Heimskringla - 09.09.1915, Síða 8
BLS 8.
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 9. SEPTEMBER, 1915
To Day
The Bombay Buddha
A Melodrama in 3 acts.
When Spirits Moved — Nestor Comedy — School Days — L-Ko
Comedy and Official War Pictures.
COMING:—Wednesday and Thursday, September 22. and 23.
Blanche Chapman, Winnipeg’s Favorite Actress in
Mrs. Wiggs of the Cabbage Patch.
MAR/A MAGNUSSON
PIANO KENNARI
hefur nú byrj
óskar eftir ísh
at5 Piano kenslu og
enzkum nemendum.
940 INGERSOL ST.
WINNIPEG
Fréttir úr Bænum.
Hr. Páll Reylfdal, frá Lundar,
heilsaði upp á oss á þriðjudaginn.
Hann kom í bæinn til að vera við
Iþróttasamkepni, sem haldin var
að Stadium leikvelli á Yerkamanna-
daginn 6. sept., og var með honum
A. O. Magnússon, sá hinn sami sem
hefir unnið mílu og fimm míina
hlaupin á Islendingadaginn síðast-
liðin 2 ár. — Páll sagði oss þær
fréttir, að A, O. Magnúson hefði við
þessa samkepni unnið fyrstu verð-
laun í þriggja mílna hlaupi á Verka-
mannadaginn, og að þar hefði hann
kept við hina beztu hérlenda menn,
sem eru í Winnipeg borg, og að
enginn þeirra hefði komist nálægt
Magnússon. Páll álítur að ekki séu
þeir menn í Manitoba fylki, sem liafi
við Magnússon á 5 til 10 mílna kapp
hlaupi, og að íslenzkir íþróttamenn
yfir höfuð hér f fylkinu mundu ekki
standa á baki annara íþrótta-
manna, ef myndað væri allsherjar
fþróttafélag meðal íslendinga, til
þess að kepj>a sem Islendingar gegn
öðrum samkonar félögum.
Gei'in saman í hjónaband af síra
Magnúsi J. Skaptasyni hinn 3. sept-
ember: Mr. William Cook, cashier,
og Miss Fanny Skaptason, steno-
grapher. Athöfnin fór fram að heim-
ili hinna ungu hjóna, Suite 23 Els-
inore Apartments, Maryland Sti-eet,
W’innipeg.
Heimskringla óskar hinum ungu
hjónum til hamingju.
Eg vil biðja háttvirtan ritstjóra
Heimskringiu, að gjöra svo vel og
leiðrétta í næsta blaði fregnir þær
í 48. tölublaði Heimskringlu, er
hann hefir eftir mér undirrituðum,
þar sem hann talar um íslenzku ull-
ina, að Danir borguðu f>-rir hana
4—5—6 kr. pundið; ætti að standa
kílóið.
Jón þórðarson.
Látinn á Almenna spítalanum í
Winnipeg hinn 6. sept. þ. á. Thor-
bergur Thorvaldsson, frá Narrows,
Man. Jarðarförin fer fram frá Fyrstu
lútersku kyrkjunni á fimtudaginn
hinn 9. þ. m. kl. 2 e. h. Hin-s látna
verður minst frekara síðar.
Frúrnar í Tjaldbúðinni ætla
halda Coneert og Soeial hinn
sept. Prógram auglýst seinna.
að
22.
Bréf frá Jóel Péturssyni
25. júlí 1915.
Elsku móðir góð!
Fékk bréfið þitt í gærdag, skrifað
21. júní, og gleður það mig stórlega
að öllum liður vel. Okkur líður vel
hérna. Við vinnum aðeins í 4 kl
tíma á dag við það, að höggva nið
ur tré. — Við Péetur höfum ekki
ennþá fengið peningana, sem okkur
voru sendir; en höfum heyrt að
þeir væru í Munster, svo að við bú
umst við að fá þá í næstu viku. —
Vertu ekki, góða móðir mín, að
senda meiri peninga; því eg þarf
þeirra ekki, ef eg fæ böggulsend
ingu stöku sinnum. Það eru tveir
bögglar á leið til fnín frá Englandi
núna.
Biddu alla vini mína að skrifa
mér og skrifaðu oft sjálf. Pétur bið
ur að heilsa. Beztu kveðju til ykkar
allra.
Þinn elskandi sonur,
Jóel.
Utanáskrift Jóels Péturssonar: —
Prisoner of War.
Privatc J. Peterson — 1653.
8th Canadian.
Gefangenenlager 2. Munster im W
(Allemagne).
Block 4 Vogelsang.
Germany.
Bruni mikill í Winnipeg hinn
þ. m. Skaði metinn 35 l)ú.sund doll
ara. Var það vöruhús Bright &
Johnstons á Bannatyne St. Margir
voru þeir, sem töpuðu vörum sem
þar voru geymdar og annaðhvort
skemdust eða eyðilögðust alveg.
Látinn seinasta laugardag Pálmi
Einarsson, hálfbróðir þeirra Aðal
steins og Friðriks Kristjánssona,
fasteignasala hér f borginni. Ilann
var jarðsettur frá Únítarakyrkj
unni hinn 7. þ. m. Við jarðarförina
voru tveir prestar: Síra Rúnólfur
Marteinsson flutti húskveðju, en
síra Rögnvaldur Pétursson flutii
ræðu í kyrkjunni. — Pálmi sáiugi
var hagorður vel og hafa smákvæði
eftir Iiann við og við verið prentuð
í Heimskringlu.
Frétzt hefir með bréfi fi'á íslandi,
uð hr.Tlieódór Árnason fíólinspiiari,
sem var hér í Winnipeg um nokk-
urn tíma, sé nú kominn til Kaup-
mannahafnar og ætli að stunda
nám þar á beztu kenslustofnun
Kaupmannahafnar í þeirri grein, í
næstu þrjú ár. Herra Árnason hefir
haft stöðuga atvinnu á Hotel
Reykjavfk, síðan hann kom aftur
úr leiðangri sínum hingað.
ÞaS eru tvö Islandsbréf á Hkr.
árituS: Miss Inga J. Árnadóttir.—
Þessi bréf hafa flækst af einu póst-
húsi á annaS, þar til þau hafa nú
rekiS upp á Heimskringlu. Póst-
meistarinn á Lundar á þakklæti
skiliS fyrir aS hafa komiS bréfun-
um á rétta leiS.
Red Cross sjóSurinn.
Næstkomandi fimtudagskveld (f
kveld) verður söngæfing í Tjaldbúð-
arkyrkju, á vanaiegum tíma kl. 8.—
Gskað e reftir að allir, sem tilheyra
söngflokknum, sæki æfinguna.
o 30000 o
o o o Heílr þú Brúkað SILKSTONE o o o
o Hið ljómandi veggja mál. o
o o 1 >að Þvæst o o
o 30000. o
ÁSur auglýst ........... $2 77.45
S. S. Hofteig, Sr., Cot-
tonwood, Minn........ 5.00
Alls............. $282.45
T. E. Thorsteinson,
FéhirSir nefndarinnar.
Þjófurinn er að skoða sig í spegl-
inum í nýstolnum fötum og segir:
“Þau fara mér ári hreint vel,— bara
eg gæti nú stolið einhversstaðar ær-
legu andliti, þá væri eg góður”.
GOTT LAND TIL SÖLU nálægt Ár-
borg, Man. Nákvæmar upplýsing-
ar fást á skrifstofu Heimskringlu.
Hús til Leigu.
Til leigu er sex-rúma hús á Tor-
onto Street nærri Sargent Ave; verð-
ur laust 16. september. Með gasi og
ljósum og hitað með vatni. $15.00
á mánuði.
Einnig 11-rúma hús á Alverstone
Street. Fæst að öllu leyti eða parti,
með afarvægum skilmálum yfir vetr-
armánuðina.
Lysthafendur snúi sér til S. Vil-
hjálmssonar, 637 Alverstone St.
María Magnússon
píanókennari.
Eg sá auglýsingu í síðasta blaði
Heimskringlu frá nefndri stúlku, og
finst mér því rétt að’minnast henn-
ar fáeinum orðum, þar sem hún er
að byrja starf sitt sem kennari, og
almenningi því ókunnugt um hæfi-
leika hennar og þekkingu í því
starfi, sem hún er nú að byrja
kenslu í.
Ungfrú Magnússon hefir stundað
nám hjá mér í síðastliðin 5—6 ár, og
a-.tti mér því að vera kunnugt um
hæfileika hennar og þekking á fag-
inu, sem hún ætlar að kenna. Eg
get með ljúfu geði gefið henni mín
beztu meðmæli. María hefir ekki
einungis ágæta hæfileika, heidur og
einnig óbilandi ástundun og vand-
virkni og einlæga löngun til að
verða sér og öðrum að liði. Próf sfn
hefir hún leyst af hendi með ágæt-
um vitnisburði, og á nú aðeins eftir
eitt ótekið, til að hafa fullgilt kenn-
arapróf þessa lands.
Eg vona því að íslendingar láti
þessa ungu stúlku njóta þess, hve
mikið hún hefir lagt á sig, og ein-
læglega og án alls mentahroka bar-
ist við örðugleikana; og ekki sízt
þar sem mér er kunnugt um, að for-
eldrar hennar hafa stundum orðið
að skamta all-varlega til að geta
veitt henni þessa mentun, og við
sem höfum haft kynni af fátækt-
inni, ættum að geta sett okkur inn
í það.
Eg læt svo hér með fylgja ummæli
úr blöðunum Free Press og Tele-
gram, sem þau viðhöfðu um þessa
stúlku síðastiiðinn júnímánuð, þá
eg hafði Recital hér í bænum, og
sem eru svo lofsamleg, að við sem
íslendingar ættum að stórgleðjast,
að ein af ungu stúlkunum okkar
þjóðflokks hiýtur slíkt. — Ummæl-
in eru svona: —
“Miss María Magnússon, er lært
hefir hjá Mr. Jónasi Pálssyni, lék á
hljóðfæri þetta á Y.W.C.A. Audi
torium kveldið líinn .... þessa mán.
“Miss Magnússon leikur fyrirtaks
vel á píanó og var spil hennar fyrir-
taks lipurt og hljómfagurt”.—Tele-
gram.
“Píanóspil Miss Maríu Magnússon
kveidið hinn .... þ. m. í Y.W.C.A.
Auditorium var fyrirtaks gott frá
upphafi til enda. Hún er ein þeirra,
sem lært hefir píanóspil hjá Mr. Jón
asi Pálssyni, Miss Magnússon hefir
ágæta hæfileika til listar þessarar.
Hún fylgdi reglum listarinnar, en
bezt tókst henni við Sonata Beet
hovens, sem hún lék meistaralega
vel”,—Free Press.
Jónas Pálsson.
hjálpa. Hann söng einnig tvo ein-
söngva og var klappaður upp aftur
í bæði skiftin. — Einnig flutti síra
Rögnv. Pétursson snjalt erindi um
hjúkrunar tilraunir mannkynsins
frá fyrstu tfmum og fram á þennan
dag. Sagðist honum vel að vanda.
Á eftir prógrammi fór fram Tom-
bola, og urðu afurðir hennar $51.03.
Svo voru frambornar veitingar ó-
keypis af félagskonum.
Alls komu inn á samkomunni
$93’.25. Kostnaður nam aðeins $1.65,
því allir gáfu hjálp sína, og lánuðu
án endurgjalds þá muni, er til
þurfti. Hreinn ágóði, sem afhentur
verður C. F. Roland, Industrial Bur-
eau, Winnipeg, sem er móttöku-
maður Red Cross hjálparsjóðsins,
er því $91.60.
Þökk sé öllum, sem unnu að
þessu og sóttu samkomuna.
Fyrir hönd Kvenr. Kvenfélagsins
“Sigurvon”.
Gimli, Man., 6. sept. 1915.
S. J. Stefánson,
Orpheum Leikhúsið.
Hausttíðin á Orpheum stendur
nú sem hæst, og er þar vanalega
húsfyllir. Á hverri viku koma þar
fram hinir mestu listamenn úr Ev-
rópu, Bandaríkjunum og Austur-
löndum. Orpheum er hið bezta
leikhús f borginni. Þar eru hinir
beztu línutrúðar, særingamenn,
búktalarar, söngmenn, dansarar,
hörpusláttarmenn, söngmenn og
leikarar f heimi. Alt þetta geta
men nnú séð á Orpheum.
Frú Leslie Carter, einhver bezta
leikkona í Ameríku, verður þar, er
hún kemur í næsta mánuði til Win-
nipeg og sýnir Zaza. Carolina White
er önnur heimsfræg leikkona, sem
væntanleg er til Winnipeg, og mun
hún koma fram á hverri viku.
Frá því seinasta þriðjudag (7. þ,
m.) hefir inngangseyrir við “Matin-
ees” verið færður mikið niður. Nú
er verðið á öllu aðalgólfinu 25 cents
fyrir hvert sæti, en í “Balcony”
bekkjunum 15 til 10 cents. Þessir
iágu prísar gefa Winnlpeg frúnum
tækifæri til að bregða sér inn á Or-
pheum, þegar þær fara í búðirnar.
Og leikhúsið verður svalt og nota-
legt á heitum dögum. Komið með
ait yðar skyldulið.
Þakklæti.
Hér með
Sigurvon”,
þakkar kvenr. kvenfél.
Gtmli, öllum þeim, er á
inhvern hátt aðstoðuðu það við
amkomu, er það gekst fyrir að
haldin væri að Gimli 3. sept. síðast-
liðna viku, til arðs fyrir Reð Cross
sjóðinn.
Samkoman var vel sótt, fult hús
og nokkrir stóðu úti. Prógrammið
fór prýðisvel fram. — Söngflokkur
Gimli bæjar, æfður af Jónasi Páls-
syni, söng fjögur lög af snild, undir
stjórn herra Ásgeirs Fjeldsted, er
kom alla leið frá Árborg til þess að
Flugmannaskóli í
Winnipeg.
í seinasta blaði var getið um, að
í ráði væri að stofna flugskóla
þennan.
Fiug-skóla er ákveðið að stofna
í Winnipeg. Til að koma honum á
stofn þurfa 40 þúsund dollars að’
hafast saman; í sjóð af þessari upp
hæð eru nú þegar fengnir 25 þúsund
dollars, þannig; Manitoba stjórnin
gefur $10,000, Winnipeg borg $5,000,
og Col. Hamilton Merritt gefur $10,-
000. Forstöðunefnd þessa fyrirtækis
kveðst engan efa hafa á því, að þau
$15,000, sem enn vanta verði gefin af
prívat mönnum áður langt líður, og
verður þá strax tekið til starfa.
Manitoba stjórnin gefur einnig
eina flugvél af nýjustu og fullkomn-
ustu gjörð, til hernaðarnota.
I>eir, sem vilja læra flugið, geta
fengið tilsögn á skóla þessum. En
til þess að tryggja það, að þeim sé
full alvara að læra flugið, með þeim
ásetningi að ‘nota kunnáttu sína 1
þarfir herstjórnarinnar, verða þeir
að borga kenslugjald, sem þeim
verður skilað aftur að afloknu prófi.
Þarna er tækifæri fyrir einhvern
hugdjarfan Islending, að verða fyrst
ur vorrar þjóðar til þess að læra
að fljúga.
Bretar sökkva 4 skipum
Tyrkja.
í Hellusundum söktu neðansjávar-
bátar Breta nýlega 4 hermanna-
flutningsskipum Tyrkja. Þetta var
seinustu vikuna í ágúst. En rétt áð-
ur var einn flugmaður Breta búinn
að sökkva einu slíku skipi. Flestir
ai mönnunum fórust, er skipin
sukku, og voru það alt tyrkneskir
hermenn á leiðinni í herbúðirnar
þarna á Skaganum. Er nú svo kom-
ið, að hvaða fleytu, sem Tyrkir
senda út á Marmarahafið eða út í
sundin, þá er hún óðara sokkin er
hún kemst út úr landsteinunum. —
Ekki vita menn, þegar þetta er rit-
að (3. sept.), hvar ítalir hafa lent.
En sagt er að þeir hafi ætlað að
lenda 200 þúsundum á Skaganum.
En svo er þeim mjög ant um að ná
ströndunum á Litlu-Asíu, þar sem
Grikkir höfðu bygðir til forna.
Edvard Wavrinsky.
Maður sá, er óðinn flytur nú
mynd af, er Edvard Wavrinsky, rík
isþingmaður í Stokkhólmi, og yfir-
maður Góðtemplara-reglunnar um
heim allan.
Strax á yngri árum sínum tók E.
W. mikinn þátt í bindindis-starf-
semi Svía, og gjörðist þá Templar;
var hann Stórtemplar Svía kringum
1880, og tvö tímabil átti hann sæti
í framkvæmdarnefnd Hástúkunnar,
en svo nefnist yfirdeild og yfirstjórn
Góðtomplara, unz hann varð yfir-
maður hennar, og hefir hann haft
forustu hennar síðan, og ætíð verið
cndurkosinn (1908, 1911 og 1914) í
einu hljóði.
Starf ]>að, er hvílir á herðum Há-
templars (svo nefnum vér templar-
ar yfirmann Reglunnar), er mjög
mikið og oft vandratað milli skers
og báru. Á hans herðum hvílir um-
sjón með útbreiðslu Iteglunnar um
heim allan, einkum og sérstaklega í
eim löndum, þar sem engin Stór-
stúka er til. Hann verður að hafa
eftirlit með Stórstúkunum og sjá
um að samræmi sé í starfi þeirra og
lögum, auk margs fleira. Þessi störf
eru mjög umfangsmikil og þarf sá,
er hefir þau með höndum, að geta
helgað starfinu nær alla krafta sína,
— hann verður bæði að vera lipur
og þó um leið stefnufastur; hann
verður að vera málamaður (ef vel
er) og vel mentaður á alla lund. —
Og þetta eru miklar kröfur, en E.
I-----------:------------------—
TIL ISLEND/NGA!
Þeir sem ennþá ekki hafa keypt rafurmagns eldavél mína,
gefst ennþá kostur á að kaupa hana eða panta hjá sjálfum
mér, eða umboðsmönnum mínum: MARSHALL WELLS,
SCHILLINGS & SON., Winnipeg. Þessar eldavélar eru viður-
kendar þær beztu á markaðinum af öllum sem hafa reynt þær.
Verð er eftir stærð og gerð, frá $7.00 til $75.00, borgunar skil-
málar eftir samningum.
Leitið fi'ekar upplýsinga til mín
PAUL JOHNSON,
Phone Garry 2379. 761 William Ave. WINNIPEG
P.S.—Ennfremur geri eg rafurmagns leiðingar, Plumbing og
gufu upphitun, og allar viðgerðir þar að lútandi
PAUL JOHNSON.
SJÖNLEIKUR------OG----DA NS
fer fram í Good-templar húsinu
Fimtudagskveldið 16. September, kiukkan 8.
—NEI-IЗ
er leikur sem allir þekkja og öllum geðjast að; það verður
leikið af æfðum leikendum. Ennfremur verða þar ræður, ein-
söngvar og fleira. Ágóðinn til hjálpar veiku fólki.
DANS Á EFTIR. AÐGANGUR 25 CENT
W. fullnægir þeim öllum. Hann er
maður sérlega vel gefinn; lipur og
samvinnuþýður, en þó um leið
stefnufastur og þéttur fyrir; sést
það á allri framkomu hans bæði
utan Reglu og innan, og er hann
hámentaður með afbrigðum.
Reglan hefir á stjórnarárum E.
W. aukist mjög og er nú meðlima-
fjöldi hennar orðinn all-álitlegur;
alls var hann 680,665 1. febl'úar 1914,
eða 7 sinnum fleiri en allir Islend-
ingar. — Það er því auðsætt, hví-
líkt feikna-starf það er, að hafa for-
ustu mála þeirra. Og þegar um út-
breiðslu Reglunnar er að ræða í
löndum þar sem hún hefir eigi áður
verið, þá eru oft ýmsar, oss lítt
skiljanlegar, torfærur á leiðinni. Á
Rússlandi t. d. eru bönnuð leyni-
télög, og af því Reglan er það, fékk
hún ekki landgöngu þar. Þó er því
máli nú lokið svo fyrir tilstilli hr. E.
W. að keisarinn hefir veitt henni
leyfi til að starfa þar í landi. Sum-
staðar eru trúmálin, ýmist eru bæk-
ur Reglunnar taldar oftrúaðar eða
ekki nógu trúaðar (kaþólskir). —
Reglan hefir meira að segja klofnað
oft af trúarlegum ástæðum. Fyrir
öll þessi annes hefir E. W. stýrt,
sem framast hefir verið auðið, að
verður ekki annað sagt, en að hann
hafi þar sýnt bæði lægni og stjórn-
vizku. En E. W. getur líka verið
einbeittur, og þarf eki annað til að
sýna það en minna á sögu Dana, er
ölmálið var þar á dagskrá.
Wavrinsky er ekki mikill fyrir
manni að sjá: Er hann maður lág-|
ur vexti og grannur að sama skapi,
en ber sig vel; er frár á fæti.. Hann
er látlaus, kurteis og alúðlegur í
öllu viðmóti. Ræðúmaður er hann
agætur, skjótur að liugsa og talar
rökrétt og þó um leið skemtilega.
Á Hástúkuþingum er kosin yfir-
stjórn Templara. Á þinginu síðast-
liðið vor var eigi víst um ])að, hvort
E. W. gæti komið, því liann var
sjúkur, enda orðinn maður við ald-
ur, rúmlega hálfsjötugur; en sjald-
an eða aldrei hefi eg verið við-
staddur þar sem meiri gleði, samúð
og virðing lýsti sér, en meðal Há-
stúkumanna, er E. W. gekk inn í
stórþingssalinn í Kristíaníu, þar
sem fundurinn stóð. Þar var mér
þá ljóst, að hér var um þann mann
að ræða, er hafði allra samhug og
virðingu, hverrar þjóðar sem þeir
voru; en svo mun trauðla vera
hægt að segja um neina þar, nema
um Englondingana Malins og Hay-
ler og ef til vill um þá Lars O. Jen-
sen, skólastjóra í Bergen, og dr.
Bergmann í Svíl)jóð. En allir hafa
þessir menn f mörg ár verið framar-
lega eða fremstir í bindindisstarf-
inu og Malins í fjölda mörg ár Há-
templar. Og það þarf mikinn mann
til að ná þeim tökum, því að þjóðar
metnaður kemur þar fram eigi síð-
ur en annarsstaðar.
Wavrinsky ætlaði að heimsækja
oss íslendinga í sumar, en hætti við
það sökum stríðsins, og er það leitt,
því mörgum hefði hér orðið kær
koma hans, og gott hefði af henni
leitt fyrir málstað vorn bann-
manna.
Wavrinsky gekk á herskóla í Sví-
þjóð, og hefir foringi verið; ep síð-
an var hann um mörg ár forstöðu-
maður lífsábyrgðarfélaga í Stokk-
hólmi. Hann var mjög handgeng-
inn óskari II. Svíakonungi. Um
langt skeið hefir hann verið ríkis-
þingsmaður og átt sæti í efri mál-
stofu sænska ríkisþingsins. Hefir
hann jafnan verið einn af aðal-
mönnum flokks síns, ef ekki for-
iugi hans. Hann er maður kvæntur
og á upp komin börn. Og ætlaði
kona hans, sem er honum samhent
í starfi hans, að koma með honum
hingað, hefði af þeirri för orðið.
Auk bindindismálsins hefir E.
Wavrinsky beitt sér mikið fyrir
friðarmál. Á þjóðafundi, er hald-
inn var í fyrra, og eg kom á af hend-
ingu, var hann aðalræðumaður, og
fyrir nokkrum árum var mjög tal-
að um, að honum yrðu veitt verð-
laun Nóbels.
Eg er þess fullviss, að hver sá, er
honum kynnist, dáir hann, og að
allir kunnugir ljúka upp einum
munni um það, að hann sé sann-
kallað mikilmenni.
Reykjavík í júní 1915.
Pétur Zophoníasson.
— “Óðinn”.
Hjónin höfðu verið að tala um
nýtízkukjóla og sagði maðurinn:
“Þessir nýtízkukjólar opinbera hé-
gómaskap mannlegs hjarta”.
“Ósköp eru að heyra þetta, góði
minn! Aldrei hefi eg nú séð neinn
kjól, sem ekki var síðari en það”.
Eru börnin farin
a<5 læra aí spara
PENINGA ?
OFCANADA
Hver uppvaxandi sonur þinn og dóttir ætti að hafa
persónulcgan sparisjóðsreikning á Union Banka Canada
ásamt nægum tækifærum til að spara stöðugt peninga
og leiðbeiningu í því að fara hyggilega með þá- Svo-
leiðis uppeldi í sparsemi og góðri meðferð efna sinna er
ómetanleg seinna meir.
LOGAN AVE. OG SARGENT AVE., 0TIB0
A. A. Walcot, bankastjóri
» ' ■ ............- I ---M ......■!■■■
j