Heimskringla


Heimskringla - 01.07.1915, Qupperneq 8

Heimskringla - 01.07.1915, Qupperneq 8
M>S. 8. HEIMSKRINGLa WINNIPEG, 1. JÚLÍ 1915. Fréttir úr Bænum. Piaiio Recital l>að, sena auglýst var isl. viku, að haldið yrði í Y.W.C.A. byiKingunni á Ellice Ave., fór fram imánudagskveldíð var. Salurinn •þar er litill, rúmar um 250 manns; en var aðeins hálfskipaður, og mun jþriðjungur áheyrenda hafa verið Is- lendingar. Miss Magnússon, sem nú kom fram \ fvrsta sinni til þess opinberlega *ð sýna íþrótt sína, spilaði 5 eða fi lóng og vandasom stykki, af mikilli tist, eða svo var dómur þeirra fjögra islen/.kra og hérlendra söngfræð- mga, sem viðstaddir voru. Miss Magnússon sýndi, að hún hafði fuit vald yfir hljöðfærinu og að hún fcann að framleiða tóna þess af til- fínning og smekk. Einsöngur Mrs. Dalmann var ágætur, og svo voru áheyrendurnir hrifnir, að þeir með Lófaklappi ncyddu hana til að syngja aukalag. , Ungfrú Marion O’Neil, sem virtist wera barn að aldri, handlék fiðlu sína með miklu listfengi, og itarleg tííraun var gjörð til að kalla hana fram á ný. En hún aðeins sýndi sig f»É og hneigði. Miss Magnússon var og kliippuð fram tvivegis. Það var einróma álit áheyrenda, að samkoma þessi hafi tekist ágæt- lega. — En sorglegt er, að samskot- in, sem hafin voru, urðu svo lítil,— réttir tíu dollars, að þau verða hjálp- arsjóði sveltandi Póllendinga að tniklu minna liði, en æskilegt hefði éerið. — Annars má herra Jónas Pálsson eiga þökk fyrir tilraun þessa og það, hve vel hann hefir kent Miss Magnússon list þá, sem hún skemti áheyrendum mcð að þessu sinni. Nýlátinn er Sveinungi Sveinunga- son, að Lóni í Kelduhverfi á fslantli, — rausnarbóndi og ötull maður. Hann var bróðir Kristrúnar Svein- ungadóttur, sem mikið hefir verið hér í Winnipeg, en nú er á Otto O. P., Man. Allir, sem nokkuð hafa verið hér i Winnipeg, þekkja Kristrúnu, konu komna undir áttrætt, skarplega, tuyndarlega og rösklega, sem væri faún miklu yngri. Núna tekur Krist- rún, þó öldruð sé, hlut í Eimskipa- félaginu og gefur þar að auki 3 dali lil hjálparsjóðs Belga. — Frá því fyrsta hefir Kristrún Sveinunga- dóttir kotnið hér fram sjálfri sér til prýði og öðrum til gagns, — ekki hvað eitt eða tvii atriði snertir, held- nr i svo miViTgu, og vér ætlum, að það sé engin niðrun fyrir hina yngi’i kynslóð, þó að vér segjunt, að hún gæti tekið Kristrúnu sér til eftir- breytni, því að hún hefir verið sómi þjóðar sinnar hér í landi, og væri óskandi, að vér ættuin sem flesta hennar lika. Kristjáni J. Austmann, B.A., að- stoðarkennari í efnafræði við fylk- isháskólann, hefir verið fengin i hendur, við búnaðarskóla þessa fylk- is, rannsókn á matvirði (Food Val- ne) illgresis þess, er vex hér í Mani- toba. Þessi rannsókn hefir verið hafin að tilhlutun C.P.B. William Preece, 8(>i Winnipeg Ave., Corporal 44th Battalion lOfith Begiment, Co. I)., gekk í herinn þann 19. des. 1914; er nú í Sewell Camp. Faðir hans er enskur en móð í • íslenzk, Karólína Stefánsdóttir, ættuð úr Hrútafirði, systir þeirra Stefáns kaupmanns Stefánssonar í f>og Creek og Bjarna Stefánssona-, sem lengi bjó við Elphinstone. F’orsætisráðherra Norris lofar Metódistum að herða á vínbanns- lögunum eða bera afnám vinsölu undir atkvæði fylkisbúa, þegar þing komi saman, svo framarlega sem íiberalar fái að halda völdum. — Þvi gjöra þeir það ekki nú, meðan þeir hafa tíma til? Fyrstur tími er æfinlega beztur. FLUTTIR Hérmeð tilkynni eg almenningi að eg hefi flutt mig í stærri og betri búð, þar sem öll viðskifti geta gengið mikið greiðar en áður. Nýja búðin er að: 572 Notre DameAve. aðebis þneinun (lý|uinj teMar en 'i ‘mmiIM Central Bicycle Works Stefán Sveinsson, sonur Sveins Sölvasonar læknis frá Skarði í Skaga firði, andaðist að heimili sínu, 892 Banning St., á sunnudaginn var, 27. júní. Jarðarför hans fer fram i dag (miðvikudag) frá heimili hans kl. 1 Vi e.h. og frá Fyrstu Iútcrsku k.vrkj- uiini kl. 3 e. h. Stefán Sveinsson var urti mörg ár bókhaldari hjá Gisla sál. Ólafssyni fóðursala og síðan eftrmaður hans um nokkur ár. — Ilann var drengur hinn bczti og vel kunnur öllum íslendingum hér. Stefáns Sveinssonar verður nán- ar getið hér í blaðinu síðar. Hr. Hannes Kristjánsson, frá W'vnvard, og Ingibjörg Vopni, dóttir ólafs Vopna hér i bæ, voru gefin sáman i hjónaband af síra Friðr. .1. Bergmann, að heimili Guðmundar Árnasonar, 932 Ingersoll St. Brúð- Iijónin ferðuðust suður til Dakota sama dag. Þorvarður Sveinbjörnsson og Tómas Þórðarson, frá Langruth, em tilheyra Strathcona llorse, lögðu af stað með nýjrn liði til Englands á laugardagsmorguninn var. The Xikiny Amateur Athletic Club, sem er að æfa sig fyrir íslendinga- daginn, með fullvissu um, að þeir muni taka skjöldinn frá “Grettir” þetta ár, hafa fengið leyfi til að æfa sig á leikvelli bæjarins á Sargent Ave. og Downing St. Þeir hafa þar ágætt pláss til æfinga, afgirt og prí- vat, og þeir bjóða öllum, sem vetl- ingi geta valdið, að koma og taka þátt í þessu.— Æfingar verða haldn- ar á þriðjudögum og fimtudöguin í hverri viku kl. 7 e. m. og á laugar- dögum kl. 2 e. m. , Margir eru liér nú íslendingar úr fjarlægum bygðum. Höfum vér séð þá úr Mouse River dal í Norður- Dakota: George Freeman, fyrrum þingmann í Norður Dakota; George Goodman; B. T. Benson; Sigurð Johnson: Svein Wéstford. Og voru hinir tveir síðastnefndu hér á kyrkju þingi Lútersmanna; en hinir að skemta sér. Einnig: Jónas Samson, frá Krist- nes, Sask.; Sigurð Sigurðsson, frá Gardar, N. Dak.; Sigurgeir Péturs- son, frá Narrows, Man.; Jón Péturs- son, frá Gimli, og Sigurð Sigur- björnsson, frá Árnesi. Á sunnudaginn 27. júní fermdi síra Rögnv. Pétursson norður við íslendingafljót eftirfylgjandi ung- menni: Kai>itolu Júmdóttir Sigvaldason. Valdína Sieinunn Jónsdóttir Siy- valdason. Albert Marinó Sveinsson Thorvalds- son. Gunnar Sólmundur Svcinsson Thor- valdsson. Sveinþór Lcó Sveinsson Thorvalds- son. Porkell fíjarnason Jóhannsson. Sunnudagskveldið var, þann 27. júní, var haldin rausnarleg skírnar- veizla að heimili Sigurðar Vídal við Hnausa. Um þrjátíu manna sátu í boðinu. Um kveldið voru skírð tvö sönarbörn hans, börn þeirra Mr. og Mrs. Sigurðar Vídals. Hétu þau Sol- veig og Haraldur. Skírði síra Rögn- valdur Pétursson frá W’innipeg. — Samsætið hélzt fram undir miðnætti að gestir fóru heim . Jóhann Goodman og Ásta Lára Marja Pétursson, bæði til heimilis í Winnipeg, voru gefin saman í hjóna- band af síra Búnólfi Marteinssyni, að 49, Lipton St., laugardaginn 26. júni. , Ilinn 27. júní voru þau Thorsteinn Júlíus Anderson og Anna Johnson, bæði til heimilis i Winnipeg, gefin saman i íhjónaband að 493 í.ipton St., af síra Búnólfi Marteinssyni. Wilson forseti neitar mútu. Einn peningainaður Bandaríkj- anna bauð Wilson forseta millíón dollara mútu, ef hann fengi að kaupa 355,000 Krag-Jörgensen rifla. En W’ilson forseti neitaði fljótlega. — Biflarnir voru gamlir, en maðurinn ætlaði að selja þá einhverjuin af þeim, sem nú eru að berjast, fyrir eiithvað miili 7 og 1-7 millíónir doll- ara, að sagt er. Næsta sunnudagskveld verður umræðuefni í únitarakyrkjunni: ósamræmið milli breytni og trúar- hugfngnda. — Allir velkomnir. Reynt að sprengja upp í Ontario. Þýzkir reyndu nýlega að sprengja upp verksmiðju í Ontario. Það var við Walkerville, nálægt borginni W'indsor. Þeir geta hengt keisarann. Nú geta Bretar þó lögum sam- kvæmt hengt Vilhjálm .keisara — ef þeir ná hónum; því að tvisvar er Lviðdómur búinn að úrskurða hann sekann um morð. Fyrri kviðdóm- urinn dæmdi hann sekan um morð manns eins, sem druknaði á Lusi- taníu; og var kviðdómur só haldinn yfir líki einu af Lúsitaníu i Queens- town á írlandi. En hinn var haldinn í Ramsgate á Englandi — yfir liki manns eins, sem sprengikúla deyddi er einn Zeppelin Vilhjálms sendi niður. Og sé keisarinn sekur um morð þessi, sem enginn vafi sýnist á vcra -— um hvað margar milliónir niorða er hann þá ekki sekur, hann “Vilhjálmur blóð”? Og hvað mörg millíón sinnum ætti hann ekki að hengjast, ef að réttur væri látinn yf- ir hann ganga! , Fréttabréf. Nome, Alaska, 13. júní 1915. Heiðraði ritstj. Hkr. Veðrátta hélzt að heita mátti sú sama fram i maí: snjóa- og vinda- söm, og siðan því linti hefir verið fremur kalt og er því enn talsvert um snjó; t. d. 3. þ. m. var á sum- um stöðum mokað af gangstéttum bæjarins meira en fimm fetum af snjó. Nú í fáa daga hafa verið sum- arhlýjindi og hefir snjónum því gef- ist fararleyfi ótrúlega vel. ' Gull uppskeran eftir vetrarvinn- una er langt komin, og er sögð meiri en að undanförnu. Blöðin segja, að bankaáætlunin sé, þegar alt sé kom- ið inn, frá 300,000 til 350,000 doll- ars. Sumar námuvinna hefir byrjað á fóum stöðum og almennur undir- búningur er á góðum vegi. Gufubáturinn ‘Corwin’ hafnaði sig liér þann 24. f. m., og var mjög kær- kominn eins og vant er; hafði um 100 farþega og mikið af aldinum og garðmat, sem smakkaðist ágætlega. Skipið lagðist við ísbrúnina, sem var um mílu breið frá landi, og var þvi öllu skipað upp á hundasleðum. Tollskipið ‘Bear’ hafnaði sig hér þann 28. f.m.; og var mjög kærkom- ið fyrir þá skuld, að það hafði 13 ton af pósti innbyrðis, og fékk eg þar mikinn hluta af Heimskringlu fyrir vetrarmánuðina. Þann 3. þ.m. kom litla eim-skonn- ortan ‘Silver W'ave’ hingað; en hún hafði farið til St. Michael fyrst, kom þar þann 1. þ.m. Meðeigandi og skipstjóri, landi okkar Christ Guð- mundsson, sagði að ferðin frá Seatt- le og hingað hefði verið eins góð og gengið eins vel og ferðin út héðan næstliðið liaust hefði verið slæm og gengið illa. Hann sagði, að það sem hefði birzt í Seattle blaðinu — sem eg sendi yður síðastliðinn vetur — væri aðeins lítið sýnishorn af háskanum og stríðinu, sem skipið og skipshöfnin hefði verið i; og ef hann segði söguna eins og hún virki- lega hefði verið, þá myndi cnginn trúa henni. í suinar heldur hann uppi ferðum aftur og fram með ströndinni hér; flytur farþega og póst og viirur, og býst við að hafa nóg að gjöra. Eftir að hafa gjört við skipið í vctur sem leið, fór hann í heilag- fiskis veiðar og gjörði vel; en áður en hann lagði upp í ferð hingað í ,vor tók hann skip sitt upp í skipa- kvi í Seattle, og hafði þar talsverðar umbætur gjörðar, sérstaklega á far- Jiegarými og fleiru því tilheyrandi. Eimskipið ‘Victoria’ hafnaði sig snemma morguns þann 10. þ.m. og eimskipið ‘Senator’ snemma morg- uns þann 11. þ.m. og höfðu samlagt um 800 farþega; svo það er margt um manninn rétt núna i Nome. Verkamarlnafélagið hér gekst fyr- ir stríði, sem hafið var á hendur Bakkusi. Atkvæðin féllu þó þeim gamla í vil; og það mcrkilegasta við það var, að sagt er að meira en helmingur af atkvæðum kvenna hafi verið með Bakkusi. Svartur blettur á kvenþjóðinni í Nome(?). , S. F. fíjiirnsson. Hið íslenzka FrætJafélag. héít ársfund sinn 14. mai I9i5. For- seti skýrði frá fjárhag og störfum fé- lagsins á umliðna árinu. Út hcfir komið frá félaginu: Afmœlisril lil Dr. lír. Kaalunds og Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalins, 1. bd. 3. hefti. Auk þess hefir félagið sent út 4. og síðasta bindi af Ferða- bók Þorvalds Thoroddsens, sem liann hefir gefið því. Næsta ár verð- ur gefið út framhald Jarðabókarinn- ar og byrjun á nýju riti eftir Þor- vald Thoroddsen : Árferði á fslandi í þúsund ár. Endurskoðaðir reikn- ingar félagsins voru lagðir fram og samþyktir. Að lokum var endurkos- in stjórnin: Mag. art. Bogi Th. Mel- steð formáður. Próf. Finnur Jóns- son féhirðir, og bókavörður við kon- inglega bókasafnið Sigfús Blöndal skrifari og bókavörður. Lesið þetta Þessir menn selja bók mína hér í landi: — Magnús Hjörleifsson, W'peg Beach. Stefán Eldjárnsson, Gimli. Sigurðsson Bræður, Árnes. Victor Eyjólfsson, Riverton. Jóhann K. Johnson, Hecla (Mikl- ey). Gunnl. Hólm, Vidir Níels Hallson, Lundar. Sfcphan StcphahSolí, Dög fíré'ék'. J. K. Jónasson, Dog Creek. St. O. Eiríksson, Oak View. Th. Stephansson, Winnipegosis. G. J. Oleson, Glenboro. Jósep Davidson, Baldur. Gísli Eyjólfsson, Lögberg, Sask. P. J. Norman, KFÍstnés, Sask. J. H. Líndal, Holar, Sask. Stefán Johnson, Wynyard, Sask. Tómas Þorsteinsson, Church- bridge, Sask. . , Þorsteinn Borgfjörð, Vancouver, B C. J. A. J. Líndal, Victoria, B. C. B. S. Thorwahlsson, Akra, N. D. Magnús Bjarnason, Mountain, N.D. Mrs. Joh. Sigurðsson, Upham, N.p. Mrs. J. Johnson, Blaine, Wash. John Westman, Seattle, Wash. II. S. Bardal, Winnipeg. E. J. Skjöld, W’innipeg. S. J. Austmann, 247 Lip.ton St., Winnipeg. Til Mr. og Mrs. H. Kristjánsson á brúðkaupsdaginn 23. júní 1915. A’/í skin i heiði heilla og gleði dugur, Á himni vonar Ijómar brúðkanpssól í hjúskap bindast sveinn og svanni fugur ()g setjast I hinn gullna tignarstól. Og allir gleðjast, breiða blórn á veginn Og blessun tjá, sem framast verður skýrð, Að farsæld blið, scm fléttar heiðurs sveiginn, Þeim fglgi nú í allri sinni dýrðl Vér heiðrum brúður; hún er kvenna prýði Og hún á mikinn dggða og kærleiks sjóð! Vér sáum hana standa í sorgarslríði, Hún var stilt sem hetja, — jufnun blíð og góð. Hún föður sinn og sgstkin tók að annast, Er svift voru stoð og börnin móðurlaus. Og við það hlýtur heimurinn að kannast, Að hreinni skyldurækni enginn kaus. “Sin eigin verðlaun” sögð er dáð og dggðin. Á dagirín kemur oftast regndin sú. Hjá þeim, sem stöðug stendur sama trggðin Hún stóran sigtír vinnur þá og nú. Vér megum gleðja oss, ajöfin er sú bezta, Sem góður maðitr hér á jörð sér kýs. Að fura vel með, sögð er sælan mesla, Sú sambúð verður eins og Purudis. Vér felum brúðnr brúðgumannm kæra í beztu von og trú ii — guð og hunn, Að þessi dagur fögnuð iríegi fœra, ' Sem framar skilur ei við nokkurn mann. Svo verið sæl og safnið auð og dggðum Við 'sífelt heiðrikt lífsins fagra hvel. í einum hug og órjúfandi trygðuni þið altrar gæfii njótið lengl og vel. C:: r- C. D. —— •' '■——- ■ cw.t- y.e Hlutleysi. Það var í lögurn hins nafnfræga löggjafa Grikkja Solons, að þeir, sem hlutlausir væru og víldu með hvor- ugum vera, í upphlaupum eða öfriði þjóðar sinnar, skyhlu opinberlega svívirtir: allar nafnbætur af þcim teknar, og oft voru þeir að þræluni gjörðir. Það voru hörð lög þetta, sem mörg önnur lög Sólons. En nú eru menn farnir að sjá, að þau voru réttlát. Uppreistin er nú ekki hjá einni þjóð, hellur uni allan heini. Man'n- kynið alt, að heita má, á hér hlut að máli. öðrumegin er aflið, blóð- ugt og grimt, samvizkulaust, sém engir eiðar eða svardagar halda; — hnefarétturinn, sem brýtur öll lög og hlífir engu. Hiuumegin eru þeir, sem hnefinn er reiddur að. Þeir lísa upp við höggið. Þéir eru ræiitir, rúðir, myrtir; 1 konur þeirra sví- virtar, en börn á spjótsoddum bor- in. Það eru hugmyndir, sem nú eru að berjast; öðrumegin er dollarinn, djöfullinn og hnefinn; en hinu meg- in er frelsið, sjálfstæðið,'trúin og vonin á mannréttindin, á réttlætið, á persónulega tilveru. Og daglega hniga menn niður i þessum hroðaleik þúsundum sam- ano og þúsundir falla úr hungri í hinum eyddu bygðum. Húsin eru brend yfir höfði Jieirra; gripir Jjeirra teknir tii slátrunar af óvin- unum og matvæli öll tekin handa hermönnunum. F'ólkið flýr nakið og klæðlitið út í skógana ög hryniir J>ar niður. Og þó eru ffienn að lialda fram málstað þeirra manna, sem þessu valda, — málstað hnefaréttar- ins. Þeir segjast ekki vita, rneð hverjum þeir eigi að vera: Eiðrofun- um og griðníðingunum og barna- morðingjunum, eða þeim, sem á mótl Jreim berjast! Menn gæta þess eigi, hve mikil siðspilling er fólgin í þvi, að fylgja þessum mönnum, sem hnefaréttin- um lialda fram. Menn get i eklii eriið hlutlausir milli hins illa og góða, milli kúgunar og frelsis. (Massini, i Westminster Beview árið 1852). MRS. PANKHURST. Hin nafnfræga kvenfrelsiskona, Mrs. Pankhurst, flutti nýlega ræðu á vikufundi Woineiis Social and Pol- itical Union í London og sagði með- al annars: , “Vér töpum í þessu stríði, ef að' konurnar eru ekki notáðar einsog karlmennirnir. Konur þrá það á-l| kaflega heitt, að hjálpa þjóðinni og ríkinu alt sem þeim er mögulegt, þegar og meðan að voði þessi stend- { ur yfir. Nú vinnur hálf millíón ! kvenna á Þýzkalandi að því að búa I til skotfæri. Og það er mjög leiðin- legt að vita til þess að Þýzkaland) skuli vera búið að sjá og skilja hvað konan getur gjört en England ekki. Vér bjóðum stjórninni vinnu vora og erum reíðubúnar að mynda sveit- ir af konum og koma skipulagi á Jiær; og halda fundi um alt landið til þess að safna konunum saman til þess að hjálpa til við stríðið. -y- Þá kallaði einhver úr áheyr- endahópnum: “Atvæði fyrir kven- menn!”. — En Mrs. Pankhurst svar- aði honum á augabragði og mælti: “Eg vildi óska að l>ér allir sæjuð og skilduð það, að atkvæði fyrir konur og alt sem þeirri hugmynd fylgir, er nú undir stríði þcssu kom- ið. Kf að vér töpum, þá eru öll lík- indi til þess, að baráttan fyrir kven- réttindum og atkvæðum þeirra, falli alveg um koll, og ekki einungis það, heldur að atkvæðisréttur karlmanna lari sömu förina.” BÚMGOTT HERBERGI ER TIL LEIGU, með húsbúnaði eða án hans, hjá Hjáhnari Gíslasyni, 506 Newton Av. KENNARA VANTAR fj-rir Asham Point School Districf No. 1733 fyrir sex mánaða kenslu. Kenslutíminn er frá 1. sept. 1915 tij 31. des. 1915, og svo frá 1. marz til 30; apríl 1916. Uinsækjandi tiltaki mentastg og kaup. Tilboðum veitt móttaka af undirskrifuðum til 31. júlí 1915. IV. A. Finneg, Sec’y-Treas. Cayer, Man. ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ. um heimilisréttar’önd í Canada Norðvesturlandinu. Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu al sjá eöa karlmatSur eldri en 18 ára, get- ur teki"ð heimilisrétt á fjórðung: úr section af óteknu stjórnarlandi í Man- sækjandi verður sjálfur að koma á itoba, Saskatchewan og Alberta. Um- landskrifstofu stjórnarinnar, eðá und- irskrifstofu hennar í því héraði. 1 um- boði annars má taka land á öllum landskrifstofum stjórnarinnar (en ekki á undir skrifstofum) með vissum skil- yrðum. SKYLDUR—Sex mánaða ábúð og ræktun landsins á hverju af þremur árum. Landnemi má búa með vissum skilyrðum innan 9 mílna frá heimilis- réttarlandi sínu, á landi s»m ekki er minna en 80 ekrur. Sæmilegrt ívöru- hús verður að byggja, að undanteknu þegar ábúðar skyldurnar eru fullnægð- ar innan 9 mílna fjarlægð á öðru landi, eins og fyr er frá greint. 1 vissum héruðum getur góður og efnilegur landnemi fengið forkaups- rétt á fjórðungi sectiónar meðfram landi sínu. Verð $3.00 fyrir ekru hverja. SKYLDUR-Sex mánaða ábúð & hverju hinna næstu þriggja ára eftir að hann hefir unnið sér inn eignar- bréf fyrir heimilisréttarlandi sínu, og ,uk þess ræktað 60 ekrur á hinu seinna landi. Forkaupsréttarbréf getur land- nemi fengið um leið og hann tekur heimilisréttarbréfið, en þó með vissum skilyrðum. Landnemi sem eytt hefur helmills- rétti sínum, getur fengið heimilisrétt- arland keypt í vissum héruðum. Verð $3.00 fyrir ekru hverja. SKYLDUR— Verður að sitja á landinu 6 mánuði af hverju af þremur næstu árum, rækta 60 ekrur og reisa hús á landinu, sem er $300.00 virði. Bera má niður ekrutal, er ræktast skal, sé landið óslétt, skógi vaxið eða grýtt. Búþening má hafa á landinu i stað rækturiar undir vissum skilyrðum. W. W. CORY, Deputy Minister of the Interlor. Blöð, sem flytja þessa auglýsingu leyfislaust fá enga borgun fyrir. Sextíu manns geta fengið aðgang að læra rakaraiðn undir eins. Til þess að verða fullnuma J>arf aðeins 8 vikur. Áhöld ókeypis og kaup borgað meðan verið er að læra. Nemendur fá staði að enduðu námi fyrir $15 til $20 á viku. Vér höfum hundruð af stöðuin J>ar sem l>ér getið byrjað á eigin reikning. Eftir- spurn eftir rökurum er æfinlega mikil. Til þess að verða góður rak- ari vcrðið l>ér að skrifast út frá Alþjóða rakarafélaginu. INTERNATIONAL BARBER COLLEGE. Alexander Ave. Fyrstu dyr vestan við Main St., Winnieg. IslenzkTtr rffBsma'ður hér. *1*1" b- ™í D0M1NI0N BANK Hornl Notr* Unin« o( Sherbrooke Str. HöfilSstOU nppb---- ---* . d.lMMI.OOO VaraRjðtur. ... ---. . Z . 7.(HMMHMI 411ar elKDlr. . ., - . #78,000,000 Vér óskum eftír viUsklftum verz- lunarmanna ogr ábyrgumst tttj gefa- þeim fullnsegju. SparlsJóBsdelIcl vor er sú stærsta sem nokkur banki hef- Ir í borginnl. Ibúendur pessá hluta borgarlnnar óska ah skifta viti stofnun sem þetr vita ats er aigerlega trygg. Nafn vort er fulltrygging ðhiutlelka. Byrjiti sparl Innlegg fyrlr sjálfa ytiur, konu og börn. W. M. HAMILT0N, RáSsmaíur PHONK GARHY 3450 CARBON PAPER for TYPEWRITER—PENCIL— PEN Typewriter Ribbon for every make of G. R. & Co. 304 CANADA BLDG. Phone Garry 2899. Typewriter. Bradley BÆNDUR! Vér borgum hæösta verö fyrir Smjör, Egg og Hænsni. SkrifitS eftir upplýsingum Stephansson Fish & Produce Co. 247 Prineess St. Phone Gnrry 21)50 Wlnnlpefc. Ideal Plumbing Co. Gjörir allskonar “Plumbing,” “Heating” og við- gerðir; sérstaklega óskað eftir viðskiftum landa 736 Maryland Street Phone Garry 1317 G. K. STEPHENSON J. G. HENRICKS0N 1>Y- \ bUM rf . arrmÓ siioV! Pvb

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.