verið að vestan. 1 bréfum þess-
um eru Danir grátbændir um hjálp,
er. bréfritararnir hafa beiðst J>ess,
að nöfn þeirra yrðu eigi birt, til
þess að komast hjá ofsuKnum Jieirra,
scm .á eyjunum drotna. Bréfkaflarn-
ir eru birtir í blaðinu Social-Demo-
kraten.
f öðru þeirra segir svo: ,
“Eymdin er orðin svo rík, sakir
lágra launa og sifeldrar rýrnunar í
öllum greinum, að eyjarskeggjar
fagna hverju óhappi, sem dönsku
auðkúlurnar hreppa, því að J>eir
w.na, að þá nálgist fremur sá dagur,
að þær verði að láta jarðirnar laus-
ar. svo að blámennirnir geti yrkt
löndin sér til gagns, sem ekki er á
annara færi”. ,
>. 4. Croix eyjan er víða einkar frjó-
’söin, cn J>rátt fvrir lirakleg \ánnu-
laún blessast ekki baðmullarræktin
þar. f Rrindaríkjuftum er blámönn-
em goldið 5—15 sinnum meira í
’ aúp fyrir sama verk, og ber ekki
í Öðrti, en búskapurinn standist vel.
,4108111 starfsmenn baðmullarfé-
Ingsins eru einir um gróðann. Hlut-
hafarnir fitna litrð.
Nii hefir nefndin, sem full var af
‘gehejmekonferensráðum”, — og
tjórnardeildarforsetum" og félags-
formönnuin, orðið að viðurkenna,
nð.alíar ráðagjörðir til þess að rétta
við hag eyjanna, íiafi farið út um
þúfur. - Einn af helztu “ráðunum”
segir svo við ritstjóra blaðsins Poli-
I iken : ,
“Vér höfum ekki kveðið svo
;.ð orði i nefndarálitinu, að ástndið
sé vonlaust, en ekki ]>ar fyrir: vér
'vefðmn vel mátt segja það. — Það
or að mínu áliti vonlaust. Eg sé
cnga leið út úr vandræðunum”. —
-— “Ef manndauði, einkum barna-
Sir John French í Flandern
Sagt er at5 Sir John French vertSi gjörtiur aö hertoga viti lok stríSsins, ef
Bandamenn sigra og miljón ftQllara i vasapeninga. Var þetta nýlega ékvcliitl
• í stjórnarrátSi.v
dauði, heldur áfram eins og nú óg
útflutningur þverr ekki, þá rekur að
þvi áður en langt um líður, að eyj-
arnar leggjast i auðn. — Hvernig
geta þá einstakir menn átt á hættu
að leggja fé sitt í fyrirtæki þar?”
“St. Jan er i eyði og sömu örlög
bíða St. Croix”. ,
—- (Ingólfur).
I slandsf réttir.
Hafís fyrir Norðurlandi.
Christianssund, millilandaskip
Sam.fél. (i stað Vóstu), varð að snúa
eftur vegna íss við Horn á fimtu-
dagsnótt. Kom til Siglufjarðar og
kvað hafþök inn á miðjan Húnaflóa.
Fór austur um land og kom hingað
í gær hindrunarlaust.
“ísafold” (fv. Columbus) hafði og
orðið íss vör við Horn á austurleið,
nokkru fyrir mánaðamót. Sá og ís
við I.anganes og inátti ekki tæpara
standa að skipið kæmist þar leiðar
sinnar. „ ,
Úr Siglufirði er símað á upp-
stigningardag, að þangað hafi kom-
ið nokkur hvalveiðaskip og kvartað
mjög um ísleysi, leitað lians fyrir
■norðaustan laiul, en ekki lundið. —
Þeir ætluðu nú vestur á bóginn í
von uin að finna eitthvað þar.
Héðan fór “Stralsund”, leiguskip
Ivveldúlfs félagsins, áleiðis til Siglu-
íjarðar vestur um land. Á föstudag-
inn varð að snúa við aftur inn á ísa-
íjörð. Hafði gjört tvær tilraunir, að
komast fyrir Horn; kvað ísinn vera
að reka þar að landi eða þjappast
saman. — (Ingólfur 16. mai).
Hafisinn er nú sagður allmikill
við Norðurland. óslitin hafþök frá
“Svalbarði við Hafsbotn” til Langa-
ness, að því er Morgunbl. er símað
úr Seyðisfirði, en mun ekki land-
iastur nema við Horn. Frá Húsavík
er símað að l>ar sé enginn ís úti fyrir
til hindrunar skipagöngum.-----Ing-
úlfur 19. maí). ,
* * *
. . FJALLA-EVVIjVDlJR Jóhanns Sig-
urjónssonar hefir verið sýndur nú
nokkrum sinnum. Aðsókn hefir svo
niikil verið, að margir liafa orðið
frá að hverfa, enda hefir leikur
þessi verið hinn vinsælasti frá því
hann var fvrst leikinn. Leikendum
höfuðhlutverkanna tekst vel en mið-
ur suriium hinum smærri. Mest er
omið undir leik Höllu, sem frú Guð-
rún Indriðadóttir leikur og tekst
henni ágætlega vel, enda er hún eng-
inn viðvaningur. Andrés Björnsson
fer og mæta vel með Arnes.
HRBtNDtR var skotið uin helg-
ina síðustu á Seyðisfjarðarhöfn. Er
sagt að dýrið hafi vcrið á sundi og
skytturnar ætlað að bjarndýr væri.
Minnir þetta einkennilega atvik á
söguna um úlfinn, sem svarið hafði
sér til fjöríáusnar að eta aldrei kjðt,
og reif í sig svinið i keldunni með
Jieim ummælum, að “þetta hlyti að
vera fiskur”. — Ekki er þess getið,
hvort “bjarndýrið” hafi verið með
hornum. ,
— Sigurður Eggerz tók sér fari á
Ihristianssund snöggva ferð til Eski-
fjarðar á þriðjudaginn.
— Ráðherra (E. A.) gjörir ráð
fyrir, að sigla lil Danmcrkur með
Vestu er héðan fer 25. þ.m. ,
—- Nýlátinn er Páll Jónsson bóndi
á Hrauni í ölfusi, cftir sjö daga legu
i lungnabólgu. Hann var ættaður úr
Bárðardal, bróðir Ingólfs bónda á
Innra-Hólmi.
, (Ingolfur 19. mai).
Almennur fundur Kon-
servatíva.
Á miðvikudagskveldið hinn 15.
júni héldu Konservativar fund með
sér í Winnipeg; og er það hinn
fyrsti fundur þeirra síðan rannsókn
var hafin út af stjórnarbyggingun-
um og öllu því er þar að lýtur. En
þar var fylking þeirra rofin, er
stjórninni var komið til að segja af
sér.
Fund þennan sóttu menn úr öllum
kjördæinum fylkisins, eða því nær
öllum.
Fundurinn var haldinn fyrir lukt-
uni dyrum og stóð í fimm stundir.
J P. Túrner úr Suður-Winnipeg var
kosinn forseti.
Þar var gjörð svolátandi ályktun:
“Að nefnd skuli kosin, er i sam-
bandi við forseta fundarins tillaki
hentugan timá og stað og búi alt
undir að halda almennan fund kon-
servaliva fyrir Manitoba.
Önnur ályktun var sú:
Að hver maður hafi sæti á þeim
fundi, sem hefir vottorð frá forseta
hins konservativa fétags i sveit sinni
að hann hafi rétt til að sitja á þeim
fundi. (Nefnilega, að hann hafi sam
l>ykki og fylgi Konservativa í sveit
sinni til þess að mæta þar fyrir
þeirra hönd).
Þó var fundurinn á móti því, að
gjöra nokkrar ráðstafanir, er inið-
uðu til þcss að banna nokkrum kon-
servatíve sæti þar, ef til kæmi.
Allir voru einhuga um J>að að end-
urskapa flokkinn og gjöra það hið
allra fyrsta.
Allir lýstu l>vi yfir, að hinum kon-
servatíva fTokk væru sem flokk óvið-
komandi mál þessi öll út af stjórnar-
byggingunum. ,
Þá var því einnig lýst yfir, að
kæmi til kosninga, þá myndu kon-
servativar hafa til inann að sækja
um hvert einasta þingsæti fylkisins
inóti liberölum.
Upphlaup móti Þýzkum í Moskow.
Nún nýlega urðu upphlaup mikil
móti þýzkum inönnum í Moskow á
Rússlandi, og var eyðilegging sú
talin 20 millíón dollara virði. 500
verzlunarbúðir og verkstæði voru
eyðilögð og 200 ibúðarhús.
Skríllinn ætlaði að verða hams-
laus, sögðu þeir sem á horfðu. Menn
irnir óðu inn í húsin og sölubúð-
irnar og hentu öllu út á strætin:
borðum, speglum, stólum og vörum
og öllu sem laust var eða þeir gátu
losað, svo að strætin fyltust og ó-
mögulegt var að komast um þau. Og
í sumum kjöllurum hinna þýzku
manna fundu þeir bjór og vín og
vodka, og þá urðu allir fullir, sem
þar komust nærri og þá fóru þeir
að kveikja í. F.n lögreglan réði ekki
við neitt og slökkviliðið var kallað
út, en gat lítið"áð gjort. Þarna misti
fjöldi rússneskra manna hús sín og
eigur, þvi litið meira en 120 voru
liús þýzkra manna. ööld þessi stóð
yfir 24 klukkutíma. Ekki vita menn
hvað margir týndu lifi.
Loksins fara menn að kannast
við það.
Menn liafa séð það og haldið þvi
fram, en opinberlega hafa fáir við
það kannast, hverjar séii ástæðurnar
sem hafi vakið og standi á bak við
stríð þetta, séu eiginlega grunnur-
inn sem bygt er á.
Núna getur Toronto Mail and Em-
pire um prest einn, síra J. P. Hauch
í Berlin, sem 21. júni flutti ræðu
mikla fyrir Independent Order of
Foresters. Þar heldur síra Hauch
þvi fram, að aðalorsökin til þessa
hins niikla stríðs séu rangar heim-
spekis-kenningar, sem fluttar hafi
verið á skólum og þáskólum Þýzka-
lands nú um langan tíma. Og enn-
fremur segir hann, að þessar hinar
söniu kenningar séu fluttar og pré-
dikaðar í mörgum kyrkjum Canada
sunnudag eftir sunnudag. En aug-
Ijóst sé að afleiðingar af prédikunum
þeim geti orðið voðalegar, ef ekki
er tekið ráð í tíma og kenningum
þeim hnekt og mönnum þeim er
þær flytja.
En vér viljum bæta því við, að
það er ekki eingöngu í prédikunar-
stólum, heldur á mannfundum í fyr-
irlestrum og í daglegu tali, sem vér
höfum heyrt þær fluttar. Menn eru
margir orðnir svo “gegnsýrðir” af
þeim, að þær eru orðnar þeirra
innra eðli og “hjartans helgasta
trú”. Það úir og grúir af slikum
mönnum. Það eru “visindalegir
könnusteyparar”, svo að vér notuin
hugmynd danska skáldsins Holbergs.
Það er ilt að eiga við þá; þvi aÖ
þetta eru stundum beztu menn. En
öllum þeim er það sameiginlegt, —
körlum og konum — að þeir eða þær
halda að þeir viti og skilji miklu
meira, en raun verður á.
Stórflóð.
Fiöð'mikið í Saskatehewan fljót-
inu hjá Edmonton nú fyrir stuttu.
Vatnsborð fljótsins hækkar um 32
fet og fljótið veltur áfram yfir lönd
og bygðir manna. 500 lönd og tiéiín-
ili fara í kaf. Vatnið hefir hækkað
6 þumlunga á hverjum klukkutima.
Gtal bátar á ferðinni til að bjarga
fólki og munum úr húsunum.
— Annáð flóð varð suður í AI-
berta, nálægt Calgary og Bows fliv-
er. Það fór og yfir bygði • manr a,
en ekki eins voðalega og þe*ta.